Tíminn - 09.06.1962, Blaðsíða 14

Tíminn - 09.06.1962, Blaðsíða 14
Fyrrí hluti: Undanhald, eftir Arthur Bryant Heimiidir eru STRIÐSDAGBÆKUR ALANBROOKE meinti það. Og hann sagði: ,,Smuts skýrði mér frá ástæðunum að ákvörðun yðar og að þér hefð- uð álitið, að þér mynduð geta þjón að landi yðar bezt með því að vera hér kyrr hjá mér, og ég er mjög þakklátur fyrir þá ákvörðun". — Þetta tengdi okkur enn fastari toöndum. Hann er sá erfiðasti mað- ur, sem ég hef nokkru sinni þjón- að, en ég þakka guði fyrir það, að gefa mér tækifæri til að reyna að þjóna slíkum manni . . . “. Meðan Brooke beið eftir fréttum frá Egyptalandi, beið hann einnig eftir fréttum um síðustu tilraun- irnar til að undirbúa landgöngu í Algier. Nokkrum dögum áður en sókn Montgomerys hófst hafði Eis enhower fengið bréf frá Murphy hershöfðingja, þar sem hann mælt ist eindregið til þess, að hernað- arlegur fulltrúi yrði sendur til Al- gier til þess að gera leynilegt sam- band við ráðandi franska liðsfor- ingja þar, þ.á.m. Juin hershöfð- ingja. Það hafði verið ákveðið að senda Mark Clark hershöfðingja, sem samkvæmt því fór í flugvél til Gíbraltar og hélt þaðan áfram 68 gerður bæri heilan hug til Jónas- ar. En skaplyndi hans væri slíkt, að þar sem hann hefði fest sjón- ir á Sólveigu, væri sjálfsagt að láta hann sigla sinn sjó. — Hann er að stríða mér, sagði Valgerður. — Eg veit það. Eg trúi ekki öðru. Hann er að stríða mér. Hann er að kanna það, hvort ég sé staðföst. Það skal hann sjá ogjreyna. — Góða stúlka mín, sagði sýsluj maður. — Það er ómetanlegt að vera staðfastur, vera bjarg. En bjarg sem lokar leið vegfarandans ekki sfzt vegfarenda, sem maður ann, á að víkja. Hugleiddu það, barnið mitt. — Nei, pabbi. Eg er ekki bjarg ið, sem lokar lciðum. Eg er bjarg ið sem gefur kraftinn til nýrra átaka. Eg skal vera Jónasi góð, ómissandi lífsförunautur. Efastu ekki um það. — Þú opnar honum leiðina stúlka mín. Þú verður bjargið sem vísar honum leið. Og gerir það þann veg, að hann elskar þig og virðir svo lengi sem hann lifir. — Viltu virkilega, pabbi að ég gefi Jónas lausan? Sýslumaður þagði drykklanga stund. Svo sagði hann: — Já, stúlka mín. Eg held að það sé eina færa leiðin. Þá brast unga stúlkan í grát kastaði sér upp í rúmið og byrgði andlitið í koddanum. Sýslumaður settist á rúmið, greip hönd hennar, fól hana í báðum lófum sínum. Þannig sat hann þungt hugsandi, unz grátur meyjarinnar hægðist. Þá leit hún upp grátbólgnum augum og sagði: — Þú skalt fara, pabbi minn. Eg er ekkert bjarg, hvorki til þess að standa í vegi fyrir neinum né ferðinni með kafbát til strandar Algiers. Níu dögum síðar snæddi Brooke aftur hádegisverð með forsætisráðherranum og fékk þá að heyra frásögn Clarks af þessari ævintýralegu ferð. „Ferðin hófst með því að Clark flaug til Gíbraltar og hélt þaðan áfram með kafbát, eins og ákveðið hafði verið. Hann fór í land á segl bát, sem vegna brims hvolfdi í lendingunni. í landi beið Murphy hans, ásamt nokkrum liðsforingj- um og frönskum hershöfðingja. Öll skilyrði voru sem hagstæðust og miklar líkur til þess, að Giraud kæmi sjálfur. Óvænt árás lögregl- unnar á fundarstaðinn, en Clark og félagar hans földu sig í