Tíminn - 11.02.1962, Blaðsíða 3

Tíminn - 11.02.1962, Blaðsíða 3
.'4WTO)'.WW.,MW.W.W. •• ••■•! ■ :v MWi í 11» ögöjf j Fyrir nokkru gaf miðstjómln í Kongó út átta frímerki til minningar um Dag Hammar- skjöld, sem fórst, þegar hann var að vinna aS friði í Kongó. Adoula forsætlsráðherra opn- aði minningarhátíðina, sem var haldin, þegar frímerkin voru gefin úf. Þessi mynd var tekin á póststofu í Leopold- vllle vlð það tæklfæri og sjást frá vinstrl; Jason SENDWE, aðstoðarforsætisráðherra, AD- OULA forsætisráðherra, Ferdi nand MUNGAMBA póstmála- stjóri og Svíinn Sture LINN- ER, aðalfulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Kongó. | Merk siSfur- skeið Meðal þeirra gripa, sem koniið hafa í leitirnar við munasöfnun vegna væntan- legs byggðasafns Stranda- manna og Húnvetninga, sem getið var um í blaðinu, er forkunnar fögur og vönduð silfurskeið eftir Helga Þórð arson, sem Henderson segir í Ferðabók sinni, að smíðað hafi klukku. Líklega er þetta eini gripurinn, sem safnið eignast og nokkurn veginn er hægt að sanna, að eftir Helga só, en hann hefur ver ið frægur smiður, því að í kirkjum hérlendis eru a. m. k. sex silfurbikarar, mesta völundarsmíð, sem liann hcf ur gert að sögn Guðmundar Jósafatssonar, sem er heim- ildamaður blaðsins um þessi mál. — f dag efnir Húnvetn- ingafélagið í Reykjavík til hlutaveltu í Fdduhúsinu til ágóða fyrir byggðasafnið. Var honum rænt? NTB—París, 10. febrúar. Hinn 19 ára gamli stúdent Marc Schwartz, sem talið var, að OAS-menn hefðu rænt á fimmtudaginn var, er nú kom- inn í leitirnar og segir sínar farir ekki sléttar. Marc kom skyndilega í leitirnar á búgarði nokkrum rúmlega 60 kílómetrum utan Parísar. Þaðan hringdi hann til föður síns, Laur- ent Schwartz prófessors. Foreldrar Marc segjast vera viss um, að honum hafi verið rasáit af OAS, því að fjölskyldan hafði á fimmtudaginn fengið sendar hót- anir frá OAS um, að syninum yrði þá rænt. Mundi það koma illa við tvo andstæðinga OAS-hreyfingar- innar, prófessorinn og Debré for- sætisráðherra, sem er náskyldur þessu fólki. FIMM ÞÚSUND | KRÓNUM STOLIÐ Síðari hlula dags í fyrradag var stolið veski í Verzluninni Kjörgarði, en í því voru 5000 krónur í peningum. Þetta veski var geymt í smáklefa! við hliðina á einni verzluninni í húsinu, en í klefa þessuim geymdi afgreiðslufólkið dót sitt. Veskið var geymt í handtösku, sem fannst rétt fyrir utan klefann. Líkur benda til, að þarna hafi verið um krakka að ræða. Ef ein- hver kynni að hafa orðið var við krakka í nágrenni við verzlunina með óvenjumikla peninga í hönd- um, ættu þeir að láta rannsóknar- lögregluna vita. Seðlaveskið er svart að lit og nýtt. í því voru fjórir þúsund krónu seðlar, einn fimm hundruð króna seðill og hitt smærra. Marc_segir, að tveir menn hafi ráðizt áð sér, þegar hann kom heim á bíl sinum. Hefðu þeir beint að sér byssum og skipað honum að aka með þá í bílnum. Þeir hefðu farið til skógar utan Parísar og verið þar til föstudagskvölds. Þá urðu mannræningjarnir hræddir og hurfu, án þess að taka Marc með sér. Ekki eru allir sammála um, að þessi saga sé sannleikanum sam- kvæm. Því hefur verið haldið fram, að Marc hafi fengið tauga- áfall, þegar hótanabrófið barst, og falið sig sjálfur úti í skógi. Hann og foreldrar hans halda samt fast við, að um mannrán hafi verið að ræða. Lögreglan hefur tekið málið til rannsóknar. Seglskipa- póstsending Á tímum seglskipanna var oft vitnað til þess hversu póst- samgöngurnar voru dræmar við landið. Nú virðist ástandið vera þannig, að litlu muni