Tíminn - 11.08.1962, Blaðsíða 2
SHERRI og ROBERT FINKBINE á Kastrupflugvelll á leið sinnl tll S t o k k h ó I m s
LÖNDUM
Tvær vikur eins
og tvær aidir!
Harmsagan um thalido-
mide, lyfiS, sem veldur van-
sköpun ófæddra barna, hef-
ur mjög veriS á dagskrá aS
undanförnu. SíSustu dagana
hefur í fréttum veriS skýrt
frá bandarískri konu, sem
neytti lyfsins í byrjun meS-
göngutímans, og er nú komin
til SvíþjóSar til aS fá þar
fóstri sínu eytt.
Sherri Finkbine er þrítug
sjónvarpskona í Phoenix í Ari-
zonafylki í Bandaríkjunurn. Hún
er gift sögukennara, Robert Fink
bine, og á með honum fjögur
börn. Robert Finkbine fór til
Englands síðasta ár. Þar keypti
hann sér dálítið af thalidomide
töflum og ljafði með sér heim.
Töflurnar lágu ósnertar lengi, en
þegar kona hans varð vanfær að
fimmta barninu, tók hún þær
inn til að róa sig. Henni var ekki
Ijóst fyrr en eftir nokkurn tíma,
hver áhrif lyfsins gátu orðið, en
þá las hún í dagblaði einu grein
um thalidomide og skaðsemi
þess.
Hún leitaði þegar í stað læknis.
Heimilislæknir hennar ráðlagði
henni eftir ítarlegar rannsóknir
að sækja um fóstureyðingu.
Sama álit létu í ljós fjórir aðr-
ir læknar, sem kallað'ir voru til.
Sherri Finkbine hafði tekið lyf-
ið inn á öðrum mánuði með-
göngutímans, en á þeim tíma er
háettan á skaðaáhrifum lyfsins
mest. Líkurnar á því að barnið
yrði eðlilegt voru ekki taldar
nema hálfar móti því að það yrði
vanskapað.
Fékkst ekki vestra
Sherri Finkbine sótti um fóst-
ureyðingu. En þá komu lögin til
skjalanna. í Arizonafylki er ekki
hægt að fá löglega fóstureyðingu
nema fæðing barnsins stefni lífi
móðurinnar í hættu. Sami laga-
bókstafur gildir i flestum öðrum
fylkjum Ban'daríkjanna nema
Alabama, Oregon og Columbia;
þar leyfa lögin fóstureyðingu, ef
hcilsu móð'urinnar er stefnt í
voða. Frú Finkbine var tilkynnt,
að ef aðgerðin yrði gerð í Banda-
ríkjunum, myndu yfirvöldin lög-
sækja alla aðila málsins, þar á
meðal læknana, og mætti eiga
von á refsingu frá tveggja til
fimm ára fangelsi.
í upphafi óskaði Sherri Fink-
bine þess að nafn hennar yrði
ekki dregið fram í dagsljósið, en
hún rakti sögu sína fyrir blöðin
öðrum mæð'rum til viðvörunar.
En nafnleysið stóð ekki yfir
nema í þrjá daga. Læknar treyst-
ust ekki til að eyða fóstri hennar
THALIDOMIDE hefur gengið und-
ir ýmsum nöfnum, KEVADON og
CONTERGAN þeirra á meðal.
nema samþykki dómstóla kæmi
til. En dómstólarnir synjuðu
henni leyfis. Sherri Finkbine gat
ekki fengið löglega fóstureyð-
ingu i Bandaríkjunum.
Þá ákvað hún að leita til ann-
arra landa. í fyrstu hafði hún i
hyggju að fara til Japan. En
þangað var ekki hægt að fá
vegabréfsáritun á skemmri tíma
en viku, svo að hún tók þá
ákvörðun að fara til Svíþjóðar
í staðinn. í lok síðustu viku héldu
þau hjón áleiðis austur um haf
og höfðu stutta viðdvöl á Kast-
rupflugvelli í Kaupmannahöfn á
sunnudag, áður en þau héldu
áfram til Stokkhólms.
Liggur á
í viðtali við blaðamenn á flug-
vellinum, sagði frú Finkbine með
al annars: — Þetta byrjað'i fyr-
ir tveimur vikum, og þessar tvær
vikur hafa verið eins og tvær
aldir. En við trúum og vonum,
að okkur verði hjálpað í Sviþjóð.
