Tíminn - 17.06.1962, Blaðsíða 13

Tíminn - 17.06.1962, Blaðsíða 13
 1937 BOKMENNTAFELAGIÐ MAL OG MENNING 1982 AFMÆLISÚTGÁFA í haust í viðhafnarbúningi * Tólf bækur eftir ÞJÓÐKUNNA ÍSLENZKA HÖFUNDA A3 því tilefni aS bókmenntafélagið Mál og menn- ing verður 25 ára 17. júní í ár hefur stjórn félags- ins og félagsráð ákveðið að stofna til afmælisút- gáfu og hefur fengið til samstarfs nokkra helztu rithöfunda og skáld þjóðarinnar sem leggja til í þessa útgáfu ný frumsamin verk Stjórnin vill að á útgáfu þessari sé myndarbragur, að það fari sam- an fjölbreytileg verk eftir góða höfunda og vönduð bókagerð, svo að útgáfan verði félaginu til sóma og að allir sem hana fá í hendur hafi ánægju af að eiga hana og varðveita. Allar bækurnar verða eftir íslenzka höfunda og verður leitað aðstoðár fremstu bókagerðar- og listamanna til að gera á þær kápur og sjá um útlit þeirra. Bækurnar sem Mál og menning hefur verið svo heppin að fá í afmælisútgáfuna eru þessar — (tólfta bókin verður ákveðin síðar): Þórbergur Halldór Einar Jóhannes Kiljan Gunnar Þórbergur Þórðarson: Minningar úr Unuhúsi. Skrásettar eftir Stefáni frá Hvítadal. Unuhús var annað heimili margra íslenzkra skálda og listamanna áratugum saman. Um þetta merkilega hús hafa margir íslenzkir rithöfundar skrifað, en einkum um þá „akademíu og veizlu“ sem þar stóð á þriðja og fjórða ára- tug aldarinnar. Minningar þær sem Þórbergur Þórðarson skráði eftir Stefáni frá Hvíta- dal 923 má hinsvegar segja að fjalli um forsögu þessa skálda- húss, því ,þar er greint frá íbú- um þess á árunum fyrir 1910. Jón Helgason: Tuitugu erlend kvæði. Þýdd og stæld. Af undirtektum þeim að dæma sem Jón Helgason hlaut þegar hann las úr þessum Ijóðaþýðingum í vor, er óhætt að fullyrða að Tuttugu erlend kvæði verði á sína vísu annar eins bókmenntaviðburður og fyrsta útgáfa frumsaminna ljóða Jóns fyrir tuttugu og þremur árum. Meðal ,itsr' dýrgripa þessara bókar er sér- stök ástæða til að benda á fjög- ur af frægustu kvæðum Fran- cois Villons, sem verða nú í fyrsta skipti aðgengileg ís- lenzkum almenningi. Halldór KUjan Laxness: Prjónastofan Sólin. Nýtt leikrit. Halldór Kiljan hefur nú hvílt sig um stund frá sagna- Rannveig Sverrir gerð, en ryður sér kappsfullur nýja braut í leikritasmíð, og þar er ekki síður haft á hon- um vakandi auga. Strompleik- urinn olli miklu umróti í hug- um leikhússgesta. Prjónastofan Sólin er flóknara leikrit, öld- in í grímubúningi, heimisvið- burðir í hnotskurn, ^agnarök gerast og líða hjá. Þessa leik- rits er beðið með nýrri eftir- væntingu. Gunnar Benediktsson: Skríffamál íippgjafa- prests. í þessari bók eru elztu fyrir- lestrar og ritgerðir Gunars Benediktssonar, frá þeim árum þegar orðið var of þröngt um hann innan kirkjunnar og hann hóf boðskap sinn um réttlæti í þjóðfélaginu. Margir minnast þess umróts sem þessar ritgerð- ir ollu á sínum tíma, en þær hafa ekki birzt áður í bóka- formi. Bókin er helguð sjötugs- afmæli höfundar. Jóhannes úr Kötlum: Ný Ijóðabók. Síðasta Ijóðabók