Tíminn - 29.11.1962, Blaðsíða 3
Á ANNAÐ HUNDRAÐ TRÓÐUST UND-
IR VID LÍKBÖRUR STALÍNS 1953
NTB—Moskva, 28. nóv,
Yfir eitt hundrað manns
krömdust til bana, þegar
þeir ætluðu að ganga fram
hjá kistu Stalíns árið 1953,
til þess að líta hann í hinzta
sinn. Frá þessu skýrði
Krústjoff í ræðu, sem enn
ekki hefur verið skýrt frá
opinberlega, en haldin var
á föstudaginn á fundi mið-
stjórnar sovézka kommún-
istaflokksins, að því er haft
er eftir áreiðanlegum
heimildum.
Krustjoff skýrSi frá þessu,
þegar hann 'var að tala um öll
þau þúsund, sem vildu fá að
líta Stalin augum í hinzta sinn.
á meðan hann lá á líkbörunum
árið 1953, fólkið, sem hafði virt
hann framar öllu öðru. Þá
hafði ekki verið rétti tíminn
til þess að leiða Sovétþjóðina
í allan sannleika um Stalin
og dýrkunina á honum. Fyrst
hafði orðið að undirbúa afhjúp
unina.
Fyrsta afhjúpun Krustjoffs
kom í ræðu, sem hann hélt á
flokksþinginu árið 1956. Krust-
joff sagði einnig frá því á föstu
daginn, að hann hafi persónu-
lega gefið ritstjórum Pravda
skipun um að prenta hið háðs-
lega og and-Staliniska ljóð
ungskáldsins Jevtusjenkos, 21.
október. í Ijóðinu biður Jevtu
sjenko Sovétstjórnina ag þre-
falda eftirlitið umhverfis gröf
Stalins, svö að sá dauði, og
með honum fortíðin, gangi ekki
aftur. Skáldið lætur einnig í
það skína, að til sé fólk, sem
með munninum hafi afneitað
Stalin, en haldi þó áfram að
vera Stalinistar í hjarta sínu.
Krustjoff kvað blöðin í Sovét
ríkjunum vera leiðinleg, og
þrátt fyrir það, að hann þekkti
marga ritstjóra, sem væru það
ekki, þá myndi hann ekki
breyta um skoðun í málinu.
Ræða Krustjoffs stóð í nær
því tvo klukkutima, og talaði
hann blaðalaust.
ÞAKKAÐi PÚLVERJUM
STUÐNING VD KÍNA
Næstkomandi mánudag, 3. des. hefst sjóvinnunámskeið pilta í félagsheimili Armanns við Sigtún (Höfða-
skóla). Kennd verða helztu undirstöðuatriði almennrar sjóvinnu, hjálp í viðlögum og fleira. Starfað verð-
ur f byrjenda- og framhaldsflokkur fyrir pilta 13 ára og eldri. Innritun verður í Ármannsheimilinu,
fimmtudag og föstudag kl. 5 til 9 s.d. og upplýsingar veittar í símum 23040 og 15937. — Myndin var tekin
á róðraræfingu s.I. vor. (Ljósmynd: H.S.)
Indland vill tvö-
falda herstyrkinn
NTB-Warsjá, 28. nóv. |
Fulltrúi Kínverja á þingi í
verkalýðssamtaka Póllands
réðst gegn stefnu Sovétríkj-
anna í ræðu í gær. Hann
nefndi þó ekki Sovétríkin á
nafn, en undirstrikaði, að ekki
væri hægt að vera svo léttúð-
ugur að trúa loforði Kennedys
forseta um að hann myndi
ekki láta gera innrás á Kúbu.
Ástandið i Karabíska hafinu get
ur ekki orðið friðsamlegt fyrr en
farifj hefur verið að hinutn fimm
kröfum Castrós forsætisráðherra,
bætti hann við.
Fulltrúinn þakkaði pólsku þjóð-
inni, þann stuðning, sem hún hef-
ur veitt Kínverska alþýðulýðveld-
inu í baráttu þess við bandaríska
heimsvaldasinna. — Vig erum þess
fullvissir, að vinátta þjóðanna og
verkamannanna i báðum löndun-
um mun haldast, þar sem hún er
byggð á kenningum Marxism-Len-
inismans og sameiningu öreiga
nllra landa.
Framh. á 15. síðu.
j Hvað verður
um Strauss?
NTB—Bonn, 28. nóv.
Sá orðrómur gengur í
Bonn, að Adenauer kanzlari
hafi boðið Franz Josef
Strauss að gerast foringi
Kristilegra demókrata á
þinginu, í staðjnn fyrir nú-
verandi embætti hans sem
varnarmálaráðherra.
Formælandi Paul Luecke
ráðherra, sem nefndur hef-
ur verið sem eftirmaður
Strauss í embætti varnar-
málaráðherra, lýsti því yfir
í dag, að hann hefði ekki
minnstu löngun til þess að
taka við þessu embætti.
