Tíminn - 11.02.1962, Blaðsíða 8

Tíminn - 11.02.1962, Blaðsíða 8
! Hann er þreyttur á h:num öm urlegu skrifstofuskylclum, hann þráir frið hins bláa fljóts, hann þráir frelsi og fró — um óákveðinn tíma — í konungsríki fljótsins. Ósk hans um að teljast með- limur í fiskaríkinu er hér með uppfyllt. Hann skal breytast í stóran, vænan vatnakarfa og Austurvatn skal skráð lög- heimili Jaans. Ó! Ó! Margar freistingar og gildrur eru -búnar ^þegnum ríkisins. | Sumir hafa af óvarkárni ; ráðizt á báta, og enn aðrir sem ekk: hafa tamið sér vilja- styrk og áunnið sér reynslu, hafa verið veiddir af brögð- óttum fiskimönnum. Svo satt er það, að gætni er öruggasta trygg- ing fyrir löngu og farsælu lífi í vatninu. Megi hegðan þín, fyrrverandi deildarstjóri, AF MANNINUM, SEM VARD AD FISKI Shay var maður rúmlega þrítugur að aldri og starfaði eém deildarstjóri í dómara- sÍÉrifstofu Chincheng í Szec- liuen. Yfirdómarinn var mað- ur að nafni Tsou og undirdóm ararnir hans tveir hétu Pei og Lei. Um haustið 758 veiktist Shay alvarlega. Hann fékk há an hita og fjölskylda hans leitaði árangurslaust til margra lækna. Á sjöunda degi missti hann meðvitund og þannig á sig kominn lá hann svo dögum skipti. Ættingjar hans og vinir höfðu misst alla von um að hann vaknaði aft- ur til þessa lífs. í fyrstu megn- aði hann að biðja um vatn, þegar hann þyrsti, en undir lokin lá hann í djúpu meðvit- undarleysi og nærðist ekki. Hann svaf og svaf þar til á tuttugasta degi — að hann geispaði stórum og settist upp í rekkjunni. — Hversu lengi hef ég sof- ið? spurði hann konuna sína. — Tæpar þrjár vikur. — Já, ég býst við að það láti nærri. Farðu nú og finndu starfsbræður mína og segðu þeim, að ég sé orðinn heill heilsu. Athugaðu, hvort þeir eru að snæða soðinn vatna- karfa á þessari stundu. Ef svo er, verða þeir að hætta máltíð inni þegar í stað. Eg verð að segja þeim nokkuð. Og biddu skrifstofuþjóninn Chang að koma með. Eg verð einnig að tala við hann. Konan sendi nú þjón til dómaraskrifstofunnar. Hann kom að starfsliði skrifstof- unnar þar sem það var ein- mitt að snæða hádegisverð og rétturinn var rjúkandi glænýr karfi. Þjónninn bar þeim skila boðin og mennirnir fylgdust með honum til heimilis Shays, fegnari en frá megi segja yf- ir bata vinar þeirra. — Senduð þið þjóninn Chang til að kaupa fisk? spurði Shay. — Já, við gerðum það. Hann sneri sér að Chang og mælti: — Fórst þú ekki til fiski- mannsins Chao Kao til þess að kaupa fisk og neitaði hann ekkl að selja þér stóra fisk- inn? Gríptu ekki fram í fyrir mér! Þú fannst stóran vatna- karfa, falinn undir reyr í litl- um fiskikassa. Síðan keypt- irðu stóra fiskinn, en þú varst gramur fiskimanninum fyrir svikin og skipaðir hon- um að koma með þér. Þegar þú komst inn um hliðið, sat skrifstofumaðurinn í skatta- deildinni hægra megin við það og undirmaður hans sat gegnt honum og þeir voru að tefla. Er það rétt? Síðan fórstu inn í forsalinn og þar sástu 'Tsou dómara og Lei undirdómara vera að spila á spil og Pei horfði á og nartaði £ peru. Þú sagðir Pei frá við- skiptum þínum við fiskimann inn og Pei gaf honum vel úti- látið högg svo hann veltist eft ir gólfinu. Síðan fórstu með fiskinn í eldhúsið og mat- sveinninn Vang Shihliang skar hann í stykki og sauð. Er þetta ekki nákvæmlega rétt? Þeir spurðu Chang spjörun- um úr og gengu úr skugga um, að hvert smáatriði var rétt. Þeir voru furðu lostnir og kröfðu Shay