Tíminn - 02.08.1962, Qupperneq 1
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrir
augu vandlátra blaða-
i lesenda um allt land.
174. tbl. — Fimmtudagur 2. ágúst 1962 — 46. árg,
Tekið er á móti
auglýsingum frá
kl. 9—5 í Banka-
stræfi 7, sími 19523
ÁSiGLING
ÞBGAR m/s Fiskaklettur lagðist að bryggju í Hafnarfirði í gær,
varð Guðbjörg GK 6 fyrir því óláni að vera í veginum, með þeim
afleiðingum, að Fiskaklettur keyrði hana undir bryggju, og brotn-
aði við það frammastrið og grindin á Guðbjörgu, en auk þess kom
skarð í hana að aftan. Slysið mun hafa orðið með þeim hætti að
skipstjórinn á Fiskakletti kallaði á ferð aftur á bak, en síminn
niður í vélarrúmið virkaði ekki, og því fór sem fór. Ekki sér á
Fiskakletti eftir áreksturinn, en á meðfylgjandi myndum sést
hvernig Guðbjörg er útleikin. T. v. sést skarðið, sem kom í skutinn,
og sér aðeins á stefnið á Fiskakletti. T. h. sést brotin grindin og
frammastrið á Guðbjörgu. — (Ljósm.: RE).
Heyskapur hefur geng-
ið með afbrigðum illa
það sem af er sumri um
allt Suðurland. Þar hefur
vart komið þurr dagur, og
þrátt fyrir það, að vel
hafi litiö út að morgni,
hafa bændur fengið rign-
ingardembur niður í flekk
ina, þegar líða fekur á
daginn. Telja sumir lán í
óláni, að spretta var frem
ur treg framan af, því að
öðrum kosti væri grasið
nú orðið ónýtt vegna
þess hversu það hefði ver
ið úr sér sprottið.
Það, sem helzt bjargar bændum
I þessari hrakningatíð, er, að mik-
ill meiri hluti þeirra hefur nú
fengið súrheysturna, enda kemur
það sér-JMLáatíðarfari eins og því,
sem verið hefur að undanförnu.
Muna ekki þvilíkt regn
Svo virðist sem heyskapur hafi
gengið einna bezt í neðanverðum
Gaulverjabæjarhreppi, og á bæj-
unum næst Suðurströndinni. Ofar
í Gaulverjabæjarhrepp hefur veð-
urfar verið afleitt allan júlí «>g
ekki komið einn einasti þurrk-
dagur- Flestir bændur hafa þo
náð einhverju inn, en heyskapur
er mjög misjafnlega langt kominn
í hreppnum. Kal var ekki í stórum
stíl í túnum í vor, en sláttur hófst
þar þó með seinna móti. Svo mik-
ið rigndi í Gaulverjabæjarhreppi
1 fyrradag, að menn muna vart
annað eins.
í Gnúpverjahreppi hefur eng-
inn dagur verið þurr í lengri tíma.
Einst.aka bóndi hefur náð þar ein-
Guðleg ríkisstjórn
viö völd á Islandi!!
f GÆR geröist sá merkisat-
burður, að aðalmálgagn ríkis-
stjórnarinnar kvaS upp úr með
það, að við höfum ekki mann-
iega ríkisstjóm lieldur njótum
guðlegrar liandlei'ðslu úr ráð-
herrastóiunum. Þar sitji menn,
sem hafi á hendi vald og mátt
skaparans og séu þeim vanda
og valdi vaxnir. Eins og myndin
sýnir hét forystugrein Mbl í
gær „GÓÐÆRI ER AFLEIÐ
ING VEDREISNARINNAR*.
Minna má ekki gagn gera.
f greininni segir meðal ann-
ars: „Það er nú ölium lands-
lýð Ijóst . . . að viðreisnar-
stefna núverandi ríkisstjómar
hefur Ieitt góðæri yfir fslend-
inga“. Margt er fleira „guð-
legt“ í grein þessari.
Næsta sunnudag munu prest
ar því vafalaust ekki lengur
biðja fyrir ríkisstjórninni vi'ð
messu, heldur biðja til hennar.
