Tíminn - 01.12.1961, Blaðsíða 12
12
T í MIN N , föstudaginn 1. desember 1961
RITSTJORI HALLUR SlMONARSON
Þórólfur or
maður
Á miðvikudaginn undirrit-
aði Þórólfur Beck samning við
skozka knattspyrnuliðið St.
Mirren og er því kominn í rað-
ir atvinnumanna í knatt-
spyrnu, annar íslendingurinn,
sem leggur út á þá braut.
Samningur Þórólfs við St.
Mirren er til tveggja ára, og
að þeim tíma liðnum getur
hann endurnýjað samninginn
við félagið, en það hefur þó
forgangsrétt til að halda hon-
um áfram. Ef hann vill hins
vegar ekki halda atvinnu-
mennskunni áfram getur hann |
komið heim, að þessum tveim-j
ur árum liðnum. Fyrir að und-
irrita samninginn fær Þórólf-j
ur ákveðna upphæð, sem
rennur óskipt til hans, en
hann er einnig á föstu kaupi.
St. Mirren borgar leikmönn-
um sínum 24 sterlingspund á
viku '— sem er fastakaupið —
en einnig koma ýmsar auka-
greiðslur til. Fjögur pund fær
hver leikmaður, þegar liðið
sigrar, og tvö pund fyrir jafn-
tefli, og einnig er greitt fyrir
aukaleiki.
Þórólfur hringdi í gærmorg-
un til systur sinnar, Guðrún-
ar Beck, og sagði henni þessar
fréttir -,g lét hann mjög vel af
samningnum. Þórólfur sagði
einnig, að hann myndi koma
heim í frí fyrr en ætlað var,
eða níunda desember n.k., og
mun hann dvelja hér í fjóra
daga. Niundi desember er
laugardagur, en þann dag leik-
ur St. Mirren í skozku bikar-
keppninn? Eftir leikinn flýg-
ur Þóróifur svo heim, en verð-
ur að mæta aftur á æfingu um
miðja næstu viku.
- Gefcur fjví ekki íramar kikíS í íslenzka landsliðinu í
knattspyrnu, nema gegn atvinnumannabjóðmn eða
hann fái áhugamannaréttindi sin aftur.
Móoirin ánægð
Móðir Þórólfs, frú Rósbjörg
Beck, var mjög ánægð, þegar
hún fékk fréttirnar hjá dóttur
sinni, og þó einkum og sér í
lagi vegna þess, að Þórólfur
er nú væntanlegur heim eftir
nokkra daga. Það verður á-
reiðanlega glatt á hjalla hjá
þeim þessa daga að Lágholts-
vegi sex t Vesturbænum.
Þórólfur Beck er 21. árs,
þegar hann nú leggur út á
braut atvinnumennskunnar í
knattspyrnu. Hann er fæddur
21. janúar 1940. Foreldrar
hans voru hjónin Rósbjörg og
Eiríkur Beck. stýrimaðilr. sem
mörgum var að góðu kunnur
sém stýrimaður hiá Eimskipa-
félagi fslands. Eiríkur Beck
lézt af slysförum fyrir rúmum
10 árum Hann var þá stýri-
maður á Selfossi og slasaðist
til ólífis, þegar skipið var
statt í Leith, en hann féll nið-
ur í lest skipsiris. Börn beirra
hjóna eru tvö. Þórólfur og
Guðrún Beck, sem er tvítug að
aidri og vinnur í Apóteki
Vesturbæiar.
Þórólfur gekk ungur í
Knattspyrnufélag Reykjavík-
ur, KR, og keppti með því fé-
lagi í öllum flokkum þess við
?óðan orðstír. Hann var ásamt
Erni Steinsen fyrstur til að
liúka guilprófi í afreksþraut-
ÞÓRÓLFUR BECK
— annar íslenzki atvinnumaðurinn
I
um Knattspyrnusambands ís-
lands. Árið 1957 lék hann
fyrst i meistaraflokki KR, og
hefur verið fastur maður þar
sjðan, og ávallt vakið mikla
athvgli sém mjög skemmtileg-
ur knattspyrnumaður, og síð-
ustu ivö-þrjú árin hefur hann
verið vinsælasti knattspyrnu-
maður okkar og sett mestan
svip á landsliðið. Árið 1959
iék hann sinn fyrsta landsleik
í knattspyrnu. Það var gegn
Dönum á Laugardalsvellinum
í sambandi við undankeppni
Ólympíuleikanna. Þórólfur var
þá 19 ára, og er einn vngsti
maður, sem leikið hefur í
landsliðinu. Leikurinn fór
fram 26. júní og var 23. lands-
leikur ísiands í knattspyrnu.
