Tíminn - 15.06.1962, Side 6
.na«
orm
i
„Sumarið er komið — loksins
— loksins er hægt að setjast
utan dyra og fá sér kaffisopa
og hreint vorloft eða öllu held-
ur sumarloft, því að þegar kom-
inn er júnímánuður, á sumarið
að vera komið fyrir löngu“,
segir fólkið hér í Suður-Noregi.
Nú segir veðurstofan hér, að
gjósturinn úr norðri, sem ráðið
hefur hitastiginu undanfarnar
vikur, sé úr sögunni, og að hlý-
indin séu framundan. Það veitir
ekki af. Hitinn hefur að undan-
förnu varla farið upp fyrir 10
stig og verið í kringum frost-
mark um nætur, t.d. fraus í
lægðum allt suður í syðstu
fylki Noregs um nóttina 1. júní.
Það má nærri geta, hverjar af-
leiðingar slíkrar veðráttu eru
um norðanvert landið og á há-
fjöllum. Þar kvað ástandið vera
afleitt í vetrarríki vorsins, og
sem dæmi um saklausar afleið-
ingar þess má nefna, að’ allar
ár, sem koma af fjöllum, hafa
verið svo vatnslitlar að undan-
förnu, að fleyting timburs hef-
ur stöðvazt á sama tíma og
henni er lokið í venjulegu ár-
fei'ði á sömu slóðum.
Og svo eru það vorverkin,
þau eru auðvitað í fullum gangi
þar sem hægt er. Sunnan fjalls
er þeim venjulega lokið fyrir
miðjan maí, en nú er talið gott,
ef lokið verður fyrir hvítasunnu,
þ.e. fyrir 10. júní. Við vestur-
ströndina hefur vorstörfum mið
að svipað og í meðalári, þar var
þeim lokið yfirleitt í maílok,
en annars staðar í sunnanverðu
landinu er nú unnið nætur og
daga að jarðvinnslu og sáningu.
Sunnud'aginn 3. júní ferðaðist
ég urn vestan Oslófjarfar, þar
gat að líta á fjölda býla með-
fram þjóðvegunum, menn sitj-
andi á drögum sínum að herf-
ingu eða sáningu. Útsæði frá
síðasta hausti hefur víða eyði-
lagzt á ökrum, það hefur „bein
línis drukknað í rennvotum ökr
unum í vor“, segja bændur,
og margir hafa nú aftur plægt
upp og herfað til sáningar, eink
um í Þelamörk og Vesterfold.
Þetta hefur m.a. í för með sér,
að erfitt veitist að fullnægja
eftirspurn eftir útsæði.
ökrunum
Frétfapistill frá Gísla Kristjánssyni, sem dvelst
í Horegi.
Gísli Kristjánsson
Á einu sviði virðist veðráttan
skapa betra útlit en í meðalári,
en það er á sviði ávaxtaræktar.
Trén hafa bókstaflega ekki
blómstrað fyrr en nú, er skyndi
lega hlýnar með júníkomu, og
það er náttúrlega ágætt, ef ekki
kemur frost á alblómguð tré og
runna, en frosthætta er alltaf
nokkur og skemmdir af völdum
frosta stundum talsverðar, þeg-
ar snemma vorar. Því er nú
spáð góðu ávaxtasumri. Græn-
meti hefur Utið komið á mark-
að enn, nema innflutt frá Suð-
ur-Evrópu. Þó eru nokkrar inn-
lendar tegundir á markaði, rækt
aðar undir plasti, en plast á
borðum og plast á grindum,
stundum heil plasthús, sér mað
ur víða hcr. Þar er grænmeti í
vexti, plastið lengir vaxtarskeið-
ið mjög, ekki sízt í köldu veðri.
Undir því er hlýtt, .þó að kalt
sé í veðri.
Vikuna 28. maí til 2. júní var
haldin ráðstefna á Kalnesbúnað
arskóla í Austur-Fold. Voru þar
mættir aðilar frá Norðurlöndum
öllum til þess að ræða hlutverk
og þýðingu kvikmynda og
skuggamynda í upplýsingaþjón-
HETJUSÖGUR
íslenzkt myndablað
fyrir börn 8 - 80 ára
HRÓI HÖTÍUR
og kappar hans
hefti komið \A.
í blaðsölur
og kostar aðeins 10 krónur.
FLJÚGUM til Gjögurs og
Hólmavíkur fimtmudag.
Hellissands og Stykkis-
hólms laugardag.
Sími 20375
Shodr®
OKTAVIA Fólksbíll
^Pi FEUCIA Sportbíll
1202 Stationbíll
1202 Sendibíll
MBnnmgarorð:
Ingveldur Þorsteinsdóttir
ustu á sviði landbúnaðar- og hús
mæðrafræðslunnar.
