Tíminn - 03.02.1963, Síða 14

Tíminn - 03.02.1963, Síða 14
I V. I ÞRIDJA RIKID WILLIAM L. SHIRER þettá ekki rétt. „Þegar ég fyrst áitti Öitler," segir August Kubi- zek, í minningum sínum um æsku daga þeirra í Linz, „var and-sem- itistni hans þegar orðinn áberandi . . . Hitler var fastmótaður and- semitisti, þegar hann fór til Vín ar, og enda þótt reynsla hans í Vín hafi getað styrkt þessa tilfimA in.gu, þá varð hún sannarlega ekki orsökin til hennar." „Svo", segir Hitler, „kom óg til Vínar". — Uppfullur af öllum þeim áhrifum, sem ég varð fyrir . . . niðurbeygður af þjáningum mín- um og minna líka, veittist mér engin innsýn í innra líf fólksins í þessari risastóru borg. Enda þótt á þessum tíma væru nær því 200 þúsund Gyðingar [ Vín af þeim tveimur milljónum manna, sem þar bjuggu, sá ég þá ekki . . . Enn þá auðkenndi ekkert Gyðinginn í mínum augum nema trú hans, og þar af leiðandi, vegna mannlegs' umburðarlyndis, hélt ég fast við skoðanir mínar um að ráðast ekki á trúarbrögð, hvorki í þessu til- felli né öðrum. Mér virlist því það, sem blöð and-semitsita í Vín skrif- uðu í þessu sambandi, ósamboðið menningarerfðum þeSsarar miklu þjóðar. Dag nokkurn, skrifar Hitler, var hann á reiki í miðbænum. „Skyndi lega sá ég fyrir framan mig draugs lega veru, í svörtum KAFTAN og með svarta barta. Er þetta Gyðing ur? var það fyrsta, sem mér kom í hug. Því vissulega höfðu þeir ekki litið svona út [ Linz. Ég athugaði manninn laumulega og með var- kárni, en því lengur sem ég starði á þetta útlendingslega andlit og rannsakaði nákvæmlega hvern dráttinn eftir annan í andlitinu þeim mun meir tók hin uppruna- lega 'Spurning mín á sig annað og nýtt form: Er þetta Þjóðverji?" Auðvelt er að geta sér til um svar Hitlers. Hann staðhæfir þó, að áður en hann hafi svarað þess- ari spurningu, hafi hann ákveðið „að reyna að draga úr efasemd- unum með því að hverfa til bók- anna“. Hann sökkti sér niður í and-semitískar bókmenntir, en af þeim var nóg [ Vín um þessar mundir. Síðan sneri hann aftur út á strætin til þess að fylgjast nán- ar með þessu „fyrirbrigði1-. „Hvert sem ég fór“, segir hann, „og hvar sem ég var, byrjaði ég nú að sjá Gyðinga, og því fleiri sem ég sá, þeim mun greinilegar urðu þeir auðkenndir í augum mínum frá öðrum mönnum . .-. Síðar átti mér oft eftir að verða illt af að finna lyktina af þessum KAFTAN- klæddu mönnum". Næst segist hann hafa tekið eft ir hinum „siðferðilega bletd, sem var á þessu útvalda fólki . . . Átti sér nokkurs staðar stað lastafullt líferni eða óþrifnaður [ nokkurri mynd, svo ekki væri þar að finna a. m. k. einn Gyðing? Þótt þú skærir með varfærni á slíka mein- semd, þá fannstu eins og víur í rotnandi líkama, oft blindaðan af hinu skyndilega dagsljósi — Júða!“ Hann segist hafa komizt að raun um, að Gyðingarnir báru að mestu leyti ábyrgðina á vændi og hvítri þrælasölu. „Þegar ég í fyrsta sinn", heldur hann áfram, „komst að raun um. að Gyðingur var hinn kaldrifjaði, blygðunar- lausi og útspekúleraði stjórnandi þessarar viðbjóðslegu lastasölu meðal úrhraks stórborgarinnar, rann mér kalt vatn milli skinns cg hörunds". „Smátt og smátt", segir Hitler, „byrjaði ég að hata þá . . . Mér var þetta tími stærstu andlegra breytinga, sem ég hef nokkru smni orðið a-ð ganga í gegnum. Ég hafði hætt að vera óákveðinn heimsborgari, og var orðinn að and-semetis(a“. Til síðasta dags átti hann eftir að verða blindur og ofstækisfull- ur í þessu sambandi. Síðasta yfir- lýsing hans, skrifuð aðeins fáum klukkustundum áður en hann l.