sagna, hvernig KÍNVERSKT hann vissi þetta allt og hér á eftir fer sagan, sem hann sagði vinum sínum: — Eins og þið vitið allir, fékk ég mjög háan sótthita eftir að ég veiktist. Magnþrota af hitanum missti ég meðvit- und, en hitatilfinning brenndi mig að innan og ég braut heil ann um, hvernig mér mætti létta. Mér datt í hug, að fá mér göngu meðfrám fljótinu, tók mér staf í hönd og skund- aði af stað. Loft var talsvert svalara, þegar ég kom út úr borginni og mér leið strax bet ur. Eg sá hitastróka líða upp frá húsþökunum og var feg- inn að hafa komizt burtu. Þar að auki var ég þyrstur og þráði það eitt að komast að fljótinu. Eg stefndi í átt til hæðarinnar þar sem áin fell- ur í Austurvatn. Eg kom að vatninu og hvíld ist um stund undir pílviðar- tré á bakkanum. Fljótið, blátt og lygnt, var ákaflega lokk- andi. Þýð gola strauk yfir vatnsborðið og gáraði flötinn svo minnti á hreistur. Allt var kyrrt og friðsælt. Skyndilega datt mér i hug, að gott væri að fá sér bað. Þegar ég var drengur, iðkaði ég sund, en nú voru mörg ár liðin síðan ég hafði synt í vatninu. Eg af- klæddist og steypti mér í vatn ið og um mig fór unaðsleg kennd, þegar svalt vatnið um- lukti líkama minn og limi. Eg man, að ég sagði við sjálfan mig: „Eg vorkenni þeim Pei, Lei og Tsou og öllum vinum mínum, sem kúldrast á skrif- stofum allan daginn. Eg vildi óska, að ég gæti orðið fiskur dálítinn tíma og þyrfti ekki framar að hugsa um skjöl, inn sigli, undirskriftir og frí- ÆVINTÝR merki. Æ, hversu sæll yrði ég ekki, ef ég fengi að verá ffskur' og gæti dfcum og fl^ttuih safp an synt í þessu undursamlega fljóti“. — Eg hygg, að ekki sé erfitt að koma því í kring, sagði fisk ur nokkur, sem kom syndandi að mér. — Þú getur breytzt í fisk að eilífu eins og ég ef þig langar til. Á ég að aðstoða þig? — Eg yrði þér afar þakk- látur, ef þú vildir gera mér þann greiða. Já, vel á minnzt, má ég kynna mig, ég heiti Shay Vei og er deildarstjóri inni í borginni. Segið einhverj um bræðra yðar, að mér væri heiður og gleði að skipta um hlutverk við hann. Ef aðeins ég fæ að synda og synda. Fiskurinn synti brott, en kom að vörmu spori aftur með mann, sem hafði fiskhaus og reið vava, það er kvikindi, er hefur fjóra fætur og lifir í vatni og getur klifrað í trjám og þegar maður hremmir það eða drepur, rekur það upp hljóð, sem er svipað bams- gráti. í föruneyti fiskhöfða þessa voru fiskar af ýmiss kon ar tegundum. Hóf hann nú að flytja Ijóð og ykknr er óhætt að trúa, að það var laglega samið. Það var á þessa leið: Maður! Kvikindi, sem fætt er , á landi, hefur aðra siði en verur vatna og sjóa. Meðan hann heldur sköpulagi sínu, tekur hann framförum í vatninu, Shay Vei. deildarstjóri er djúphyglismaður, hann leitar friðar og einveru í ríki frelsisins. núverandi vatnakarfi, ein- kennast af gætni og heiðarleik, svo að þú verðir kynstofni þín um til gleði og sóma. Vertu góður og hraustur fisk- ur! Og sem ég hlustaði á ljóðið, fann ég mig umbreyttan í fisk og líkami minn þaktist fögru, skínandi hreistri. Eg varð ofsalega glaður og synti tignarlega, og af fulljkomnu öryggi, rak hausinn stöku sinnum upp á yfirborðið og dýfði mér í kaf og hreyfði sporð og ugga eftir þörfum. Eg synti niður ána og rann- sakaði hvern krók og kima 1 árbakkanum, alla læki og þver ár, en á kvöldin sneri ég alltaf aftur upp í Austurvatn. En nú kemur að því, að dag einn var ég hræðilega svang- ur og gat hvergi fundið