þótt nú séu breyttir tímar og öll farartæki fljótari í ferðum. Skipapóstur frá Evrópu er nú hálfan mánuð á leiðinni, sem er hreint óviðunandi ástand. Þes.si tregða stafar af því, að skipafélög þau, sem haía áætlanir á leiðinni til Evrópu og flytja póst en þau eru Eimskip og Sameinaða, fara'svo að segja samtímis yfir haf ið. . Eimskipafélagsskip fór með póst i fyrradag héðan og Sameinaða flutti póst héðan í gær. Síðan líð- ur hálfur mánuður og engan skipa pnst að fá. Eins og séð verður af þessum upplýsingum, er það hið mesta nauðsynjamál að skipaferð- irinar verði skipulagðar þannig yf- ir veturinn, að pósturinn komi að minnsta kosti einu sinni í viku, þó að aldrei væri nema til þess, að sannfæra okkur um að timi segl- skipanna er liðinn. Mótmæla verkfalí í París NTB—París 10. febrúar. Kaþólsku og kommúnistisku verkalýðsfólögin í París hafa kom- ið sér saman um að efna til verk- falls á mánudaginn til þess að mót- mæla hrottaskap lögreglunnar í hinum miklu óeirðum í borginni á fimmtudaginn. Verða samtímis haldnir mótmælafundir gegn OAS, þrátt fyrir bann lögreglunnar. Á mánudaginn verða mennirnir átta, sem létust í óeirðunum, jarð- settir, og efna verkalýðsfélögin til þagnarstundar við það tækifæri. Ekki friðheigur 1 NTB-Karlsru'he, 10 febr. — Hæstiréttur Vestur-Þýzka lands staðfesti í dag sekt- ardóm yfir rússneska verk fræðimgnum Pripolezeff fyr ir njósnir í þágu Sovétríkj anna. N Pripolezeff starfaði fyrir verzlunarsendinefnd Sovét- ríikjanna í Köln. Hann var hamdtekinn í fyrra, þrátt fyrir mótimæli hans og stjórnar Sovétríkjanna, er héldu því fram, að hann hefði friðhelgi erlends sendimanns. Fjórar iögreglustofur éyöiiögöust NTB-Algeirsborg, 10. febr. í gær voru fjörar af skrifstofum lögreglunnar í Algeirsborg eyðilaigðar gjör samlega, þegar kveikt var í þeilm. Fjöldi skjala varð að ösku einni. iteituöu að taka viö mótmæirsm Albaníu NTB—London, 10. febr. Albanía hefur mót- mælt því við hin Austur- Evrópuríkin í Varsjár- bandalaginu, að Albaníu var ekki boðin þátttaka í síðasta fundi bandalags- ins, sem var haldinn í Praha dagana 30. janúar til 1. febrúar. Formleg mótmælaorðsend- ing hefur verið afhend sendi ráðsriturum Austur-Evrópu- ríkjanna í Tirana, höfuð- borg Albaníu. Þeir lýstu yf- ir því, að þeim væri efni orðsendingarinnar kunnugt, en neituöu að taka við hetmi. Tékkneska sendiráðið, er gætir hagsmuna Sovétríkj- anna í Albaníu, síðan þau slitu stjómmálasambandinu sín á milli fyrir stuttu, neit- aði líka að taka við mótmæla orðsendingunni, sem átti að fara til Moskva. Svipiur friðheigi og handtekinn NTB—Praha, 3. febr. Aðstoða rforsætisráð- herra Tékkóslóvakíu hef- ur verið handtekinn og sviptur embætti sínu fyrir misnotkun embætt- is síns, og var annar maður skipaður aðstoð- arforsætisráðherra í hans stað í gær. Rudolph Barak, hinn fyrr- verandi aðstoðarforsætisráð herra hefur verið ákærð- ur fyrir að hafa farið óvar- lega með fé ríkisins og fyrir að misnota embætti sitt. Hann hefur verið rekinn úr kommúnistaflokknum og hefur misst sæti sitt í mið- stjórn flokksins og stjórn- málanefnd. Þjóðþing Tókkóslóvakíu samþykkti í fyrradag að svipta Barak þinghelgi sinni, svo að hægt væri að hand- taka hann og lögsækja síðan. Barak var innanríkisráð- herra landsins frá 1958 til júni i fyrra, er hann var rek- inn. Hann hafði haldið emb- ætti aðstoðarforsætisráð- herra allt til þessa. Ilinn nýi aðstoðarforsætis- ráðherra er Jan Pillar. J .sWfHutdcMÚan M.. feb»*'nr

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.