Tíminn - 17.04.1962, Page 4
SAMÞYKKJA AÐ
KAUPA SANITAS
Á laugardaginn var tekin í notkun
ný bifreiðastöS fyrir fólksbifreiðir
á Akranesi, Fólksbilastöðin h.f. Eig-
endur eru 13 bifreiðastjórar, er
stofnuðu með sér félag á s.l. sumri
I þessurn tilgangi. Formaður stjórn
arinnar er Jóhann P. Jóhannsson;
ritari Guðni Halldórsson og prókúru
hafi Karl Helgason.
Bandalag háskólamanna boðaði
til almenns fundar háskólamennt
aðra manna í 1. kennslustofu Há-
skólans sunnud. 15. þ.m. FuneLar-
efnið var frumvarp ríkisstjórnar-
innar um kjarasamninga opin-
berra starfsmanna og afstaða
BHM til þess.
Af hálfu bandalagsins mfuðu
málið formaður þess, Ármann
Snævarr háskólarektor, og ritari,
Árni Böðvarsson cand. mag. Ræddu
þeir kjaramál háskólamanna, en á
stjefnuskrá bandalagsins er m.a.
„að gæta í hvívetna hagsmuna há-
skó.lamenntaðrá manna hér á
landi og vera í fyrirsvari fyrir þá
gagnvart innlendum og erlendum
aðilum.“ Frummælendur röktu af-
skipti BHM af samningsréttarmál-
inu, sem hafa beinzt að því að
BHM fái samningaaðild fyrir hönd
félagsmanna, þótt ríkisstjórnin
hafi ekki séð sér fært að leggja
það til í frumvarpinu. En háskóla
menn telja hag sínum betur borg-
ið með því að hafa samningsrétt-
inn. í eigin höndum en að önnur
samtök (BSRB skv. frumvarpinu)
fari með hann, m.a. sökum þess
islandskort F.Í.
prentaö heima
Ferðafélag íslands hefur nú
gefið út íslandskortið, mæli-
kvarði 1:750000, prentað í Lithó-
prenti h.f., Þetta er fyrsta Is-
landskortið prentað hérlendis.
Ágúst Böðvarsson, forstöðumað-
ur Landmælinga íslands, og Jón
Eyþórsson, veðurfræðingur, hafa
séð um þetta verk. Ágúst teikn-
aði fyrst kort í þessum mæli-
kvarða árið 1943. Það varð upp-
haf að íslandskortaútgáfu ferða
félagsins. Bandaríski herinn tók
fyrst að sér prentunina, ókeyp-
is, en síðan hafa kortin verið
prentuð í Danmörku hjá Geodæ-
tisk Institut, sem hefur nú selt
filmurnar hingað. Kortið er
prentað í 10 litum á bezta papp-
ír; sem völ er á, að sögn for-
stöðumanna ferðafélagsins, én
þeir telja kortið í alla staði
mjög vel heppnað.
Hið nýja stöðvarhús er byggi á
rúmgóðri lóð á horni Kirkjubrautar
og Háholts, einlyft timburhús, mjög
snyrtilegt að ú'tllti, 126 ferm. að
siaerð. — Teikningar gerð! Guðmund
ur Bjarnason, en yfirsmiður var Guð
mundur Magnússon, — í húsinu er
rúmgóður afgreiðslusalur, og vist-
leg stofa og skrifstofa til afnota
að innan BSRB er aðeins lítill
hluti félagsmanna háskólagenginn
og stjórn þess bandalags hlýtur
því á hverjum tíma að sinna meir
sameiginlegum hagsmunum opin-
berra starfsmanna en sérhags-
munamálum þeirra sem hafa eytt
miklu meiri tíma og fjármunum
en aðrar stéttir til að sérmennta
sig undir starf sitt, að áliti há-
skólamanna. Þá kemur það og til
að .launajöfnuður miðað við árs-
kaup er hvergi í nálægum lönd-
um svipaður og á íslandi og hef-
ur aukizt stöðugt síðustu 20 árin.