Síðan hefur Þórólfur tekið
þát í ólium landsleikjum ís-
lands, eða átta talsins. Lék
hann mjög vel í mörgum
þeirra, en einkum verður þó
landsleikurinn við Hollend-
inga í sumar minnisstæður. ís-
land sigraði í þeim leik með
fjórum mörkum gegn þremur
og má segja, að Þórólfur hafi
„átt“ öll mörk íslands. Hann
skoraði eitt sjálfur og hinar
frábæru sendingar hans áttu
meginþátt í hinum þremur.
Þegar skozka liðið St. Mirren
kom hingað i sumar, fengu
forráðamenn félagsins þegar
augastað á Þórólfi, sem varð
til þess, að hann fór til Skot-
lands í haust og er nú orðinn
atvinnumaður hjá félaginu.
Hefur hann mjög sett svip á
'eik liðsins á Skotlandi síðustu
vikurnar.
Annar atvinnumaður okkar
Þórólfur er annar íslending-
urinn, sem gerist atvinnumað-
ur 1 knattspyrnu. Albert Guð-
mundsson var hinn fyrsti, en
hann hóf einmitt knattspyrnu-
feril sinn erlendis á Skotlandi,
þar sem hann lék sem áhuga-
maður, en það. varð til þess,
að félög á meginlandinu fengu
augastað á honum. Albert var
fyrsti Norðurlandabúinn, sem
gerðist atyinnumaður í knatt-
spyrnu, og ruddi því brautina
fyrir aðra leikmenn á Norður-
löndum í þessa atvinnugrein,
og hann var um langt árabil
einn dáðasti knattspyrnumað-
ur á meginlandi Evrópu. Og ef
að líkum lætur, og engin
óhöpp henda Þórólf, á hann
einnig eftir að verða eftirsótt-
ur leikmaður víða um heim,
sem varpa mun ljóma á nafn
íslands.
Hins vegar er ekki því að
neita, að íslenzk knattspyrna
verður nú fátækari en áður,
þegar Þorólfur hverfur í raðir
atvinnumanna, og hans verður
áreiðanlega saknað, þegar
knattspyrnan hefst aftur
næsta vor. Hann getur nú ekki
lengur tekið þátt í landsleikj-.
um okkar, nema þegar leikið
er gegn erlendum atvinnu-
mönnum, eins og t. d. í heims-
meistarakeppni eða Evrópu-
keppni landsliðanna. St. Mirr-
en mun þá gefa honum levfi
til slíkra leikja, ef þess verður
óskað. En hins vegar þýðir
ekki um það að fást, þó Þór-
ólfur gerist atvinnumaður.
Slíkt er vel skiljanlegt, þegar
hugsað er um þá möguleika,
sem góðum knattspyrnumanni
stendur til boða í sviðsljósi er-
lendra leíkvanga. Það eni eng-
ar smáupphæðir, sem góður
knattspvrnumaður getur unn-
ið sér inn á nokkrum árum.
Tíminn óskar Þórólfi til
hamingju með sitt nýja starf,
og vonar að honum farnist vel
í því á ókomnum árum, og á
reiðanlegt er, að margir munu
taka undir þá ósk. — hsím.
AÓTAWWAV/lW.'AVAYlW VyV.W.'.W/.V.W.WAVAWWJWAVAMWM ■AVAW.V.VAV.W.VAV.V.V.W.V.V.V.V.V.
Dundee til
Svíþjóöar
Ssensku meistararnir í knatt-
spyrnu, Elfsborg, voru nýlega á
keppnisferðalagi í Skotlandi og
léku þá m.a vig Dundee, skozka
liðið. sem kom hingað sl. sumar,
og nú er efst í skozku deildar-
keppninni. Leikar fóru þannig, að
Dutidee sigrað'i með átta mörkum
gegn tveimur. Svíarnir tóku þessi
úrslit nærri sér og töldu að þau
myndu spilla áliti liðsins heima
fyrir. Var það ráð tekið, að bjóða
Dundee til Svíþjóðar næsta vor.
og þá ætla leikmenn Elfsborg að
reyna að standa sig betur Eftir
nokikra leiki á Skotlandi hélt
sænska liðið til Egyptalands og
Líbanon. þar sem það mun leika
10 lei.ki næstu vikurnar Ferðin
muTi taka mánaðartíma, og verða
leikmennirnir komnir heim aftur
aétt fyrir jól.
