Tíminn - 21.07.1962, Síða 2
Hvers vegna synda hvalir
á land upp, oft hundruðum
saman til þess eins að bíða
þar köfnunardauða. Skýring-
ar á þessu hafa margar kom-
ið fram, og ekki hefur þeim
fækkað við það, að margir
telja, að hvalir hafi greind á
við mannapa og líklegast jafn
þróað tilfinningalíf. Of-
traust á villtum foringja,
sjúklegt fjöldabrjálæði eða
sjálfsmorðsæði eru sumar
þessara skýringa.
En rétta skýringin er þó allt
önnur og kemur fram í doktors-
ritgerð, sem Hollendingur einn
hefur nýlega látiS frá sér fara,
um þýöingu hljóðanna í heimi
hvalanna.
Öllum kenningum um sjúk-
dóma er þar vísað á bug vegna
þess góða ásigkomulags, mm
strandaðir hvalir yfirleitt eni í.
Sjálfsmorðskenningin er hins
vegar einum um of mannleg til
að hægt sé að taka hana alvar-
lega.
Einhver mesti hvalreki í ver-
aldarsögunni átti sér stað við
Mamre í Suður-Afríku, þegar um
það bil 300 stórhveli komu þar
á land i einu. Hugmyndarílcir
menn bjuggu þá til stórkostlega
skýringu: Hvalirnir höfðu verið
á leið til tndlandshafsins og ætl-
að að leggja leið sína um sund,
sem hafð'i verið þarna endur fyr-
ir löngu og þeir varðveitt minn-
inguna um, en hvalir verða allra
skepna elztir!
HvaHrnir heyra það sem fer
fram kringum þá. Þeir átta sig á
bergmáli hljóða, sem þeir sjálfir
gefa frá sér. Bygging eyrna
þeirra og háttalag, og samræmið
milli þeirra hljóða, sem hvalir
gefa frá sér, og þeirra merkja,
sem nútíma neðansjávarathugun
manna byggist á, bendir til þess,
að hvalir hafi þróað með sér
eigin asdic-tæki.
Það ætti að vera óþarfi að út-
skýra hér nákvæmlega, hvernig
tæki af þessu tagi starfa. Þau
senda hljóðmerki í ákveðna átt,
og er hægt að ákveða hæð merkj-
anna og tíðni.
Rekist hljóðbylgjurnar á eitt-
hvað, varpast þær til baka, og
koma fram á móttökutækinu. Þar
sést bæði stefna og fjarlægð, og-
hreyfing á hindruninni, ef ein-
hver er.
Bergmálsdýptarmælirinn bygg-
ir á þessari reglu og sömuleiðis
önnur mælitæki, sem senda hljóð
merkin ekki lóðrétt niður, held-
ur lárétt fram á við, og gefa
merki, rekist bylgjurnar á kletta
strönd, skip, hvali, ísjaka eða
annað slíkt.
En þótt t. d. klettur og skip
gefi greinilegt bergmál, er end-
urvarpið frá lágri leirströnd lít-
ið sem ekkert. Og það á sinn þátt
í að skýra, hvers vegna hvalirnir,
sem eru jafnvel útbúnir, láta svo
oft blekkjast af eigin heyrnar-
skyni.
Hollendingurinn fékk kafbáta-
eiði til afnota til rannsóknanna,
svo að hann gæti gert athugan-
ir við strönd landsins. Hann
komst að því, að lág, aðhallandi
strönd gefur mjög slæmt berg-
mál, sem erfitt er að skilja frá
ýmsum aukahljóðum, sem öldu-
gangur og óhreinn sjór valda.
Nálæga sandfjöru er oft ógern-
ingur að fá fram með asdic-
tæki. Og á grynningum geta villi-
bergmálshljóð algerlega falið,
hvar leiðina út er að finna. Sand-
ur og leir á botninum á og þátt
í að gera bergmálið ógreinilegra.
Bandarískir vísindamenn hafa
rannsakað,hvernig höfrungar,
marsvín og aðrar hvalategundir
gefa frá sér ýmiss konar hljóð.
Þessi dýr flauta, skrækja, stynja,
baula o. s. frv. Ekki ósjaldan er
hljóðið í þeim eins og ískur í
ryðguðum hjörum. Svo virðist
sem hvalirnir flauti til að halda
sambandi hver við annan, bauli
í reiði og stynji við sársauka. En
sum hin 'nljóðin, t. d. hjaraískr-
ið virðast gegna öðru hlutverki.
