Tíminn - 13.10.1962, Blaðsíða 3

Tíminn - 13.10.1962, Blaðsíða 3
Samningar Monakó úr NTB—París, 12. okt. Franska stjórnin hefur ákveðið að taka upp tollaeftir- lit við landamæri Monakós og Frakklands, og nú verður einn ig að fara fram vegabréfaskoð- un við landamærin, og bar verður settur lögregluvörður, eins og við öll venjuleg landa- mæri. Ástæðan fyrir þes'sari ákvörðun stjórnarinanr er sú, að sérstakur samningur, sem verið hefur milli landanna er runninn út. Viðræður hafa farið fram um endurnýjun srmningsins, en samkomulag hef- ur ekki náðst enn þá, og hefur viðræðunum verið hætt að sinni. Nefnd frá ‘ Monakóstjórn hafði komið til Parísar, en hún er farin heim aftur, Við brottförina sögð- ust nefndarmenn þó búast við því, að viðræður yrðu teknar upp að nýju innan tiðar. Ein aðalorsökin til þess, að samningaviðræður fóru út um þúf- ur er, að sérstök s'kattaákvæði gilda í Monakó, og hefur fjöldi fyrirtækja látið skrásetja sig í rikinu til þess að komast hjá þvi Heimsmet i hárgreiðslu! NTB-Luton, 12. okt. Nú hefur verið sett nýtt heimsmet í liárgreiðslu. Það var hinn 19 ára gamli hárgreiðsl umaðu r Melvyn Shead, sem setti metið. Á 71 klukkutíma og 4.1 sek- úndu hafði hann greitt 199 ungum stúlkum, sem boðizt höfðu til þess að láta hiann greiða sér, og fengu þær með þessu ókeypis h'árlagn ingu. Fyrrá heimsmet h'ljóð iði aðeins upp á 58 klukku itundir. að greiða skatta af starfsemi sinni. Fram til þessa hefur Monakó verið nær því fullkomlega sjálf- stætt, en landamæri þess og Frakk lands eru yfirleitt mjög ógreini- leg. Sem dæmi um það, fylgja landamærin á einum stað götu r.okkurri, á öðrum stað liggja þau í gegnum kirkju, þannig að altar- iö er annars vegar en skip kirkj- unnar hins vegar við landamærin. Þriðja dæmið er knattspyrnuvöll- ur, en þar eru leikmennirnir til skiptis inni í Monakó eða Frakk- landi á meðan á leiknum stendur. Schröder til Washington NTB-Washington, 12. okt. Vestur-þýzki utanríkisráð- herrann Gerhard Schröder er væntanlegur til Washington á morgun, en eftir helgina hefj- ast viðræSur milli hans og ut- anríkisráðherra Bandaríkj- anna Dean Rusk, og varnar- málaráðherrans MacNamarra. Sehröder er í fjögurra daga heimsókn i Bandaríkjunum, og mun hann aðallega ræða um NA TO og væntanlega endurvæðingu Þýzkalands við bandarisku ráð- herrana. Ráðherrarnir munu hefja við- ræðurnar á mánudag, en stuttu áður en Schröder heldur aftur heim á leið er ætlunin, að hann ræði um heimsmálin við Kennedy forseta. í Bönn er talið líklegt, að Ad- enauer kanzlari fari sjálfur til Washington til viðræðna þar, þeg- ar líða tekur á vorið. Þó fer það nokkug eftir því, hvort Krústjoff forsætisráðherra Sovétríkjanna grípur til nokkurra þeirra aðgerða sem leitt gætu til nýrra vandræða í Berlín. FYRIR nokkru var Raymond Smith, flotamálafulltrúi í Bandaríska sendiráðinu kvaddur heim til Banda ríkjanna, eftir að sovézka stjórnin hafði sakað hann um njósnir. Hann er hér með konu sinni og börnum á leiðinni heim frá Moskvu. Myndin er tekin í Kaupmannahöfn. NTB—Moskva, 12 okt. Stjórnin í Moskvu hefur vís- að úr landi fyrsta sendiráðs- ritara bandaríska sendiráðsins í borginni, og er honum gefið að sök, að hafa reynt að múta sovézkum borgara til þess að selja sér ríkisleyndarmál. Sandirátfsritariizi heitir Midt- hun og er 41 árs gamall, kvæntur og á tvær dætur. Hefur stjórnin hrafizt þess, að hann verði strax kallaður heim. Þetta er annar sendiráðsmaðurinn, sem sakaður er um njósnir í Sovétríkjunum á einni viku. Hinn var Raymond Smith, sem var flotamálafulltrúi í sendiráðinu, og hefur hann nú yfirgefið Sovétríkin ásamt konu sinni og börnum. Midthun hefur ekki verið hand- tekinn, og starfsmenn sendiráðs- ins segja, að eftri því sem vitað sé, hafi honum ekki verið veitt cftirför að undanförnu. Þess er skemmst að minnast, að bandaríska stjórnin Iét fyrir nokkru vísa