Tíminn - 09.06.1962, Qupperneq 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriðí
G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Auglýs-
ingastjóri: Sigurjón Davíðsson. Ritstjórnarskrifstofur í Eddu-
húsinu; afgreiðsla, auglýsingar og aðrar skrifstofur í Banka-
stræti 7. Símar: 18300—18305. Auglýsingasími: 19523. Af-
greiðslusími 12323. — Áskriftargjald kr. 55 á mánuði innan-
lands. í lausasölu kr. 3 eintakið. — Prentsmiðjan Edda h.f. —
Gegn íhaldi og
kommúnisma
Það er talsvert fróðlegt að lesa blöð andstæðinganna
eftir kosningarnar og þó einkum eftir viðtal það, sem
Tíminn birti nýlega við Eystein Jónson, formann Fram-
sóknarflokksins, um kosningaúrslitin.
í blöðum Sjálfstæðisflokksins, einkum þó Mbl., er
viðtal þetta talið sönun þess, að Framsóknarflokkurinn
sé að ganga í þjóðfylkingu með kommúnistum. Eysteinn
Jónsson biðji kjósendur um að svipta stjórnarflokkana
þingmeirihlutanum til þess að geta unnið með kommún-
istum á eftir. Hér eftir þurfi ekki frekar vitnanna við um
að þjóðfylking Framsóknarmanna og kommúnista sé
staðreynd!
í blöðum kommúnista, einkum þó Þjóðviljanum, er
liinsvegar annað hljóð í strokknum. Þar er sagt, að Fram-
sóknarflokkurinn sé á hraðri leið til hægri. Hann biðji
kjósendur um að svipta stjórnarflokkana þingmeiri-
hlutanum til þess að geta komist í stjórnarsæng með þeim
á eftir! Þessu til sönnunar eni svo týnd fram hin fjar-
skyldustu atvik, eins og t.d. viðtal Tímans við Vilhjálm
Þór um samvinnustarf á Akureyri fyrir 40 árum!
Óþarft er að vera að svara þessum ósamhljóða ásök-
unum og getgátum íhaldsblaðanna og kommúnistablað-
anna. Þær skýra hinsvegar vel afstöðu Framsóknarflokks-
ins. Framsóknarflokkurinn verður jafnt fyrir hörðum
árásum íhaldsmanna og kommúnista vegna þess, að hann
er jafnlangt frá því að. gerast þjóðfylkingarflokkur með
íhaldsmönnum og kommúnistum. Hann er jafnt andvíg-
ur íhaldi og kommúnisma, enda lítur hann ekki á þetta
tvennt sem raunverulegar andstæður, heldur sem syst-
kini. Skyldleiki Salazar og Hoxha leynir sér t.d. ekki.
Framsóknarflokkurinn biður ekki um, að stjórnar-
flokkarnir verði sviptir þingmeirihlutanum til þess að
koma hér á stjórn, sem annað hvort verður undir merkj-
um íhaldsins eða kommúnismans, heldur til þess að hér
komist á stjórn, er lúti hvorugri þessara stefna. Nú
drottnar hér íhaldsstefna, en stjórnarflokkarnir þurfa
eki að missa, nema tvö þingsæti, til þess að henni verði
steypt úr sessi. Það er tilgangslaust að ætla að telja þjóð-
inni trú um, að hér myndi spretta upp stjórnleysi, eða
kommúnismi ef stjórnarflokkarnir misstu þessi þingsæti
í þau 44 ár, sem eru liðin síðan ísland hlaut sjálfstæði
hefur þjóðin komist vel af i 40 ár, án samstjórnar íhalds
og krata og allan þann tíma verið stjórnað ótvírætt bc
ur en nú. Það eitt myndi gerast, ef þingmeirihluti stjórn-
arflokkanna tapaðist, að áhrif íhaldsins yrðu minni, jarð-
vegurinn fyrir kommúnismann lakari, framfarirnar yrðu
meiri og tekjuskiptingunni yrði komið í réttlátara horf.
1.500.000 iunmir
Fiskifélag íslands hefur nýlega birt skýrslu um vetr-
arsíldveiðina og telur hana um 1.500.000 tunnur. Verð-
mæti þessa afla skiptir hundruðum milljóna króna.
