Tíminn - 18.01.1963, Side 16
Föstudagur 18. janúar 1963
14. tbl. 47. árg.
Líkamsárás enn
§ Austurbænum
BÓ-Reykjavík, 17. janúar. á planinu neðan við Þrótt hjá
DÓLGURINN, sem ræðst á Rauðarárstíg. Þar réðist hann
konur í Austurbænum, hefur á 14 ára telpu, sem var á leið
enn einu sinni látið til sín til vinnu sinnar, þreif til henn-
taka, klukkan 8 í gærmorgun Framhald á 15. síðu
Úvenjulegar veðurstillur undir Eyjafjöllum
LOGADIA KERTUM ÚTÍ
I TVO SÚLARHRINGA
GB-Reykjavik, 16. janúar.
ÓLÍKU er saman aS jafna, tíðar-
farinu hér norSur á hjara veraldar
og sunnar í álfunni, og er engu lík-
ara en það sé yfirleitt að snúast við.
Einn ágætur Rangæingur sagði við
mig í símann í gær, að þótt liðið
væri nokkuð fram yfir jól, mætti
víst geta þess og til tíðinda teljast,
að á bæ einum undir Eyjafjöllum
hefði logað á kerfum bæði inni og
úti um jólin.
Mér þótti maðurinn segja frétt-
ir, því að ég hafði lengi verið
þeirrar skoðunar, að undir Eyja-
fjöllum gerðist tíðum veðrasam-
ara en á öðrum slóðum, hafði
raunar heyrt, að þar stæði oft
slíkur strengur meðfram fjöllun-
um, að ekki mætti stætt heita.
Eg hringdi á bæ þann, sem hér
um ræðif, Moldnúp undir Vestur-
Eyjafjöllum og talaði við bónd-
ann. Einar Jónsson. Ekki kvað
hann logn og fagurt veður óal-
gengt þar í sveit, en vissulega
hvessti þar oft svo um munaði. En
hann sagðist varla muna aðra eins
stillur og langvarandi og nú síð-
an á jólaföstu, á sama tíma og
þjóðir allt til suðurlanda hefðu átt
við veðurham og harðindi að
stríða. Einar kvað heimafólk sitt
hafa gert sér það til gaman og há-
tíðabrigða að kveikja á kertum
og stilla þeim út út á staur. Þetta
hafi blessast óslitið í tvær nætur,
ekki blakti hár á höfði og logaði
á kertunum.
Mér hafði verið sagt, að Einar
ætti einn hinna sárfáu báta þar
eystra og stundaði róðra, þegar
(Framhald á 15. síðu).
r r
Fluqvél með vara
hlut upp í öræfi
MB-Reykjavík, 17. janúar.
FLUGVÉL frá Birni Pálssyni var
flogið inn yfir öræfl síðasfliðinn
sunnudag með varahluti í bifreið,
sem var þar biluð. Voru tvær bif-
reiðar á leið upp í Jökulheima, þeg-
ar önnur þeirra bilaðl og voru ráö-
stafanir gerðar gegnum talstöð til
þess að fá varahluti austur á þenn-
an hátt.
Á laugardagsmorguninn lögðu
nokkrir menn upp héðan úr
Reykjavík á tveimur bifreiðum,
rússneskrj jappabifreið', sem
Andrés Haraldsson ók, og Dodge
Weapon bifreið, sem Hermann
Kjartansson ók. Var ferðinni heit
ið í Jökulheima, en þangað er ó-
venjulegt að fara á slíkum bílum
á þessum árstíma, ef ekki eins-
dæmi.
Gekk ferðin vel til að byrja með
og var færi gott, Tungná var á ísi
og snjór ekki mjög mikill, nema
í ‘ lautum. Er þeir félagar voru
komnir í nand við Karl og Kerl-
ingu um fimmleytið á laugardag-
inn biluðu „Head“ og „Headpakkn
ing“ jeppabifreiðarinnar. Kall-
aði Hermann í talstöð sína bað
um aðstoð.
Þeir félagar höfðust síðan við
í bifreið Hermanns um nóttina,
en um níuleytið á sunnudagsmorg
un kom flugvél frá Birni Pálssyni
austur með nýja hluti, sem mál-
hreinsunarmenn nefna strokklok
og strokkloksþétti. Var viðgerð
Framhald á 15. síðu.
NVARS-
LAMBIÐ
* NÝÁRSLAMBID fæddisf 3.
þessa mánaðar upr-. i Selást, og
er eign Björgvins ÁgúsfsSonar,
Skúlagötu 62. Þetta er óvenju-
legur tíml að koma í heimlnn,
að mlnnsta kosti af lambl að
vera, og vonandi að það verði
gæfugripur.
Þyrla
áöi á
BÓ-Reykjavík, 17. jan.
RAGNAR GUÐMUNDSSON, bóndi
á Hrafnabjörgum í Arnarfirði, var
sóttur þangað í þyrlu af Keflavík-
urflugvelli í dag og fluttur til Hell-
issands.
