Tíminn - 08.02.1962, Blaðsíða 12

Tíminn - 08.02.1962, Blaðsíða 12
liiMÍÍiÍiliÉÍlitÍÉÍÍiMÍtiiiÍiÍáíáÍMÍWÍÍiÍ ÍÞRÚTTIR RITSTJORI: HALLUR SIMONARSON Zakopane — verSur miðdepill norrænu greinanna Heimsmeistarakeppni á feg- ursta staðnum í Póllandi Skíðaheimsmeistarakeppnin verður haldin í Zakopane dagana 18.—25. febrúar. Pólsku skíða- samtökin sjá um keppnina og skipuleggja hana, samkv. beiðni alþjóðaskíðasambandsins, F. f. S. Zakopane er Iítið dalþorp með afbrigðum fagurt, og iiggun við rætur High Tatra fjallgarðsins, þar sem landslag er talið hvað fegurst í Póllandi. Margar erfða- venjur fylgja þessum stað hvað snertir íþróttir, en einkum þó skíðaíþróttina. / Það var í Zakopane árið 1929, sem fyrstd alþjóðaskíðasamtökin voru stofnuð og síðar voru nefnd heimsmeLStaraskíðasamtökin. Árig 1939 var aftur haldið al- þjóðamót á skíðum í Zakopane. Varð svo langt hlé sökum styrj- aldarinnar í Póllandi og síðari heim sstyr j aj darinnar. Á FIS ráðstefmmni, sem hald- in var í Stokkhólmi árið 1959, var ákveðig að skipta keppninni, og verður annar hluti hennar hald- inn í Chamonix og hinn í Zako- pane. Þegar skipulagsstjórar unnn að lagningu skíðabrautanna, álitu þeir æskilegast. að áhorfendur gætu séð sem mest af leiknum hvar sem á keppnissvæðinu væri. Til þess að það væri mögulegt, takmörkuðu þeir keppnina á einu svæði. þ e. á Krokiew-vellinum. (Krokiew er nafn á einu þeirra fjalla. sem umlykja Zakopane) og munu keppendur fara að minnsta kosti tvisvar yfir völlinn og er þannig aðstaða áhorfenda mun betri og gerir þeim kleift að fylgjast betur með Ef slæmar aðstæður hindruðu færið. hafa skipulagsstjórar kom ið upp varabrautum fyrir skíða- kappana. sem staðsettar eru í Chyrla oa eru þar um 100—150 metrum fyrir ofan Krokiew-völl- inn. í fjöllunum. sem eru í 4 km fjarlæað frá Zakopane Hvernig. sem veðurskilyrði kunna að verða. fer skíðastökkið fram á báðum Krokiew-stökkpöll unuim. Völlurinn ásamt stökkpöllun- um og endamörkunum eru stað- sett í 1000 metra hæð, og í 1,5 km. fjarlægð frá Zakopane. Báð- ir stökkpallarnir voru reistir í eðlilagum halla. Þeir eru um- kringdir skógum og vísa í norð- urátt, sem gerir það að verkum, að minni hætta er á því að snjór inn bráðni. Áhorfendasvæðið myndar hálf- hring um völlinn og rúmar það 35 000 manns í sæti. Sá fólks- Fjórir landsleikir í knattspyrnu í sumar fjöldi, sem ekki á þess kost að sjá keppnina á vellinum sjálfum, get- ur séð hana á hinum víðáttumiklu bersvæðum i skóguf^jjp,fl|gn ;UgipíIfyííst; lykja vollinn. Allt áð ÍOO.OÖO út á i manns rúmast þar. í febrúar í fyrra tók úrval skíða- stökkvara þátt í stökkkeppninni, sem haldin var í minningu Broni- slaw Czech og Helenu Marusarz. Þá setti sovézki keppandinn Sha- mov brautarmet með 100 metra skíðastökki Frh. á bls. 15. I sumar mun íslenzka landsliðið í knattspyrnu leika fjóra lands- Ieiki og verða þrír þessara Ieikja hér heima, við Norðmenn, íra og Antillaeyjamenn. Þá verður og B-landsleikur í knattspyrnu við Færeyinga, og verður sá leikur einnig hér í Reykjavík. Ingvar Pálsson, ritari Knatt- spyrnusambands íslands, skýrði blaðamönnum frá þessu í gær, á fundi með stjórn sambandsins. — Gat hann þess, að mikið yrði um að vera í knattspyrnunni hér heima í sumar, því auk þessara landsleikja verða tvær félagsheim sóknir á vegum KR og Víkings. Fyrsti landsleikurinn hér, við Norðmenn hinn 9. júlí, er fyrir nokkuð löngu ákveðinn, en auk þess, sem norska liðið mun leika landsleik við hið íslenzka, mun það einnig taka þátt í einum auka leik, sem verður hinn 11. júlí. Norska liðið dvelur hér í fimm daga. Sem kunnugt er' tekur ísland nú í fyrsta skipti þátt í Evrópukeppni Iandsliða í knattspyrnu og munum við leika við írska fríríkið