Það er þessi nýja veiði, sem veldur mestu um það,
að þjóðin býr nú við sæmilega afkomu út á við og næga
atvinnu inn á við. Ef þessi óvænti fengur hefði ekki kom-
ið til sögu, myndi nú hvorugu til að dreifa. „Viðreisnin“
hefði séð fyrir því.
Þetta sýnir bezt, hve fjarstætt það er að þakka ,.við-
reisninni", að gjaldeyrisafkoman er sæmileg og að ekki
er atvinnuleysi.
Kosningabaráttan í Kanada
Heldur líklegra þykir þó, að Diefenbaker haidi velli
ANÍNAN mánudag eða 18. þ.
m. fara fram þingkosningar í
Kanada og stendur þar nú yfir
öllu harðari kosningabarátta en
nokkru sinni fyrr. Að dómi
kunnugra eru úrslitin talin
mjög tvísýn, en fleiri líkur virð
ast þó benda til þess, aS íhalds-
flokkurinn haldi velli, en þing-
meirihluti hans verði stórum
minni en hann er nú.
Það eru nú fimm ár síðan,
að íhaldsflokkurinn komst til
valda í Kanada. Þá var Frjáls-
lyndi flokkurinn búinn að fara
þar með stjórn í 22 ár. íhalds-
flokkurinn vann þá óvænt sigur
undir forustu nýs formanns,
John Diefenbaker, sem var þá
lítið þekktur, en gat sér gott
orð í kosningabaráttunni sem
snjall ræðumaður. Ekki náði þó
flokkurinn hreinum meirihluta,
og fór því minnihlutastjórn
hans með völd næstu mánuð-
ina. Sumarið 1958 efndi Diefen-
baker svo til nýrra kosninga
og vann þá glæsilegan sigur.
Flokkur hans fékk 205 þing-
sæti af 265 alls. Siðan hefur
hann tapað tveimur aukakosn-
ingum. Staðan í þinginu er nú
sú, að íhaldsflokkurinn hefur
203 þingsæti, Frjálslyndi flokk-
urinn 51, Nýi demokrataflokk-
urinn 8 og 3 þingsæti eru ó-
skipuð vegna fráfalls þing-
manna.
AÐ';RÉTTU lagi hefðu kosn-
ingarnar. ekki átt að fara fram
fyrr en á næsta ári, því að kjör
tímabilið er 5 ár. Diefenbaker
áleit hins vegar, að ekki væri
eftir betra að bíða- því að þótt
stjórn hans hafi gert ýmsa
hluti sæmilega, t.d. aukið ýms-
ar tryggingar, hefur hún verið
seinheppin og misvitur á öðr-
um sviðum. í efnahagsmálúm
hefur hún verið íhaldssöm og
afleiðingarnar líka orðið þær,
að atvinnuleysi hefur verið
mikið í Kanada seinustu miss-
erin. Efnahagsstefnu stjórnar-
innar er þó ekki einni hér um
að kenna, heldur engu síður
því, að erlent fjármagn eða
nánara sagt bandarískt fjár-
magn hefur náð alltof sterkum
tökum á atvinnulífi landsins.
Samkvæmt því, sem „The New
York Times“ segir nýlega, eiga
amerískir auðhringar og auð-
menn 44% af öllum iðnaðar-
fyrirtækjum í Kanada, en 71%
í þeim fyrirtækjum, sem annast
olíuvinnslu og framleiðslu nátt-
úrugass. Hinir útlengu aðilar
haga rekstri fyrirtækjanna að
sjálfsögðu mjög eftir því, sem
þeim finnst gróðavænlegast, og
hugsa þvi minna um atvinnu-
þarfir eða fjárfestingu en
kanadískum hagsmunum hent-
ar.
Dielenbaker hefur það sér
m.a. til afsökunar í þessu sam-
bandi. að bandarískir auðmenn
hafi náð mestu tangarhaldi á
kanadiskum iðnaði í stjórnar-
tíð Frjálslynda flokksins. í sein
ustu kosningum kappkostaði
hann þann áróður, að hann
vildi gera Kanada óháðara
Bandaríkjunum, en styrkja
tengslin við Evrópu. Þetta hef-
ur honum hins vegar ekki tek-
izt að efna. nema síður sé og
á Efnahagsbandalag Evrópu
sinn þátt í því.
Pearson ræðir við aldraðan kjósanda.
