Tíminn - 23.03.1962, Síða 1
Ritstjérnarskrif-
stofur Tímans eru
í Edduhúsinu við
Lindargöfu
Afgreiðsia, augiýs-
ingar og gjaldkori
Tímans er í
Bankastræti 7
SJÁ 3. SÍÐU
1 gær hringdi Tíminn til Hann
esar Kjartanssonar, ræðismanns,
í New York, og sagði hann að
Goðafoss mundi láta úr höfn í
dag samkvæmt áætlun. Enn er
ekki ljóst, hvort skipið fær
nokkra sekt eða ekki, og fylgja
engar kvaðir brottför þess, aðr-
ar en tryggingin, sem hinir þrír
seku hafa gefið, en eins og kunn
ugt er, fara þeir heim með skip-
inu. Þá er ekki vitað hvenær
mennimir þurfa að mæta fyrir
rétti. Það getur dregizt.
Þó að litið sé alvarlegum aug-
um á þetta smygl, hefur það
komið fram, að miðar þessir eru
alveg verðlausir, unz þeir hafa
verið skrásettir í frlandi. Fyrst
þarf að selja þá hér, sagði
Hanncs, og síðan að fá seldu mið
ana skrásetta í 1 rlandi. Fyrst
þegar kvittun hefur borizt fyrir
þessari skrásetningu, hafa mið-
arnir öðlazt eitthvert verðgildi.
Eins og er, þá eru miðamir að-
eins pappírinn og prentsvertan,
og líklegt að það stórdragi úr
sektarupphæðum.
Adolf Eichmann
Bókmenntaverðlaunin
afhent í Helsingfors
Tímlnn fékk þessa mynd frá Polfoto í Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Hún er frá hlnnl hátí'ðlegu athöfn
í Helsingfors í gær, þegar sænska rithöfundinum Eyvlnd Johnson voru afhent bókmenntaverðlaunin
úr hinum nýstofnaða bókmenntasjóði Norðurlandaráðs. Þessa veitingu til Eyvind Johnson ber upp á
tíu ára afmæli ráðsins. Steingrímur J. Þorstelnsson fiutti erindi um sænska höfundinn við þetta tæki-
færl, en hér á myndlnnl sést Kekkonen Finnlandsforseti óska Eyvind til hamingju eftir að Fagerholm
hafði afhen't honum verðlaunin. Á milli þeirra stendur kona rithöfundarlns. Athöfninni var sjónvarp-
að um alla Skandinavíu og er þessi mynd tekln eftir sjónvarpi og síðan símsend Tímanum. —
Eichmann áfrýjar
máli sínu til S.þ.
NTB—Jerúsalem,' 22. mara.
Áfrýjun dauðadómsins yfir
Eichmann kom í dag fyrir
hæstarétt ísraels. Servatíus
verjandi hans lýsti yfir þvi í
ræðu sinni, að vestur-þýzkur
dómstóll ætti að dæma í máli
Eichmanns, því ísraelskir dóm-
stólar hefðu ekki umboð til
, þess. Að öðrum kosti sagðist
|Servatius mundu áfrýja til
Sameinuðu þjóðanna með til-
vísun til mannréttindayfirlýs-
ingar SÞ.
Servatius bað um að mega kalla
fram sem vitni Hans Globke, seni
er ríkisráðsritari vestur-þýzku
stjórnarinnar. Globke var á stríðs-
árunum ráðgjafi í innanríkisráðu-
neyti Hitlers-Þýzkalands. Servatius
sagði, að Globke væri séifræðingur
í borgararéttarlögum nazismatím-
ans í Þýzkalandi og gæti hann því
borið vitni um, að Eichmann hafi
ekki átt annarra kosta völ en að
hlýða lögunum.
Fyrsti dagur réttarhaldanna í
hæstarétti vár ekki sögulegur.
Servatius hélt varnarræðu sína
með stilltri rödd. Eichmann sat
einnig rólegur í glerbúri sínu og
hallaði sér við og við fram til að
heyra betur eða til að skrifa niður
minnisatriði
Servatius sagði, að það væri
skylda vestur-þýzku stjórnarinnar
(Framhaid á 15. síðu)
NTB—Helsingfors, 22. marz.
Steingrímur J. Þor-
steinsson prófessor kynnti
sænska skáldið Eyvind
Johnson á 10 ára af-
mæii Norðurlandaráðs-
ins, sem var haldið hátíð
legt í Helsingfors í dag,
en við það tækifæri var
Johnson úítient 300.000
króna verðlaun ráðsins
fyrir skáldvek sitt „Hans
naades tid“,
Steingrímur lýsti rithöfundar-
ferli Johnson og kallaði hann
eitt mesta skáld vorra tíma.
Fagerholm, forseti ráðsins, af-
henti síðan Johnson verðlaunin,
og þakkaði skáldið fyrir með
snjallri ræðu. Áður hafði Francis
Bull, bókmenntafræðingur, lýst
í fallegri ræðu samhenginu í
bókmenntum Norðurlanda. Há-
tíðahöldunum var sjónvarpað
um alla Skandinaviu.
Þinginu fer að Ijúka
10. þingi Norðurlandaráðsins
fer nú að ljúka. 1 dag lauk um-
ræðum um nokkur mál. Sam-
þykkt var með 48 atkvæðum gegn
átta að beina því til ríkisstjórn-
anna. að þær sjái um að al-
þjóðaákvæðum um útvarp sé
fylgt. Það þýðir, að komið er í
v.eg fyrir „sjóræningjaútvörpin".
sem hafa þotið upp á Norður-
löndum. Það eru útvarpsstöðvar
um borð í skipum utan land-
helgi, sem útvarpa skemmtiefni,
sem er borgað upp með auglýs-
ingum, en á Norðurlöndunum
(Framhald á 15. sfðu)
Steingrímur J. Þorstelnsson