Tíminn - 20.10.1962, Side 16
BÓ-Reykjavík, 19. okt.
Kartöfiuupptaka hefur stað
iS yfir fram að þessu og er
jafnvel ekki lokiS þótt upp-
töku í venjulegu ári sé jafnaS-
arlega lokiS um mánaSamótin
september—október.
Blaðið talaði í dag við íorstjóra
grænmetisverzlunarinnar. Hann
sagði tölur um kartciflumaignið
mundu komnar fyrir lok þessa
mánaðar. Uppskeran í Hornafirði
er mjög léleg í ár. Um Þykkva-
bæinn er ekki vitað og ekki held-
ur um Svalbarðsströnd og önnur
kartöflusvæði fyrir norðan, sagði
íors'tjórinn.
Blaðið talaði síðan við Aðal-
slein Aðalsteinsson, fréttaritara
sinn á Hornafirði. Hann sagði, að
uppskeran hefði verið mjög mis-
jöfn, sumstaðar lítið meiri en sett
var niður, annars srtaðar hefði
jafnvel ekki verið tekið upp úr
görðum, en í sumum görðum hefði
verið meðalvöxtur. Talið er, að
uppskeran í heild sé helmingi
niinni en í fyrra og þá var meðal
ár. Hvað kemur til, veit enginn.
Að líkindum er það veðráttan,
sagði Aðalsteinn. Sumir geta þess
til, að notkun lyfs gegn kartöflu-
myglu hafi misheppnazt, en lyfið
Frainh. á 15. síðu
MYNDIN af þessari furðuskepnu kemur frá Litla-Bakka í Hró-
arstungu. Hrúturinn einhyrndi heitir Snillingur og er eign
þeirra Björns og Skúla Sigurbjörnssona á Lilta-Bakka. í gamla
daga var það taiið bo'ða stórtíðindi, er slíkar skepnur fæddust.
(Ljósm.: TÍMINN-KI).
„Gæti líka fengið
að smíða í Köln“
Guðmundur
óperusöngvari
inn til landsins
söngskemmtun í
er
Guðjónsson
nýkom-
og heldur
Gamia Bíó
n.k. mánudagskvöld með
undirleik Atla Heimis
Sveinssonar píanóleikara.
Þeir Gúðmundur og Atli Heim
ir voru báðir vi'ð nám í tón-
listarháskólanum í Köln, Atli
hefur numið þar tónsmíðar, pí-
anóleik og hljómsveitarstjórn
síðan 1959, en Guðmundur fór
þangað í nóvember s. 1. í boði
vestur-þýzku ríkisstjórnarinnar
og naut þar kennslu í tíu mán-
uði hjá hinum fræga söngkenn
ara próf. Clemens Glettenberg.
í vor fór Guðmundur til Árósa
í Danmörku og þáði boð um áð
syngja hlutverk Alfredos í óp-
erunni La Traviata á 50 ára af-
mæli józku óperunnar í Árós-
um og fékk lofsamlega dóma i
dönskum blöðum fyrir söng
sinn.
Fréttamenn hittu þá Guð-
mund og Atla Heimi að máli í
gær og nokkra vini Guðmund-
ar, sem annast undirbúning
tónleikanna á mánudag. Fyrst
Iék fréttamönnum hugur á að
vita, hvort Guðmundur hefði í
hygigju að gerast söngvari ytra
eða hvort hann hefði fengið
boð um söngsamning ytra.
Guðmundur kvað það alls
ekki ætlun sína. Hann hafi val-
ið sér lífsstarf fyrir löngu, hann
væri trésmiður og hefði fyrir
konu og börnum að sjá og það
væri fyrir öllu, að tryggja
þeirra framtíð og gæti ekki
teflt í neina tvísýnu nú orðið
með að leggja út á listamanns-
braut í útlöndum. Raunar sagð-
ist Guðmundur hafa gefið það
sama svar, þegar hann var úti
í Köln og var spurður, hvort
hann gæti hugsað sér að gerast
óperusöngvari þar, ef byðist.
