Tíminn - 09.06.1962, Blaðsíða 12
RITSTJÓRl FRIÐRIK ÓLAFSSON
Þegar fyrri hluta Áskorenda-
mótsins lauk 26. maí s.l. var far
ið með keppendur til eyjarinnar
St. Martin, sem er skammt frá
Curacao, og þar nutu þeir nokk-
urra daga hvíldar til að safna
kröftum fyrir lokasprettinn. Hinn
1. júní var svo hvíldinpi lokið og
komu keppendur þá aftur til
Curacao til. að hefja seinni þátt
þessa hildarleiks. Hingað hafa
borizt fregnir af þremur fyrstu
umferðunum, og virðist staðan
að þeim loknum (biðskákum ó-
lokið) vera þessi: 1—3 Keres,
Geller og Petrosjan allir 10y2
vinning og eina biðskák. 4.—5.
Fischer og Korchnoj 8 vinninga
og eina biðskák hvor. 6. Benkö 8
vinninga. 7. Tal 5% vinning. 8.
Dr. Filip 4 vinninga og eina bið-
skák.
Þær breytingar hafa oröið
helztar meðal efstu manna. að
Korchnoj er algjörlega dottinn
úr forustunni, en Keres hefur
aftur á móti tekizt að brúa það
bil, sem var á milli hans og efstu
manna (Geller og Petrosjan) og
gerir hann sig nú líklegan til að
taka forystuna, því að hann á
unna biðskák gegn Korchnoj.
Þeir Geller og Petrosjan halda
enn sitt strik og láta engan bil-
bug á sér finna. Geller hefur að
vísu verið hætt kominn í síðustu
skákum sínum, en af mikilli hug-
kvæmni hefur honum tekizt að
leiða leikinn farsællega til lykta.
— Það er áberandi, hversu þeir
Geller, Keres og Petrosjan láta
mest stjórnast af skynseminni í
í taflmennsku sinni. Þeir láta sig
urviljann aldrei hlaupa með sig
í gönur og spara greinilega kraft
ana til lokaátakanna. Þetta sést
bezt á því, að þeir hafa samtals
leikið fæstum leikjum í skákum
£ num og að jafnaði notað minnst
an tíma allra keppenda.
Af öðrum keppendum er Benkö
helzt umtalsverður. Hann hefur
nú sýnt og sannað, að hann á
ekki heima í neðsta sætinu, og
takist honum að halda eins vel
á spilunum og til þessa, má bú-
ast við, að hann hljóti að lokum
verðugan sess í miðjum hópi.
Hér birtist nú fjörug skák, sem
tefld var í 12. umferð og er báð-
um teflendum til mikils sóma.
Henni lýkur að vísu með jafn-
tefli, en enginn skyldi segja, að
friðarviljinn hafi ráðið mestu
um þau úrslit.
Hv.: Petrosjan ,Sv.: Benkö
Grunfeldsvörn
1. d4, Rf6 2. c4, g6 3. Rc4, d5 4.
Rf3, Bg7 5. Bf4, 0—0 6. Hcl.
(Þessi leikur er sjaldgæfur, en
mun fyrst hafa litið dagsins ljós
í einhverju hinna sovétsku meist
aramóta ) 6. —, c5 7. dxc5 (Hvítur
vill sjá, hvernig svartur hyggst
vinna peð sitt aftur.) 7- —, dxc4
(7. —, Da5 mundi ekki gefast vel
vegna 8. cxd5, Hd8 9. Bd2, Dxc5
10. e4.) 8. e4, Da5 (Hvorugur vill
verða fyrri til að fara í drottning
arkaup og eftirláta andstæðingn
um þannig dlínuna. Með síðasta
leik sínum gerir Benkö út um
þetta spursmál.) 9 e5, Hd8.
(Sennilega bezti leikurinn. Eftir
9. —, Rh 5 10. Be3, Rc6 11. Bxc4,
Rxe5 12. Rxe5, Bxc5 13. 0—0 stend
ur hv. betur.) 10. Bd2 (1 þessari
stöðu'lék Korchnoj eitt sinn 10.
Da4, en hafði ekki af miklu að
státa eftir 10. —, Dxa4 11. Rxa4,
Rd5 12. Bg3, b5 13. cxb5 frh.,
axb6 14. Rc3, Rxc3 15. bxc3. b5.)