Margir hafa lýst sig fúsa að lið-
sinna okkur, og skýrslur banda-
rísku læknanna fimm hafa verið
sendar til Stokkhólms. Trúlega
þarf ég að fara í rannsókn hjá
nokkrum sænskum læknum, áð-
ur en hægt verður að taka
ákvörðun um beiðni mína.
— Þér hafið orðið að þola
þunga sálaráreynslu?, spurði
blaðamað'ur einn.
— Meðan á réttarhöldunum
stóð dvaldist ég fjóra daga á
sjúkrahúsi til að hvílast. Það
sem nú á sér stað, er mesta
va'ndamál. sem fvrir mig hefur
komið á ævinni. En ég get ekki
annað en haldið, að það hljóti að
vera betra að vera hraust móðir
fjögurra barna, en taugabrotin
móðir fimm barna.
— Fjögurra og hálfs, skaut eig-
inmaðurinn inn í beisklega.
Frú Finkbine hélt áfram: —
Það hryllilega er, að ég er farin
að finga meira og meira til per-
sónulegs sambands við' lífið, sem
ég bar undir brjósti. Eg er farin
að finna, að það er barn — mitt
barn. Þess vegna liggur mér á
að koma þessu af. Eg þoli ekki
að hugsa um þetta.
Robert Finkbine: — í ákvörð-
un okkar höfum við ekki ein-
ungis tekið tillit til konunnar og
barna okkar fjögurra. Við finn-
um til mestrar ábirgðar gagn-
vart ófædda barninu. Það er
vegna þess, sem við höfum tek-
ið þessa ákvörðun.
í Svíþjóð er löggjöf um fóst-
ureyðingar mun frjálslegri en i
Bandaríkjunum. Þar eru þær
leyfðar, ef læknir heilbrigðisyf-
irvaldanna telur, að hætta sé á
sýkingu í fóstrinu. Möguleikarnir
á, að Svíar verði við óskum
Finkbines-hjónanna er því taldir
góðir. Að' öllum líkindum verður
aðgerð'in gerð á Karolinska
sjúkrahúsinu í Solna utan við
Stokkhólm
Kaþólska kirkjan andvíg
Ákvörðun Finkbines-hjónanna
hefur valdið miklu umtali bæði
austan hafs og vestan. Margir
eru þeirra skoðunar, að ákvörð-
un þeirra sé röng og stríði á móti
góðu siðgæð'i. Kaþólska kirkjan
hefur pfdráttarlaust tekið í þann
strenginn. Ritstjóri vikublaðs
jesúíta i Bandaríkjunum, séra
Thurston Davis. hefur t.d. sagt
um þetta mál: — Það skiptir
engu, hve góð ástæða knýr fólk
til fóstureyðingar, svarið hlýtur
samt að vera neitandi. Að svipta
saklausa veru lífi af ráðnum
hug, getur ekki kallazt annað en
morð.
Aðrir eru því mótfallnir að
leyfa konum, sem tekið hafa
inn thalidomide að fá eyðingu
fósturs af öðrum ástæðum en
kirkjunnar menn. Þeir segja, að
í nútíma þjóðfélagi hafi vanskap
að barn mikla möguleika að lifa
allt að því eðlilegu lífi, þrátt fyr-
ir líkamsgallana, og þá möguleika
megi ekki svipta það.
Buddan sker úr
En þetta mál hefur orðið til
þess að koma af stað umræð-
Á öndvertðum meið. Séra DAVIS og
dr, GUTTMAC'HER.
um fóstureyðingarlöggjöfina í
Bandaríkjunum. Margir hafa
krafizt þess, að hún verði endur-
skoðuð og færð í frjálslegra horf.
Talsmenn þeirrar endurskoðunar
beita einkum tveimur röksemd-
um:
1) Konur, sem æskja ekki að
eignast börn af félagslegum eða
heilbrigðiástæðum, eiga ekki að
ala börn. Það er órétt gagnvart
börnunum sjálfum.
2) Bandarískar konur, sem
leita eftir fóstureyðingu, fá hana
á ólöglegan hátt, oft fyrir ærið
fé og leggja sig í mikla hættu.
Dr. Guttmacher, yfirkvenlækn-
ir við sjúkrahús í New York, er
einn þeirra, sem æskja nýrrar
löggjafar í þessum efnum. Hann
segir: — Kerfið hjá okkur er
rotið. Fólk, sem þarf að láta eyða
fóstri, fær þá tegund aðstoðar,
sem buddan leyfir. Þeir, sem eiga
ekki nema fimm dollara, fá fimm
dollara aðgerð, þær, sem eiga
1000 dollara fá 1000 dollara með-
höndlun. Þetta eru möguleikar á
að lifa grundvallaðir á stéttamun.
