Tíminn - 02.08.1962, Qupperneq 9
☆
Þar ríkir ekki stórbrotin
náttúrufegurð, en frá sér-
hverju grasi og blómi og
steini andar hlýju og vin-
semd. Lágar, gróSri vafSar
heiSarnar, sem liggja aS
dalnum á alla vegu, seiSa
til sín, og litla, lygna áin,
sem liSast eftir miSjum
dalnum, niSar lágvært:
vertu velkominn! Sveitabýl-
in sitt hvoru megin árinnar
brosa hvert mót öSru, og
túnin kyssast. Slíkur er
Reykjadalur í SuSur-Þing-
eyjarsýslu.
í norðvestri gnæfa Kinnar-
Ifjöll við himin, fönnum prýdd,
og minna á ríki Vetrar kon
ungs. Syðst í dalnum er veiði-
sælt vatn, Másvatn, yzt í daln-
um er Vestmannsvatn, og aust-
an þess Vatnshlíðin, skógi vax-
HÚSMÆÐRASKÓLINN AÐ LAUGUM
YNDISREITUR - OSKABARN
in. Víða um sveitina má sjá af-
girta reiti, sem plantaðir hafa
verið skógi, því að Reykdæling-
ar eru áhugasamir um skóg-
rækt.
★ „HEIM AÐ LAUGUM '.
Miðsveitis er byggðin þétt
ust. Og þar sézt, að Þingeying-
ar kunna að mæta vetrarríkinu
á réttan hátt, því, að hér risu á
þriðja tug aldarinnar tveir fjöl-
mennir skólar í sama túni, hér-
aðsskóli og húsmæðraskóli, fyr-
ir atbeina félagssamtaka sýsl-
unnar, ungmennafélagasamT
bandsins og kvenfélagasam-
bandsins.
„Heim að Laugum“, segja
Þingeyingar og gamlir nemend-
ur skólanna, enda er Laugar
samnefni þessa skólahverfis.
Nafnið dregur það af heitum
laugunum, sem eru á víð og
dreif í hlíðinni að austan. Þær
Ieru lífæð íbúa Laugahverfisins.
Laugaból, Laugafell, Litlu-
Laugar, Varmahlíð, Langa-
brekka, Laugavellir, Stóru-
Laugar — svo mörg eru þau
bæjamöfn, sem til eru orðin
vegna lauganna. Og hver veit,
nema fleiri slík eigi eftir að
bætast í hópinn, því að Lauga-
hverfið er í vexti, þar er árlega
unnið að byggingum og öðrum
framkvæmdum. Þar er ekki
auðnarlegt um að lítast.
Yfir sumarmánuðina liggur
leið margra um Laugar, og þar
verður líka mörgum dvölin
lengri en þeir e. t. v. höfðu ætl-
að. í héraðsskólanum á Lau,g-
um er rekið sumargistihús, og
þaðan er skammt upp í Mý-
vatnssveit, út að Laxárvirkjun
og að byggðarsafninu á Grenj-
aðarstað, að Goðafossi í Skjálf-
andafljóti, inn í Vaglaskóg og
til fleiri staða, sem kunnir eru
fyrir náttúrufegurð. Og lax-
veiðimennirnir dveljast hópum
saman að Laugum. Bílarnir
þeirra standa hlið við hlið á
hlaðinu að kvöldi, en í býtið að
morgni renna þeir, einn af öðr-
um, út dalinn í átt að paradís
laxveiðimanna: Laxá.
Við skulum ekki trufla þá við
veiðiskapinn, og við skulum
leyfa hinum, sem leið sína
leggja suður dalinn, að skoða
náttrúufegurð Mývatnssveitar í
friði. Við skulum heimsækja
aðra paradís, sem ekki lætur
eins mikið yfir sér, en er eigi
að síður fýsileg til fróðleiks
— húsmæðraskólann að Laug-
um.
★ SKILJA EFTIR LIFANDI
MINNISVARÐA.
