Tíminn - 09.06.1962, Blaðsíða 16
'ar <$■
alillMlilWM
Laugardagur 9. júní 1962
130. tbl. 46. árg.
Miklir möguleikar
- segir Kristensen
— Ég álít, að ísland eigi
mikla framtíðarmöguleika
efnahagslega séð, sagði Thor-
kil Kristensen, framkvæmda-
stjólri OECD, á blaðamanna-
fundi á Hótel Borg í gær. Eg
kom hingað til lands fyrir sjö
árum, og hef ég nú séð, að
mikil þróun hefur orðið á ís-
landi og framtíðarmöguleik-
arnir eru miklir.
Kristensen sagði, a3 fimm ára
áætlunin, sem nú er verig að
vinna að hér á landi, mundi senni
lega verða til þess að auka láns-
traust ríkisins í útlöndum, svo
framarlega sem sú áætlun yrði
skynsamleg. Væntanlegum lán-
veitendum væri það mikið hag-
ræði að hafa í höndum ýtarlegar
skýrslur og áætlanir um atvinnu-
líf þeirrar þjóðar, sem óskar eft-
ir fjármagni til láns.
Kristensen vildi að öðru leyti
ekki segja álit sitt á efnahagsmál-
um íslands né t. d. á afstöðu lands
ins til Efnahagsbandalags Evrópu,
en skýrði blaðamönnum þeim
mun meira frá starfsemi Efna-
hags- og framfarastofnunarinnar
(OECD) og nálægustu markmið-
um hennar.
Óljóst ástand í efnahagsmálum
OECD hefur að ýmsu leyti sér-
staka afstöðu. Hún er eina stofn-
unin, sem velflestar þjóðir Evr-
ópu og Norður-Ameríku eiga að-
Meðal atriða á kappreiðum Fáks
annan hvítasunnudag er hindrunar
hlaup. Það hefur lítið verið æft á
íslandi, utan hvað forfeður okkar
hsettu að þjálfa hesta sína í alls
konar þrautum, svo þeir kæmust
greiðlega leiðar sinnar, en nú hefur
Rosmary Þorleifsdóttir tekið að
sér að þjálfa íslenzka hesta í hindr-
unarhlaupl að erlendri fyrlrmynd.
Runólfur Ijósmyndari brá sér inn
á skeiðvöll í fyrrakvöld og tók þessa
mynd af æfingunni.
Kennararnir vilja reisa
smáhúsin í Olíuportinu
ild að. Hún stendur þannig að
nokkru leyti utan við þær viðræð
ur og deilur, sem eiga sér t. d.
stað um ^ Efnahagsbandalag Evr-
ópu og Fríverzlunarsvæðið. Nú
standa yfir miklar viðræður milli
EBE-ríkjanna og annarra Evrópu
ríkja og munu þær aukast enn í
náinni framtíð. Ástandið í þessum
málum er mjög óljóst, sagði Krist
ensen, og bíður OECD átekta til
þess að sjá, hverju fram vindur.
Samvinna bre'iðist út.
Kristensen var spurður ýmissa
spurninga um álit hans á þróun
vestrænnar efnahagssamvinnu í
náinni framtíð, og svaraði hann
því til, að æskilegast væri að
hún næði til sem flestra ríkja,
án þess þó, að tengslin vig þau
verði mjög veik. Þessi mál eru
enn öll í deiglunni, sagði Kristen-
sen. Bandaríkin hafa sýnt mikinn
áhuga á afnahags- og tollasam-
vinnu við Vestur-Evrópu, einkum
EBE-ríkin, og þá skapast vanda-
mál í sambandi við Suður-Ame-
Framhald á 3. síðu.
Trúboðaheimsókn
Nýlega er kominn hingað til
lands dr. Oswald J. Smith frá
The People Church, í Toronto,
Kanada. Hann hefur allra nú-
lifandi manna mestan áhuga á
kristniboði. f um þriðjung aldar
hefur hann unnið að þessu áhuga
máli sínu.
Söfnuður hans The Peoples
Church, hefur aldrei verið mjög
fjölmennur — um 3500 manns eru
í honum nú — en, hann hefur
gefið til trúboðs um 4% milljón
dollara (um 180 miilj. króna),
síðan han var stofnaður árið
1930.