Voru þar sýndar myndir frá
Norðurlöndunum fimm. Ein
kvikmynd frá íslandi var þar
sýnd, litmynd Ósvaldar Knud-
sen „Vorkoma", ásamt tæplega
30 öðrum kvikmyndum, er
tóku þátt í samkeppni á ráð-
stefnu þessari Heiðursverðlaun
í keppninni hlaut dönsk kvik-
mynd, sem samband danskra
mjólkurfélaga hefur látið gera.
Gæti hún á íslenzku heitið „Fer
ill mjólkurvörunnar“. Frábær-
lega vel gerð mynd, er sýnd
verður í auglýsingaþjónustu. —
Aðrar myndir, sem viðurkenn-
ingu hlutu voru norskar og
sænskar, um notkun hreindýra-
mosa, um heilbrigðan félags-
skap og sparnað meðal unglinga
í sveitum, um rúningu og ull
og um laxaklak.
Ráðstefnan var rómuð og frá
henni sagt í dagblöðum, enda
var landbúnaðarráðherra Norð-
manna viðstaddur og úthlutaði
viðurkenningum. Var sá atburð-
ur fluttur í sjónvarpi kvöldið
eftir.
Hér er mikið rætt um þátt-
töku hinna ýmsu landa, er senni
lega mun verða í Efnahags-
bandalagi Evrópu. Um þátttöku
Norðmanna í því eru auðvitað
skiptar skoðanir. Sumir vilja
láta þjóðaratkvæðagreiðslu fara
fram, aðrir telja slíkt fásinnu,
því að almenningur beri ekki
nógu gott skyn á hagfræ'i og
stjórnmál til þess að leggja at-
kvæði sitt á rétta vogarskál. —
Hins vegar er talið eðlilegt og
sjálfsagt að bíða með ákvörðun
unz séð verður, hvað Englend-
ingar gera í því máli og talið
er víst, að þátttaka Norðmanna
ve-*i því háð.
Um undanþágu frá Rómar-
samningnum er ekkert vitað og
á sviði landbúnaðar allra sízt,
en talið er ósennilegt, að þar
fáist nokkur frávik, nema þá
mjög dýru verði keypt. En allt
eru þettj getgátur, sem enginn
sér enn, hvernig munu ráðnar.
G.
LÆGSTA VERÐ
bíla í sambærilegum stærðar-og gæðaflokki
TÉKKNESKA BlFREIÐAUMBOÐIÐ
iAUGAVEGI 176 • SÍMI 3 78 81
SKIPAUTGCRÐ RIKISINS
| M.s. Esja
j vestur um land í hringferð
j hinn 20. þ. m.
■ Vörumóttaka í dag til Patreks-
fjarðar, Bíldudals, Þingeyrar,
Flateyrar, Suðureyrar, ísafjarð-
ar, Siglufjarðar, Dalvíkur, Ak-
ureyrar, Húsavíkur, Kópaskers,
Raufarhafnar og Þórshafnar.
Farseðlar seldir á mánudag.
Heríiöbmö
austur um land í hringferð
hinn 19. þ.m.
Vörumóttaka í dag til Djúpa-
vogs, Breiðdalsvíkur, Stöðvar-
fjarðar, Mjóafjarðar, Borgar-
fjarðar, Vopnafjarðar og Bakka
fjarðar.
Farseðlar seldir á mánudag.
Á þeirri stundu er kirkjuklukk j
urnar hringdu inn heilaga jóla-
hátíð í vetur hvarf háöldruð heið
urskona af þessum heimi og gekk
inn í fögnuð herra síns, lúin og
þreytt eftir langa ævileið. mikið
en hljóðlátt starf og seinustu
æviárin bundin við sjúkrabeð.
Þessarar konu, Ingveldar Þor- j
steinsdóttur, fyrr húsfreyju í
Laugardalshólum vildi ég minn-
ast, þó að svo lengi hafi dregizt,
að nú eru komin vordagar.
Ingveldur var fædd 14. októberj
1870 að Reykjum á Skeiðum dóttj
ir Þorsteins bónda og smiðs á
Reykjum Þorsteinssonar bónda í
Vorsabæ, Jörundssonar bónda á
Laug, Illugasonar bónda á Drumb
oddsstöðum og staðarsmiðs í Skál
holti á dögum Finns biskups
(Illugi smiður). Kona Þorsteins
og móðir Ingveldar var Ingigerð
ur Eiríksdóttir bónda á Reykjum,
Eiríkssonar hreppstjóra og bónda
sama stað, Vigfússonar. Kona
Eiríks og langamma Ingveldar var
Guðrún eldri Kolbeinsdóttir
prests í Miðdal.
