Tíminn - 20.12.1961, Síða 3
Lokið yfirráðum Portú-
gala á Indiandsströnd
SÖKKT Porfúgalska freigátan Alfonso do Albuquerque, sem indverski flotinn sökkti skanimt undan Goa í
byrjun innrásarinnar.
SUKARNO FÆR-
IST I AUKANA
NTB—19. desember.
Talsverðar horfur virðast
vera á því, að deila Hollend-
inga og Indónesa um vestur-
hluta Nýju-Guineu, muni enda
á sama hátt og í Goa; vopna-
valdi verði beitt. Samt er búizt
við, að Sukarno Indónesíu-
forseti muni halda herjum sín-
um í skefjum um sinn, en
hann hefur tekið af allan efa
um, að Indónesía neyðist til að
grípa til vopnavalds, ef Hol-
lendingar halda áfram sömu
stefnu í málefnum Nýju-
Guineu.
Sukarno Indónesíuforseti hélt í
dag ræðu á útifundi. 100.000 til-
heyrendur fögnuðu ákaft, þegar
Sukarno bað her og borgara vera
reiðubúna undir innrás í vestur-
hluta Nýju-Guineu til þess að
hindra áform Hollendinga um að
Hinir stóru í
Kongó á fundi
stofna sjálfstætt riki i þessari ný-'
lendu sinni.
I
I
Hollendingar vilja semja
Talsmað'ur hollenzka varnarmála
ráðuneytisins sagði í dag, að Hol-
land væri fúst til samninga um
framtíð vesturhluta Nýju-Guineu.
Hann bar um leið til baka þær
fréttir, að hollenzki herinn í ný-
lendunni, 5000 manns, byggist við
árás á hverri stundu. Hollenzka
stjórni.n hyggðist ekki heldur
flytja hollenzka borgara úr landi
vegna yfirvofandi hættu. Hann
sagði, að' almenningur í vestur-
hluta Nýju-Guineu vildi miklu
fremur lifa í sjálfstæðu ríki held
ur en innlimað í Indónesíu.
Mörg Vesturlönd, þar á meðal
Bandaríkin og Bretland, hafa beð'
ið deiluaðila að reyna að koma
sér saman um ágreiningsmálið, en
láta ekki hnefaréttinn ráða.
NTB—Nýja Dehli, 19. des.
Portúgalska setuliðið í Goa
gafst upp klukkan sex í morg-
un, en þá hafði indverski her-
inn hafið sókn a8 nýju og
hafSi hertekið Panjim, höfuð-
borg nýlendunnar. Þar með
hafði Indland heimt allar ný-
lendur Portúgala í landinu.
Talið er, að ekkert geti hindr-
að Indland í að halda þessum
iandsvæðum, þrátt fyrir mót-
mæli víða að úr heimi. Þeir
njóta stuðnings velflestra
Afríku- og Asíuríkjanna auk
Sovétríkjanna og fylgiríkja
þeirra.
Chaudhuri hershöfðingi ind-
verska hersins kom í morgun til
Panjim og tók á móti uppgjöf Da
Silva, landstjóra í Goa.
LÍTIÐ MANNTJÓN
Candeth hershöfð'ingi hefur ver
ið skipaður bráðabirgðalandstjóri
í Goa. Hann segir að Indverjar
hafi misBt átta manns í sókninni
og mannfall hafi einnig verið lít-
ið af hálfu Portúgala. 1000 portú-.
galskir hermenn voru teknir til
fanga.
Innreið indverska hersins í Pao-,
jim gekk átakalaust og fullyrða |
Indverjar, að íbúar borgarinnar!
hafi heilsað hernum með miklum
fögnuði, sem og annars staðar á
sigurgöngunni.
ÖRYGGIBORGARA TRYGGT
Candeth, hinn nýji landstjóri, I
ságði, að öryggi allra íbúa nýlend-1
anna fyrrverandi væri tryggt,
hverrar þjóðar sem þeir væru.
Enginn þyrfti að óttast um líf
sitt eða eignir.
