Tíminn - 03.02.1963, Qupperneq 15
VILJA, AÐ EKKISÉ 6ENGIÐ
FRAM HJÁ BANKAMÖNNUM
Eftirfarandi var samþykkt
á fundi stjórnarsambands ísl.
bankamanna 16. janúar s.I.:
Að gefnu tilefni vill stjórn Sam-
bands ísl. bankamanna mótmæla
harðlega þeirri þróun mála í bönk
unum, að margar betri stöður eru
veittar án þess að starfandi banka
mönnum só gefinn kostur á að
sækja um þær. Nærtæk dæmi eru
stöður aðstoðarbankastjóra, sem
veittar hafa verið síðustu daga.
Bankamenn leggja áherzlu á,
að nýir hættir verði uppteknir í
sambandi við nýjar stöðuveitingar
i bönkunum og í samræm; við
fyrri loforð bankaráðanna, að allar
slíkar stöður verði auglýstar og
bankamönnum gefinn kostur á að
sækja um þær. Förum vér því hér
með fram á, að framvegis verði
bankamönnum gefinn kostur á að
sækja um eftirtalin störf, auk
þeirra sem bankaráðin hafa áður
samþykkt að auglýsa í bönkunum:
1. Bankastjórastöður
2. Aðstoðarbankastjórastöður
3. Útibússtjórastöður væntan.
legra bankaútibúa.
Það er að vorum dómi með öllu
ástæðulaust að sækja menn í áð-
urnefnd störf út fyrir bankana,
þar eð nú eru starfandi í bönkum
hátt á sjöunda hundrað starfs-
menn og í þeim hópi fjöldi hæfra
manna, sem gert hafa bankastöif
að ævistarfi. Reynslan hefir og
sannað hæfni þeirra fáu starfs-
manna, sem valdir hafa verið í
æðstu embætti í bönkunum.
Það er hrein móðgun við banka-
menn og vítavert, ef áfram verður
haldið á sömu braut og valdir í
þessar stöður menn úr öðrum
starfsgreinum og mun áður en
varir verða til þess, að ekki verður
talið eftirsóknarvert að gera banka
störf að ævistarfi.
Bankamenn vara álvarlega við
því, að í allar betri stöður, og þá
fyrst og fremst þær er að framan
greinir, séu eingöngu ráðnir ut-
anbankamenn, án tillits til hæfni
eða starfsreynslu, aðeins ef ákveðn
um pólitískum sjónarmiðum er
fullnægt.
Hin óheillavænlega þróun og
vaxandi afskipti stjórnmálaflokk-
aiina af bönkunum síðari árin, eru
að dómi bankamannanna til vanza
og stórvítaverð. Vér vdjum leggja
áherzlu á, að bankarnir verði,
eins og frekast er unnt, reknir
sem sjálfstæðar stofnanir. Að þeir
verði ekki gerðir að bitbeini
stjórnmálaflokikanna og að í trún
aðarstöður verði valið eftir hæfni
og starfsreynslu og að jafnaði úr
röðum bankamannanna.
HEFUR HÆGT UM SIG
Framhald aí 1 síðu
reglunnar hafii skotið hon-
um þeim skclk í bringu, að
hann siitji á sér um sinn. Þá
má gera ráð fyrir, að mað-
urinn geti læknazt af áráttu
sinrii, en þetta hlé getur
líka verið undianfari nýrra
árása, hættulegri eða svip-
a'ðra, eftir því sem til tekst.
Lcgrejglan hefur lagt kapp
á að finna þennan niiann. Sú
viðleitnl hefur ekki borið til
ætlaðan áraingur, þót marg
ur eiigi erfitt með að sætta
sig við það. Það er vissulega
hvimleitt iað slíkur mað-
ur gangi laus og haldi upp-
teknum hætti, en þess cru
inörg dæmi, að sllíkir ná-
unigar Ieiki lausum hala í
boug mjög lengi áður en
tekst að f’inrua þá.
Lögreglan hefur fengið
bendingar um ákve&na
menn, frá fólki, sem hefur
talið sig fara nærri um,
hver maðuninn er. Þessar
bendingar hafa jafnan ver-
ið út í hött. Lýsingum
þeirra, sem hafa orðið fyrir
harðinu á dóliginum, ber
saman. Þó hefur engri
þeirra tekizt að þekkja
hann aftur á götunni. Þeir
grrmuðu hafa annaðhvort
verið svo ólíkir slíkum
rnanni, að sök þeirra kemur
ekki til greina, eða viðkom-
andi kvenfólk hefur forlek-
í'ð, að þeim vceri til að
dreifa. Sumunr hefur flogið
í hug, að maðurinn gerði
eitthvað til að breyta útliti
sínu, þegar hann fer á stúf-
ana. Sá möguleiki getur ver-
ið fyrir hendi.