Var á það bent á fundinum að
því lengri tíma, því stærri hluta
ævinnar, sem menn eyða til und
irbúnings undir ævistarf sitt,
þeim mun lægri verða ævitekjur
þeirra, meðan árstekjurnar hald-
ast óbreyttar. Telja læknar m. a.
að hagfræðilegir útreikningar
sýni að læknir sem hefur ekki aðr
ar tekjúr en föst laun hjá ríkinu,
hafi aðeins um 60% af ævitekjum
strætisvagnastjóra, miðað við jafn
langan daglegan vinnutíma og
jafnmikla yfiryinnu hjá báðum,
núgildandi skattalöggjöf og 8%
forvexti. Einnig var á það bent,
að kandídat í íslenzkum fræðum,
sem nýkominn er frá prófborði
við Háskóla íslands og gerist sendi
kennari í nútímaíslenzku við há-
skóla í Svíþjóð, fær helmingi
hærra en prófessor í íslenzkum
fræðum við Háskóla íslands.
Auk frummælenda tóku til máls
dr. Óskar Þórðarson læknir, for-
maður Læknafélags íslands, Þor-
valdur Þórarinsson, lögfræðingur,
dr. Björn Sigurbjörnsson, formað-
ur Félags ísl. náttúrufræðinga;
Arinbjörn Kolbeinsson, læknir;
Björn L. Jónsson, læknir; Ingólf-
ur Þorkelsson kennari, Sverrir
Norland verkfræðingur, Aðal-
steinn Sigurðsson fiskifræðingur
óg dr. Matthías Jónasson prófess-
or. Voru ræðumenn á einu máli
um það hversu fráleitt væri ríkj-
andi vanmat á sérmenntun starfs-
manna og þjóðfélaginu hættulegt,
sem bezt kæmi í ljós við vaxandi
flótta menntamanna úr landi. Mik
ill einhugur ríkti um það á fund-
inum að efla Bandalag háskóla-
manna og vinna ötullega að því að
háskólamenn fái samningsaðild
fyrir sjálfa sig, en séu ekki skyld-
aðir til að afhenda hann öðrum.
Stjórn og fulltrúaráð bandalags
fyrir bifrelðastjórana. — Frá stöð-
inni verða seldar alls konar olíur
og benzín, svo og öl og sæigæti og
fóbak. — Auk 13 fyrsta flokks fólks
bifreiða, er þarna verða staðsettar,
verður í maí hafin starfræksla sendi
ferðabifreiðar, sem er nýmæli hér
í bæ. — Sími stöðvarinnar er 718. —
G.B.
ins hafði farið þess á leit við fjár-
hagsnefnd efri deildar að fluttar
yrðu breytingatillögur við frum-
varpið, þár sem BHM yrði veitt
samningsaðild fyrir hönd háskóla
manna við hlið BSRB, og var af
því samþykkt svofelíd ályktun
með öllum greiddum atkvæðum:
„Almennur fundur í Bandalagi
háskólamanna haldinn 15. apríl
1962, beinir þeim eindregnu tií-
mælum til hins háa Alþingis, að,
þaij samþykki þær breytingartil-
lögur við frumvarp til laga um
samningsrétt opinberra starfs-
manna, sem stjórn BHM hefur
sent fjárhagsnefnd efri deildar og
felur í sér, að BHM fái samnings
aðild fyrir hönd félagsmanna
sinna.“
Fundinn sátu 100 manns.
Skákþing ísiands hófst á
laugardaginn og er teflt í
tveimur flokkum, landsliðs-
og meistaraflokki. í fyrstu
umferð í landsliðsflokki urðu
úrslit þau, að Friðrik Ólafs-
son vann Gunnar Gunnars-
son, Ingvar Ásmundsson vann
Inga R. Jóhannsson, Björn Þor
steinsson vann Gylfa Magn-
ússon, Helgi Ólafsson og Jón-
as Þorvaldsson, Benóný Bene
diktsson og Ólafur Magnús-
son, Jón Kristinsson og Sig-
urður Jónsson gerðu jafn-
tefli.
