Tíminn - 01.03.1963, Qupperneq 5
—
RITSTJORI: HALLUR SIMONARSON
FH tapaði s Esslingen
— Tók þátt í hraðkeppni í gærkvöldi og vann úrvalslið
18:10, en tapaði fyrir Esslingen með 14:12
Handknattleiksflokkur Fim
leikafélags Hafnarf jarðar,
sem nú er í keppnisför í Þýzka
landi, tók í gærkvöldi þátt í
h-aðkeppnismóti, sem háS var
í íþróttahöllinni í Esslingen,
sem er smábær rétt hjá Stutt
gart. Þrjú liS tóku þátt í keppn
inni og var flokkur FH í öðru
sæti — tapaði fyrir Esslingen
með 'tveggja marka mun í
nokkuð hörðum leik — 14
mörk gegn 12. Þjóðverjarnir
náðu nokkurra marka for-
skoti í byrjun og tókst FH
ekki að vinna það upp, þrátt
fyrir góðan endasprett.
Eins og kunnugt er eru FH-ing
ar í boði Esslingen í Þýzkalandi,
en þetta lið keppti í fyrrasumar
nokkra leiki hér á landi og tap-
aði þeim öllum — sumum þó með
litlum mun. Hafa Esslingen-menn
| fengið nokkra uppreisn með því
i að vinna. FH í gær.
Blaðið náði í gærkvöldi tali af
Páli Eirík-ssyni — einum kepp-
enda FH — og spurði hann um
mótið og leikina. Páll sagði, að
þrjú lið hefðu tekið þátt í mót-
inu, auk FH og Esslingen, úrvals
lið úr öðrum félögum í borginni.
Leikirnir voru 2x20 mínútur og
voru háðir í stórri íþróttahöll þar
sem salurinn er 2x40 metrar. Á-
horfendur voru margir — á annað
þúsund og tóku íslenzka liðinu hið
bezta. Meðal þeirra voru 20—30
íslendingar, sem komu til að sjá
FH, frá Stuttgart og Karlsruhe.
Sigruðu úrvalsliðið
Fyrsti leikurinn { mótinu var
milli FH og úrvaMiðsins og náði
FH strax yfirtökunum í þeim leik
og sigraði rfieð miklum mun, 18
mörkum gegn 10. Hraði var mik-
ill frá upphafi og skotin höfnuðu
jafnt og þétt í marki úrvalsliðs-
ins og féllu nokkuð jafnt á leik-
menn FH. í hálfleik var staðan
10—4 FH í vil. í síðari hálfleikn-
um tóku FH-ingar lífinu með ró
— enda aðalbaráttan framundan
— og var munurinn þá ekki eins
mikill 8—6 fyrir FH.
Léku strax við Esslingen
FH var óheppið í drættmum
þannig, að Iiðið varð nokkuð fljót
lega að leika aftur gegn Essling-
en-liðinu, sem hér keppti. Þetta
varð aldrei verulega skemmtileg-
ur leikur, þar sem Esslingen ná'ði
þegar í upphafi nokkru forskoti
og þegar það var fengið tóku Þjóð
verjamir upp þá leikáðferð að i
tefja sem mest. Þetta fór { taug-
arnar á leikmönnum FH, en þeir
fengu lítið að gert og tókst aldrei
að komast nálægt þeim leik, sem
þeir höfðu sýnt fyrr um kvöldið,
nema rétt undir lokin, þegar þeim
tókst að snúa 14—9 í 14—12, en
HJALTI EINARSSON
tapið var ekki umflúið. Bezti mað
ur FH í þessum leik var mark-
vörðurinn, Hjalti Einarsson, sem
varði mark sitt með miklum ágæt
HEIMSMET
OSLÓ—28.2. NTB — Norðmaður
inn Ivar Eriksen, Hamar, setti í
kvöld nýtt heimsmet £ 3000 m.
skautahlaupi á Bislet-leikvangin-
um í Osló. Tími hans var 4:33.0
mín., og bætti hann met Knut
Johannesen um 9/10 úr sek. —
Metið var sett á móti Osló-félag
anna fyrir þátttakendur Noregs
í heimsmeistarakeppninni. Annar
í hlaupinu var Fred A. Maier á
4:34.6, þriðji Knut Johannesen á
4:34.6 og fjórði Nils Aaness á 4:
36.7 mín. — í 500 m. hlaupinu
sigraði Alf Gestvang á 41.6. Ivar
Eriksen varð annar á 42.1 sek. —
í 1000 m. hlaupi sigraði Magne
Thomassen á 1:25.7 min., sem er
norskt met.
um. Ragniar Jónsson var mark-
hæstur — en mörki,n féllu þó
nokkuð jafnt á leikmennina.
Úrslitaleikurinn
Að lokum léku Esslingen og
úrvalsliðið til úrslita og var það
mjög harður leikur og mátti ekki
á milli sjá fyrr en undir lokin og
tókst Esslingen að vinna með
einu marki yfir 14—13, og hljóta
þannig sigur í mótinu. Framan af
hafði þó úrval'Sliðið yfir og voru
Framhald á 15. siðu.
KNAIR Þ0n SMAIR SEU
-fc UNDANFARIÐ hafa þrír kornungir drengir vaklS mlkla athygli
á skfðamótum hér syðra fyrir mikla leiknl og kunnáttu I íþrótt
sinnl. Þeir eru að vísu talsvert minni en keppinautarnir err samt
sem áður skipa þeir ósjaldan efstu sætin — og í firmakeppninni á
dögunum voru þeir allir framarlega. Það er spá kunnugra, að þeir
eigl allir eftir að ná langt og ekki verði mörg ár þar til þeir fara að
skáka beztu skíðamönnum okkar. Þessir þrír drengir eru ailtaf
saman á skíðum og eiga uppruna sinn að telja til helzta skíðabæjar
landsins — Slglufjarðar. — Tveir þeirra, Eyþór, 12 ára og Haraldur,
9 ára, eru synir hins kunna skíðakappa frá Siglufirði, Haraldar
Pálssonar, en hinn þriðji heltir Tómas Jónsson, 10 ára, en hann
fluttist til Reykjavikur fyrir tveimur árum. Myndirnar hér á síð-
unni tók Hörður Jónsson. Á stærri myndinni er Haraidur Pálsson
ásamt drengjunum. Talið frá vinstri, Eyþór, Haraldur, Tómas, en
á minni myndinni sýnir Tómas leikni sína.
J
T í M I N N, föstudagur 1. marz 1963.
5