Tíminn - 15.06.1962, Qupperneq 1
iB
I 35-40 IVlðRK FYRIR KAFFIPUNPID g.
Munið að tilkynna
vanskil á blaðinu
í síma 12323
fyrir kl. 6.
Afgreiðsla, auglýs-
ingar og gjaldkeri
Tímans er í
Bankastræti 7
\
133. tbl. — Föstudagur 15. júní 1962 — 46. árg.
Annar hver
bíll jeppi
Vertíðin hjá bílaumboðun-
um stendur nú sem hæst og
flutningaskipin koma í hverri
ferð með tugi nýrra bíla. —
Tíminn hafði í gær samband
við nokkur helztu bílaumboð-
in og leitaði frétta um söluna.
Þessi mynd var tekin í fyrradag a bilageymslusvæði Jökla h.f„ en þar stóðu eitthvað á annað bundrað bíla, sem flestir höfðu komið með Lang.
jökli á dögunum. Af þessum bílum eru 95 Landrover-bilar, og mun þetta vera stærsta sendlng LUa af sömu tcgund, sem komið hefur með
einu skipi. Einnig eru þarna nokkrar Austin Gipsy landbúnaðarbifreiðar og fleirl tegundir.
ALSIR SKAL VERÐA
BRUNARÚSTIR EINAR
NTB—Algeirsborg, 14. júní.
Seint í gærkveldi var tilkynnt
í leynilegri útvarpsstöð OAS-
manna í Algeirsborg, að við-
ræður samtakanna og Serkja
væru farnar út um þúfur,
vegna afskipta de Gaulle, for-
seta.
Þá var því lýst yfir, að nú
myndu samtökin hefja ódæðis
verk sín á nýjan leik og yrði
nú gengið lengra en nokkru
sinni fyrr. Eyðileggingarað-
gerðirnar verða nú alveg með
nýju sniði og þeim haldið á-
fram, þar til ekki stendur
steinn yfir steini, sagði í til-
kynningunni.
Hingað til höfum við að mestu
leinungis beitt hótunum, en nú
verður látið til skarar skríða. All-
ir Evrópumenn, sem hafa hugsað
sér að yfirgefa Alsír skulu gera
það í hasti, sagði í tilkynningunni.
Fyrr um daginn höfðu OAS-
menn hvatt Evrópubúa til að
dvelja um kyrrt og komið fram
með tillögu um sérstakar her-
verndaðar bækistöðvar allra ev-
rópsk^a manna í Alsír.
(Framhald á 15. síðu)
Það kom í ljós, að jeppaöldin er
í algleymingi. Um það bil annar
hver bíll, sem fluttur hefur verið
inn frá áramótum, er jeppi, og af
jeppunum eru um það bil þrír af
hverjum fjórum af Land-Rover-
gerð. Heildverzlunin Hekla hefur
flutt inn 325 Land-Rovera frá ára-
mótum og komu hinir síðustu 45
með' Dettifossi í gærkveldi. Enn er
von á 90 slíkum með Tröllafossi
á næstunni. Af öðrum jeppum er
Austin Gypsy einna vinsælastur,
67 eru komnir af þeim til landsins
á árinu, og komu 17 þeirra með
Dettifossi í gærkveldi, en dálítið
hefur verið flutt inn af hinum
gamalrefndu Willy’s-jeppum, eins
og reyndar bandaiískum bflum.
Bandarískir fátíðir
Innflutningur bandarískra bíla
er kominn í algert lágmark. Að-
eins örfáir bflar hafa veriö fluttir
inn þaðan, það sem af er árinu.
Fyrst og fremst eru það enskir bfl
ar, sem seljast, og þar næst þýzk-
ir. Ensku bílarnir koma um borð
í Hull, en hinir þýzku í Hamborg.
Dálítið er flutt inn af frönskum
bílum, og koma þeir um borð í
Amsterdam.
Ensku Fordarnir eru einna vin-
sælastir núna af fólksbílum og
(Framhald á 15. síðu)
Sprengisandsleið
TIU FENGUST Á
FJÓRUM TÍMUM
l
Laxveiði er nú að hef jast |1 ánum eru á tímanum frá kl. 8 til
Ívíðs vegar í ám landsins. VeiðilkL 12 á hádegL Laxarnir eru stór-
• * ,■,».« ., , . ir, sa stærsti vo 7 og hálft kilo, og
; t Miðfjarðara hofst 1. |um s.l.,jhafa þeir flestir verið af svip;ðrSj
!og hafa þar fengizt 60 laxar ájfctærð.
er
ófær
i
■ \
■
Rauðalæk, 14. júnf.
Vegurinn inn í Landmanna-
laugar er nú mjög góður alla
leiðina, ef farin er leiðin norð-
an Loðmundar. Hann er fær
öllum bílum í óbyggð, en á
einum stað í byggð er hann
orðinn ófær jeppum og öðrum
litlum bílum, og er það við
Galtalæk.
Sigurjón bóndi á Galtalæk hef
ur sjálfur reist brú á Galtalæk
við bæinn til þess að komast auð
veldlega í beitarhús sín. Þessi brú
hefur verið notuð af öllum, sem
hafa farið Landmannalaugaleið
Nyrðri-Fjallabaksleið eða Sprengi
sand. í vetur bilaði þessi brú og
hefur verið ónothæf síðan.Sigur
jón mun hafa farið fram á það
við vegamálastjórn að hún sæi
um að halda henni við. þar sem
hún hefur verið í almenningsnotk-
un, en vegamálastjórn mun ekki
hafa fallizt á það.
Galtalækur er nú mjög illfær
og einnig krappt ag honum á vað
inu og hafa minni bílar iðulega
setið fastir í honum upp á síð-
kastið. H.E
fjórar stengur fram til þessa.
Aðallega er veitt í þremur ám,
Vesturá, Núpsá og Austurá, en
þegar þær koma allar saman nefn-
ast þær einu nafni Miðfjarðará
| Milli 20 og 30 bæir eiga land aS
ánum.
Árnar hafa verið leigðar 10
mönnum úr Reykjavík, og veitt hef
ur verið á fjórar stangir fram að
þessu, en mest verða 8 stangir i
einu í gangi eftir 24. júní n.k.
Veiðfleyfi er fram til 1. september
Veiðiveður hefur ekki verið til-
takanlega gott að undanförnu. Þó
hafa veiðzt 60 laxar, og er það tal-
in sæmileg veiði Veiðin var særni-
leg í dag, o.g í gærmorgun komu
10 laxar á þær fjórar stengur, sem
Laxveiðimennirnir hafa einnig
fengið nokkuð af silungi á stengur
sínar, og hefur hann verið góður.
Ben-Qurion
kemur i Siaust
Ben-Gurion, forsætisráðherra
ísraels mun væntanlegur hingað
ti) lands i boði forsætisráðuneytis-
ins i haust. Mun hann fara í opin
bera hcimsókn til Norðurlandanna
allra, og kemur hér við i þeir'-;
ferð. Búizt er við, að heimsók.i
hans hér hefjist 2. september.