Þyrlan hafðj viðkomu á Reykja-
víicurflugvelli klukkan hálf tíu í
morgun og tók son Ragnars, sem
fór með henni vestur. Þyrlan lenti
að Hrafnabjörgum kl. 13,53 og
fór þaðan með Ragnar klukkan
rúmlega 2. Önnur vél fylgdi þyrl-
unni báðar leiðir. Þær fengu mót-
vind að vestan, mældir 30 hnútar
við Þingeyri, og komu til Hellis-
sands í ljósaskiptunum. Þar varð
þyrlan að setjast til að taka benzín
og verður þar til morguns, þar
sem ekki þótti gerlegt að fljúga
henni með Ragnar til Reykjavíkur
i kvöld. Hin vélin hélt áfram til
Reykjavíkur.
Ragnar er lamaður af blæðingu.
Hann var meðvitundarlaus þegar
hann var tekinn í þyrluna, en fékk
rænu á leiðinni. Herlæknir er
raeð í þessari för.
5 MANNA LEITAD A DRATTARVEL
MB-Reykjavík, 17. janúar.
FIMM UNGIR menn lögðu upp i
tveimur jeppum, frá Reykholti á
NÚ Á AÐ KUPPA TRÉN
BÓ-Reykjavík, 17. janúar.
— KLIPPING á trjám og runn.
um er heppilegust um dvalatím-
ann, frá og með desember fil
marzloka. Eftir það er of seint
að klippa marga runna og trjá-
tegundir.
Þetta' sögðu okkur garðyrkju
menn, þeir Finnur Árnason og
Björn Kristófersson, og báðu
því skilað til garðeigenda. -
Heppilegasti tíminn til klipp-
inga er einmitt nú, en fólk veit
það yfirleitt ekki og biður helzt
um klippingar á vorin, þegar
það er um seinan, sögðu þeir
Finnur og Björn.
- Nú er áburðartími garð-
anna; húsdýraáburð á að bera
á um þetta leyti, sögðu þeir
ennfremur. Við spurðum þá
um skarnann og þeir sögðu
hann væri viðbjóður. — 111
skárra að bera hann á um þetta
leyti, samt. Fýlan verður megn
ari þegar veður hlýnar.
Hvað við víkur klippingun
sögðu þeir líka, að garðprnii
þyrftu að *vera snjólitlir til ar
þeir gætu farið með klippurna.*
í botn á runnunum. Einnig
þess vegna er nú réttj tíminn
— Grisjun er mikilsverð, sögðu
þeir, að fjarlægja greinar, sem
nuddast saman og fjarlægja
allt dautt. Trén standa víða of
þét-t í görðunum og þar víða
meiri ástæða til að fjarlægja
annað hvort tré en klippa grein
ar af öllum. Sýkingarhætta af
sveppum er minni, ef trcn eru
vel grisjuð, því sveppir þrífast
•nest í skugga og raka.
Þeir Björn og Finnur vinna
aman að garðyrkju Björn er
ormaður Félags garðyrkju
-tianna, sem telur 26 fullgilda
rneðlimi. flesta hér i Reykja-
vík og á Suðvesturlandi og
nokkra á Akureyri.
sunnudagsmorguninn og ætluðu að
Hagavatni. Gerðu þeir ráð fyrir að
koma aftur til byggða á mánudags-
kvöld. Það kvöld leið og allur þriðju
dagurinn, án þess að til þeirra
spyrðist og var þá lagf upp á belt.
isdráttarvél frá Reykholti til þess
sð svipast um eftir þeim
Þeir félagar hrepptu þunga færð
og komust stutt fyrsta daginn Á
mánudaginn komust þeir í Þór
ólfsfell, en ei þangað var komið,
skall á blindbylur og létu þeir fé-
lagar fyrirberast þar um nóttina.
Morguninn eftir var bylnum slot-
að og þótt stutt væri eftir til Haga-
»atns. lögðu þeir ekki í að halda
iengra, en sneru við til byggða,
enda var tærð orðin hálfu verri
eftir bylinn. Voru þeir nú tvo daga
að ferðast þann kafla, sem þeir
höfðu farið á mánudaginn.
Er þeir voru að búa um sig til
næturdvalar i gærkvöldi, bar að
menn á beltisdráttavél. sem sendir
höfðu verið frá byggð, til að svip-
ast um eftir þeim. Héldu þeir þá
ferð sinni áfram og komu til
hyggða í nótt.
Ekki væsli um þá félaga í ferð
inni, þeir höfðu nægar vistir með
ferðis, og á kvöldin bjuggu þeir
um sig í snjóhúsum og var hlýtt og
notalegt í þeim.
FRAMSÓKNARFÉLÖGIN í
Gullbringu- og Kjósasýslu
efna til þorrablófs I Glað-
heimum, Vogum, laugardag
inn 26. janúar 1963. Hefst kl
20. Úrvals þorramatur á bor8
um. — Ómar Ragnarssort
skemmtir. — Aðgöngumiðai
seldir á eftirtöldum stöðunr
Sigfús Kristjánsson, Kefla
vík, sími 1869. Guðmundur
Þorláksson, Hafnarfirði,
síml 50356. Grímur Runólfs
son, Kópavogi, síml 23576 og
Guðlaugur Aðalsteinsson, Vog
um, síml 10B.