10. —, Rg4 11. Bxc4, Dxc5 (11. —,
Rxf2 var freistandi. en strandar
á 12. Kxf2, Dxc5+ 13.. Be3!) 12.
Re4, Db6 13- Bxf7+! (Slík fórn
á f7 er í sjálfu sér ekkert ný-
næmi, en hugmyndina að baki
hennar hef ég aldrei rekizt á áð-
ur. Hvítur virðist í fljótu bragði
ekki fá nema peð fyrir skipta-
muninn, en það er öðru nær.) 13.
—, Kxf7 14. Hx c8, HxcS 15. Rf-
g5+, Kg8 (Eftir 15. —, Ke8 16.
Dxg4, Rd7 hefur hvítur á tak-
teinum 17. Rd6+, exd6 18 .De6+,
Kd8 19. exd6 og vinnur.)
16. Dxg4 Dc6 (Eftir 16. —, Hf8
hefur hvítur áframhalæið 17.
Re6.) 17. Rd6! (Kjarni leikflétt-
unnar.) 17, —, Dd7! (Eini leikur-
inn. 17. —, exd6 strandar að sjálf-
sögðu á hinu alkunna kæfingar-
máti 18. De6+. Kh8 19. Rf7+,
Kg8 20. Rh6+, Kh8 21. Dg8+ o.S.
frv.) 18. Dxd7 (En hérna bregzt
Petrosjan bogalisin. Sterkara var
18.. Dh4 og nú á svartur aðeins
um tvær leiðir að velja: a) 18.
—, h6 19. Rxc 8, hxg5 20 Dc4+,
KÍ8 21. Rxe7! — 20. —, Kh8
uiundi heldur ekki duga vegna 21.
h4. — b) 18. —, exd6 19. Dxh7+,
Kf8 20. Dxg6, Kg8 21. 0—0 Og nú
rekur framrás hvíta f-peðsins
endahnútinn á leikfléttu hvits.
Þessa vinningsleið fyrir hvítan
sýndi rússeski stórmeistarinn Bol
eslafsky fram á eftir að skákinni
lauk.) 18. —, Rxd7 19. Rxc8, Hx-
c8 20. f4, Hc2 21. Ke2, Bh6 22. Rf3,
Hxb2 23. g3, g5 og hér urðu tefl-
endur ásáttir um jafntefli.
SÝNING
BÆKUR OG VÖRUSÝNISHORN
Hestamannafélagið FÁKUR
HVITASUNNl) KAPPREIÐAR
FRÁ SOVÉTRÍKJUNUM
í Snorrasal, Laugavegi 18, stendur nú yfir sýning
á sovézkum bókum á ensku, þýzku og sænsku.
Einnig eru sýnishorn af nokkrum vörutegundum,
sem fluttar eru hingaS frá Sovétríkjunum eða
Hinar árlegu kappreiðar FÁKS verða háðar á skeiðvellinum við Eiiiðaár a-a-n«-a«---
dag hvítasunnu og hefjast kl. 2 síðdegis.
standa til boða íslenzkum innflytjendum: Hljóð-
færum, hljómplötum, myndavélum, úrum, kvik-
— Glæsilegur hesfakostur —
myndavélum o.fl.
46 hlaupagarpar víðsvegar að af landinu.
Rosemarie Þorléifsdóttir stjórnar íþróttum unglinga á hestum.
Hindrunarhlaup Naglaboðhlaup
Sýningin er opin daglega kl. 2—10 síðdegis.
Ókeypis aðgangur.
Veitingar á staðnum. Veðbankinn starfar.
Lúðrasveit Reykjavikur leikur.
Athugið: Fáksfélagar þeir, sem ætla að sýna kynbótahross á Skógarhólum í sumar, tilkynni
það skrifstofu félagsins fyrir 15. þ.m.
STJÓRNIN.
SNORRASALUR
Verksmiðjan MAX h/f.
Reykjavík
Regnföt
Flugfélag Reykjavíkur
FLJÚGUM TIL Hellissands
mánudag. laugardag.
Hólmavíkur, Gjögurs,
fimmtudag. Stykkishólms
laugardag.
Flugfélag Reykjavíkur
Sími 20375
Tii leigu
einbýlishús í Silfurtúni
(Goðatún 15). Stór bílskúr.
Stór ræktuð lóð.
Til sýnis báða hvítasunnu
dagana. Upplýsingar á staðn- ,
um.
12
TIMIN N , laugardaginn 9. júní 1962