úr landi tveimur sovézkum borgurum, sem unnið höfðu við Sameinuðu þjóðirnar. Voru þeir sakaðir um að hafa keypt leyniskjöl af manni í land- göngusveitum sjóhersins. Búizt er við, að sendiráðsritar- inn hverfi heim frá Sovétríkjun- um innan skamms. VtSITALA VARA OG ÞJÓNUSTU135 STIG LÍFID Á JÖRDINNI ENN EFTIRSÓKNAR VERDARA NTB-Vatikanið, 12 okt. í ræðu, sem Jóhannes páfi XXIII. hélf á kirkjuþinginu í Róm í dag, bað hann stjórn- málamenn heimsins að leggja JÓHANNES PÁFI eyrun við, og hlusta eftir neyð arópi mannkynsins um frið í heiminum. Hann bað þá einn- ig að fórna því, sem til þyrfti, til þess að varanlegur friður mætti nást. Ræða páfans var flutt á öðrum degi kirkjuþingsins, og hvatti hann til aukinnar virðingar fyrir mönnunum og samstillingar milli ríkja heimsins. í fyrsta sinn í 200 ár veitti páfi áheyrn i 16. kapellunni, og hinn áttræði kirkjuhöfðingi benti á veggskreytingar Michelangelos, sem sýna dómsdag. Gerði hann þetta til þess að leggja áherzlu á bón sína. Sagði hann, að allir menn yrðu einhvern tíma að standa frammi fyrir hinum æðsta dómara, og bað menn að minnast þess. Þegar friður er kominn á, verður alls staðar hægt að vinna að vísindalegum uppgötvunum i andrúmslofti, sem einkennist af sálarró, og gætu þær þá stuðlað að framförum, og að því að gera lífið á jörðinni enn eftirsóknar- verðara, heldur en það er nú á tímum. Áheyrnarfulltrúar orþódoxkirkj unnar í Sovétríkjunum komu til Rómar í dag, og munu þeir sitja fundi kirkjuþingsins, Eftir að páfinn hafði flutt ræðu sína, gekk hann út á meðal þingfulltrú- anna. Hálftíma síðar hélt hann aðra ræðu, en að henni lokinni hélt hann fótgangandi á brott í fylgd með nánustu prelátum sín- um, á meðan kirkjukórinn söng sálma. Nú munu fulltrúar kirkjunnar í Austur-Evrópulöndunum, sem sækja þingið, vera orðnir enn fleiri, en búizt var við í upphafi Hefur páfi rætt við þá, og í dag veitti hann biskupnum ( Sofía á- heyrn. TK-Reykjavík, 11. okt. KAUPLAGSNEFND hefur nú reiknað út vísitölu framfærslu- kostnaðar, eins og hún var i byrjun októbermána'ðar. Hefur vísitalan hækkað um 3 stig frá byrjun september. Mest er hækk un í matvöruflokknum. Vísitala matvöru hækkar úr 138 stigum í 143 stig. Vísitala fatnaðar og álnavöru hækkar úr 132 í 133 stig og leðurvara og ýmis vara og þjón usta hækkar úr 144 stigum í 147 stig. Vísitala vöru og þjónustu hefur því í heild hækkað úr 132 stigum í 135 stig og þó er eftir að taka inn í vísitöluna verðhækkun á salt kjöti, hangikjöti og unnum kjöt- vörum, eins og kauplagsnefnd bendir á. Vísitala vara og þjónustu hefur hækkað samtals um 35 stig síðan í marz 1959, er vísitöluútreikning- unum var breytt, en 35 stig á nú- verandi vísitölu svara til um 70 stiga í þeirri vísitölu. er gilti, Þegar vinstri stjórnin fór með völd. Húsaleiguliður visitölunnar er ætíð óbreyttur, 104 stig, og vita allir, ag þar er reiknað langt um of lágt. Húsnæðisvandræði eru um land allt og húsaleiga þýtur upp, en húsaleiga kauplagsnefndar er alltaf hin sama! Flugslys á Spáni NTB-Madrid, 12 okt. í dag fórst flugvél frá spænska flugfélaginu Ibería og með henni 22 farþegar, þar á meðal eitt smábarn. Flugvélin rakst á fjall, um 31 km fyrir utan Sevilla en fimm mínútum áður en slysið varð, hafði hún beðið flugturninn í borginni um leyfi til þess að lækka flug ið úr 4000 fetum niður í 3000 fet. Eftir það heyrðist ekkert í vélinni, að sögn starfsmanna flugturnsins Skyggni var mjög slæmt þessurn slóðum. Hjálpar- sveitir, sem komu á vett- vang, segjast ekki hafa fundið neitt nema brenn- andi brak úr vélinni. 41 maður fórst NTB-Varsjá, 12. okt. í opinberri tilkynningu sem gefin hefur verið út í Póllandi, segir, að 41 maður hafi látið lífið í jámbraut- arslysinu, sem varð í Lodz- héraðinu á þriðjudagskvöld. T í M I N N, laugardagurinn 13. október 1962 3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.