í annarri umferð vann Gunnar
Ingvar, Gylfi vann Inga, Björn
vann Jónas, Helgi vann Ólaf, en
jafntefli gerðu Friðrik og Sigurð
ur og Jón og Benóný. Eftir þessar
tvær umferðir er Björn efstur
með tvo vinninga, en Friðrik næst
ur meg lVz vinning. Þriðja um-
ferð var tefld í gærkvöldi, en
Á fundi, sem haldinn var í
Verkamannafélaginu Dagsbrún s.l.
sunnudag, 15. þ.m., var skýrt frá
því að stjórnir Dagsbrúnar og Sjó-
mannafélags Reykjavíkur hefðu
undanfarið haft til athugunar að
þessi tvö félög keyptu saman hús-
eign fyrir starfsemi félaganna.
Fyrir fundinum lá tillaga frá
stjórn félagsins um að Dagsbrún
festi kaup á Mseigninni Lindar-
götu 9 (Sanitas) í félagi við Sjó-
mannafélag Reykjavíkur að því
tilskyldu, að samningar takist við
núverandi eigendur og lánsfé
verði fyrir hendi. Tillagan var
samþykkt af fundinum.
Þá var einnig samþykkt tillaga
frá félagsstjórninni um að Dags-
brún sæki til Alþýðusambandsins
um kaup á þremur smáhýsum
(sumarbústöðum) í landi jarðar-
innar Reykja í Ölfusi, sem Alþýðu-
sambandið fær undir orlofsheim-
ili verkalýðsfélaganna.
Um kaupgjaldsmálin samþykkti
fundurinn einróma eftirfarandi
ályktun:
„Fyrir ári síðan var kjörum
verkafólks svo komið, að verka-
lýðshreyfingin sem heild og allur
almenningur taldi óhjákvæmilegt
að laun hækkuðu vérulega. Með
baráttu verkalýðsfélaganna í fyrra
sumar náð'ist fram nokkur kaup-
hækkun, en mánuði eftir að nýir
samningar höfðu verið gerðir við
atvinnurekendur, framkvæmdi rík
isstjórnin nýja gengislækkun til
að ónýta kauphækkunina. Arang-
urinn hefur orðið sá, að kaupmátt
ur tímakaups verkamanna er nú
orðinn lægri en hann var fyrir
ári síðan.
Á ráðstefnu sinni s.l. haust
voru verkalýðsfélögin einhuga um
að þessu ástandi væri ekki hægt
að una, þau kröfðust úrbóta, er
tryggði að kaupmáttur launanna
væri eigi læri en hann var 1. júlí
1961. Kröfur voru bornar fram við
ríkisstjórnina um ráðstafanir til
að auka kaupmáttinn án beinna
kauphækkana. Eftir langa bið
hefur ríkisstjórnin nú lýst því yfir
að hún telji þá leið ekki færa, en
telur hins vegar réttmætt að verka
menn fái kauphækkun.
fjórða umferð verður tefld í kvöld
í Sjómannaskólanum.
íslandsmótið í bridge hófst á
sunnudaginn og voru þá spilaðar
tvær umferðir. í fyrstu umferð
fóru leikar þannig, að sveit Ein-
ars Þorfinnssonar vann Kópavog
6—0, sveit Agnars Jörgenssonar
vann sveit Eggrúnar Arnórsdótt-
ur 6—0, sveit Stefáns Guðjohnsen
vann sveit Hilmars Guðmundsson-
ar 6—0, sveit Elínar Jónsdóttur
vann Keflavík 6—0, en jafntefli
gerðu sveit Jóns Magnússonar
og Laufeyjar Þorgeirsdóttur 3—3,
og sveit Bernhards Guðmundsson
ar og sveit Brands Brynjólfssoh-
ar 3—3.
í 2. umferð vann Einar Elínu
6—0, Agnar vann Stefán 5—1,
Kópavogur vann Keflavík 6—0,
Brandur vann Laufeyju 6—0, Jón
vann Bemhard 5—1, og Hilmar
vann Eggrúnu 4—2. Þriðja um-
ferð var spiluð í gærkvöldi og
fjórða umferð í kvöld. Spilað er
í Skátaheimilinu og einn leikur
sýndur á sýningartöflunni á
hverju kvöldi.
