Tíminn - 08.02.1962, Blaðsíða 16
Fimmtudagur 8. febrúar 1962
32. tbl.
46. árg.
STJÓRNIN
HEIMTAR
GREIÐSLU
Rígaþorskur <siðist fyrir skömmu þess, að ekkert var fyrir honum
á miðum fyrir utan Helsingjaeyri haft, þar sem hann kom svo að
í Danmörku. Hann vó tólf kíló segja sjálfur upp í licndur afla-
óslægð'ur og þótti að honum hinn manna þar ytra. Hann hafði sem
mesti fengur, mest kannski vegna sagt gert tilraun til að gleypa
stóra rauðsprettu, en gat ekki
kyngt henni og endaði lcikurinn
þannig, að þorskurinn „kafnaði".
Hér er mynd af kauða og stendur
rauðsprettan út úr kjafti hans. —
Byggja yfir
byggðasafn
FÓRSTí
ÚTSOGI
Síðastliðinn mánudag var það
slys austur á Höfn í Hornafirði,
að tvitugur Bandaríkjamaður, All-
en Francis Chase frá Michigan
City, Indiana, drukknaði.
Allen hafði verið á gangi með-
' fram hinni klettóttu strönd suð-
austan við radarstöð bandaríska
hersins í Höfn, er hann varð fyrir.
feiknastórri öldu, sem sópaði hon
um með sér. Með Allen voru tveir
kunningjar hans, en þeisn tókst
að bjarga sér undan öldunni.
Strax eftir slysið var hafin leit
að hinum unga sjóliða, en lík hans
hefur ekki fundizt enn þá.
Nk. sunnudag, 11. febrúar,
efnir Húnvefningafélagið f
Reykjavík til hlutaveltu uppi
í Edduhúsinu til ágóSa fyrir
byggðasafn, sem fyrirhugað er
að Húnvetningar og Stranda-
menn komi sér upp sameigin-
lega á næstunni.
Búið er að safna allmiklu af
gömlum munum í báðum Húna-
Bingó
Skemmtun fyrir unglimga
verður haldin í Glaumbæ,
sunnudaginn II. þ. m., og
hefst hún klukkan 2 eftir
hádegi. — Spilað verður
BINGÓ um góða vinninga.
Slík unglingaskemmtun var
síðast haldin í Lídó og var
þá mjög fjölsótt.
— Munið að skemmtunin
er eingöngu fyrir unglinga.
vatnssýslum og Strandasýslu, en
aðalframkvæmdir í þessu máli
verða xaktar til átthagafélaga hér-
aðanna í Reykjavík.
Eina hákarlaskipið
Tillagan um byggðasafn kom
fyrst fram á Húnvetningafélags-
fundi í Reykjavík litlu eftir 1940.
Verulegur skriður komst þó ekki
á söfnunina sjálfa, fyrr en Ragnar
Ásgeirsson tók að ferðast um hér-
uðin á vegum búnaðarfélagsins. —
Nokkru var þó búið að safna áður,
og mun Pétur Sæmundsen hafa ver
ið þar drýgstur í skiptum. Allt, er
safnað hefur verið er nú í bráða-
birgðageymslum á Blönduósi,
Hvammstanga, Illugastöðum á
Vatnsnesi og í Hólmavík. Við
Reykjaskóla í Hrútafirði hefur
Þjóðminjasafnið þegar reist bygg-
ingu yfir hákarlaskipið Ófeig, eina
hákarlaskipið, sem nú mun vera til.
Ófeigur mun hafa verið smíðaður
i Ófeigsfirði á Ströndum og verið í
eigu bænda þar, unz Þjóðminjasafn
ið eignaðist hann. Söfnuninni hef-
ur yfirleitt verið tekið frábærlega
vel í þessum héruðum, því að fólki
(Framhald a lö siðu
í gær barst Tímanum loks-
ins bréf frá Rithöfundasam-
bandi'íslands, þar sem lögfræð
ingur sambandsins, Kristinn
Ó. Guðmundsson, tilkynnir, að
stjórn sambandsins sé sam-
mála fjárkröfu Matthíasar Jó-
hannessen, ritstjóra, á hend-
ur Tímanum, að upphæð tvö
þúsund krónur, vegna birting-
ar sýnishorna af Ijóðum Matt-
híasar í ritdómi, sem Hjálmtýr
Pétursson skrifaði hér í blað-
ið um nútímaskáldskap og
skáldskap aldamótameistara.
Þetta er í fyrsta sinn, sem dag-
blað hér fær á sig innheimtu vegna
efnisbrota, sem birtast í ritdómi.