vín- kjallara, þar sem einn þeirra, brezkur höfuðsmaður, fékk skyndi lega óviðráðanlega hóstahviðu. Clark spurði hann, hvort átgúm gæti nokkuð hjálpað honum og gaf honum bita út úr sér. Eftir litla stund bað höfuðsmaðurinn um meira. Clark sagðist vona, að hann hefði ekki gleypt það. Höfuðsmað urinn sagði: „Nei, en það sem þú gafst mér áðan, er næstum alveg styðja neinn. Eg er veikt og vesalt barn. Lofaðu mér að vera einni. Sýslumaður reis hægt úr sæti. Klappaði hlýlega á herðar ung- meyjarinnar og yfirgaf herbergið. Og nokkru síðar átti sýslumaður tal við Jónas. Þá sagði Jónas sýslu manni, að hann ætlaði sér að kvænast Valgerði, ef þau, foreldr ar hennar, krefðust þess og mamma sín æskti þess líka. Hann j væri búinn að láta Sólveigu vita ' það. Og honum fór eins og Val- gerði Hann bað sýslumann að lofa sér að safna kröftum í einrúmi. — Það er skylt að gera það, sagði sýslumaður. En með eina spurningu ferðu frá mér inn í ein rúm þitt: — Heldur þú, að þú getir orðið Valgerði góður eiginmaður eftir þetta fráhvarf? Það er líka þáttur út af fyrir sig og ekki sá veiga- minnsti. — Eg veit ekki, hvort að ég yrði nokkurri konu góður eftir þetta. Enda þótt ég elski Sólveigu og þrái hana eina, veit ég ekki nema þið öll stæðuð í veginum og dræguð frá, þó að ég ætti liana Valgerði saka ég ekki um neitt. Eg veit, að hún er stúlka, greind stúlka og vönduð. Eg mun reynast henni, eftir því sem ég hefi vitið til. Það yrði þá aldrei verra en svo, að hún yrði að búa við hlutskipti móður sinnar, fóstra f ramh j átökubarn. Þessi síðustu orð Jónasar sýna það hvað orðrómurinn um faðerni Guðmundar litla í Hvammi, var orðinn það útbreiddur að jafnvel beztu vinir heimilisins töldu sig vita það sem ekki var opinbert enn. Sýslumaður brosti. — Þú ert í sárum, vinur minn. bragðlaust". Clark svaraði: „Það er ekkert undarlegt; þar sem ég hef nú verið að tyggja það í tvær klukkustundir." Hópurinn lenti í miklum háska á leiðinni til baka og minnstu munað'i að þeir drukknuðu allir, þegar bátinn fyllti; hvað eftir ann- að. . . . Þessi ferð Clarks var í alla staði hin ævintýralegasta og hann sýndi í henni mikinn kjark og áræði. . . . Erfiðleikarnir byrj- uðu fyrir alvöru, að fundi loknum, þegar þeir félagarnir reyndu að komast út í seglbátnum í hinum þunga brimsjó. Clark kastaðist út- byrðis og varð holdvotur. Það reyndist ógerningur að koma bátn- um á flot og sú ákvörðun var því tekin, að bíða þess að sjóinn lægði. Á meðan fór Clark úr blautu fötunum og vafði um sig útsaumuðum borðdúk. Það var loks eftir endurteknar tilraunir, að þeim tókst að ýta bátnum frá landi, en þá biðu þeirra enn frek- ari erfiðleikar við það, að ná sam- bandi við kafbátinn , . “ Þann 2. nóvember, sex dögum fyrir hina fyrirhuguðu landgöngu En góður drengur ertu, og það er fyrir öllu. — Góður drengur ég. Það held ég varla, sagði Jónas. — Jæja, Jónas minn. Þá er þessu samtali lokið. Og einrúmið, sem þú baðst um, skal ég ekki rjúfa fyrst um sinn. En inn í einrúmið skaltu fara meg þau orð frá mér. Að það er ekki öli von úti enn. Kannaðu ást þína og út- vegi alla. Komdu úr einrúminu með lífsspeki, sem treystir fram- tíð þína og gerir þig sjálfan mann að meiri. XXXI