FÖGNUÐUR ÍBÚANNA
Nehru, forsættsráðherra Ind-
lands, sagði blaðamönnum í dag, í
að þeir, sem hafa gagnrýnt Ind-:
land vegna árásarinnar, hafi aug
Hershöfúing’nn J. N. Chaudhurl
stiórnaöi indversku innrásarhersveit
unum.
ljós'lega ekki skilið staðreyndirnar
i málinu. íbúarnir í nýlendunum
væru Indverjar og portúgölsku yf-
irráðin hefðu aðeins verið á yfir-
borðinu, enda hefði árásin aðei.ns
staðið yfir í sólarhring. Portú-
gölsku yfirráin hrundu á auga-
bragði, þrátt fyrir þúsundir setu-
liða þeirra. íbúarnir hefðu tekið
indverska herliðinu með fögnuði.
Árás Indverja hefur sætt mik-
illi gagnrýni í dagblöðum á Vest-
urlöndu'm. Hins vegar virðast
menn sammála um, að mótmæli
gegn árásinni verð'i ekkert annað
en pappírsmótmæli, sem breyti
engu.
Hrapaöi á
mannfjölda
og drap 30
NTB-Sevilla, 19. desember.
Þrjátíu manns létust og yfir
hundrað særðust í Sevilla í dag,
þegar flugvél hrapaði beint nið
ur á niannfjölda.
Þúsundir manna höfðu safn-
azt saman til þess að taka á
móti vörubílum hlöðnum klæðn
aði og matvörum frá Madrid
handa þeim, sem höfðu orðið
illa úti i flóðunum í Sevilla um
daginn. Flugvélin var í fylgd
með bíialestinni í litilli hæð,
þegar hún hrapaði skyndilega
í mannfjöldann.____
NTB—Leopoldville, 19. des.
Erkiféndurnir í Kongó, Cyr-
ilíe Aduola forsætisráSherra
og Moise Tsjombe Katangafo1'-
seti, komu báðir í dag til bæj-
Barizt
NTB-PARÍS, 19. desember.
Átök urðu í dag á götum París-
ar milli lögreglu og manna á
mótmælafundi gegn starfsemi
leynihreyfingar hægri manna í
Alsír, OAS. Um þrjátiu borg-
arar og tuttugu lögregluinenn
særðust í átökunum. 1000
nianna lögreglulið var sent á
vettvang, þegar fundarmenn
fóru hópgöngu um borgina,
þrátt fyrir bann lögreglustjóra.
Frönsku verkalýðsfclögin,
kcnnarastéttin og opinberir
starfsmenn gerðu í dag stund-
arfjórðungs verkfali til þess að
mótmæla hermdarverkum OAS
félagsskaparins. Var þátttakan
í verkfallinu almenn, milljónir
mánna lögðu niður vinnu.
arins Kitona viS mynni Kongó-
f I jótsins til þess sð ræ3a
ágreiningsmálin. HerliS Sam-
einuSu þjóðanna hefur um-
kringt bæinn til þess aS
hindra árás á hann meSan viS-
ræðurnar standa yfir.
j ,
j I Elisabethville hefur herlið S.Þ.
nú öll ráð. Það hefur hertekið
bækistöðvar námafélagsins og er
nú allt með kyrrum kjörum í borg-
inni. U-Thant hefur gefið herlið-
inu skipun um að hætta bardögum,
enda hefur það nú náð markmiði
sínu.
NauSugur einn kostur
í Vesturlöndum eru menn von-
góðir um samkomulag á þessum
fyrsta fundi þeirra Adoula og
Tsjombe. Benda sumir á, að
Tsjombe sé nauðugur einn kostur
að semja, bar sem her hans sé ekki
lengur til sem heild. Málaliðið og
i herlögreglan hafi verið bakhjarl
jhans í kröíunum um sjálfstæði til
j handa Katanga, en herlið S.Þ. hafi
: nú undirtökin i landinu. Þótt marg-
j ar borgir séu enn á valdi Katanga-
j hers, hefur mest gildi yfirráð S.Þ.
í Elisabethville.'
Adoula forsætisráðherra sagði
blaðamönnum í dag, að samkomu-
(Framhald á 15. síðu).
FLÝJA G0A í spennunni, sem var í Goa, áSúr en innrás Indverja hófst, var fjöidi portúgalskra kvenna
og barna flutt úr nýlendunni til Portúgal. Hér sjást flugfreyjur aðstoða konur og börn um
borð í flugvél, sem er á förum tii Portúgai.
\
T í MI N N, miðvikudaginn 20. desember 1961.
3