Námskeið að Laugar-
vatni í skólaíþróttum
Á vegum íþróttakennaraskóla
íslands, var efnt til námskeiðs í
skólaíþróttuim fyrir íþróttakenn-
ara .Námskeiðið fór fram í Gagn-
fræðaskóla Austurbæjar og Barna
skóla Austurbæjar í Reykjavík,
dagana 28. ágúst til 8. september
1961.
Kennarar námskeiðsins voru:
1. Ulla Berg frá Svíþjóð. Hún
kenndi leikfimi stúlkna og lagði
sérstaka áherzlu á að kenna létt
stökk.
2. C. H Wyatt frá Bandaríkjun-
um, sem hér dvaldi á vegum Upp-
lýsingaþjónustu Bandaríkjanna og
Körfuknattleikssambands íslands,
kenndi karlmönnum körfuknatt-
leik Einnig kenndi hann stúlkun-
um lítilsháttar körfuknattleik, —
Karl Guðinundsson var túlkur
3. Einar Ólafsson og Ingi Gunn
arsson kenndu körfuknáttleik
meðan C. H. Wyatt var ókominn
til landsins. Stúlikunum kenndi
Einar Ólafsson svo til allan nám-
skeiðstímann.
4. Benedikt Jakobsson kenndi
körlum stökk á áhöldum og dýnu.
Einnig ræddi hann um þjálfun.
5. Hannes Ingibergsson kenndi
n
ðviar gera
jafntefli
Úrval úr sænsku knattspyrnu-
liðunum Norrköping og Göteborg
lék á sunnudaginn við úrvalslið
Hong Kong, sem hafði yfir í hálf-
leik, 2—1 Þetta er í fyrsta skipti,
sem sænsku leikmennimir missa
stig í Asíuför sinnL
körlum leikfimi fyrir drengi á'
barnaskólastigi. Hann hafði 10
drengi sér til aðstoðar.
6. Stefán Kristjánsson kenndi
körlum leiki og rifjaði upp tíma
seðla, sem Klas Thoresson, kenn-
ari sænska íþróttakennaraskólans, j
ketindi hér á námskeiði 1959.
7. Mínerva Jónsdóttir kenndi!
samkvæmisdansa og þjóðdansa. i
8. Unnur Eyfells annaðist, vegna
leikfimiæfinga og dansa, undirleik
á píanó.
9. Sigríður Valgeirsdóttir sagði
frá Alþjóðaþingi kveníþróttakenn-
ara, sem hún sótti í Bandaríkjun-
um á s.l. sumri.
Kvikmyndasýning var eitt lcvöld
ig og var þá sýnd læknisfræðileg j
mynd af hryggnum. Sigríður Val-:
geirsdóttir skýrði myndina.
Kennsla stóð alls í 11 daga og
fór fram daglega frá kl. 9,30 til
22.
íþróttáfulltrúi hefur séð um fjöl
ritun og dreifingu á námsefninu
til íþróttakennara.
Námskeiðið sóttu samtals 64 í-
þróttakennarar. Þeir voru ekki all
ir reglulegir þátttakendur. Sextíu
íþróttakennarar og þar af 35 kven
kennarar sóttu námskeiðig daglega |
og því nær alla kennslutíma. 1
Knattspyrnu-
menn flúðu
Eftir leik Glasgow Rangers og
austur-þýzka liðsins Vorvearts,
sem háður var í Malmö í síðustu
viku, komu tveir af leikmönnum
þýzka liðsins til lögreglunnar og
báðust hælis sem pólitískir flótta-
menn. Nöfn leikmannanna voru
ekki gefin upp. Rangers sigraði í
leiknuim meg 4—1, en áhorfend-
ur voru aðeins rúmlega þúsund.
Rangers kemst því áfram í keppn-
inni, en liðið vann einnig fyrri
leikinn, þá með 2—1.
SKIPAIJTGCRD RIKISINS
Hekla
austur um land í hringferð hinn
6. des. Vörumóttaka árdegis í dag
og á mánudag til Fáskrúðsfjarðar,
Reyðarfjarðar, Eskifjarðar, Norð-
fjarðar, Seyðisfjarðar, Raufárhafn
ar og Húsavíkur.
Farseðlar seldir á þriðjudag.
i