Signý kom heim að þrem vikum liðnum eins og ráð var íyrir gert. Hún var með bréf til Jónasar frá móður hans, var það svar við fá- yrtu bréfi, sem hann skrifaði henni með Jóhanni. Hún bað hann að taka einarðlega afstöðu til þessa mikla framtíðarmáls og drengilega í senn. Hún kvaðst fylgja ákvörðun hans, hver sem hún væri. Ekkert væri eins mikil vægt og það ag haga sér sam- kvæmt innstu ósk hjartans, er eiginkona væri valin. — Eg treysti því, að þú verðir þeirri konu ástríkur og góður, sem fyrir valinu verður, sagði hún að endingu. Þessi úrdráttur úr bréfi móður Jónasar er mikilvægur vegna þess að þarna ræddi móðir við dreng? inn sinn í algerri andstöðu við vilja eiginmannsins. Hann vildi, að þau hjónin, nánustu forsvars- menn Jónasar, legðu hart að hon um að sjá sóma sinn í því að feta þá braut, er þau höfðu markað. Konan, sem þau höfðu valið hon um að lífsförunaut, væri ein gagn menntaðasta og tignasta ungmeyj an, sem fyndist í sveitum lands- ins og auk þess forkunnarfögur í Norður-Afríku, og meðan skipa- lestirnar og fylgdarskip þeirra voru enn á leiðinni yfir hið kaf- báta-herjaða Atlantshaf, snæddi Brooke enn einu sinni hádegisverð með forsætisráðherranum til þess að kveðja þá Eisenhower og Clark, áður en þeir flygju til Gíbraltar. Síðar um daginn kom hann skeyti frá Montgoomery, þess efnis, að hann hefði hafið árásaraðgerðir sínar nóttina áður. Áður en hann gerði svo, hafði hann sent Brooke langt persónulegt bréf, þar sem hann gaf glögga lýsingu á öllum aðstæðum. Um hádegisverðarleyti næsta dag, þann 3. nóvember, fékk Brooke enn nánari fréttir, þegar hann var kallaður í símann og honum tilkynnt, að samkvæmt ný- komnum upplýsingum, þá væri að staða Rommels nú þegar vonlaus. „Það má gera sér í hugarlund, hvaða áhrif þessar fréttir höfðu á mig. . . . Eg þorði ekki, enn sem komið varr að reiða mig algerlega á þær, en mér var óvenjulega létt í skapi, það sem eftir var dags- ins . . “ Næsta morgun, eftir þreytandi akstur í þoku, þegar Brooke kom til London, tók forsætisráðherrann á móti honum með þeim fréttum, að Hitler hefði fyrirskipað her- deildum sínum að velja á milli sigurs eða dauða. „Forsætisráðherrann í sjöunda himni. Klukkan 3,30 e.m. sendi hann eftir mér til þess að ráðgast við mig um þá hugmynd sína, að hringja kirkjuklukkum. Eg bað hann að bíða með það lítið eitt lengur, þangað til við værum viss- ir um, að við myndum ekki hafa neina ástæðu til ag iðrast þess að hafa hringt þeim. Meiri góðar fréttir frá Alex síðar um daginn. Klukkan 11 e.m. var ég aftur boð- aður á fund forsætisráðherrans, sem var önnum kafinn við að semja orðsendingar til Roosevelts, Stalíns, sjálfstjórnarnýlenda, hers 78 höfðingja o. fl. Hann var í mjög æstu skapi. . . . “ Allan 5. nóvember héldu fréttir um sigra áfram að berast. „ . . . Montgomery hefur nú stökkt öllum her Rommels á flótta. Þar sem þeir hafa nú mjög lítið af flutningatækjum og olíu, virðist hann eiga mjög mikla sig- urmöguleika . . “ Að kvöldi hins 6. nóvember, höfðu 30.000 fangar verið teknir í veslur-eyðimörkinni, ásamt 350 skriðdrekum og 400 fallbyssum. Rommel og leifarnar af Afríku- hernum voru á fullum flótta. Fjórar þýzkar herdeildir og átta ítalskar, höfðu verið felldar til síð- asta manns og Alexander hershöfð ingi gat með góðri samvizku sent forsætisráðherranum svohljóðandi skeyti: „Hringið klukkunum.