Meðan lögunum er ekki breytt,
Framhald á bls. 13.
Kfarnorkuiilraunir
Það eru mikil og ill tíðindi,
a» ftússar skyldu hefja kjarn-
orkusprengjur að nýju og virð
ast ekki sérlega smátækír í
sprengingum í andrúmsloftinu.
Kapphlaup stórvcldanna um
kjarnorkutilraunir virðist því
halda áfram, meira a'ð segja
með minni hvfldum en áður
var. Rússar hófu kjarnorku-
spréngingar eftir alllangt hlé
í fyrra og sprengdu margar
sprengjur og stórar. Þetta varð
til þess að Bandaríkjamenn
töldu sig verða að hefja kjarn-
orkusprcngingar aftur, svo að
þ>eir yrðu ekki aftur úr í kapp-
hlaupinu.
Nú virðast Bandaríkjamenn
í þann veginn að Ijúka þessum
áfanga í sínuni tilraunum, og
hafa raunar farið hóflegár í
sakir og rcynt að sprengja sem
mest neðanjarðar. En jafn-
skjótt og Bandaríkjamenn
hætta, byrja Rússar aftur með
stórsprengingar í andrúmslofti
og láta nú ckkert á milli Verða.
Er því ekki annað sýnt, en
sprengjukapphlaupið sé frem-
ur að færast í aukana en hitt.
Ekki verður heldur sagt, að
vonir glæðist svo teljandi sé á
ráðstefnunni um bann viS kjarn
orkutilraimir í Genf, þó að
Bandaríkjamenn hafi sýnt nokk
urn vilja til þess að koma til
móts við sjónarmið Rússa.
mótmæli
Síðustu vikurnar hafa gerzt
nokkrir atburðir, sem bregða
allskýru ljósi á þrátefli það og
sýndarleik, sem Rússar halda
uppi í kjarnorkumálum. Áróð-
ursmenn í Moskvu hvctja mjög
til mótmælaaðgerða víða um
heim gegn kjarnorkusprenging
um, og um það er aðeins gott
að segja. En síðustu vikur hef-
ur komið í Ijós, að þessar mót-
mælaaðgerðir verða a® vera
með réttum hætti til þess að
Rússum líki. Mótmælin mega
alls ekki bcinast að Rússum
sjálfum eða tilraunum þeirra.
Slík mótmæli mega til dæmis
ekki sjást eða heyrast á Rauða
torginu í Moskvu og ekki held-
ur á heimsmóti æskunnar í
Helsingfors, og þó að þeir telji
Isig mikla stuðningsmenn heims
þings gegn atóm- og vetnis-
sprengingum í Tokíó, má ekki
* mótmæla sprengingum Rússa
Iþar. Þannig hefur áróður Rússa
í þessum málum undanfarið,
snúizt gegn þeim sjálfum í tákn
rænum og augljósum atburð-
um
LánsmaSur
í Morgunblaðinu 11. júlí s.l.
gefur að líta frétt þess efnis,
að „Fulltrúaráð Sjálfstæðis-
manna í Norður-MúlasýsIu“
hafi verið stofnað. Takið eftir
í NORÐUR-MÚLASÝSLU. —
Þarna eru auglýst þau nöfn, er
nálægt stofnuninni komu, og
tekur það ekki mikið af rúmi
blaðsins, en eitt stingur í aug-
um, sem sé það, að FORMAÐ-
UR FULLTRÚARÁÐS SJÁLF-
STÆÐISMANNA í NORÐUR-
MÚLASÝSLU ER BALDUR
BJARNASON Á EIÐUM í SUÐ
UR MÚLASÝSLU.
Hér er um annað af tvennu
að ræða. Hið fyrra, áð svo mik
II sé mannafátækt íhaldsins í
Norður-Músasýslu, að þeir hafa
orðið að fá forinann að láni
hjá flokksbræðrum sínum í S-
Múlasýslu, og hafa þeir
þó sannarlega ckki úr miklu að
moða. Hitt er, að þelr sem að
þessu standa hafi ekki vitað
að Eiðaþingháln og þar me?
Framhald á 15. síðu.
«0
2
TÍMINN, laugardagíV-n lí. í.gáet 1&32