Það eru þessi hljóð, sem hafa
sömu eiginleika og asdic-hljóð-
bylgjurnar. 1958 færðu Banda-
ríkjamenn fram líkur fyrir því,
að höfrungurinn notaði hljóð-
bylgjur, og síðari rannsóknir
hafa sannað þá tilgátu.
Hljóðbylgjur höfrungsins virð-
ast vera með hárri tíðni og er
bylgjugeislinn þess vegna mjór.
Af þeim sökum hreyfir hann höf-
uðið fram og aftur til hliðanpa,
þegar hann syndir, til að víkka út
fjarsviðið, og getur á þann hátt
miðað út áttir með undraverðri
nákvæmni. Við tilraunir hefur
einnig komið í Ijós, að höfrung-
urinn getur greint að, hvort berg
málið er endurvarp af fiski eða
eftirlíkingu af fiski, gerðri í
sömu mynd og með sama efnis-
þéttleika og raunverulegur fisk-
ur.
En heyrist ekkert bergmál, t. d.
þar sem aðlíðandi fjara varpar
bergmálinu frá sér í rangar stefn
ur, svíkja skynfærin hvalinn og
hann heldur ferðinni áfram. Og
sé hann kominn inn á' grynning-
ar, yfirgnæfa bergmálsbylgjurn-
ar frá botninum allar aðrar, og tii
viljun ein fær úr þvi skorið,
hvort hann sleppur út á rúmsjó
aftur eða rekst á land.
Áhugi Holleridingsins á þessu
vaknaði fyrir alvöru, þegar hann
komst að því, að Færeyingar við
grindadráp leitast við að reka
vöðurnar upp í sand- eða leir-
fjörur, og að bezti drápstaður
þeirra, Kvalvig, e.mkennist af
mjúkum aðhallandi botni.
Hollendingurinn byrjaði þá að
safna öllum upplýsingum um
hvali, sem hafa orðið landfastir
og hefur sannanlega ekki rekið
dauða í land. Hann tók heldur
ekki með þá sem væru reknir
upp af mannavöldum. Þegar hann
hafði safnað saman 130 dæmum
víðs vegar að, leitaði hann til
kunnugra manna á hverjum stað
og bað þá að lýsa strandstaðnum
nánar. Og þá kom í ljós, að
næstum því alls staðar hagaði svo
til, að þar var aðlíðandi strönd
og oft með sand- eða leirbotni úti
fyrir. Og þetta átti jafnt við um
djúphveli, sem stundum stranda
einstök eða minni strandhveli,
sem oft vaða á land í vöðum, en
fjöldamunurinn stafar auðvitað
af öðrum lifnaðarháttum'.
Hvalir, sem lifa nær eingöngu
á grunnu vatni, standa auðvitað
betur að vígi en hinir í þessu
tilliti. Þar verða samt landfastir
öðru hverju og er það þá að
kenna, að út fjarar undir þeim
eða þeir gæta sín ekki sem skyldi
í veiðiáhuganum.
í skýrslunni kemur greinilega
fram, að á vissum stöðum eru
fastar hvalagildrur. Hættulegast-
ir eru staðir, þar sem lág sand-
strönd liggur á milli kletta. Þegar
bergmálsskyn hvalanna bregzt á
þessum stöðum. halda þeir að á
tilliti. Þeir verða samt landfastir
lenda þess vegna á grynningum..
Og sé bergmálsskynið einu sinni
farið úr skorðum, er afar eðli-
legt að hvalirnir verði með öllu
ruglaðir.
Sjónarvottar við hvalavöðuna
í Suður-Afríku' skýra svo frá, að
hvalirnir komu skyndilega æð-
andi gegnum brimgarðinn og
stukku á ;and, eins og þeir væru
á flótta undan einhverju. Þeir
sem lifðu af árekstrana við fjöru
grjótið, tóku nýtt stökk alveg
upp úr briminu, en enginn gerði
tilraun til að snúa við.
Félagslífið getur hér átt hlut
að máli að gera illt verra. Menn
hafa fært strandaða hvali út á
dýpri sjó, en þeir snúið til lands
aftur til hinna. En hér getur
líka verið að kenna endurtek-
inni skynvillu.