Hann stendur þarna apst-
an tjarnarinnar, hljóður og
hlýr. Umhverfis hann er ekki
ys og þys. Þar styðja fulltrúar
fyrri og síðari tíma hvor ann-
an gegn veðrum og vindi. Full-
trúi fyrri t.íma er reisulegt
tveggja bursta hús, reist á
þriðja tug aldarinnar. en full-
trúi síðari tíma er reistur í
kassastíi á fimmta tug aldar-
innar. Svo ólíkur sem bygg-
ingarstíll þessara tveggja húsa
er, þá fara þau hvort öðru
furðu vel-
Umhverfis skólann er allstór.
afgirt lóð, og þegar gengið er
um hana. dylst manni ekki, að
fegrun hennar ber að þakka
mörgum, mjúklátum meyjar-
höndum. Eins og skólahúsin,
skiptist lóðin í tvö aldursskeið.
Holtið ofan við skólann tilheyr-
ir gamla tímanum. Þar ægir
saman há.vöxnum birkitrjám,
reynivið og lágvöxnu víðikjarri.
Hér og þar sézt mosavaxinn
steinn. Blágresisbreiðurnar
vefja sig að rótum trjánna.
Gróðurilmur og fuglasöngur
kitla vitin. Þar er Meyjar-
skemman, lítil skemma með
torfþaki, í felum á milli
trjánna. Og þar er líka Meyjar-
sæti svolítill grasbolli í jaðri
holtsins. Eftir miðju holtinu
liggur leiðslugarðurinn, hleðsl-
an utan um pípurnar. sem
flytja ylinn.frá laugunum í
hlíðinni tii námsmeyjanna.
Á grasflötunum ofan holtsins
skilur hver árgangur eftir sig
nýjar raðir trjáplantna. sem
eiga eftir að dafna og standa
þar saman til minja um vetrar-
langa samvinnu námsmeyja.
löngu eftir að þær hafa tvístr-
azt um allt land. Á grasflötmni
s'únnan skólans er trjágróður
dreifður, og þar skiptast á birki
og reyhiviður, greni — og læ-
virkjatré. Meðfram girðingunni
að framan eru rifsberjarunnar.
Kringum fánastöngina er hlað-
in steinhæð með burnirót,
steinbrjót, fjalladalafifli og
mörgum öðrum tegundum
blóma. Sunnan undir húsveggn
um stendur bóndarósin stolt,
og svo er þarna ein dýrðarinn-
ar litablanda af morgunfrúm,
stjúpum, túlípönum og alla
vega sumarblómum.
ÖÉKABAÍtN ÞING-
EYINGA.
í anddyri skólans býður
okkur velkomin forstöðukonan,
Halldóra Sigurjónsdóttir. Og
jafnframt því sem hún sýnir
okkur þessi fallegu híbýli, allt
frá setustofu til ræstitækja-
skápa, fræðir hún okkur um
sögu skólans og leysir fúslega
úr spurningum okkar. Við för-
um fyrst um gamla skólann.
Ekkert herbergjanna þar er
eins að búnaði, og þegar við
komum inn í eitt þeirra, fyll-
umst við undarlegri lotningu.
Birtan er dauf, angan gamalla
húsgagna, bóka og teppa er
höfugur, og það er slíkur andi
í herberginu, að maður yrði
ekki undrandi, þótt lítill búálf-
ur styngi kollinum fram á milli
lokrekkjutjaldanna. Við spyrj-
um í hálfum hljóðum, hvar við
séum stödd.
—Þetta er herbergi Kristj-
önu heitinnar. Kristjana Pét-
ursdóttir frá Gautlöndum í Mý-
vatnssveit var fyrsta forstöðu-
kona skólans, gegndi störfum
hér í 17 ár, eða til dauðadags
í janúar 1946. Hún var mikil-
hæf og vinsæl kona, sem á.tti
sinn stóra þátt í þvi að móta
skólann og skapa þann þjóð-
lega blæ, sem skólinn leitast
við að veita inn á heimili verð-
andi húsmæðra. Herbergið er
varðveitt óbreytt frá hennar tíð
tii minningar um þessa mætu
konu.
— Hvenær tók skólinn til
starfa?
— Haustið 1929 Hann var
þá eínn af fjórum fyrstu hús-
mæðraskólum landsins. Skóla-
málinu var fyrst hreyft rétt eft-
ir aldamótin, og síðan börðust
þingeyskar konur ötullega fyr-
ir því, unz þær leiddu það far-
sællega í höfn með góðu full-
tingi ráðamanna héraðsins og
raunar alls almennings, sem þá
var að vakna til aukins skiln-
ings á menntunarþörf kvenna.