æti. Eg sá Chao Kao kasta færinu sínu og bíða eftir að ég biti á. Ormurinn á önglinum var girnilegur og ég fékk bókstaf- lega vatn i tálknin. Mér var að vísu Ijóst, að þetta var ótta legur hlutur og ég var vanur að forðast alla slíka, en nú fannst mér sem þetta væri einmitt það, sem ég þarfnað- ist og gat ekki ímyndað mér neitt lystugra. Þá rifjuðust upp fyrir mér orð yfirfisksins og með því að beita mig ólýsanlegri hörku, synti ég burt frá önglinum. En hungrið nagaði mig og ég gat ekki barizt á móti leng ur. Eg sagði við sjálfan mig: — Eg þekki Chao Kao, og hann þekkir mig. Hann þorir ekki að drepa mig. Ef hann veiðir mig, segi ég honum að fara með mig aftur til skrif- stofunnar. Svo gleypti ég orminn og festist auðvitað á önglinum. Eg spriklaði og hamaðist, en Chao Kao dró mig hægt og á- kveðið á land og ég gafst upp á að veita mótspyrnu þar eð blæddi úr skoltinum á mér. Og þegar é'g var kominn á þurrt, hrópaði ég: — Chao Kao! Chao Kao! Hlustaðu á mig! Eg er hann Shay Vei, deildarstjórinn á dómaraskrifstofunni. Þér skal refsað fyrir þetta! Chao Kao heyrði ekki til mín, losaði öngulinn og henti mér ofan í kassa og þakti mig reyr. Eg lá og beið. Eins og svar við bænum mínum kom nú Chang frá skrifstofunni okk- ar. Eg hlýddi á samræðurnar og heyrði Chao Kao neíta að selja stóra fiskinn. Samt sem áður fann Chang mig og tók mig upp og ég dinglaði þarna, hjálparvana. — Chang, hvernig dirfist þú! Eg er yfirmaður þinn! Eg er deildarstjórinn, dulbúinn sem fiskur. Svona, taktu eftir því, sem ég segi! En Chang heyrði ekki til mín heldur, eða lézt ekki taka eftir ópum mínum. Eg öskraði af lífs og sálar kröftum, bölv- aði og spriklaði, en allt án ár angurs. Þegar við komum inn um hliðið sá ég skrifstofumenn- ina sitja að tafli og ég kallaði til þeirra og sagði þeim, hver ég væri. En enginn virtist taka eftr bænarköllum minum. — Annar sagði: — Nel, hvað þetta er fallegur karfi! Hann hlýtur að vega að minnsta kosti þrjú og hálft pund. Þið getið gert ykkur niður- lægingu mína í hugarlund. í forsalnum sá ég þá, sem ég sagði frá áðan. Chang sagði frá því, að Chao Kao hefði reynt að fela stóra fisk- inn^pg. Pei fylltist bræði og sló fiskimanninn bylmings- högg. Ykkur leizt öllum vel á þennan væna fisk. — Farðu með hann til mat- sveinsins. Eg held að Pei hafi sagt það, — og segðu honum að sjóða hann og bera lauk og ætisveppa og gott vín með. — Bíðið andartak, kæru starfsbræður, sagði ég við ykk ur. — Hlustið á mig! Þetta er misskilningur. Eg er hann Shay. Hvernig í ósköpunum stendur á því að þið þekkið mig ekki? Þið getið ekki feng- ið af ykkur að láta sjóða mig eins og hvern annan fisk! Hvi lík grimmd! Eg hrópaði og hrópaði. Eg sá að það var gagnslaust, því að þið voruð allir heyrnar lausir. Eg leit bænaraugum á ykkur og opnaði munninn og bað um ’jiiskunn. — Laukur, ætisveppir, flaska af góðu víni! Hvernig má það ske að þið reyndust gömlum vini svo fúlmann- lega? hugsaði ég með sjálfum mér. En ég sá enga leið til bjarg- ar. Chang fór síðan með mig fram í eldhús. Augu matsveins ins urðu eins og undirskálar, þegar hann sá mig, andlit. hans Ijómaði og hann tók fram beittasta hnífinn sinn og skellti mér á eldhúsborðið. — Vang Shihliang! Þú ert matsveinninn minn! Dreptu mig ekki! Eg sárbið þig! Vang Shihliang tók föstu (Framhald á 15. sfðu). b T f MIN N, sunnudaginn 11. febrúar 1962

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.