í þeirri keppni. Ákveðið hefur verið að báðir leikirnir verði í haust, en sem kunnugt er, þá er leikið bæði heima og að heiman. Leikirnir verða í ágúst og september, en ekki erú dagar ákveðnir enn, og heldur ekki hvar verður leikið Þar sem ísland var dregið undan, hefur það rétt til þess, að fyrri leikurinn verði í Reykja- vík, en írar hafa hins vegar óskað eftir, að fyrri leikur landanna verði á írlandi, en sem sagt, ákvörðun um það hefur ekki verið tekin enn þá. í þessa Evrópukeppni landsliða má nota atvinnumenn, og stjórn MICHELIN ALLT Á SAMA STAÐ (VUÚKIR, STERKIR, ENDINGARGÓÐIR Útvegum MICHELIN hjólbarða beint frá verksmiðjunum í FRAKKLANDI, BELGÍU, ÍTALÍU OG ENGLANDI MICHELIN hjólbarðar á allar tegundir farar- tækja, stór og smá MICHELIN er eitt þekktasta hjólbarðamerkið hér á landi. L.EITIÐ TIBOÐA STUTTUR AFGREIÐSLU- MICHELIN hjólbarðar fyrirliggjandi H.f Egill Vilhjálmsson Laugavegi 118 — Sími 2-22-40 Knattspyrnusainbands íslands hefur því farið fram á við skozka liðið St. Mirren, að það gefi Þór ólf Beck eftir í þessa leiki. Svar hefur ekki borizt enn þá, en fast lega má reikna með, að svar liðs ins verði jákvætt. Mjög kunmir atvinnuinenn eru í írska liðinu, og nær allir þeirra leika í ensk-' um atvinnuliðum. í september munum við kynnast knattspyrnumönnum frá hollenzku Antilleyjum. Landslið eyjanna"’ verður í haust í • keppriisför í ’ Evrópu, og á heimleiðinni mun" það koma við hér’, og leika einn leik, sem verður fullgildur lands- leikur. Sá leikur fer fram 16. sept. * sem er sunnudagur. Leikmérin Antilleyja eru allir svartir, leiknir ‘ mjög, en ekki að sama skapi harð ir eða miklir skotmenn, og of mikl ir einstaklingshyggjumenn, svö lið þeirra geti talizt gott. En gaman ” verður að kynnast töfrabrögðum svertingjanna með knöttinn. Árið 1959 lék íslenzka B-lands- : liðið í Færeyjum við landslið Fær... eyinga og sigraði með 5—2. Til að , endurgjalda þá heimsókn hefur, KSÍ boðið landsliði Færeyinga hingað í sumar, og mun það leika við íslenzka B-landsliðið. Sá leikur verður föstudaginn 2. ágúst, en færeyska liðið mun síðan leika á Akranesi, ísafirði og Akureyri. Landsliðsæfingar fyrir íslenzka-s landsliðið hafa ekki verið ákveðn ar enn þá, en það mál er. f undir-, búningi. Landsliðsnefnd er hin •• sama og í fyrra: Sæmundur Gisla- v son, Helgi Eysteinsson og Jakob Sigurðsson. í sambandi við lands - leikina við íra má geta þess, að dómari í leiknum hér heima verð-. ur Norðmaður, en Walesbúi á ír- landi. Úrslitaleikurinn í Evrópubikar-. keppninni í knattspyrnu verður, háður í Amsterdam hinn 2. maí (. n. k. Knattspyrnusambandið gctur útvegað miða á leikinn, ef ein- hverjir íslendingar hefðu hug á, því. Verður þá að panta miðana fyiir 15. febrúar n.k. Þeir kosta frá 3 gyllinum upp í 15, (gyllinið er á 12 kr.). , ÍR sigraði í körfuboita Afmælismót ÍSÍ í körfuknatt- leik fór fram í fyrrakvöld í íþr,- " húsinu að Hálogalandi. Sex félög tóku þátt í mótinu. Fyrsti leik- urinn var milli KFR og íþróttafél. stúdenta og vann KF_R með 26— . 12. f næsta leik vann ÍKF KR með 17—15, og í þriðja leiknum vann Ármann KFR meg 19—9. Þá léku ÍR og ÍKF og vann ÍR örugglega beð 24—12. Úrslitaleikurinn var þvi milli Ármanns óg ÍR — en útsláttar- keppni var, og það lið, sem tap- aði leik,_ var úr keppninni Þessi leikur Ármanns og ÍR er einn hinn skemmtilegasti. sem hér hef ur sézt i körfuknattleikskeppni. spennandi og tvísýnn fram á síð- ustu stundu. Leikreynsla ÍR-inga. gerði það þó að verkum. að liðið bar sigur úr býtum. en minni gat munurinn ekki verið. 16—15 ÍR í hag Mótið var ánægjulegt, og . nokkur fjöldi áhorfenda. 12 TÍMINN, fimmtudaginn .8, febrúar 1962•'

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.