Þá hefur Heinrich von
Brentano, leiðtogi Kristi-
legu demókratanna á þingi,
skýrt frá því, að hann hafi
Framh. á 15. síðu.
NTB—Nýju Dehlí, 28. nóv.
Indverska stjórnin vinnur
nú að áætlun um að tvöfalda
I Drottning látin |
NTB-Haag, 28. nóv.
Vilhelmina fyrrverandi drottn-
ing Hollands er látin. Drottningin
var 82 ára gömul, en hún lézt í
svefni aðfaranótt miðvikudagsins.
Drottningin fór frá árið 1948, eftir
að hafa verið við völd í 50 ár, en
þá tók dóttir hennar og núverandi
drottning Júlíana við völdum.
landsins, sem nú erUeggja sem mest fyrir óvinunum.
hálf millión! Nú hefur 5000 indverskum her-!
mönnum, sem urðu eftir að baki |
( víglínunnar, þegar bardagar hættu I
verði a. m. k. tvær milljónir, jfyrir nokkrum dögum, tekizt að náj
en auk þess verða þjóðflokk- til indverskra stöðva. Þó hefur|
ekki verið hægt að fá áreiðanlegar |
herstyrk
aðeins rúmlega hálf milljón!
manna. Er ætlunin, að herinn
arnir við landamærin þjálfað
ir í skæruhernaði, ef til frek
ari árása
koma.
tölur um fjölda þeirra, sem enn
eru að baki kínversku herjanna íj
Kínverja kynni að j nánd við Walong og Se La-skarðið.
; Kínverski aðstoðarforsætisráðherr
i ann, Chen-Yi, réðst í dag harka- j
’ lega á Bandaríkin, og sagði þau j
vera að reyna að koma Indlandi út j
í styrjöld, þar sem einn Asíubúi j
Framhald á 15. síðu.
Bæði bandarískir og brezkir
hernaðarsérfræðingar vinna með
Indverjum að undirbúningi þess-
ara framkvæmda, en í dag flugu
þeir Paul Adams, hershöfðingi,
einn úr sendinefnd Bandaríkj-
anna, sem nú er í Dehlí, og Ric-
hard Hull, lávarður, fulltrúi Breta,
yfir svæði þau, sem barizt hefur
verið á í Ladakh-héraði, til þess
að kynna sér landfræðilegar að-;
stæður herjanna.
Þá veltir indverska stjórnin"!
einnig fyrir sér möguleikum á að'
koma upp einnar milljón manna;
fastaher, sem sendur yrði fram!
gegn fyrstu árásum óvinahers, en,
berðist síðan með venjulega hern-
um, á meðan skæruliðasveitir ynnu
að baki víglínunnar til þess að eyði
Jouhaud í ævi-
langt fangelsi
i NTB—París, 28. nóv.
De Gaulle, Frakklandsforseti,
breytti í dag dauðadómi OAS-for-
ingjans Jouhouds fyrrum hei*s-
höfðingja, í ævilanga fangelsis-
vist. Jouhaud hafði verið dæmdur
til dauða fyrir afskipti sín af Al-
síruppreisninni í apríl 1961.
Forsetinn náðaði um leið Andre
Canal, sem einnig var einn af að-
alforingjum OAS og í Frakklandi
var þekktur undir viðurnefninu
Svarta einglyrnið, Canal mun einn
ig hljóta ltfstíðarfangelsi.
Jouhaud, sem dæmdur var til
| dauða í apríl s.l., er 57 ára gamall,
en Canal er 47 ára. Hann var
dæmdur í september.
KÍNVERJAR MÓÐCA
TITO1
NTB-Belgrad, 28. nóv.
Júgóslavía sakaði í dag
foringja Kínverska alþýSu-
lýðveldisins um að hafa
móðgað Títo forsefa á hinn
freklegasta hátt, og hélt því
fram, að Kína væri sekt um
að reyna að grafa undan
samvinnu landanna á Balk-
anskaganum.
Ásökun þessi var birt opinber
lega eftir að sendiráðsfulltrúa
Kína í Belgrad hafði verið ai
hent samhljóða orðsending.
í orðsendingunni mótmælt)
stjórn Júgóslavíu, því, sem kali
ag var and-júgóslavnesk her
ferð Peking, Voru kínverskir
leiðtogar sakaðir um illgjamar
og niðrandi árásir á stjórnmála
stefnu Júgóslavíu, og síðustu
mánuðina hafi þessi herferð
Peking-stjórnarinnar tekið á
sig alvariegan 'svip. Júgóslavía
segist oft hafa mótmælt árásum
Kína, en árangurinn hafi eng-
inn orðið fram til þessa.
T IM I N N , fimmtudaginn 29. nóvember 1962
/