Tíminn - 18.05.1962, Síða 12

Tíminn - 18.05.1962, Síða 12
ÍÞRDTTIR RITSTJORI HALLUR SIMONARSON Reykjavík sigraði Kefla- vík í bæjarkeppni með 4:1 Keflvíkingar hlupu í skarðið og mættu úrvalsliði Reykjavík- ur í bæjakeppni í knattspyrnu í fyrrakvöld eftir að Akurnes- ingar höfðu á síðustu stundu boðað forföll vegna meiðsla nokkurra leikmanna. Litill undirbúningur var því að leiknum hvað auglýsingar og annað snerti, en þó var tals- verður reytingur áhorfenda, sem mætti á Melavöllinn, og það þurfti sannarlega hörku til að híma þar allan tímann í norðan kuldanum horfandi á heldur slakan leik. Og vissulega átti veðurhamurinn sinn stóra þátt í því, að liðunum tókst ekki að sýna neina glæsi- knattspyrnu, en smá sprettir sá- ust þó á milli, og Keflavíkurliðið kom á óvart með kröftugum og hröðum leik, og eftir hann verða þeir taldir líklegastir til að hljóta sæti í 1. deild næsta ár, en sem kunnugt er töpuðu þeir úrslita- leiknum í 2. deild í fyrra fyrir ís- firðingum. Skoruðu á undan Keflvíkingar léku undan vind- inum í fyrri hálfleik og voru þá miklu meira í sókn, en þeim tókst ekki að skora nema eitt mark og var Högni Gunnlaugsson þar að verki eftir að hafa fengið knött- inn frá Ormari Skeggjasyni, fyrir- Miðherjinn, Grétar Sigurðsson, Fram skoraði öll fjögur mörk Reykjavíkurúrvalsins liða Reykjavíkurliðsins, á mark- teig og skoraði Högni með föstu, óverjandi skoti. Heimir Guðjóns- son, markvörður, fékk nóg að gera . í markinu, og stóð sig með stakri prýði, og geta Reykvíkingar þakk- | að honum, að mörk Keflvíkinga j urðu ekki fleiri í þessum hálfleik. | Reykjavíkurliðið átti nokkur ! góð upphlaup i hálfleiknum, og þá kom fljótt i Ijós, að vörn Kefl- víkinga var ekki sem sterkust, en , markvörðurinn, Kjartan Sigtryggs . son stóð hins vegar vel í stöðu sinni, og bjargaði eitt sinn snilld arlega skallknetti frá Ásgeiri Sig urðssyni. Grétar Sigurðsson og Bergsteinn fengu báðir tækifæri fyrir opnu marki, sem þeir fóru illa með, og eitt sinn komst Grét- ar í gegn, en var brugðið aftan- frá, en dómarinn lét hina augljósu vítaspyrnu fara fram hjá sér. Á síðustu mínútu hálfleiksins tókst Reykjavík að jafna. Berg- steinn átti allan heiðurinn af mark inu. Hann lék laglega á bakvörð- inn um miðju vallarins og geystist ásamt Grétari aö marki Keflvík- inga, en miðvörðurinn var einn til varnar. Þegar hann fór gegn Bergsteini renndi Bergsteinn knettinum strax til Grétars. Knött urinn vafðist þó fyrir honum, og þegar hann loksins spyrnti á mark ið, var miðvörðurinn kominn fyr ir hann, og lenti knötturinn ofan á höfði hans og í markið. Varla er hægt að tala um sjálfsmark í þessu sambandi, því knötturiinn var á leiðinni í opið markið, og fékk Grétar því heiðurinn af því að skora öll möxk Reykvíkinga í leiknum, en í síðari hálfleik skor aði hann þrjú gullfalleg mörk, sem gerði það að verkum að áhorfend um hitnaði lítillega í kuldanum. Sóttu mjög Fyrsta stundarfjórðunginn, sem Reykjavíkurliðið lék undan vindin um, fór knötturinn vart af vallar- helmingi Keflvíkinga, en þeir vörð ust vel og það var ekki fyrr en eftir þennan stundarfjórðung, að úrvalið náði yfirhöndinni. Berg- steinn gaf þá fyrir, og Grétar spyrnti viðstöðulaust í mark — og knötturinn þaut í netið, alger- lega óve'rjandi. Óvenju glæsilegt mark. Eftir markið fóru Keflvíkingar að færast í aukana og áttu nokkur upphlaup og miðherji þeirra, Jón Jóhannsson, var óheppinn að skora ekki, þegar hann átti snöggt skot, sem rétt straukst framhjá stöng. Þá átti Högni Gunnlaugsson mjög gott skot, sem einnig rétt straukst yfir þverslána. En hættan var þó yfirleitt meiri hinum megin, og þegar um hálftími var af leik skor aði Grétar þriðja markið. Berg- steinn gaf enn vel fyrir, og