Ríkisstjórnin hefur ekki aðeins
stjórnað valdalegum málum af
vísdómi, heldur einnig leitt
sfldina að landinu, gefið okk-
ur veðurblíðuna og þorskafl-
ann. En hvers vegna var hún
þá að setja á söltunarbann?
Og binda togaraflotann? Og svo
Framhald á 15 siðu
hverju af heyi í súgþurrkun, en
ástandið er mjög erfitt hjá öllum
fjöldanum.
Spretta var treg framan af á
SkeiSum, en má nú teljast viðun-
andi, þar var nokkurt kal j túnum,
og hófst því sláttur í seinna lagi.
Tíð hefur veriff ómöguleg að und-
anförnu, og ekkert hægt við hey
að eiga, nema þá helzt að láta það
í vothey. Þar hefur ekki konuð
þurrkdagur síðustu vikurnar. —
Menn eru langt komnir með að
fylla turna sína, og vita ekki hvað
tekur við eftir það. Lítið mun yfir
ieitt vera um fyrningar frá vetr-
inum, og fjöldinn á ekki neitt sem
heitir. Ástandið mun vera svipað
þessu bæði í Hreppunum og Tung-
unum.
Sama hörmungarástandið virðist
vera í Holtunum. Þar gengur hey-
skapurinn illa, og lítið hefur ver-
ið um þurrk. Oft þornar heyið
fram eftir degi, en rignir svo í það
seinnipartinn. Spretta var sæmi-
leg, þar sem ekki var kal í túnum.
í Hvolhreppi, Fljótshlið og Land
e.vjum telja sumir það lán í óláni
hversu seint spratt því annars væri
gras orðið gjörónýtt. Sumir bænd
ur eru ekki enn farnir að slá, og
gera það ekki fyrr en útlit er fyr-
ir, að þurrkur haldizt eitthvað. —
Töluvert er komið af súrheyi.
Bóndi undir Eyjafjöllum sagðist
muna eftir einum þurrkdegi frá
því sláttur hófst þar. Grasspretta
e.r yfirleitt góð í Mýrdal og undir
Eyjafjöllum, og ekkert kal í tún-
um Rosatíð hefur verið, hey ligg-
ur lengi og hrekst, og er því mjög
slæmt
Bændur umhverfis Vík í Mýrdal
hafa verið að slá að undanförnu,
enda máttu þeir til vegna sprett-
unnar. Veður hefur verið slæmt
þar eins og annars staðar.
Sömu sögu er að segja af svæð-
mu milli Mýrdalssands og Skeið-
arársanda. Þar hafa aðeins komið
tveir sæmilegir þurrkdagar frá
sláttarbyrjun. Hey hefur legið allt
á aðra viku, og er bæði hrakið og
sJæmt. Spretta var fremur hæg
framan af, en er nú orðin sæmi-
leg Á Klaustri var ágætis veður
fram undir kl. 11 í fyrradag, þá
gerði rigningu og á tveimur tímum
liafði dembt niður 30 mm. f gáer
Framh. á 15. síðu.
1 Fþlls
árbrú
stéSst
hlaupii
Nú er nýafstaðið hlaup
í Fjallsá, en það kom úr
lóni við Breiðamerkur-
fjall. Ekki var annað að
sjá en nýja brúin á ánni,
sem vígð var fyrir
skömmu stæðist þessa
eldskírn með prýði.
Hlaupiðt kemur úr lóni
vig Breiðamerkurfjall, sem
myndast j dalbotni. Það er
2 km á lengd, en hálfur á
breidd og er alldjúpt. Lónið
mjókkar inn til dalsins, og
þar lokar skri'ðjökull fyrir w
dalinn og stíflar fram-
rennsli vatnsins.
Þegar lónið er orðið fullt,
lyftir vatnið jöklinum, og
fær þaff þá framrás. Gerjst
þetta venjulega, á hverju
sumri í júlí eða ágúst.
Hlaupin valda því, að þá
losnar um jaka í lóninu við
nýju Fjallsárbrúna, en eins
og fyrr segir, stóð brúin af
sér allan vatnsflauminn
með sóma. SÁ
\
J