Tíminn - 05.12.1961, Síða 16

Tíminn - 05.12.1961, Síða 16
Einum leikaranum hefur verið hent svo off í gólfið, að í gær ákvað hann í að fara með jakhann sinn í hremsun, einkum vegna þess, að jakkinn er iánsfHk og von var á eigandanum í Iðnó um kvöldið. En sjálft leikritið er eins konar andieg efnaiaug, þótt það hafi ekki hrinið á þessum jakka. Stóra myndin er af Gísla og Steindóri, en minni myndin af Gísla og Helgu. Um þessar mundir sýnir Leikfélag Reykjavíkur amer- íska sjónleikinn Kviksandur eftir V. Gazzo. Við skruppum í Iðnó um daginn og læddumst að tjaldabaki. í hléinu verður okkur gengið niður í búnings- klefa í gömlu Iðnó, sem eru einna líkastir hásetalúkarnum á Súðinni gömlu. Þó er mikill munur á því þegar allt var þar óþiljað, gólfið ekki annað en sjávarmöl og rotturnar átu smínkið óhikað frá leikurun- um. Gjaldkeri Leikfélagsins, Guð- mundur Pálsson, situr og gruflar yfir reikningi frá Shemíu h.f. þeg- ar við komum niður. Hann tuldrar fyrir munni sér: Eitt gallon shampoo, sjötíu krónur, ein flaska rauður matarlitur, eitt glas af sósulit. — Hvað er gert við rauðan mat- arlit? spyrjum vér. — Það er rauðvínið sem þau drekka á sviðinu, segir Guðmund- ur Pálsson (Putti), og í staðinn fyrir viskí er notast við sósulit. Það er ódýrt sprúttið á senunni. En hætt við þau finni lítið á sér. Engin furða þó maður leiðist út í dópið, segir Steindór Hjörleifs- son og kemur í þessu niður stig- ann í einu svitabaði, skyrtan rifin, hárið úfið. Gjaldkerinn horfir á hann áhyggjufullur og ásakandi: — Það liggur við þú farir með i-eina skyrtu á kvöldi, segir hann. — Og það þessar dýifndis skyrt- mr frá P.Ó., segir Birgir Brynjólfs- son og horiir saknaðaraugum á skyrtuna. Treyjan í hreinsun En skyrtan gleymist fljótlega fyrir nýju próblemi. Gísli Halldórs- son (Póló) kemur hlaupandi niður og er mikið niðri fyrir: — Það gengur ekki lengur með þessa súpu. Hún er alltaf brimsölt og við sitjum þarna og tölum ekki um annað en hvað hún sé dauf á bragðið. Það verður að tala við dömuna! Leikstjónnn Helgi Skúlason stingur upp á því að láta dömuna bora einn disk af súpunni svo hún salti minna fyrir næstu sýningu. Það væri ekki beint í anda verks- ins að leikararnir grettu sig yfir súpu sem ætti að vera vatnsgut). — Og svo má ekki gleymast að láta símtólið á. Það er ekki hægt að láta áhorfendur heyra símann hringja og svo liggur tólið kann- ske á gólfinu. — Ég verð að fara að láta treyj- una mína i hreinsun, segir Birgir Brynjólfsson (epli), hún er öll orð- in óhrein af því mér er fleygt í gólfið. — Ógurlega geturðu verið pjatt- aður, segir Helga Bachmann (Celia). — Ég fékk treyjuna lánaða, svar aði Birgir, og eigandinn kemur á næstu sýningu. Eg get ekki látið hann sjá hana svona. Nútímasjúkdómur Helgi Skúlason leikstjóri hefur hlotið einxóma lof gagnrýnenda fyrir sviðsetninguna á Kviksandi. Hann fer einnig með lítið en mik- ilvægt hlutverk í leiknum, leikur eiturlyfjasalann sem er auknefnd- ur „Mamma“ og hefur ráð dópist- anna í henai sér. Skuggaleg undir- heimatýpa með dökk gleraugu og hanzka á höndum. — Hefur áður verið sýnt hér leikrit um eiturlyfjaneyzlu? — Þetta er fyrst og fremst mann eskjudrama, svarar leikstjórinn og tekur ofan glæpamannssvipinn, eiturlyfin eru ekki aðalatriði í sjálfu sér, þó það vandamál sé út af fyrir sig nógu tímabært. En dópið er nokkurs konar umgerð verksins, höfundur notar það til að velta dramanu af stað. Hann kafar dýpra, stefnir lengra. — Svo leikurinn á erindi við fólk þó það sé ekki forfallið í heró- in eða morfín? — Vissulega. „Kviksandur" fjall- ar um andlegan sjúkdóm sem er einkennandi fyxir okkar tíma, okk- ar öld: rótleysið, lífsóttann, hyl- dýpið milli föður og sona, blekk- inguna og lífslygina. Ekki betri Jonni (Steindór Hjörleifsson), er eini dópistinn í leiknum en bróðir hans og pabbi hans eru ekki hótinu skárri, þeir reyna líka að skjóta sér undan ábyrgðinni sem þeim er á herðar lögð, engu síður en sjúklingurinn. Þeir eru allir þrír með sama markinu brenndir. Pabbinn kemur til Bandaríkj- anna. sem innflytjandi frá Ítalíu, hann festir aldrei rætur í nýja iandinu. Þá fyrst fer allt að flosna upp, hann kemur strákunum af sér, kemur þeim á munaðarleys- ingjahæli, lætur þá flækjast á milli frændfólksins. Að vísu er mamma þeirra dáin, og karlinum er vor- kunn. En liann gerir ekkert fyrir drengina, þekkir þá ekki í raun 9g veru, lifir í blekkingum um þá. í augum hans er Jonní stríðshetj-’ an, fyrirmynd æskunnar. Ög sjálf-j ur þykist hann góður faðir sona j sinna. I Dóp fyrir mörg þúsund dali Svo er Póló, bróðir Jonna. Vístj þykir honum vænt um bróður sinn, j fórnar öllu fyrir hann. En það fer | allt í öfuga átt. Póló er ekki dóp- \ isti, en hefur ekki manndóm í sérj til að spyrna við fótum, kýs heldur j að skjóta öllu á frest. Hann forðast! að stinga á kýlinu. Hann mokar j peningum endalaust í bróður sinn, þangað til ekkert er eftir. Borgar fyrir hann eiturlyfin, mörg þúsund dali, selur bílinn sinn hvað þá meira. Hann gerir þetta síður en: svo til að leggja líf bróður síns í rúst, hann gerir það til að lina þjáningu hans, leyna fyrir sjálfum sér og öðrum hinu alvarlega á- standi. Hvorki Póló né faðirinn vilja leita til læknis og lögreglu þegar allt er komið í óefni. Póló: Meðan hann fær það, er ekkert að honum. Þig mundi aldréi gruna að hann væri neitt öðiuvísi en annað fólk. Og faðirinn segir: Við getum annast um hann öll í sameiningu. tFrjmhgiö a 2 siðu > ■■ 'v *s ■M Læknir kenndi Steindóri viðbrögð eiturætunnar

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.