FRJALSLYNDI FLOKKUR-
INN hefur tvímælalaust verið
í mikilli sókn að undanförnu
undir forustu hins kunna for-
ingja síns, Lester Pearson fyrr-
verandi utanríkisráðherra. Það
hefur nokkuð háð Pearson, að
hann er ekki eins mikill ræðu-
skörungur og Diefenbaker og
störf hans sem utanríkisráð-
herra virðast hafa verið öllu
betur þekkt utan Kanada en
heima fyrir. Pearson hefur hins
vegar dugað allvel í stjórnar-
andstöðunni á þingi, en þar og
annars staðar hefur hann unnið
að því að færa stefnu flokks-
ins í stórum róttækari átt. Á
þingi flokksins í fyrra var sam-
Díefenbaker
þykkt ný stefnuskrá, er færir
hann mjög nærri alþýðuflokk-
unum á Norðurlöndum að öðru
leyti en því, að hann hafnar
alveg þjóðnýtingarstefnunni.
Það nægir þó ekki til þess að
koma í veg fyrir. að talsmenn
íhaldsflokksins tali nú um
hann sem sósíalistiskan flokk
í utanríkis- og varnarmálum
kemur fram talsverður ágrein-
ingur i kosningabaráttunni
milli þeirra Diefenbakers og
Pearsons. Pearson lýsir yfir því
hiklaust, að ekki komi til mála
að leyfa staðsetningu kjarn
orkuvopna í Kanada né að búa
kanadiska herinn slíkum vopn-
um. Diefenbaker talar hins
vegar fremur óljóst um þetta.
EKKI er ólíklegt, að Frjáls-
lyndi flokkurinn yrði sigurveg-
ari í kosningunum, ef hann
ætti ekki skæðan keppinaut,
þar sem er Nýi demokrataflokk
urinn. Flokkur þessi var stofn-
aður á síðastl. ári og. stóðu að
stofnun hans Samvinnuflokkur-
inn, sem hefur átt nokkra þing-
menn á þingi Kanada um all-
langt skeið, og Alþýðusamband
Kanada. Tilgangurinn með
stofnun hins.nýja flokks er að
reyna að koma upp öflugum,
sósíalistiskum flokki í Kanada.
Fyrst eftir stofnun hans, virt-
ist hann hafa allmikið fylgi,
en heldur virðist hafa dregið úr !
því upp á síðakstið. Foringi ’j
þessa nýja flokks hefur lengi
verið forsætisráðherra í Sask-
atchewan-fylki, en þar hefur
Samvinnuflokkurinn lengi haft
meirihluta.
Annar smáflokkur lætur einn
ig talsvert taka til sín, en senni-
lega er hann ekkert síður
hættulegur íhaldsflokknum en
Frjálslynda flokknum. Þessi
flokkur er Social-Creditflokkur
inn, Stefna hans er talsvert ó-
venjuleg en einföld. Hún er i
stuttu máli sú að finna eigi
þann mun, sem er á fram-
leiðslu og neyzlu og sé eftir-
spurnin ekki nægileg til að
tryggja sölu allrar framleiðsl-
unnar, eigi bankarnir að lána
út fé á þann veg, að tryggt
verði, að öll framleiðslan selj-
ist. Þannig verði bezt tryggt,
að framleiðslan haldi stöðugt á-
fram að vaxa. Hagfræðingar
draga dár að þessum kenning-
um flokksins, en hann hefur
hins vegar unnið verulega fylgi
i tveimur vestustu ríkjum Kan-
ada, Alberta og British Colum-
bia. Hann fer nú með fylkis-
stjórn í þeim báðum. Hins veg-
ar tókst honum ekki að fá þar
neinn þingmann kjörinn á sam-
bandsþingið í Ottawa í seinustu
kosningum, því að íhaldsflokk-
urinn hreppti þá alla.
HÖRÐUST mun kosninga-
baráttan verða í austustu fylkj-
unum, Ontario og Quebec, en
þau eru líka fólksflest og hafa
flesta þingmenn. Þar hefur
Frjálslyndi flokkurinn aðal-
fylgi sitt og jafnframt mesta
vinningsmöeuleika Að þessum
fylkjum mun baráttunni alveg
sérstaklega beint þá daga. sem
eru eftir til kosninganna.
Þ.Þ.
7
T í MIN N , laugardaginn 9. júní 1962