Tíminn - 01.03.1963, Blaðsíða 14

Tíminn - 01.03.1963, Blaðsíða 14
WILLIAM L. SHIRER látnir, eða í þann veginn að gefa upp öndina, margir fleiri særðir, og afgangurinn, þar á meðal Hitl- er, lágu í götunni til þess eins að bjarga lífi sínu. Þó var ein undanitekning, og hefðu fleiri fylgt því fordæmi, hefði endirinn ef til vill orðið annar en raun varð á. Ludendorff kastaði sér ekki niður. Teinréttur og stoltur að sið hinna beztu her- manna gekk hann rólega, með Streck majór aðstoðarmann sinn sér við hlið á milli byssukjafta lögreglunnar, þar til hann kom að Odeonplatz. Hann hlýtur að hafa litið , einmanalega og hjákát- lega út þarna sem hann gekk. Ekki einn einasti nazisti fylgdi honum eftir, ekki einu sinni æðsti foringinn, Adolf Hitler. Hi-nn verðandi kamslari Þriðja ríkisins varð fyrstur til þess að koma sér undan á öruggan stað. Hann hafði stungið vinstra hand- legg undir hægri arm Scheubner- Riehter (undarlegt atvik, sem þó gaf ef til vill margt til kynna), þegar fylkingin nálgaðist lögreglu- umsátrið, og þegar sá. síðarnefndi féll, dró hánn Hitler með sér nið ur á götuna. Ef til vill hélt Hitler, að hann hefði særzt. Hann fánn til skerandi sársauka, sem hann komst síðar að raun um að staf- aði af því, að hann hafði farið úr axlarliðnum. En samt sem áður er staðreyndin sú, að samkvæmt vitnisburði eins nazistanna, dr. Walther Schulz, læknis, sem síðan var studdur af vitnisburði margra 'annarra sjónarvotta, „var Hitler fyrstur til þess að rísa á fætur og koma sér f burtu“, og skildi bæði fallna og særða félaga sína eftir liggjandi á götunni. Honum var ýtt inn í bíl, sem beið þama ná- lægt, og síðan var hann fluttur til sveitaseturs Hanfstángls við Uffing, þar sem kona Putzis og systir hjúkruðu honum, og þar sem hann var handtekinn, tveim- ur dögum síðar. Ludendorff var handtekinn á staðnum. Hann var fullur fyrir- litningar í garð uppreisnarmann- anna, sem ekki höfðu haft kjark til þess að ganga áfram með hon- um, og svo bitur út í herinn vegna þess að hann hafði ekki snúizt á! sveif með honum, að hann lýsti' því yfir, að þaðan í frá myndi hann ekki láta sem hann þekkti, eiran einasta þýzkan liðsforingja, eða klæðaist nokkru sinni framar búningi liðsforingja. Gyðingur nokkur og bankaeigandi, þarna rétt hjá hlynnti að hinum særðá Göring, sem síðan var smyglað yfir landamærin til Austurríkis af eiginkonu sinni, og lagður inn í sjukrahús í Innsbruck. Hess flúði einnig til Austurríkis. Röhm gafst upp í Hermálaráðuneytinu tveim- ur stundum eftir ósigurinn við Feldherrnhalle. Aðeins nokkrum dögum síðar, hafði öllum upp- reisnarmönnunum, að Göring og Hess undanskildum, verið smalað saman, og þeir settir í fangelsi. Nazistauppreisinin. hafði misheppn- azt algerlega. Flokkurinn var leystur upp. Að því er virtist, hafði þjóðernissósíalisminn sung- ið sitt síðasta vers. Einræðisfor- inginn, sem hlaupizt hafði á brott við fyrsta skothvellinn, leit út fyr- ir að hafa misst allt traust, og endir var bundinn á hinn skjóta stjórnmálaferil hans. Sóttur fyrir landráð Eins og siðar átti eftir að koma í ljós, hafði ferillinn aðeins verið rofinn um stundarsakir. Hitler var nógu slunginn til