ézt, hljóðaði upp á lokaaðgerðir gegn Gyðingum, sem bæru ábyrgð á stríðinu, sem hann sjálfur hafði hafið, og sem nú var að gera út af við hann og Þriðja rikið. Þetta brennandi hatur, sem átti eftir að smita svo marga Þjóðverja í ríkinu, leiddi að lokum til fjölda- morðs svo ægilegs og svo víðtæks, að það skildi eftir ljót ör á heims- menningunni, sem vissulega á eft- ir að sjást, svo lengi sem nokkur maður lifir. Vorið 1913 hvarf Hitler fyrir fullt og allt á brott frá Vín, til þess að búa í Þýzkalandi, þar sem hjarta hans hafði ætið verið, að hans eigin sögn. Hann var 24 ára, þegar þetta var, og öllum nema sjálfum honum hlýtur að hafa fundizt hann algerlega mis- heppnaður. Hann hafði ekki orð- ið málari né arkitekt. I-Iann hafði ekki orðið neitt, að því er öllum virtist, nema flækingur — sérvitr- ingur, bókhneigður, það var þó rétt. Ilann átti enga vini, enga fjölskyldu, hafði enga vinnu, og átti hvergi höfði sinu að að halla. Samt sem áður bar hann í brjósti óslökkvandi sjálfstraust og djúpa, brennandi köllun. Ef til vill fór hann frá Austur- ríki til þess að komast unda-n her- þjónustu. Ekki var þetta vegna þess að hann væri raggeit, heldur vegna þess að hann hafði viðbjóð á því að þurfa að gegna herþjón- ustu með Gyðingum, Slövum og öðrum minnihlutaflokkum í rík- inu. í Mein Kampf segist hann hafa farið til Miinchen að vori 1912, en þetta er rangt. í lögreglu skrám er hann skráður sem bú- settur í Vín þar til í maí 1913. Ástæðurnar, sem hann sjálfur færir fyrir brottför sinni, eru nokkuð stórorðar: Innri afstaða mín til Hapsborg- aranna breyttist stöðugt . . . ég hrökk undan sambræðslu þjóð- flokkanna, sem átti sér stað [ höf- uðborginni, þessari blöndu Tékka, Pólverja, Ungverja, Berba og Kró- ata, og alls staðar voru Gyðingar og meiri Gyðingar. Mér virtist borgin vera holdi klætt dæmi um vanhelgun kynþáttanna . . . Því lengur sem ég bjó í þessari borg, þeim mun meira jókst hatur mitt á þessari útlendingablöndu, sem byrjuð var að éta sundur undir- ■stöður germanskrar menningar . . Af þessum ástæðum kviknaði sterkari og sterkari löngun í brjósti mínu til þess að fara til þess staðar, sem leyndustu þrár æsku minnar höfðu beinzt að og duiin ást hafði dregið mig til. Örlög hans í landinu, sem hann elskaði svo heitt, áttu eftir að verða slík, að jafnvel hann sjálf- an hefði aldrei getað dreymt um það í hans stærstu draumum. Hann var, og átti eftir að verða, þangað til stuttu áður en hann varð kanslari, útlendingur form- lega séð, Austurríkismaður í þýzka ríkinu. Það er aðeins hægt að skilja Hitler, sé litið á hann 'sem Austurríkismann, sem náði lögaldri á síðasta áratugnum, áður en veldi Hapsborgaranna leið und- ir lok, sem ekki tókst að festa ræt ur í hinni menntuðu höfuðborg þess, sem tileinkaði sér alla hina fráleitu hleypidóma og hatur, sem þá ríkti meðal þýzkumælandi öfga manna og mistókst að gera sér grein fyrir, hvað var sæmandi, heiðarlegt og virðingarvert meðal mikils meirihluta samborgara sinna, hvort.sem þeir voru Tékk- ar, Gyðingar eða Þjóðverjar, fá- tækir eða ríkir, listamenn eða handverksmenn. Vafasamt er, hvort nokkur Þjóð verji frá norðanverðu landinu, frá