Tíminn - 03.02.1963, Blaðsíða 1

Tíminn - 03.02.1963, Blaðsíða 1
29. tbl. —Sunnudagur 3. febrúar 1963 — 47. ár. LUMA ER LJÓSGJáFI t Nú er verið aS ganga frá um- ferSarljósum á þeim gatnamót- um, þar sem slysahætta hefur veriS talin hvaS mest í Reykja- vík, LangahlíS-Miklabraut — Ljósastaurarnir eru komnir upp og veriS er aS ganga frá unum. Má búast viS aS Ijósin fari aS stjórna þar umferSinni innan skamms og leysi þá um- ferSarstjórn lögregiunnar af hólmi, aS talsverSu leyti — Myndin sýnir leiösluendana, sem standa upp úr einum staurnum og lögregluþjón viS umferSar- stjórn i baksýn. — (Ljósmynd: TÍMINN). mr upp á leiðsl- ■’ 5 liósin Fékk hlera sekt SK—Vestmannaeyjum, 2. febr. Dómur var kveðin upp hér í dag í máli skipstjórans á véllbátn um Unni frá Eyrarbakka, en eins og sagt er frá' í Tímanum í dag, neitaði hann einn skipstjóranna á bátunum fimm, er Óðinn tók í landhelgi við Ingólfshöfða, að hafa verið að veiðum í landlhelgi. Dómur féll þannig, að skipstjór inn var dæmdur í 4000 króna sekt Framhald á 15. síðu. DÁGÓÐ VEIÐI KB-Reykjavík, 2. febrúar Sildveiði var enn dágóð í nótt austur á Skeiðarárdjúpi og veiði- veður ágætt. Samtals fengu 26 skip 18.250 tunnur. Eftirtalin skip fengu þúsund tunnur og þar yfir: Víðir II. 1000, Kristbjörg 1100, Höfrungur II. 1100, Kópur 1100, Gunnólfur 1200, Sigurkarfi 1400 og Haraldur 1100 tunnur. Skipin landa öll í Vest- Framhald á 15. síðu. Lungnapest í fé á 2 bæj- um í HoEtum PE—Hvolsvelli, 2. febr. Bráðdrepandi lungnapest hefur stungið sér niður í sauð- fé í grenndinni og hafa níu kindur drepizt á Efri-Hömr- um í Ásahreppi og einnig hafa nokkrar kindur drepizt í Sum- arliðabæ. Samkvæmt uplýsingum Karls Kortssonar, héraðsdýralæknis á Hellu er hér um að ræða bráð- drepandi og smitandi lungnapest. Getur smit bæði borizt í lofti með öndun og svo með fóðri, þar með talinni beit. Kvaðst læknirinn hafa beðið um, að skrokkar kindanna yrðu grafnir djúpt niður og kind ur á næstu bæjum yrðu bólusett- ar gegn veikinni. Bóluefni gegn veikinni er fáanlegt hér og er þag framleitt á Keldum. Eins og fyrr segir, hefur veik- innar orðið vart á tveimur bæjum í Ásahreppi, Efri-Hömrum og Sumarliðabæ. Hafa þegar drepizt 9 kindur á Efri-Hömrum og nokkr ar kindur munu einnig hafa drep- izt á Sumarliðabæ. Veiki þessi er þekkt bæði hér og erlendis, en það mun vera próf essor Dungal, sem fyrstur manna gerði tilraimir með smit vegn veikinnar og var þag* árið 1931 HEFUR HÆGT UM SIG BÓ-Reybjavík, 2. febr. Enn hefur ekki tekizt að finna þann dólg, sem réðist á konur í austur- bænum og sýndi sig í leiðu hátterni hvað eftir annað frá því í haust og fram yfir áramót. Raunar hefur ekki spurzt, að miaðurinn hafi haft sig í frammi síðustu vikurnar, og getur hugsazt, að blaða- skrif og eftirgrennslan lög- Framhald á 15. síðu. Slapp naumlega mel barn sitt úr brennandi húsi PE-Hvolsvelli, 2. febrúar. I naumlega út úr eldinum. — T morgun kom upp eldur í Slökkvistarfi var lokið rétt fyr- íbúðarhúsinu í Gunnarsholti | ir hádegið og tókst að verja og slapp kona með ungbarn! önnur hús á staðnum. Vestfjarðabátarnir snéru við vegna íss GS-ísafirði Allmigið ísrek er nú liér út af Kvað svo rammt að því í gærkvöldi að bátarnir héðan sneru við, að- eins 15 mOur út af Deild og lögðu innar. ísspangir þokast nær landi og í dag tilkynnti einn bátanna, að ísspöng væri að reka inn í Djúp-kjaftinn. Allmiki® ísrek hefur undanfarið | verið á miðum bátanna héðan og ! síðast í fyrradag lentu 25 bjóð frá Gunnvöru undir ísspöng. Bátsverj ar náðu samt megninu af línunni aftur, þar eð hinir nýju plastbeig- ir þola mjög vel ís. í gær, þegar bátarir fóru í róður sneru þeir svo við vegna ísreks, er þeir voru aðeins komnir 15 míl ur út af Deild, og lögðu innar. í dag tilkynnti skipstjórinn á Guð- nýju svo, að ísspöng væri að reka inn í Djúpið. Is sá, er hér um ræðir, er ein- göngu rekís, ísspangir og jakar. í íbúðarhúsinu í Gunnarsholti búa Páll sandgræffslustjóri Sveins son, ráðsmaður staðarins með eig- inkonu og Darn, og svo vinnumað- ur. Húsið í Gunnarsholti er byggt í burstastíl, kjallari, hæð og bursta ris. Eldsins varð vart klukkan hálf niu í morgun. Ráðsmaffurinn var þá kominn í vistheimilið á Ak- urhóli til að sækja menn í vinnu. Er hann var staddur þar, hringdi kona hans í hann og sagði hon- um, að eldur værj kominn upp í risinu. Konan var sofandi, er eldurinn kom upp. Er hún vaknaði var svefnherbergið alelda. Félltist hún skelfingu, sem eðlilegt er, og í fátinu hljóp hún út úr herberginu, tn sneri svo strax við til að bjarga barni sínu. Vig það brenndist hún eitthvaff og fékk taugaáfall og ligg- ur nú undir læknishendi. Menn brugðu skjótt viff og reyndu að slökkva eldinn og bjarga innanstokksmunum. Einnig var kallað á slökkviliðin á Hvolsvelli og Selfossi. Slökkviliðið á Hvols- velli var komið á staðinn eftir ólrúlega skamman tíma, mun hafa liðiff innan við tuttugu mín. frá því að hringt var frá Gunnarsholti og þar til slökkviliðið var komið á staðinn, þótt um 20 km. sbilji á millí. Slökkviliðig hér á Hvolsvelli Framhald á 15. síðu. SJA BLS. B

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.