Grét- ar skallaði skemmtilega í mark. (Framhald a 15 síðu > Skíðaskáli KR í Skálafelli. Sumarbúðastarf KR i Skálafelli Knattspyrnufélag Reykjavík ur mun í sumar, ef næg þátt- taka fæst, starfrækja sumar- búðir í hinum myndarlega skíðaskála sínum í Skálafelli. Skíðaskálinn er hið heppileg- asta hús til þessarar starfsemi, liggur afsíðis, en er þó búið nýtízku þægindum, sem fylgja rafmagni og fulikomnu hitun- arkerfi. Ráðgert er að haldin verði 2 námskeið er standi 3 vikur hvort og hefst fyrra námskeiðið þann 18. júní, en hið síðara þann 9. júlí. Tekin munu verða 30 börn á hvert námskeið, um það bil 22 drengir og 8 telpur á aldrinum 9 til 13 ára. Munu telpurnar búa á neðri hæð hússins en drengirnir á þeirri efri. í fyrra var gerður grasvöllur við skálann og munu verða kenndar ýmsar íþróttir og leikir, auk þess sem farnar verða gönguferðir um nágrenni skálanna. Fylgt verður ákveðinni dagskrá, sem í aðalatriðum verður sem hér segir: Klukkan 8,00 farið á fætur (Framnaio a 15 slðu Laslo Papp meistari Daninn Chris Christensen keppti í gær um Evróputitil sinn millivigt í hnefaleikum, en tókst ekki að halda titlinum. Mótherjar hans var hinn þrefaldi ungverski Ólympíumeistari, Laslo Papp. Leikurinn var stöðvaður í sjöundu lotu, en átti að vera 15 lotur. 17 þúsund áhorfendur sáu leikinn og þeir voru aldrej í vafa um hvor myndi sigra. Daninn átti þó góð- ar sóknarlotur í byrjun, en síðan komu yfirburðir Papp í ljós Hinn nýi meistari er 36 ára. og gerðist atvinnumaður fyrir rúmu ári. Korchnoj efstur - Keres vami Tal í 2D leíkjum Það er oft mikið að gera hjá blaðaljósmyndurunum í sambandi við íþróttaviðburði hér á landi — og undanfarin ár hefur þeim fjölgað mjög, sem tekið hafa myndir á vellinum — samkeppnin hefur harðn- að, enda gefst oft að líta snjallar íþróttamyndir hér í blöðunuin. Oft er það kuldaverk að híma við mörkin í misjöfnu veðri, og ljósmyndaramir krókloppnir með myndavélina. Bjarnleifur tók þessa mynd af félög- um sinum nýlega. Kristján Magnússon (Alþ.bl.) tók eftir viðbrögffum hans og brosti. Tóhann Vilberg er með myndavélina við augað, og bak við hann sést 1 myndavél Ingimundar Magnússonar Vísi. Gnsjón Ein- arsson, Tímanum, virðist í þungum þönkum, og lengst til hægri sést á breitt bak Sveins Þonnóðss. (Mbl). Willemsted, Curacao 15. maí. — í fyrstu umferðinni í annarri lotu á áskorendamótjnu (áttundu umferð) tapaði fyrrum heims- meistari, Tal, fimmtu skák sinni á mótinu. Hann haföi hvítt gegn félaga sínum, Tigran Petrosjan. sem beitti franskri vörn. Tal lék mjög illa af sér í byrjun og gaf skákina eftir aðeins 20 leiki. Öll- um skákunum í þessari umferð lauk. Fiseher hafði hvítt gegn Benkö. sem einnig beitti franskri vörn. Fischer vann peð og Benkö gaf skákina eftir 391eiki, en hann var þá með vonlaust hróks og peða endatafl. Paul Keres hafði svart gegn dr. Filip og var byrjunin móttek iff drottningarbragð, sem er sjald sæf* tærr; skákmótum. Keres reyndist þetta vel, náði stöðu- l yfirburðum, sem hann fylgdi eft- ir með fallegi’i sókn og vann hann skákina í 36 leikjum. Geller og Korchnoj sömdu um jafntefli eft ir 20 leiki og eru engin tíðindi frá þeirri skák. NTB—Curacao 17 maí — Korchnoj er stöðugt efstur á á- I skorendamótinu í Willemsted. Eftir níu umferðir hefur hann hlotið sex vinninga en næstir eru Petrosjan og Keres meg 5y2 vinn ing. Geller hefur 4y2 vinning og biðs'kák, Benkö 4%, Fischer 4 og biðskák varð hjá Fischer og Gell- ina með 2% vinning hvor. í níundu umferð urðu úrslit þau, að Keres og Tal gerðu jafn- tefli, og einnig Petrosjan og Korchnoj. Benkö vann Filip, en biðskák var hjá Fischer og Gell- er. 12 TIMIN N, föstudaginn 18. mal 1962

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.