Var þeirri fyrirspurn varpað fram,
hvort stjórn Rithöfundasambands-
ins væri fjárkröfunni samþykk, og
bent á í því sambandi, að dagblöð
hlytu að endurskoða afstöðu sína
til ritdóma, héldi stjórnin gjald-
skyldunni fram.
Nú hefur blaðinu sem sagt bor-
izt svar stjórnar sambandsins, sem
getur ekki þýtt annað en, að hún
hafi í hyggju að láta lögfræðing
sinn gera fjárkröfur út af ritdóm-
um, birtist þar eitthvað eftir þann
höfund, sem um er rætt, máli rit-
ðóniarans til stuðnings.
" Skoðun þessa byggir stjórnin á
þeirri firru, að segja að hún geti
með engu móti fallizt á, að um rit-
dóm hafi verið að ræða. Er mjög
hæpið fyrir stjórnina að taka svona
(Framhald 3 15 siðu >
Þungfært á
Rangárvöllum
Hvolsvelli, 7. febrúar.
Mjólkurbílar frá Selfossi komu
hingað í Hvolsvöll rétt fyrir há-
degi, en eru undir venjulegum
kringumstæðum hér kl. 8 á morgn
ana. í morgun var Hvolsvöllur
ruddur með ýtu, og eftir hádegi
var farið með ýtu inn í Fljóts-
hlíð, en þar hafði verið rutt á
mánudag og þriðjudag, en skóf í
það jafnóðum.
í gær var ekki fært um vegina
hér i nágrenninu öðrum en stór-
um bílum, og áttu þeir fullt í
fangi með að komast leiðar sinn-
ar. T. d. kom billinn úr Austur-
Landeyjum ekki fyrr en kl. 5 síð-
degis, en venjulega er bíilinn
kominn kl. 10 að morgni. Áform-
að var að fara með snjóýtu um
I báðar Landeyjarnar í dag.
j Frost- var í morgun 10—12 stig,
j en lygnt, en í gær var skafrenn-
I ingur allan daginn, enda norðan-
I storimur. PE
Páll Hallgrímsson
sýslumaður,
fimmtugur
Páll Hallgrimsson, sýslumaður
í Ámessýslu, varð fimmtugur í
fyrradag. Af því tilefni var mjög
gestkvæmt á heimili hans. Meðal
þeirra, sem heimsóttu Pál á þess
um degi voru sýslunefndarmenn
í Árnessýslu, stjórn Kaupfélags
Árnesiniga, framkvæmdastjóri fyr-
irtækisins og nokkrir starfsmenn
þess, en Páll er formaður kaup-
félagsstjórnarinnar. Þessir aðilar
og margir fleiri heiðruðu Pál með
veglegum gjöfum, og einnig barst
honum fjöldi heillaóskaskeyta.
Gestir þágu veglegar veitingar á
heimili Páls og sátu þar í góðum
fagnaði lengi nætur.
Á mánudagsmorgun flaug
þrettán manna hópur héðan
til Bretlands á vélanámskeið
þar. Menn þessir fóru á veg-
um Sambands ísl. samvinnu-
félaga og munu sækja við-
gerðarnámskeið hjá Vauxhall-
Bedford og International Har-
vester verksmiðjunum. —
Með Bretlandsferð þessara
manna er unnið að aukinni
þekkingu þeirra í viðgerðum
á þeim vélum, sem Véladeild
SÍS hefur umboð fyrir. Væntir
SÍS góðs árangurs af ferðinni
þar sem menn þessir eru allir
mjög færir viðgerðarmenn,
sem munu Bedford- og Far
mall-eigendum til aðstoðar og
fulltingis í framtíðlnni. Menn-
irnir fóru með Flugfélagsvél
utan. Myndin var tekin af
þeim við brottförina, en þeir
eru, talið frá vinstri; Pétur M.
Þorsteinsson, Kópavogi; Hall-
dór Eyjólfsson, Rauðalæk;
Skúli Vigfússon, Keflavik, —
Gísli Theódórsson, Reykjavík;
Vilhjálmur Sveinsson, Hafnar-
firði; Guðjón Jónsson, Reykja-
vík; Eyjólfur Jónsson, Reykja
vík; Jósep Þorsteinsson Kópa
skeri; Grímur Sígurðsson Sel-
fossi; Þormóður Sigurgeirsson
Blöndósi; Sigmar Eyjólfsson,
Hornafirði; Þorlákur Sigur-
jónsson, Hvolsvelli; Sigurður
Sveinsson, ísafirði.