þess að gera sér grein fyrir því, að réttarhöldin yfir honum, sem alls ekki eyði- lögðu hann, myndu gefa hon- um tækifæri til þess að ófrægja yfirvöldin, sem höfðu látið hand- taka hann, og — það, sem meira var — gæfu honum í fyrsta sinn tækifæri til þess að láta menn taka eftir sér langt út fyrir tak- mörk Bayerns og reyndar Þýzka- lands líka. Hann vissi vel, að frétta menn heimsblaðanna jafnt sem fréttamenn helztu blaða Þýzka- lands streymdu nú til Miinchen til þess að geta fylgzt með réttar- höldunum, sem byrjuðu 26. febrú- ar 1924, og fóru fram fyrir sér- stökum rétti í gamla fótgönguliðs- skólanum í Blutenburgstrasse. Þegar réttarhöldunum lauk 24 dögum síðar, hafði Hitler breytt ósigri í sigur, gert Kahr, Lossow og Seisser sér meðseka í hugum al mennings, þeim til ómetanlegs skaða, hrifið þýzku þjóðina með mælsku sinni og eldheitri þjóð- erniskennd, og ritað nafn sitt með eldi á forsíður heimsblaðanna. Þrátt fyrir það, að Ludendorff væri visSulega langfrægastur þeirra tíu fanga, sem sátu í sak- bormingastúkunni, tókst/ Hitler þegar í stað að beina sviðsljósun- um að sjálfum sér. Frá upphafi til enda var hann alls ráðandi í réttarsalnum. Franz Gurtner, dómsmálaráðherra Bayern og gamall vinur og verndari nazista- foringjans, hafði séð fyrir því, að dómararnir voru sjálfsánægðir og mildir. Hitler var veitt leyfi til þess að taka fram í eins oft og hann sjálfur vildi, gagnspyrja vitni að vild og tala máli sjálfs sín, hvenær sem var, og eins lengi og hann óskaði — imngangsorð hans tóku fjórar klukkustundir, en það var aðeins sú fyrsta af mörgum löngum orðræðum hans. Hann ætlaði ekki að láta sömu mistökin henda sig og þeir höfðu gert, sem sakaðir voru um hlut- deild í Kapp-samsærinu. Þeir höfðu haldið því fram, eins og hann sagði síðar, að „þeir vissu ekkert, hefðu ekkert ætlað sér, óskuðu einskis. Þetta var það, sem eyðilagði heim borgaranna — að þeir höfðu ekki kjark til þess að standa við gerðir sínar . . . að ganga fram fyrir dómara og segja: „Já, þetta var það, sem við vild- um gera. Við vildum kollvarpa ríkinu.“ “ Nú lýsti Hitler því yfir fullur stolts, fyrir framan dómarana og fulltrúa heimsblaðanna. ,,Ég einn ber ábyrgðina, en ég er ekki glæpa maður vegna þess. Ef ég stend hér í dag sem byltingarmaður, þá er ég byltingarmaður gegn bylt- 33 ingunni. Ekkert slíkt er til, sem hægt er að kalla' landráð gegn landráðamönnunum frá því 1918.“ Ef svo væri, þá væru mennirnir þrír, sem stóðu fyrir stjórninni, hernum og lögreglunni í Bayern, og þeir, sem höfðu gert samsærið með honum gegn þjóðstjórninni, jafnsekir, og ættu einnig að sitja á ákærendabekknum við hlið hans í stað þecs að vera í vitnastúk- unni sem aðalvitnin gegn honum. Með klókindum hafði honum tek- izt að bæta aðstöðu sína á kostn- að hinna órólegu og sakbitnu þrí- menninga. Eitt var víst, en það var, að þeir Lo'ssow, Kahr og Seisser, höfðu sama imarkmiðið og við — að losa sig við stjórn ríkisins . . . Ef það, sem við gerðum, var f raun og veru landráð, þá hljóta þeir Los- sow, Kahr og Seisser að hafa verið að fremja landráð allan tímann með okkur, því í allar þessar vikur ræddum við ekki um neitt annað en það