Tíminn - 24.03.1962, Page 7

Tíminn - 24.03.1962, Page 7
X Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri' Tómas Árnason Ritstjórar- Þórarinn Þórarinsson iáb). Andrés Kristjánsson. Jón Helgason og Indriði G Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Auglýs ingastjóri- Egill Bjarnason Ritstjórnarskrifstofur í Edduhúsinu: afgreiðsla. auglýsingar og aðrar skrifstofur í Bankastræti 7 Símar 18300—18305 Auglýsingasími 19523 Afgreiðslusími 12323 Áskriftargj. kr 55 á mán. innanl. í lausasölu kr. 3 eint — Prentsmiðjan Edda h.f. — Gunnar og Axel Þau furðulegu tíðindi hafa gerzt í sambandi við með- ferð ríkisreikningsins fyrir 1960, að Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra hefur neitað þingmönnum, sem eiga sæti í fjárhagsnefnd efri deildar, um skýrslu, er ríkis- endurskoðandinn hefur samið- um Brimnessmálið svo- nefnda. Tildrög þessa máls eru rakin í nefndaráliti, sem fulltrúi Framsóknarflokksins, Karl Kristjánsson, hefur samið og segir þar á þessa leið: „Það, sem tafið hefur þetta mál (þ. e. meðferð ríkis- reikninganna í þinginu), er, að yfirskoðunarmenn ríkis- reikninganna láta fylgja reikningnum athugasemdir sem telja má til einsdæma að efni til í sambandi við ríkisreikn- inga. Á ég þar við athugasemdirnar nr. 39 vegna rekstrar togarans Brimness. Ljóst er af athugasemdunum, að stórkostleg óreiða hefur átt sér stað í bókhaldi, sem hvorki er búið að upp- lýsa né gera skil á. í athugasemdunum er vitnað í ýmis skilríki, svo sem bréf, dags. 3. des. 1960, til fjármálaráðuneytisins frá skila- nefnd, sem ráðuneytið hafði skipað, og svör útgerðarstjór- ans við framkomnum athugasemdum að því leyti, sem hann hafði skriflega reynt að bera hönd fyrir höfuð sér. Þessi skilríki fékk ég sem fjárhagsnefndarmaður leyfi til að skoða. Komst ég við þá athugun að þeirri niður- stöðu, að athugasemdir yfirskoðunarmannanna væru síð- ur en svo harðar um of. Fjármálaráðherrann svaraði 5. des. s.l. athugasemdum yíirendurskoðendanna (sjá bls. 252—253 í „Ríkisreikn- ingunum") og sagði: „Ráðuneytið hefur fullan hug á því, að reikningsskil- um þessarar útgerðar Ijúki sem allra fyrst. Hefur ríkis- endurskoðanda verið falið málið, og. vinnur hann nú að því að upplýsa þau atriði, sem enn eru óljós eða eigi hafa verið skýrð á fullnægjandi hátt, og leggur ráðuneytið áherzlu á, að þeirri rannsókn sé hraðað, svo sem verða má“. Ríkisendurskoðandinn sagði mér fyrir um það bil mán- uði, að hann væri búinn að skila skýrslu sinni um málið til fjármálaráðherrans. Við minnihlutamennirnir í fjárhagsnefnd höfum kraf- izt þess, að nefndin fengi að sjá skýrslu endurskoðand- ans. En fjármálaráðherra hefur endurtekið neitað að verða við þeirri kröfu. Ekki veit ég til, að slík neitun eigi sér fordæmi. Þing- nefnd sem ríkisreikningi er til vísað til athugunar og um- sagnar, hlýtur að eiga rétt til að fá um hann allar þær upplýsingar, sem fjármálaráðherra — eða ráðuneyti hans — getur gefið. Synjun ráðherrans er furðuleg og hlýtur að vekja grunsemdir um, að fram hafi komið óþægilegar upplýs- ingar.