Enda hefur skólinn oft verið
nefndur óskabarn Þingeyinga.
★ LIGGUR VEL VIÐ
SAMGÖNGUM.
— Skólinn var upphaflega
byggður og skipulagður sem
fyrirmyndarheimili, og var í
fyrtsu aðeins rúm fyrir 12—15
nemendur, eða álíka margt og
var á mörgum heimiium í þá
daga. Þá var kennd matseld og
annað, sem viðkemur almenn-
um heimilisstörfum, og auk
þess fatasaumur, vefnaður og
hannyrðir. Bóklegar greinar
voru nánast engar aðrar en ís-
lenzka.
— Fyrstu árin voru vissulega
að ýmsu leyti nokkuð erfið.
Skólinn varð þá, eins og mörg
önnur heimili, að byggja mest
á heimafengnum efnum, þar
sem samgöngur voru þá allt aðr
ar, oft ekki kaupstaðarferðir
nema einu sinni til tvisvar á
vetri. En nemendur voru líka
eldri og þroskaðri þá en nú,
sumir jafnvel eldri okkur kenn
urunum. og höfðu þroska til að
taka námið réttum tökum og
samlaga það aðstæðum heimil-
anna.
— Fyrstu árin voru náms-
meyjar líka flestar frá þing-
eyskum sveitaheimilum, og að-
stæður skólans því svipaðar því,
sem þær höfðu vanizt heima
fyrir. Nú hefur þetta allt
breytzt, námsmeyjar koma
hvaðanæva af landinu og eru
niiklu yngri. allt niður í 16-17
ára, og oft lítt vanar heimilis-
störfum. En aðstæður hafa einn
ig batnað tii muna. Staðurinn
liggur nú vel við samgöngum.
og tæknin hefur haldið innreið
sína hér, eins og annars staðar,
í sambandi við rafmagn og önn-
ur nútíma þægindi.
— Hvenær var skólinn stækk
aður?
— Viðbótarbyggingin var
hafin 1947 og tekin í notkun
að fullu haustið 1949. Um leið
var námstími lengdur úr sjö
mánuðum í 8V2—9 mánuði og
kennsluhættir samræmdir nýju
fræðslulöggjöfinni.
★ TAKA DAGINN
SNEMMA.
— Helztu breytingar voru
þær, að hússtjórnarnáminu eru
nú gerð fyllri skil en áður og er
nú ætlaður helmingur náms-
tímans í stað þriðjungs hans
áður, enda veitir ekki af þeim
tíma, þar sem námsmeyjar
koma meir fákunnandi í heim-
ilisstörfum en áður var. Er hús
stjórnarná.minu ætlað að stuðla
að meiri vinnutækni tii að vega
upp á móti þverrandi vinnu-
krafti heimilanna. Algengt mun
nú, að húsmóðrin anni ein störf
um, sem áður voru í höndum
tveggja til þriggja kvenna, og
þarf hún því að vera sannkall-
aður þúsundþjalasmiður. Góð
vinnutækni ætti líka að gera
húsmóðurinni kleift að sinna
fleiri hugðarefnum sínum inn-
an hemilis og utan og verða
þannig í æ ríkara mæli virk-
ur þátttakandi í uppbyggingu
þjóðfélagsins i heild. f hús-
stjórnarnáminu er ^gott tæki-
færi til að þroska með nem-
endum samvinnuhæfni, tillits-
semi og hjálpfýsi.
— í vefnaðar- og sauma-
kennslunni er einnig stefnt að
þvi að gera námið sem hag-
nýtast, gera námsmeyjar fær-
ar um að sauma allan algengan
fatnað og búa verðandi heimili
sín visGega. Bókleg kennsla
hefur verið aukin. Auk ís-
lenzkunnar er nú kennd matar-
efnafræði, heilsufræði, heimil-
ishagfræði. vefnaðarfræði og
uppeldisfræði. Inn í námstíma
stúlknanna falla svo venjuleg
haust- og vorverk, eins og slát-
(Framhald á 13. síðu'
Húsmæðraskólinn að Laugum
TfMINN, fimmtudaginn 2. ágúst 1962