Hínarlöndum í vestri, frá Aust ur-Prússlandi eða jafnvel frá Bay- ern í suðri, hefði getað haft í blóði sínu og huga nákvæmlega sams konar blöndu og þá, sem rak Adolf Hitler áfram til þess frama, lega bættist við allt þetta ríku- sem hann að lokum náði. En vissu legur skerfur af óumdeilanlegu hugviti. En vorið 1913 höfðu gáfur hans ekki tnn látið á sér kræla. Hann 22 aftur, sagði ég afsakandi: — Það var kjánalegt af mer að segja þetta, sagði ég. — Ég vissi, hvemig Eli'siabeth verður við, þegar minnzt er á dauðann. Ungfrú Abby leit alvörugefin á mig. — Það er Elisabeth, sem er óeðlileg að þessu leyti, ég er sahn færð um, að hún veit eitthvað ... — Hvað er að? spurði Ger- trude. Eg leit furðulostin upp. Eg hafði ekki heyrt hana koma. — Það leið yfir Elisabethu, sagði ég stuttaralega. Elisabeth opnaði augun. — Hvers vegna í ósköpunum leið yf- ir mig? Spurði hún rugluð. — Ég veit það ekki, þér hefur brugðið að sjá slönguna, hugsa ég, svaraði ég og sá viðurkennandi blik [ augnaráði ungfrú Abbyar. — En þú ert búin að ná þér núna. Hvar er slangan? spurði Gertrude, gekk að slöngunni og sparkaði í hana. Svo bað hún pilt- inn að fjarlægja hana. Elisabeth sat á veröndinni með okkur, en hún var enn ákaflega föl. Þetta var síðasti sólardagurinn. Morguninn eftir urðum við að hlaupa heim að húsinu, rigningin var svo mikil. Og síðan sátum við í dagstofunni og fórum meira og meira í taugarnar hvert á öðru. Sjounda daginn skein sólin aft- ur, og Gertrude sagði, að hún og Sylvester yrðu að skreppa snögga ferð til Mbabanes. — Viltu lána mér bílinn þinn., Elisabeth? spurði hún. — Auðvitað, þú veizt, að þú þarft ekki að 'Spyrja, sagði Elisa- beth hraðmælt. — 0, ég veit ekki — hann er nú keyptur fyrir þína peninga, sagði Gertrude þurrlega. Ég leit ósjálfrátt á ungfrú Abby og ég sá hatur í augum hennar. Ég skalf. Eg hafði samúð cneð Clare Breton Smith ungfrú Abby. Hún átti svo lítið og svo virtist sem Gertrude ætti svo mikið. Við horfðum á eftir bílnum, síðan afsakaði ég mig og gekk út [ kofann minn til að hvíl- ast um stund. Ég vissi, að ungfrú Abby þætti vænt um að geta ver- ið ein með Elisabethu stundarkorn án þess að eiga á hættu. að ein- hver truflaði þær. 13. KAFLI. Mér alveg að óvörum kom Guy að sækja mig daginn eftir. Klukk an var að verða fimm, þegar hann ók upp að húsinu. Elisabeth hrað,- aði sér út að glugganum og ég heyrði gleðina í rödd hennar, þeg- ar hún kallaði upp: — Það er Guy. Ég fór með henni út á vcrönd- ina. Guy steig út úr rykugum bíln- um og mér fannst hann líta hálf kvíðandi á mig. — Fyrirgefið, hvað ég kem seint. Ég festi bílinn á nokkrum 'Stöðum og til að kóróna allt sprakk hjá mér. — Ertu kominn að sækja Frances? spurði Elisabeth mæðu- lega. Hann brosti. — Nú hafið þið haft hana svo lengi, að mér finnst röðin vera komin að mér. Ég sneri frá og gekk inn í hús ið. Af hverju þurfti hann að segja annan eins lygaþvætting á svona töfrandi hált. Gertrude gekk fram hjá mér, þegar ég reikaði sem í blindni inn um dyrnar. Hún snart létt hönd mína. — Svona, 'svona, barn, sagði hún undurlágt. — Þú mátt ekki áfell- ast þau fyrir neitt. Guy er bara karlmaður og Elisabeth er mjög ung. Þú kemst áreiðanlega yfir það — þau líka. Ég stóð grafkyrr, sem stirðnuð væri, gat ekki trúað mínum eig- in eyrum. Loks leit ég við, en Ger- trude var þá komin út og