Fundurinn þakkar miðstjórn A1
þýðusambandsins fyrir tilraunir
hennar til þess að fá kaupmátt
launanna aukinn með ráðstöfun-
um án beinna kauphækkana og
lýsir samþykki sínu við þá álykt-
un henar að þegar sú leið reynd-
ist ekki fær, sé málið komið í
hendur verkalýðsfélaganna, sem
ein hafa samningsrétt um kaup
meðlima sinna.
Fundurinn lýsir því yfir, að
hann telur óumflýjanlegt, eins og
málum er nú komið, að kaup
verkamanna verði að hækka, fyrst
aðrar leiðir til úrbóta eru lokaðar.
Hann tekur því fegins hendi þeirri
yfirlýsingu ríkisstjórnaTinnar, að
hún vilji stuðla að kauphækkun
til verkamanna umfram þau 4%,
sem koma eiga til framkvæmda 1.
júní n.k.
Fundurinn felur stjórn félags-
ins að fá sem fyrst úr því skorið
með viðræðum við atvinnurekend-
ur, hvort þeir fallast á nauðsyn-
lega kauphækkun til verkamanna,
án þess að til stærri átaka korni."
BENGTSSON
heiðurslistamaður
Kaiíjjmamiahöfn, 14. apríl.
— Einkaskeyti.
Stúdentafélagið í Árósum hef
ur ákveðið að kjósa prófessor
Erling Blöndal Bengtsson, celló-
leikara, heiöurslistamann árs-
ins. Kjörið fer fram í sambandi
við vorhátíðina 5. maí.
Aðils
Víttu ríkðssfjómina
Fundur haldinn í Félagi ís-
lenzkra stúdenta í Kaupmanna-
höfn, laugardaginn 24. marz 1962,
um sjónvarpsmál, vítir Ríkisstjórn
íslands harðlega fyrir það glap-
ræði að veita bandaríska sjóhern-
um á íslandi leyfi til að auka styrk
sjónvarpsstöðvarinnar á Keflavík-
urflugvelli og opna þannig leið fyr-
ir óholla menningarstrauma til
þess hluta íslenzku þjóðarinnar,
sem sízt má við því.
Skorar fundurinn á ríkisstjórn
íslands að endurskoða afstöðu sína
til þessa máls og ógilda síðan leyfi
Bandaríkjamanna til útvarps og
sjónvarpsreksturs á íslandi.
Sitji hins vegar við hið sama,
leggur fundurinn til að innflutn-
ingur og sala sjónvarpstækja til ís-
lendinga verði bannaður með öllu,
meðan íslenzkir aðilar reka ekki
sjónvarp á íslandi.
Álýktun þessi var samþykkt með
25 atkvæðum gegn 5.
Páskaferðir ferða-
skrifstofnnnar
Ferðaskrifstofa ríkisins mun um
páskana í félagi við BSÍ efna til
ferða um Snæfellsnes, Borgarfjörð,
til Gullfoss og Geysis og um
Reykjanes.
Snæfellsnesförin tekur þrjá daga
og verður víða komið við, Borgar-
fjarðarferðin er í tvo daga og m.
a. komið i Surtshelli, en hinar
ferðirnar tvær erif eins dags ferðir.
Þess ber að geta, að þeir sem óska,
geta sameinað tveggja daga ferð-
ina um Borgarfjörð og þriggja
daga ferðina um Snæfellsnes, og
þannig fengið fimm daga páska-
ferð. Nánari upplýsingar verða
veittar í Ferðaskrifstofu ríkisins í
Lækjargötu og hjá BSÍ.
(Útdráttur úr fréttatilkynningu
frá ferðaskrifstofunni).
Vilja hafa samnings-
r éttinn íeigin höndum
(Frá BHM).
íslandsmótin í
skák og bridge
í
TÍMINN, þriðjudaginn 17. apríl 1962