Tíminn - 30.09.1962, Síða 15
Tvö flug á dag
Framhald af 16 síðu
ræða en salta allt kjötið niður í
tunnur, því frystihús höfum við
ekki hér. Nú er allt kjötið flutt
nýtt með Dakotavélunum, eins og
fvrr segir, og taka vélarnar um
þrjú tonn í hverri ferð og færa
okkur vörur austur, áburð o. fl.
Heyskapur hér mun vera í með-
allagi, þrátt fyrir heldur erfitt
sumar og uppskera garðávatxa
verður sennilega í góðu meðallagi.
Fer syngjandi
Framhald af 16 síðu
þangað annað veifið. Annars er ég
n>est á faraldsfæti, ferðast milli
landa, syng í óperum hér og þar og
held sértónleika. Mér finnst
skemmtilegra að hafa þetta svona
til að litast um í heiminum, kynn-
ast sem flestum löndum og fólki
Flesta tónleika hef ég haldið er-
lendis, í Þýzkalandi og var um
tíma við Vínaróperuna undir
stjórn Herbert von Karajan, söng
þar í Faust og Töfraflautunni, fer
þangað aftur í vetur. Héðan fer
ég heim til Osló, syng inn á hljóm-
plötur og fyrir sjónvarpið. Síðan
halda ferðalögin áfram landi úr
landi, til Þýzkalands, Hollands,
Frakklands og Englands fram á
vor. Eg kem alltaf heim til gamla
Noregs þegar sumri hallar til að
syngja á tónlistarhátíðinni í Berg-
en. Þar hef ég sungið oftar en
nokkur landi minn. Og alltaf syng
ég þar lög eftir Grieg, því að
hátíðin er einmitt haldin í fæðing-
arborg hans.
Og Olav Eriksen syngur einmitt
lög eftir Grieg í Þjóðleikhúsinu í
kvöld, með uhdirleik Árna
Kristjánssonar.
Greiða skuld!
sjóðinn hefur frá upphafi verið
talin með í gjaldeyrisstöðu bank-
anna, þ. e. a. s. skuldbindingarnar
hafa komið til frádráttar á gjald-
eyrisinnstæðum og hafa því skuld
ir þessar og endurgreiðsla þeirra
hafi ekki haft nein áhrif á heild-
argjaldeyrisstöðuna.
í desember 1961 voru 2 millj.
dollara endurgreiddar af skuldinni
við Evrópusjóðinn. í janúar 1962
voru 2,5 millj. dollara greiddar
Evrópusjóðnum og eftirstöðvarn-
ar 2,5 millj. dollara voru greiddar
i febrúar 1962.
Hinn 18. júní 1962 endurgreiddi
Seðlabankinn 2 millj. dollara af
yfirdráttarláninu hjá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum, og jafnhá upp-
hæð var endurgreidd 8. sept. sl.
Eftirstöðvar af yfirdráttunum eru
nú 2,8 millj. dollara, en sú upp-
hæð samsvarar gullinnstæðu ís-
lands hjá sjóðnum. Hafa því öll
raunveruleg bráðabirgðalán hjá
Alþj óðagj aldeyrissj óðnum og
Evrópusjóðnum nú verið endur-
greidd.“
Nýkommn á markaðinn
NÝR PENNI FYRIR ÞÁ,
SEM ERU TÍMABUNDNIR
■•Q, 4: jf'®"'1 >4''ý
... j.....' ....■■■("
Hinn fjölhæfi
PARKER
Hér eru góðar fréttir fyrir þá, sem ferðast mikið,
fyrir þá, sem þurfa að spara tíma og komast hjá
óþægindum .... PARKER 45 fullnægir ströng-
ustu kröfum og veitir yrður tvo penna í einum.
með 14K gulloddi
0°°
PARKER 45 er algjör nýjung í pennasmíði
.... t.d. hvernig hann er í'ylltur. Notaðar eru
tvær aðferðir við fyllingu pennans. Annars
vegar er hann fylltur á venjulegan hátt úr
blekbyttu, hins vegar með blekfyllingu, sem
þér getið borið á yður, hvert sem þér farið.
Aðeins eitt handtak og þér getið notað hvora
aðferðina sem er. Hvar sem þér eruð, er penn-
inn yðar PARKER 45 tilbúinn til notkunar i
starfi yðar á landi, sjó eða. lofti.
Athugið einnig þægindin við að skrifa með
14K gulloddi. Mjúklega og örugglega rennur
PARKER 45 yfir pappírinn og fylgir hugsun-
um yðar eftir.
PARKER 45 fæst með mjög fjölbreyttum odd-
breiddum, allt frá extra mjóu að mjög breiðu.
Pennaoddinn má skifta úm með lítilli fyrir-
liöfn og á stuttum tíma.
w
Gjörið svo vel að skoða og reyna PARKER 45 í næstu ritfangaverzlun. Það er penninn, sem
þér þarfnist.
©
THE PARKER PEN COMPANY
(
Skrifstofustúlka oskast
Óskum að ráða skrifstofustúlku með verzlunar-
skólaprófi eða hliðstæðri menntun.
Upplýsingar á skrifstofu vorri, Borgartúni 25,
sími 18560.
Verzlanasambandið h.f.
Sendisveinn
Óskum að ráða sendisvein strax.
Þarf að hafa hjól.
Upplýsingar á skrifstofu vorri, Borgartúni 25,
sími 18560.
Verzlanasambandið h.f.
Bíla- og
búvélasalan
Ferguson ’56 diesel raeð
ámoksturstækjum.
Massey-Ferguson ’59 með
ámoksturstækjum.
Dauts ’53 11 hp. Verð 25 þús.
Ámoksturstæki á Dauts
alveg ný.
Sláttutætari
Fahr ’51 diesel með sláttuvél
Hannomac ’55—’59
John Dere ’52
Farmal Cub ’50—’53
Hjólamúgavélar
Hús á Ferguson
Heyhleðsluvél
Tætarar á Ferguson og
Fordson Major,
Buk dieselvél 8 hp.
Vatnsturbina ’4—’6 kv.
Bíla- & búvélasalan
við Miklatorg. Simi 2-31-36
Tiiboð
óskast í nokkrar fólksbifreiðir er verða sýndar í
Rauðarárporti þriðjudaginn 2. okt. kl. 1—3.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri kl. 5 sama
dga.
Sölunefnd varnarliðseigna
VARÐBE
félag ungra áhugamanna um vestræna samvinnu,
heldur aðalfund sinn i Iðnó uppi), mánudaginn
15. október 1962 kl. 20,30.
Fundarefni:
1. Inntaka nýrra félaga
2. Venjuleg aðalfundarstörf skv.
félagslögum.
3. Önnur mál.
S'iárnin
I í M I N N, sunnudagurinn 30. sept. 1962.
15