Árásiir mannsins liafa
ekki reynzt hættulegar til
þessa, en auðvitað hefur
hiann skotið kvenfólkinu
skelk í bringu. Hann hefur
jaCnan lagt á flótta eftir
nokkur lausatök, en enginn
veit, hvað slíkur maður ber
á sér.
Hlerasekt
Framhald af 1. síðu.
fyrir ólöglegan umbúnað veiðar-
færa, svokallaða hlerasekt.
Hér er mikið um að vera í höfn
inni, enn er verið að' lesta síld
í togarana, nú er verig að lesta
Skúla,.— Magnússon, Röðul- og
Úranus. *
Veiðin
Framhald af 1. síðu.
mannaeyjum, sum í togara, en þar
eð síldin er ærið misjöfn, fer
nokkuð mikið í bræðslu. Veður
var enn gott eystra síðdegis í dag
og ekki horfur á neinum breyting-
um á því næstu klukkutímana.
SLAPP NAUMLEGA
Framhald ai t. síðu
er þekkt að því að vera fljótt að
koma sér af stað, enda er þess
gætt, að hafa ávallt bifreið og
áhöld í góðu lagi. Selfoss-slökkvi-
liðið var einnig fljótt í förum, og
var komið á staðinn eftir stutta
stund.
Loftið milli hæðar og riss er
steinsteypt, og komst eldurinn
ekki niður á neðri hæðina, en
hún skemmdist þó mikið, bæði af
vatni og reyk. Risið hangir uppi,
en er ónýtt með öllu. Eldsupptök
munu vera út frá rafmagni.
Tjón af völdum brunans hefur
orðið mikið, m.a. brann skrifstofa
Páls sandgræðslustjðra Sveinsson-
ar, sem var í risinu, og er ekki
unnt að segja um, hversu mikil
verðmæti hafa þar farið forgörð-
um.
Verkfærageymsla og stór gripa
hús eru áföst við íbúðarhúsið, og
tókst að verja hvort tveggja.
SlökkvistarÍ! var lokið rétt fyrir
hádegið í dag.
16 mm filmuleiga
ICvikmyndavélaviðgerði.
Skuggamyndavélar
Flestar gerðir sýningarlampa
Ódýr sýningartjöld
Filmulím og fl.
L j ósmyndavörur
Filmur
Framköllun og kópenng
Ferðatæki (Transi'stor)
FILMUR OG VÉLAR
Freyjugötu 15
Sími 20235
v uRUGÆÐUNUM MÁ ÆTÍÐ TREYSTa
Elginkona mín,
Kristín Guðmundsdóttir,
Vatnsenda, Villingaholtshreppi,
lézt á sjúkrahúsinu, Selfossl, 2. þ.m.
Árni Magnússon
og börn hlnnar látnu.
Eiginkona míll, móSlr okkar og tengdamóSir,
ELÍSABET JÓNSDÓTTIR
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 5. þ.m. kl. 10,30.
— Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Hákon Krlstjánsson,
börn og tengdabörn.
Innilegt hjartans þakklæti viljum við flytja ykkur öllum, sem
sýndu okkur samúð í orði og verki við hið sviplega fráfall
Kristjáns Eyfjörðs Valdemarssonar
Þökkum fyrir allar minningargjafirnar, blómin, skeytin, handtök
og hlýjan hug. Sérstaklega óskum við að mega færa söngfólki
K.F.U.M. og K beztu þakkir fyrir fagran söng vlð útför hans. —
Guð blessi ykkur öil.
Bryndís Helgadóttir
Filippia Kristjánsdóttir
Ingveldur Valdemarsdóttir
Helgi Valdemarsson
og aðrir vandamenn.
Söluumboð á Akureyri:
Lúðvík Jónsson & Co„ Strandgötu 55.
NSU-PRINZ 4
5 manna fjölskyldubíll,
sem hentar jafnt I bæ og sveit.
Sparneytinn — Vandaður — Ódýr
Verð kr. 119,700,—
Pantið í tíma, svo að þér fáið bílinn
afhentan fyrir sumarir
FALKINN H.F. lvg. 24 reykjavík
i
T f M I N N, sunnudagur 3. febrúar 1963. —
15