“ Ríkisreikningurinn var til 2. umræðu í efri deild i fyrradag og hélt fjármálaráðherra þar enn fast við þessa synjun sína. Afstöðu sína reyndi hann að byggja á því, að skýrsla ríkisendurskoðandans væri trúnaðarmál, en slíkt er vitanlega hrein fjarstæða, því að slík bréf opin- berra endurskoðenda geta ekki verið trúnaðarmál, sem halda beri leyndum fyrir þingmönnum. Þessi synjun fjármálaráðherrans er því einstæð og algert hneykslismál. í engu landi, sem býr við sæmilegt opinbert velsæmi, væri það þolað, að ráðherra reyndi að halda slíkum upplýsingum leyndum fyrir þinginu. írsiit kosninganna í Argentínu Þau voru mit Á SUNNUDAGINN var fóru fram kosningar í Argentínu á öllum fylkisstjórum og fylkis- þingum landsins, og jafnframt á helmingi þjóðþingsmanna. — Úrslitanna var beðið með tals- verðri eftirvæntingu, þar sem þetta var í fyrsta sinn síðan 1955, er Peron var steypt úr valdastóli, sem fylgismenn hans tóku beinan þátt í kosningun- um. Svo fór líka ag úrslitin urðu hin sögulegustu. Peronist- ar unnu mikinn kosningasigur. Þeir fengu 2,5 millj. atkvæða, alla fylkisstjórana í stærstu fylkjunum og flesta þingmenn kjörna. Flokkur Frondisi for- sætisráðherra fékk 2 millj. at- kvæða og helzti borgaralegi st j órnarandstöðuflokkurinn fékk 1.6 millj. atkvæði. FORSÖGU þessara kosninga- úrslita má rekja allt til ársins 1945, er lítið þekktur liðsfor- ingi, Peron að nafni, tók völdin í Argentínu, eftir að þar höfðu verið stjórnlitlir tímar um skeið. Hann stjórnaði sem ein- ræðisherra næstu 1Q árin. — Stjórn hans var hins vegar ó- venjuleg að því leyti, að hann bætti mjög kjör verkamanna og bænda og fékk því íhaldsöfl landsins, auðfélögin, kaþólsku kirkjuna og herinn á móti sér. Hins vegar naut hann svo mik- illar almannahylli, að þessir að- ilar treystust ekki til að rísa gegn honum lengi vel. Einkum voru þó vinsældir hans miklar meðan kona hans, Evita Peron, réð mestu um stjórnarstefn- una, því að hún naut mikillar hylli hjá alþýðu manna, enda talin frumkvöðull hinna félags- legu umbóta. Hún hafði áður verið lítt þekkt leikkona og sögð eiga léttúðuga fortíð. — Fyrir Peron var það mikið á- fall, er hún lézt skyndilega úr krabbameini, og farnaðist hon- um verr og verr eftir það, unz Evita Peron ill ósígur fyrir Frondisi Frondisi herinn gerði uppreisn gegn hon um 1955 og hrakti hann úr landi. Hann dvelur nú á Spáni. Næstu þrjú árin fór herinn með stjórn í Argentínu undir forustu Aramburu hershöfð- ingja. Árið 1958 fóru svo fram forsetakosningar meg löglegum hætti og náði þá núverandi for seti, Arturo Frondisi, kosningu. Hann hafði unnið sér orð sem róttækur vinstri maður, og naut stuðnings Péronista í kosn ingunum, þar sem hann hafði lofað að beita sér fyrir póli- tískum náðunum og pólitísku frelsi. . FRONDISI hefur átt erfiða daga síðan hann varð forseti. Herinn hefur takmarkað mjög völd hans og gert honum á margan hátt erfitt fyrir. Hann tók við efnahagsmálum lands- ins í slæmu ástandi, því að þau voru í ólagi, þegar Peron hrökklaðist frá, og höfðu svo versnað stórum á stjórnarár- um hersins 1955—58. Frondisi leitaði eftir aðstoð Bandaríkj- anna við endurreisn efnahags- lífsins