Ingveldur giftist 21. okt. 1893
Eiríki Ásbjörnssyni frá Andrés-
fjósum á Skeiðum, Eiríkssonar,
voru þau hjónin systkinabörn í
föður- og móðurætt beggja. Þau
hófu búskap í Andrésfjósum vor
ifi 1892 og bjuggu þar tvö ár, en
fluttu búferlum að Álfsstöðum
1894 og þar bjó Eiríkur unz
hann lézt af slysförum 16. des.
1906, 41 árs. Hann var á ferð
með sveitungum sínum til Reykja
víkur, er hann féll í hver hjá
Reykjum í Ölfusi, og brann svo
að hann beið bana af. Eiríkur var
myndarlegur maður í sjón og
raun og góður bóndi. Þótti að
honum mikill mannskaði. Þau
Eiríkur og Ingveldur áttu þrjú
börn dr öll önduðust í fyrstu
bernsku: Ingveldur, er dó á fyrsta
ári, Sigurgeir, dó á öðru ári og
Þorsteinn, dó á þriðja ári. Ingveld
ur stóð því 38 ára, svipt eigin-
manni og öllum bönunum sínum
ungu, og annar drengurinn brend
ist til bana eins og faðir hans.
Eftir þessa þungu harma, bjó
hún ekkja á Álfsstöðum, með að
stoð Gunnars bróður síns, síðar
bónda í Miðdal, til fardaga 1911,
en brá þá búi og réðst ráðskona
til Ingvars Grímssonar, bónda í
Laugardalshólum (d. 1940 72 ára)
Ingveldur og Ingvar giftust 18.
nóv. 1911, og eignuðust þau tvo
sonu Grím, er dó fárra daga gam
all og Eirík Kristin, er andað-
ist rúmlega ársgamall. Það má
því með sanni segja, að Um það
bil, sem ævileið hennar var hálfn
uð, hafði sorgin sorfið fastar að
henni, en flestum samtíðarkonum
hennar. En hún bar harma sína
með mikilli hetjulund, enda var
skapgerð hennar óvenjulega sterk
og yfir öllu dagfari hennar var
jafnan göfug ró og jafnvægi.
En ekki væri nema hálfsögð
saga hennar, ef það væri undan
dregið, að í rúmlega 28 ára hjóna
bandi með Ingvari í Laugardals-
hólum, naut hún mikillar ham-
ingju. Um þrjá áratugi stjórnaði
hún stóru og umfangsmiklu heim
ili af hógværð og rausn. Ingvar
unni henni mjög og virti, og þótti
það eitt fullkomið, sem frá henn
ar hendi kom. Það bætti henni
mjög barnamissinn, að börn
Ingvars frá fyrra hjónabandi, voru
flest í bernsku, þegar hún giftist
honum. Hún var þeim, sem bezta
móðir enda virtu þau hana og unnu
henni, sem væri þau hennar eig
in börn. Enn fósturson tóku þau
hjónin, Ragnar Jónsson, nú bónda
í Hólabrekku. Kom hann til þeirra
nýfæddur. Hann var Ingveldi jafn
an, sem bezti sonur enda var hann
frá fyrstu bernsku, umvafinn
þeirri móðurástúð, sem hin þungu
örlög meinuðu henni að veita sín
um eigin börnum.
Að Laugardalshólum þótti mér
jafnan gott ag koma. Þar var
meiri búsældarbragur og öryggi
en víðast annars staðar. Ingvar
var mikill búmaður, gætinn vel
og rasaði ekki um ráð fram.
Fastheldinn á fornar venjur,
skemmtinn og skýr í viðræðum,
minnugur og margfróður um
menn og atburði liðins tíma. Þar
glataðist góður sjóður, að ekkert
var eftir honum skrifað. Eg hef
vart þekkt bónda, sem var jafn
rótfastur á jörð sinni, sem Ingvar
í Laugardalshólum, enda unni
hann henni mjög. Þar gekk ekk-
ert úr skorðum, allt var í röð og
reglu úti sem inni.
Og enn er vel haldið í horfi
þar á bæ, af þeim Stefáni syni
Ingvars, af fyrra hjónabandi, og
Hrefnu Böðvarsdóttur frá Laug-
arvatni. Á þann hátt er minningu
þessara hjóna beztur sómi sýndur.
Þorsteinn Sigui"ðsson
Fyrir 17. júní
DRENGJAJAKKAFÖT,
frá 6—14 ára
STAKIR SPORTJAKKAR
6—14 ára
DRENGJABUXUR
4—14 ára
STUTTJAKKAR
á felpur
DRENGJAJAKKAR
frá 3ia ára
MATRÓSFÖT
MATROSKJÓLAR
ÆÐARDÚNSSÆNGUR
VÖGGUSÆNGUR —
ÆÐARDÚNN
GÆSADÚNN
HÁLFDÚNN
KODDAR —
SÆNGURVER
NYLONSOKKAR
frá kr 36—
PÓSTSENDUM
Vesturg 12. Sími 13570
b
TIMINN, föstudaginn 15. júní 1962