Tíminn - 24.11.1962, Blaðsíða 1

Tíminn - 24.11.1962, Blaðsíða 1
dgp BðKDMflRVÖRDB H E I LDSÖLU BIRGÐIR SKIPHOLT HF SÍMI23737 Nú fara jólainnkaupin senn að hefjast og verzl- anirnar hafa vííað að sér nýjum birgðum fyrir jól- in. Bráðum fara jólaút-, stillingarnar að koma,! bæði úti í gluggum og inni í verzlununum, — og glingríð dregur að sér óskipta afhygli barna á öllum aldri. i EYSTEINN JÓNSSON Á ALÞINGI í GÆR UM EBE-MÁLIÐ AUKAAÐILDARUMSÚKN LOKAR VIÐSKtPTASAMNINGSLEIDINNI í ræðu, sem Eysteinn Jóns- hann á það áherzlu, að íslend- þegar það þætti tímabært. — myndu þeir með því loka tolla. son, formaður Framsóknarfloks ingar sæktu um tolla- og við- Sagði Eysteinn í því sambandi, og viðskiptasamningsleiðinni, ins, hélt í gær á Alþingi um skiptasamning við bandalagið að eí fslendingar sæktu um Útdráttur úr ræðlu EystJeins efnahagsbandalagsmálið, lagði án annarra tengsla við það — aukaaðild að bandalaginu Jónssonar er birtur á þingsíðu. S.A.S. rekur áfram áróður NTB-Stokkhólmi, 23. nóv. Samkvaemt fréttum frá Nor3 urlöndunum virðist fullvíst, að takist SAS ekki að komast að einhverju samkomulagi við Loftleiðir, og að öðrum kosti að fá lATA-löndin til þess að leyfa frjálsa samkeppni á leið- unum yfir Norður-Atlantshaf- ið verði gripið til annarra að- ferða til þess að gefa SAS tæki ( færi tii þess að keppa við Loftleiðir á þessum leiðum. ALÞÝÐUSAMBANDSÞINGINU LAUK í NÓTT RUGUNGUR VAR í AF • • MB—Reykjavík, 23. nóv. STOÐU MINNIHLUTA Öldur hefur nú nokkuð lægt l á þingi ASl, og eru nú hin raunverulegu þingstörf hafin. í gærkvöldi og í o'-ag hafa nefndaálit verið rædd og af- greidd og hafa þau störf geng- ið tiltölulega vel. Andstæðing- ar sambandsstjórnar ASÍ, þeir sem nú keppast við að telja þingið „ólöglegt", vegna þess að það samþykkti kjörbréf LÍV með athugasemdum, virð- ast ekki alveg vissir um, hvað gera skuli; fyrirliðar þeirra neita að taka þátt í nefndar- störfum en sumir óbreyttir liðsmenn þeirra gera það samt, og foringjarnir flytja svo breytingartillögur við nefndaálitin á þinginu. í gærkvöldi hófust þingstörf eftir matarhlé á því, a8 sýndar voru litskuggamyndir af listaverk- i um í safni ASÍ. Björn Th. Björns- : son, listfræðingur útskýrði mynd- ! irnar. Að sýningu lokinni lagði forseti þingsins til, að Ragnari Jónssyni forstjóra, er gaf ASÍ safn ið, væri sendar þakkir frá þing- inu. Var það samþykkt með dynj- andi lófataki viðstaddra. Síðan var lagt fram fyrsta nefnd arálitið. Var það álit Trygginga- og öryggismálanefndar. Framsögu hafði Hermann Guðmundsson. Einnig tók Jón Sigurðsson til máls. Var álit nefndarinnar sam- þykkt samhljóða. Þórir Daníels- son hafði framsögu um álit fræðslunefndar, og var það' einn- ig samþykkt samhljóða. Að þvi loknu kvaddi Hannibal Valdimarsson sér hljóðs utan dag- skrár og las upp hraðskeyti, sem honum hafði borizt frá bæjarfóget anum á Siglufirði, þar sem vottað var, að ekki hefði verið 'tilkynnt til embættisins, að Sverrir Her- mannsson hefði prókúruumboð fyrir söltunarstöðinni Ými. Eðvarð Sigurðsson hafði fram- sögu fyrir nefndanefnd. Hann gat þess, að tveir nefndarmanna, Jón Sigurðsson og Guðjón Sv. Sig urðsson, hefðu ekki tekið þátt í störfum nefndarinnar, en hún átti að stinga upp á kjörnefnd. Stakk Eðvarð f.h. meirihlutans upp á sex mönnum, þeim Snorra Jóns- syni, Jóni D. Guðmundssyni, Eð- varð Sigurðssyni, Jóni Sigurðssyni Eggert G. Þorsteinssyni, og Pétri Sigurðssyni. Jón Sigurðsson Íýsti því þá yfir, að þeir hann, Eggert, Guðjón og Pétur myndu ekki taka sæti í nefndinni. Breytti Eðvarð þá tillögunni og stakk einungis upp á þrem hinum fyrstu töldu, og lagði til, að nefndin yrði skip- úð' þrem mönnum. Þá stakk Guð- jón upp á Árna Ágústssyni og varð því að fara fram skrifleg kosn ing og tafði það störf þingsins, enda vart hægt að sjá annað, en til þess væri leikurinn gerður. Fór kosning svo, að þremenningarnir, sem nefndin stakk upp á, voru sam þykktir með yfirgnæfandi meiri- hluta atkvæða. Var fundi síðan slitið. Fundur hófst aftur í dag kl- 13,30. Snorri Þorsteinsson las upp fundargerð síðasta fundar og var hún samþykkt samhljóða. Var þá tekið fyrir álit Verkalýðs og atvinnumálanefndar. Framsögu SJÁ 15. SÍÐU Ein slík aðferð, sem nefnd hefur verið, er að sagt verði upp loft- ferðasamningum við ísland, en hvernig norrænni samvinnu reið- ir af, ef Noregur, Danmörk og Sviþjóð segja upp loftferðasamn- ingunum er ekki vitað enn þá. Sam kvæmt upp’.ýsingum sænsku frétta stofunnar TT hafa fulltrúar sam- göngumálaráðuneytisins og utan- ríkisráðuneytisins í Svíþjóð setið 3 fundum og rætt sambandið milli SAS og Loftleiða. Karl Nilsson, forstjóri SAS sagði í dag, að það væri hagsmunamál bæði Loftleiða og SAS, ef hægt yrði aö komast að einhverri nið- urstöðu milF félaganna varðandi flugumferðina yfir Norður-Ati- antshaf. Verði fargjöld gefin laus, þýðir það ekki aðeins, að SAS hefur rétt til þess að keppa við Loftleiðir með frjálsum aðferðum, þ. e. a. s. n.eg sams konar flugvélum. Slík .'ðstaða getur haft erfiðleika í för með sér jafnvel fyrir stærri flug- félög, sagði Nilsson í samtali við fréttamenn. Nilsson segir, ag hvorki fulltrú- ?r Loftleiða né SAS hafi lagt fram nokkurs konar tilboð á ráðstefn- unni, sem haldin var í Stokkhólmi 10. okt. s.l. En eins og sagt hefur verið oft áður er SAS fúst til að senda fulltrúa sína til Reykjavík- ur, til þess þar að ræða við full- trúa Loftleiða, og reyna að koma á samkomulagi. Forstjóri SAS-skrifstofunnar í Róm, Johannes Nielsen, hefur feng ið bog um ag hefja endurskipu- Framh. á 15. e**-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.