og fékk mikla fjárhags- lega aðstoð þaðan, en hún var bundin því skilyrði, að farið yrði eftir ráðum Alþj.gjaldeyris sjóðsins(International Monitary Fund). Hagfræðingar hans eru einhverjir hinir íhaldssömustu í heimi og þeir kröfðust þess, að Frondisi fylgdi hinni ströng ustu íhaldsstefnu. Þetta gerði hann óvinsælan hjá almenn- ingi. Frondisi hefur þó reynt að treysta lýðræðig í sessi og eru kosningarnar, sem fóru fram á sunnudaginn, sönnun þess, því að fréttamönnum kem ur saman um, að þær hafi verið fullkomlega frjálsar. ÚRSLIT þeirra urðu hins vegar mikill ósigur fyrir Fron- disi. Bandarísk blöð fara ekki heldur dult með það, að þau séu einnig verulegur ósigur fyr ir Bandarikin og hina íhalds- sömu stefnu Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins. Það sé nefnilega ekki höfuðatriði í löndum eins og Argentínu að hafa jöfnuð á ut- anríkisverzluninni og nægilega sparifjársöfnun, heldur þurfi fyrst og fremst að leggja á- herzlu á verklegar og félags- legar framfarir. Það þurfi að bæta lífskjörin. Úrslit argen- tínsku kosninganna eiga því að vera Bandaríkjunum aðvörunar og Bandaríkin tákn í sambandi við skipti þeirra af málum Suður-Ame- ríku. Blað eins og New York Times og New York Herald Tribune taka t.d. í þennan streng. Úrslit kosninganna urðu og vitanlega til þess, að íhaldsöfl- in í Argentínu létu strax á sér bera. Herinn setti strax hern- aðarlega fylkisstjóra í þeim fylkjum, þar sem Peronistar unnu, en það þýðir, að hinir löglega kjörnu fylkisstjórar fá sennilega aldrei að taka við embættum sínum. Þá hugðist herinn um skeið að hrekja Frondisi alveg frá völdum og taka upp hernaðarlegt einræði. Af því vai-ð þó ekki og munu Bandaríkin hafa afstýrt því. — Þau munu hafa gefið til kynna, að óvíst væri um efnahagslega aðstoð þeirra til frambúðar, ef hernaðarleg stjórn yrði mynd- uð í Argentínu, en stuðningur Bandaríkjanna við slíka stjórn myndi geta veikt aðstöðu þeirra og álit í Suður-Ameríku. Niðurstaðan virðist því muni verða sú, að Frondisi muni halda völdum að nafni til; en herinn raunverulega taka stjórnina í sínar hendur. FLEST BENDIR til, að meðal almennings í Argentínu verði þetta illa þolað og því megi búast við að verkföll og ýmiss Peron konar upplausn fari þar í vöxt. Almenningur krefst félagslegra umbóta og hefur fylkt sér um Peronista í þeirri von, að helzt mætti vænta þeirra þaðan. Því mun hins vegar. fjarri, að hann óski eftir endurreistri einræðis stjórn Perons, heldur þeim fé- lagslegu umbótum, sem hún ó- neitanlega vann að. Helzta vonin til þess, að hægt sé að sigrast á Peronisma og Castroisma, er njóta nú vaxandi fylgis í Suður-Ame- riku, felst í því, að þar geti risig upp lýðræðissinnaður um- bótaflokkur, er beiti sér fyrir félagslegum umbótum. Banda- ríkin þurfa að gera sér þetta Ijóst, því að íhaldsstefnan, sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hef ur fylgt í skiptum við þessi lönd, býður aðeins öfgastefnun um heim. Það sanna kosninga- úrslitin í Argentínu. Þ. Þ. T í MIN N, laugardagur 24. marz 1962. I

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.