„Ég er smiður heima á íslandi
og hef hugsað mér að vera Það
áfram“, svaraði Guðmundur
Þá. „Já, en þú mundir nú sjálf-
sagt fá að smíða hér eins og
þig lysti“ varð þeim að orði,
rétt si svona.
Úr 80 nemenda hópi í Köln-
ar-skólanum var 22 boðið að
vera á sérstöku úrvals-nám-
skeiði sem nefnist Meister-kurs
us. Þetta voru nemendur í ýms
um tónlistargreinum, og Guð-
mundur varð einn af þessum 22.
En það sem meira var: Að nám
skeiðinu loknu voru þrír valdir
úr til að koma fram á lokatón-
leikum skólans, og trésmiður-
inn frá íslandi var þeirra á meg
al. Hinir tveir voru bandarísk-
ur baritón, William Pearson,
sem stundað hefur söngnám í
Framh á 15. síðu
Allt fyrir æskuna í vetur
GUÐMUNDUR GUÐJONSSON
Æskulýðsráð Reykjavíkur
er nú aS hefja mjög fjölþætta
vetrarstarfsemi. Nú verSur
tekin upp sú nýjung, aS stofn
aSur verður kvikmyndaklúbb
ur fyrir æskufólk í Tjarnarbæ,
og er það í samráði viS Film-
íu. í vetur verður einnig hald-
in margvísleg tómstundastarf
semi og klúbbstarfsemi.
Æskulýðsráð Reykjavíkur og
Filmía hafa ákveðið að beita sér |
fyrir stofnun sérstaks kvikmynda-
klúbbs fyrir æskufólk 12 ára og
eldri. Markmiðið er, að í klúbbi
þessum verði ungu fólki gefinn
kostur á því að sjá úrvalskvik-
myndir frá ýmsum tímum og lönd-
um og auk þess verði veitt fræðsla
um kvikmyndagerð og kvikmynda
leik. í vetur mun klúbburinn hafa
tíu sýningar á laugardögum í Tjarn
arbæ og eru fjórar þær fyrstu þeg
ar ákveðnar.
Laugardaginn, 20. okt. kl. 3
e.h. Eilífðar vinir. Hugljúf ítölsk
kvikmynd um 2 13 ára skólafélaga
og vini. Myndin fékk dóma sem
ein af 10 beztu myndum ársins
1957.
Laugardaginn 3. nóv. Circus-
kvikmynd og fræðsluþáttur um
kvikmyndagerð.
Laugardaginn 17. nóv. Hinn ó-
sigrandi. Indversk verðlaunakvik-
mynd (fern verðlaun á Feneyja-
Framh. á 15. sfðu
FENGU
ENGA
RJÚPU
MB—Reykjavík, 19. okt.
Rjúpnaveiðar hófust síðast lið-
inn m'ánudag, og munu margar
skyttur síðan hafa Iagt land und-
'ir fót. Fenigur þeirra hefur verið
misjafn; sumir hafa fengið góffia
veiði, aðrir minna, en eins og geng
ur og gerist, hafa þeir haft heldur
lægra um sínar veiðisögur.
Á Holtavörðuheiði hafa alltaf
Framh. á 15. síðu
ENGIN NÝ
BERKLA-
TILFELU
ÓM—Eyrarbakka, 19. okt.
Allsherjar berkl3rann-
sókn liefur farið fram hér á
staðnum, vegna berklaveiki-
tilfel'ia þeirra, sem hér
komu upp á döigunum, og
siagt var frá áður. Gert var
berklapróf á börnum og ung
Iingum yngri en sextán ára,
en eldri voru gegnumlýstir.
Naut héraðslæknir við þetta
aðstoffiar lækna úr Reykja-
vík. Eugin ný tilfelli komu
fram.