stóð á tali við Guy. Ég gekk inn í dagstofuna og settist. Hafði Gertrude raunveru- lega sagt þessi orð? Og hafði ég kannski ímyndað mér, að svo virt- ist sem hún nyti þess . . . að það gleddi hana? Allir voru á einu máli um, að það væri of framorðið til að leggja af stað heimleiðis um kvöidið. Og þetta reyndist verða skemmtileg- asta kvöld mitt á Amanzimaningi. Það var orðið áliðið, þegar við gengum til náða. Þjónn hafði bætt rúmi inn í kofann minn. Við vor- urn þögul, meðan við afklæddum o^kur. Áður en hann slökkti á lampanum, sagði hann: — Líður þér betur núna? — Miklu betur, þakka þér fyrir, sagði ég kuldalega, — Þú trúir mér núna? En hvað mér fannst hann tala hátt. — Guy, gerðu fyrir mig . . — Þú verður að trúa mér. Guy hækkaði enn röddina. — Gott og vel, fyrst þú segir það, flýtti ég mér að segja — Ég er þreytt, góða nótt. Ég lá grafkyrr og reyndi að líkja eftir djúpum rólegum andar- tökum þess, sem sefur. Kannski var Guy jafn hræddur við mig og ég við hann? Við urðum að horf- ast í augu við, að hann var hrif- inn af Elisabethu, ef samlíf milli okkar ætti að halda áfram. En það var viðbjóðslegt. Það eina, sem ég vissi fyrir víst, að ég gat ekki talað um það. Ég hrökk upp. Mér fannst hit- inn inni óþolandi. Ósjálfrátt gekk ég út að hálfopnum glugganum. Þar stóð ég sem niðurnegld. Það var einhver á ferli fyrir ut- an. Einhver iæddist fram hjá kof- anum. Það var aldimmt. Tungl var ekki á lofti. En ég sá skuggamynd mannveru . . sveipaða ullarteppi. ,Ég stóð kyrr andartak og starði út. Mér fannst sem fossniðurinn gáraði himininn. Kofarnir okkar voru í röð. Fyrst ur var okkar, síðan Elisabethar, þá ungfrú Abbyar og loks kofi Gertrudes Veran hafði komið út úr húsinu og gekk nú fram með hinum. Svo kom mér í hug það, sem Gertrude hafði sagt, að inn-; fæddir verðir væru oft á ferli á nóttunni. Ég hefði_ getað skellihlegið af| feginleik. Ég lagði mig aftur og hlýt að hafa sofnað strax Nokkru síðar vaknaði ég aftur. Einhver j var að kveikja á eldspýtu. Og svo heyrði ég angistarvein. — Þetta er annað hrópið, sagði t Guy rólega. — Þessar bölvaðar eldspýtur. Svo tókst honum að kveikja á lampanum. — Hvað gerði ég af vasaljósinu mínu? Hann fann það og klæddi sig í flýti [ slopp. — Vertu kyrr hér, skipaði hann. Eins og honum dytti það í hug! Ég smeygði mér í inniskó og slopp og hljóp út á eftir honum. Ljósið frá kofanum okkar visaði okkur leiðina. Dyrnar á kofa Elisa bethar stóðu einnig opnar. Og ég heyrði rödd Sylvester rétt fyrir framan mig. — Ungfrú Abby, ungfrú Abby, kallaði hann og barði harkalega að dyrum. En hann fékk ekkert svar. — Hvað hefur komið fyrir! hrópaði ég. Elisabeth tók utan um mig. — Ég veit það ekki. Við heyrðum tvö voðaleg skelfingaróp, sérstak- lega var það fyrra óttalegt. Elisabeth virtist ekki síður hrædd en ég. Nóttin var niðdimm umhverfis okkur. Svo heyrði ég, að Guy og Sylvester brutu upp dyrnar og Guy hrópaði; — Guð minn góður! Við hlupum að kofanum. — Xomið ekki hérna, kallaði Sylvester. — svo heyrðum við högg, Guy sótbölvaði . . svo var eintóm ringulreið þar inni. — Ungfrú Abby ungfrú Abby, kveinaði Elisabeth. — Já, ekki koma hérna nálægt, Elisabeth. hrópaði Sylvester, — það er slanga hérna inni. Við fórum frá dyrunum og um 14 l T í M I N N, sunnudagur 3. febrúar 1963.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.