Hvalströndin eru sem sé því áð
kenna, að hvalirnir hafa enn
ekki lært, að stundum er vara-
samt að treysta eigin eyrum.
ISkýrasti votfurinn um
breyffa gijóðfélagshætti
Húsnæðismálin eru einhvcr
‘kýrastj votturi.nn um það>,
livert „viðreisnin" stefnir,
Þrátt fyrir óhemju aflia, sem
bor'izt hefur 'á land í sjávar-
plássum úti um Iand oig mikla
atvinnu og sums staðar mann-
eklu vegna hins igífurlega afla,
byggjast sjávarplássin ekki
i'ipp. Húsnæðisleysi stendur
þeim fyrir þrifum Oig kemur
í veg fyrir að fó'Ik taki sér þar
fiasta búsetu. Framkvæmdir
iiafa verið gerðar svo dýrar, að
þa'ð er áðeins á fárra færi að’
lcggja í þær. Framtak hinna
mörgu einstakl'imga hcfur ver-
ið brotið á bak aftur — við á
að íiaka forsj'á fárra stórra og
útvalinna í anda hinna „gömlu
'góðu daga“.
Knýjandi þörf
stefnubreytingar
Núverandi ríkisstjórn hefur
komjð húsnæðismálunum í al-
geran hnút. Efnahagskerfið
hefur veri'ð fært svo úr Jagi, a'3
mönnum er orðið ofvMTa að
eignast þiak yfir höfuðið, sem
er þó frumþörf manna. Úr
þessu verður að' bæta. Þa'ð vei’ð
ur að endurskoða húsnæðis-
málin frá rótum, bæta láns-
kjörin, leggja inn á nýjar leið-
ir í húsbygigingum og iækka
byggimgarkostnaðinn.
Stutt á milli þeirra
Óhrekjaniegt er, að Sjálf-
stæ'ðismenn og kommúnistar
eiga me'ð sér siamstarf í hrepps
nefnd Stokkseyrar nú að ný-
loknum hreppsnefndarkosning-
um. Morgunblaðið birti athuga
semdalaust grein eftir forystu
mann flokksins á Stokkseyri,
þar sem sagði, að „Sj'á'lfstæð-
ismenn megi vel við una“, því
að kommúnjstar bu'ðu svo vel.
Óhrekjanlegt er, að Eimar
Oigeirsson var kjörinn í Sogs-
virkjunarstjórn nú fyrir
skömmu út á lánsatkvæði frá
Sjálfstæðisflokknum.
Bjarni Bencdiktsson lét í
haust breyta fyrirkomulagi
kosninga í Norðurlandaráð fil
að tryggja Einari Olgeirssyni
setu í því áfram og senda hann
ti'l Helsingfors, skömmu eftir
níðgrein Þjóðviljians á örlaga-
tímum finnsku þjó'ðarinnar.
Örskammt er síðan Sj'álf-
stæðisflokkurinn bauð komm-
únistum upp á kosningasam
vinnu í bæjarstjórn Akraness.
Lýsing Alþýðubl.
Athygli hefur vakið lýsing
Alþýðublaðsins, málgagns ann-
ars stjórnarflokkrins, á sam-
bandi og samstiarfi Sjálfstæðis-
flokksins og kommúnista. Þar
sagði m. a„ að Sjálfstæðisflokk
urinn æli kommúnista við
brjóst sér til að koma Alþýðu-
flokknum á kné ó" sliana ring-
ulreið í íslenzkuni sijórnmál-
um. Kratar hafa alveg sérstak-
Iega góða aðstöðn til að fytgj-
ast náið með ahErli Bjilfstæð-
isma.nna núna, svo r.ð það má
telja Alþbl. sæm'ilega heimild
í þessu sambandi. Tlbl. ásakar
Tímann óspart fvrir fréttafals-
anir. Mbl. hcfar hins vegar
ekki enn miim?; 4 AJþýðublað-
ið í þessn samb:ndi. Það er nú
skiljanlegt rcyndar. Það má
ekki eyða píðrinu íil ónýtis.
Mbl. hefur vict e:-iga ástæðu
tfl að óttast kratsgreyln Iengur.
2
T I M I N N, Iaugardagurinn 21. júlí 1962,