“ En þá um nóttina byrjaði að rigna og hélt áfram allan næsta dag, svo að eyðimerkurbrautirnar til lib- ysku landamæranna breyttust í rennandi leirflaum og leðjuforæði og torvelduðu þannig brezku skrið drekaherdeildunum mjög eftirför- ina. Meðan það hélt áfram að rigna í Egyptalandi, allan þann laugar- dag, hélt brezki herskipaflotinn á Miðjarðarhafi — nú austur á leið, m.a. orrustuskipin Duke of York, Rodney og Renown og flugvéla- móðurskipin Victorious, Formid- able og Furious. Og þegar náttaði og Þjóðverjar og ítalir fylgdust með vakandi eftirtekt með sigl- ingaleiðunum til Sardiniu, Sikil- eyjar og Möltu, beygði skipalestin í suður og skipti sér í tvo hópa. Stefndi annar til Oran og hinn til Alsír. Aðeins einu bandarísku skipi hlekktist á, en það varð fjrrir tundurskeyti frá kafbát, er það átti aðeins eftir 100 míiur ófarn- ar til ákvörðunarstaðarins. Aðeins eitt óhapp annað varð, en það var þegar veslings Giraud hershöfð- ingi var næstum lentur útbyrðis við flutninginn úr kafbátnum til flugvélarinnar, sem átti að flytja BJARNI ÚR FIRÐI: Stúdentinn í Hvammi og dugmikil. Sigurður dannebrogs maður var óvanur því, að sér væri ekki hlýtt og ætlaðist áreiðanlega til þess, að eiginkonan væri sam mála honum, en ekki andstæð i jafn mikilvægu máli sem þessu. Veturinn leið. Dagarnir uröu að vikum. Sumarið hóf innreið sína með vorönnum og fuglasöng Og enn var Jónas í Hvammi. Nú leig að þeim degi, sem von var á Sigurði dannebrogsmanni og boðs fólki öðru að brúðkaupi Signýjar Hvammur bjó sig undir þá komu. Þá er það einn morgun, að sýslumaður biður Jónas að finna sig fram í skrifstofuna — Jæja, vinur. Nú hefur þú fullráðið framtíð þína, sagði hann — Þar hefur ekkert breytzt frá því er ég sagði þér í vetur, sagði Jónas. — Eg elska Sólveigu, en ætla að hlíta forsjá ykkar sýslu- mannshjóna. Sé ekki, að annað sé fært. — Þá afhendi ég þér þennaii| grip, sagði sýslumaður og fékk; Jónasi svipaða öskju og þá, er ] stjúpi hans rétti honum áður og geymdi hringana. — Þarf ég að taka við öskj- unni fyrr en á réttri $tund? sagði Jónas. — Nú er einmitt rétta stundir Líttu á hringana. Jónas gerði það. — Viltu máta þinn hring? Jór as renndi honum á fingur sér — Hann er mátulegur. Jónas dró hann aftur af fingrii um. — Líttu á grafletrið á hring: um. Jónas gerði það og brá liturr Þar stóð „Sólveig". — Hvað? hvað? Hvað á þett að þýða? stamaðj hann. — Þetta þýðir að við hér höi um leyst þig út. Nú hverfur þi til ástmeyjar þinnar og opinbe ar, áður en foreldrar þínir koms Eg skal einnig þar ryðja þé brautina. Þú getur notið ástmey ar þinnar í fullu trausti þess, a: við hér í Hvammi stöndum me: þér og biðjum þér blessunar. Ö1 sem einn maður. — Og Valgerður líka? — Já, Valgerður líka. Þú getu talað við hana og sannfærzt. Jónas stóð um stund eins og báðum áttum. — Jæja, Jónas minn, sagð sýslumaður. — Eg hélt að é, kæmi færandi hendi. Má ég ekk óska þér til hamingju? 14 TÍMINN, laugardaginn 9. júní 1962

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.