Dr. Oswald J. Smith hefur ferð-
ast mjög víða og haldið sam-
komur. Hann mun hafa komið
nokkrum sinnum til landsins áður
án viðstöðu hér. Nú kemur hann
til að dvelja hér hálfsmánaðar
tíma og á meðan heldur hann
samkomur í Fríkirkjunni 10—21.
júní kl. 8,30 á hverju kvöldi. Ým-
is kristileg samtök hér í borginni
munu aðstoða þar með hljóðfæra
leik og söng. Ókeypis aðgangur
er að öllam samkomum hans. —
Fyrsta samkoman er á hvítasunnu
dagskvöld kl. 8,30.
Enn er þrátefli í húsnæðis-
málum Menntaskólans í
Reykjavík þessa vikuna. Bygg
inganefnd Reykjavíkur neit-
aði eins og kunnugt er aS sam-
þykkja skipulagið að bygg-
ingu í Olíuportinu, en vegna
kosninganna í maí varð að
kjósa nýja bygginganefnd, og
hefur það nú verið gert. i
Svanuríheimsókn
Borgarfirði
>
i
Á annan hvítasunnudag fer
lúðrasveitin Svanur í tónleikaferð
upp í Borgarfjörð, og mun leika
í Borgamesi klukkan tvö en á
Akranesi klukkan sex. Hljómsveit
arstjóri er Jón G. Þórarinsson.
Hin nýja bygginganefnd hefur
ekki komið saman til fundar enn-
þá, en hún mun að öllum líkind-
um taka mál Menntaskólans fyrir
hið bráð'asta. Þess má geta að all-
ir sömu menn eru í bygginganefnd
inni og voru fyrir kosningar, þar
eð þeir voru allir endurkjörnir.
Nokkrar breytingar hafa verið
gerðar á skipulagi því, sem áður
hafði verið lagt fyrir bygginga-
nefnd. T.d. var ætlunin, að leik-
fimihúsið, sem átti að rífa niður
og endurreisa, yrði til frambúð-
ar, en nú hefur verið ákveðið að
hreyfa ekki leikfimihúsið í sumar,
enda yrði aldrei hægt að fullgera
það með öðru fyrir haustið.
Kennarar Menntaskólans héldu
kennarafund í gær, og voru þar
bomar fram tvær ályktanir, og
þær báðar samþykktar. Það er
skoðun kennara, að reisa verði
smáhýsin í Olíuportinu í sumar,
ti! þess að hægt verði að halda
áfram starfsemi' skólans á sama
hátt og verið hefur undanfarin
ár. Þeir telja þó að hér geti að-
eins verið um bráðabirgð'abygg-
ar að ræða. Reisa þurfi nýjan
menntaskóla, og eflaust fleiri en
einn til þess að fullnægja kröfum
tímans.
I
Það er orðið langt síðan Reykja-
víkurbær, sem þá var, úthlutaði
Menntaskólanum Jóð inn í Hlíð-
| um. Lokið hafði verið við að grafa
| grunn skólahússins, og allar teikn
i ingar að honum voru einnig fyr-
I ir hendi. Auk þess hafði bústað-
ur rektors verið fullgerður A i
þeim tíma voru nokkrir kennarar;
því mótfallnir að fella algjörlega
niður kennslu í hinu gamla skóla-'
húsi. Ágreiningur varð svo þess1
valdandi, að fallið var frá bygg-
ingu skólahússins.
1 Þrátt fyrir það, að bygginga-i
r.efnd samþykki skipulagið, sem,
skipulagsnefnd hafði samþykkt í
vetur, er 'nú að verða hver síðast-1
ur að hefjast handa um bygging- j
arnar, ef fært á að vera að taka
þær í notkun í haust, er skólinn
tekur til starfa að nýju.
Ðrengur slasast
i gær varð pað slys, að 16 ára
piltur, Björn Jónasson, Hraun-
braut 3, Iíópavogi, sem var að
vinna í nýja pósthúsinu, sem er
rétt hjá Félagsheimili Kópavogs, i
datt ofan af vinnupalli og slasað-1
ist eitthvað. Hann var fluttur með j
vitundarlaus á Slysavarðstofuna. |
Við ramsókn kom í Ijós. að hann |
var með sár á höfði. Var gert að
því og honum síðan leyft að fara !
heim. Önnur meiðsl mun hann1
ekki hafa hlotið svo að teljandi j
væri. 1
Dr. Osvald J. Smith