Tíminn - 21.02.1963, Síða 9
Yfirlitsmynd frá Álafossi
Nú eru Alafoss-teppin límd
saman í gömlu sundlauginni
Frá þjóðveginum láta
verksmiðju- og íbúðarhús
á Álafossi ekki mikið yfir
sér, því aðalbyggingarnar
eru í lægð upp undir foss-
inum, sem staðurinn dreg-
ur nafn af. Nú er þó byggð-
in tekin að teygja sig upp
um hólana umhverfis lægð-
ina og er vítt og fagurt út-
sýni úr nýju húsunum, sem
hæst ber. Þarna er eigin-
lega búið að mynda smá
sveitaborp og er að heyra,
að fólk uni sér þar vel og
hafi að ýmsu leyti óvenju-
lega góða aðstöðu.
Að Álafossi hefur verið starf
andi ullarverksmiðja síðan ár-
ið 1896, er Björn Þorláksson
bóndi að Varmá, reisti þar hús
og keypti ullarvinnsluvélar
frá Noregi, auk þess, sem þang
að voru fluttar einhverjar vél-
ar frá verksmiðju þeirri. sem
þá hafði áður starfað austur
í Ölfusi. í fyrstu vann innan
við tíu manns við verksmiðj-
una, en þegar stundir liðu efld
ist starfsemin, ekki sízt eftir
að hinn kunni athafna- og
íþróttamaður Sigurjón Péturs-
son varð eigandi verksmiðjunn
ar árið 1919. Sigurjón rak
einnig lengi iþróttaskóla að
Álafo-ssi, kenndi sund, fyrst í
útilaug, sem myndaðist af raf-
stíflunni í ánni og síðar í yfir-
byggðri laug, sem reist var
1934. Nú er það sonur Sigur-
Litið inn i ullarverksmiðjurnar að Álafossi
jóns, Ásbjörn, sem veitir verk-
smiðjunni forstöðu.
Fyrir skömmu bauð frú Guð-
laug Narfadóttir mér að koma
með sér upp að Álafossi, en
sonur hennar, Guðjón Hjartar-
son, er þar verkstjóri. Tók
hann okkur hið bezta og sýndi
okkur alla verksmiðjuna og
skýrði fyrir okkur gang starf-
seminnar, allt frá því að
óhrein ullarreyfin eru tekin til
flokkunar og þar til skilað er
fullunninni vöru, svo sem lopa,
bandi. sokkum. dúkum, trefl-
um, ábreiðum og gólfábreið-
um.
Á leið okkar um verksmiðj-
una benti Guðjón mér á gamla
vegghleðslu, sem nú er að
verða inni í miðju húsi, þar
sem verið'er að reisa hús fyr-
ir nýjar ullarþvottavélar
Sagði hann, að þessi veggur
væri það síðasta, sem eftir
s'æði af elzta verksmiðjuhús-
inu.
Gangur ullarvinnslunnar er
í stórum dráttum sá, að fyrst
er ullin flokkuð í þrjá gæða-
flokka. Eru um 200 tonn af
ull tekin árlega til vinnslu. Úr
flokkuninni fer ullin í tætara,
sem greiðir sundur flókana,
svo að þeir þvoist betur. Þaðan
fer hún í þvottakerin og við
þvottinn léttist hún að jafnaði
um helming. Eftir þvottinn er
ullin lögð í skúffur og þurrk-
uð í skápum, hituðum með
hveravatni, en sú þurrkunarað-
ferð breytist þegar nýju þvotta
Sigurjón Pétursson — eignaðist verksmiðjuna 1919
Hesputréð — til þess að þvo ullarolíuna úr bandinu þarf að hespa
það.
vélarnar koma. Eftir þurrkun-
ina fer ullin í gegnum vél.
sem blandar í hana spunaolíu
til að hún greiðist betur. Næsta
hlutverki gegnir kembivélin,
sem fyrst greiðir ullina á breið
um völsum, kembir hana í
heldur rausnarlegri kembur
en maður gerði j höndunum i
gamla daga, skilur svo þá
kembu í sundur í lopa og vind-
ur í hankir og er þá lokið
vinnslu þeirrar ullar, sem seld
er sem lopi.
Næst tekur spunavélin við
hlutverki rokksins og er bæði
háværari og afkastameiri en
hann var, því að ein stúlka
stjórnar vél, sem spinnur á
120 spólur í senn. Svona tekur
hver véíi n við af annarri,
blandar bandinu á spólur,
tvinnar og hespar, því að ekki
er hægt að þvo spunaolíuna úr
bandinu nema að hespa það.
Sumt af ullinni er litað áður en
hún er unnin, en mikið af band
inu er líka litað. Sem dæmi
um afköst vélanna má nefna.
að úr kembingarvélunum koma
um 300 kíló á hverrj vakt.
Ef við fylgjum áfram band-
inu, sem búið er að þvo og
þerra í sínum sérstöku skápum,
sjáum við það spólað á skyttu-
spólur eða rakið í uppistöður
dúka. Átta rafmagnsvefstólar
vefa dúka og götuð munstur-
spjöld raða þráðunum í munst-
ur. Skytturnar þjóta með ör-
skotshraða um vefina, nú þarf
ekki mannshönd til annars en
bæta þar sem slitnar. Fullunn-
in er voðin þó ekki fyrr en
búið er að þvo hana og pressa,
lóskera eða ýfa. allt eftir hver
áferðin á að verða.
f einum sal eru miklar rak-
grindur. sem reka jurta- og
baðmullargarn í uppistöður í
gólfábreiður og geta rakið. alit
að 600 metra langar slöngur.
Fimm vefstólar vefa gólfábreið
ur frá 78—365 cm breiðar. í
vefstólunum eru hnífar. sem
skera jafnótt upp úr floslykkj-
unum og vefurinn þokast
áfram. Á eftir er hverjum dúk
rennt í gegnum eins konar
gegnlýsingarvél og gert við
hverja misfel.lu, sem finnst í
vefnaðinum. áður en teppin
eru lóskorin, gufublásin og
burstuð.
Nú er búið að breyta yfir-
byggðu sundlauginni í vinnu-
sal og eru gólfábreiður sniðn-
ar þar og límdar saman. enda
er nú verið að byggja nýja
sundlaug við skólahúsið norðan
við gamla Brúarlandsskólann.
Stjórn Álafossverksmiðjunn-
ar hefur þá skynsamlegu af-
stöðu, að hyggilegt sé að búa
svo að starfsliðinu, að fjöl-
skyldur ílendist þar og því á
verksmiðjan æði mörg íbúðar-
hús og leigir starfsmönnum við
vægri leigu. Sumir eiga þó sín
eigin hús og enn aðrir búa
fjær, þó að nær allir, sem í
verksmiðjunni starfa, séu bú-
settir í Mosfellssveitinni, en
starfsliðið er milli 80 og 90
manns. Sameiginlegt mötu-
Framh. á bls. 15.
Teiknimynd af spunavél eins og er að Áiafossi
TIMIN N, fimmtudaginn 21. febrúar 1963