Jóhannesar úr Kötlum. Sjödægra, flutti með sér algera endúrnýjungu á Ijóðastíl hans. Með þessari bók brýtur skáldið enn nýtt land, og er þó skeleggur og ó- hlífinn sem jafnan fyrr. Halldór Stefánsson: Blakkar rúsfir. Smásögur. Eftir að hafa gefið út 2 skáld- sögur á undanförnum árum kemur Halldór Stefánsson nú aftur að sérgrein sini, smá- sagnagerðinni. I bókinni eru tíu sögur. Stefán Jónsson: Vegurinn að brúnni. Skáldsaga. Þessi nýja skáldsaga Stefáns Jónssonar er mikið verk, sem höfundur hefur unnið að síð- ustu árin. í sögu tveggja bræðra sein vara upp eftir heimsstyrjöldina, eru ofnir þættir úr örlögum þeirrar kyn- slóðar sem lifði þroskaár sín á krepp’utímunum. Einar Olgeirsson: Vort land er í dögun. Útdrættir úr ritgerðum. Bjöm Þorsteinsson annast útgáfuna. Inngangur eftir Sverri Krist- jánsson. Enginnn á frjórri hugmyndir ten Einar Olgeirsson um fram- tíðarþjóðfélag Islendinga. 1 þessari bók birtist kjarninn úr ritgerðum hans um framkvæmd sósíalisma og lýðræðis, ný- sköpun íslenzks þjóðfélags og um þjóðfrelsisbaráttu Islend- inga. Bókin er gefin út að til- efni sextugs afmælis höfundar. Sverrir Kristjánsson: Ræður og riss. Fáir íslenzkir ritgerðahöf- undar hafa kunnað betur en Sverrir Kristjánsson að ydda orð síin og senda skeyti sín beint í mark; og fáir standa jafn föstum fótum í jarðvegi húmanískrar arfleifðar sem hann. Það er því ekki vonum Jón fyrr að gefið er út úrval greina hans um menn og málefni, pólitík og bókmenntir síðustu tuttugu ár. Rannveig Tómasdóttir: Andlit Asíu. Ferðasaga. í þessari bók bregður hin víð- förli höfundur upp myndum frá Indlandi, Nepal, Ceylon, Kam- bodia, Tailandi, Uzbekistan og Kazakstan, hefur lagt leið sína um frumskóga, eyðimerkur og upp að rótum Himalaya. Bar- bara Á. Árnadóttir skreytir bókina í austurlenzkum stfl. Elztu hetjukvæði Eddu. Með inngangi og skýringum eftir JÓN HELGASON. Færra en skyldi hefur verið ritað um eddukvæði handa ís- lenzkúm almenningi. Jón próf- essor Helgason er kunnur að djúpstæðri þekkingu á fornum skáldskap og engu síður að sér- stökum hæfileikum til að miðla lesendum af henni. Hjii Stefán Ákveðið hefur verið að afmælisútgáfan verði í aðeins 500 eintökum og seljast allar tólf bækurnar í einu lagi. Af þessum 500 eintökum afmælisútgáf- unnar vei'ða 100 eintök í sérstaklega vönd- uðum búningi, tölusett og árituð af höf- undinum, og ætluð vandfýsmjm bókamönn- umum og bókasöfnurum. t. Hin 400 eintök afmælisútgáfunnar verða seld innbundin í góðan sHirting, allar tólf bækurnar á kr. 2,400,— eða 200 kr. bók- in að meðaltali. Þær fást líka heftar á kr. 2.00,— og ib. í skinn 2.700,—. Safnað verður kaupendum fram til 1. sept. n.k. Hér verður um að ræða einstaka sögu- lega útgáfu á bókum eftir þjóðkunna höf- unda. Tekið á móti áskrifendum af afmælisút- gáfunni í bókabúð og skrifstofu Máls og meningar Laugavegi 8 III. hæð, símar 22973 og 15005. Skfifstofan verður opin kl. 2-*-10 e.h. laugardag og sunudag. r

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.