takmark okkar, sem við nú höfum verið ákærðir fyrir. Mennirnir þrír gátu varla neitað þessu, því þetta var sannleikur. Kahr og Seisser stóðust ekki Hitler snúning. Von Lossow hershöfð- ingi einn varði sjálfan sig fullur þrjózku. „Ég var ekki atvinnulaus KOMITADJI," sagði hann við rétt- inn. „Ég var í hárri stöðu' innan rikisins.” Og hershöfðinginn héilti allri þeirri fyrirlitningu, sem gam all liðsforingi í hernum hefur yfir að ráða, yfir liðþjálfann, sem eitt sinn hafði- verið í liði hans, þenn- an atvinnulausa uppreisnarsegg, sem hafði látið metnaðinn hafa betur og leiða sig til þess að reyna að verða einráður í ríkinu og yfir hernum. „Hversu langt hafði þessi æsingamaður ekki náð!“, hrópaði hann, „frá þeim dögum, sem reyndar voru ekki svo langt að baki, þegar hann lét sér gott þykja 44 vöknuð, og hafði lögreglan þegar tekið af henni skýrslu. — — Etty var nafn ungfrú Abby- ar, sagði Frances mér. Carmichal majór leit alvarlcgur á okkur, þegar við gengum inn á j skrifstofuna hans. — Eg tel, að; þér hefðuð átt að segja mér frá1 áhuga yðar á þessu máli, sagði hann, og var greiniLega ekki í sem beztu skapi. Það síðasta, sem ég kærði mig um, var, að hann yrði mér óvin-J veittur, svo að ég flýtti mér aðj biðja afsökunar og skýra málið. — Þetta var í rauninni ekkert mál, sir. Hr. Twindleham réði mig ekki til að rannsaka dauðaj Sylvesters, heldur til að komast' að raun um, hvort líf Elisabethar væri í hættu. Ungfrú Abby, vin-. kona móður minnar, hafði hvað eftir annað beðið mig að ferðast hingað, en ég hélt allan tímann að hún hefði ímyndað sér þetta. __ Og hvað haldið þér núna? Eg hikaði ekki. — Eg er á þeirri skoðun, að líf Elisabethar sé í mikilli hættu. Eg heyrði, að Frances greip and an ná lofti. — En ástæðan? spurði Carmi ( chal vondaufur. — Nicholas . . • Frances hall- aði sér áköf í áttina til mín. , — Frances, gerðu það fyrir mig! Eg leit hvasst á hana. Rödd majórsins var kuldaleg þegar hann sagði: — Eg verð að ráðleggja yður að vera gætnari með ákærur yðar, frú Blandford. Ég hef frétt, að þér hafið látið ýmis óviðurkvæmileg orð falla um frú Alden. Það getur ( orðið hættulegt . . . einkum og| sér í lagi, þar sem þér eruð meðal; hinna grunuðu. Hann horfði fast á hana. — Er ég? Frances leit ráðvana á hann. — Mér finnst skýring yðar á' ANDLIT KONUNNAR Clare Breton Smith engan hátt trúleg. Einhver kom inn í kofann og þér heyrðuð það ekki. Elisabeth veinaði. Þér vor- uð aðeins fáa metra frá henni, en þér heyrðuð það ekki. Hr. Nichol — sem var í öðrum kofa — heyrði hrópín. Óveðrið vakt'i hr. Nichol, en þér sváfuð. Þér vöknuðuð ekki fyrr .■ . . — Það var í raun og veru mjög erfitt að vekja hana, skaut ég inn í. Hann leit kalt á mig. ■— Þökk fyrir, ég veit þér hafið sagt það. Eftir því, sem mér sýnist bezt er- uð þér sú fyrsta, sem álíta verður tortryggilega. Eg sá, að hendur Frances skulfu. — En hví1 skyldi ég vilja gera Elisabethu mein? Eg hef reynt að vernda hana . . . — Það getur verið yfirskin. Hann hallaði sér að henni.. — Maðurinn yðar elskar Elisabeth . . . hún var sem sé mikil hætta fyrir hjónaband yðar. Ef Elisa- bethu væri rutt úr vegi, gætuð þér . . . — Nei — nei, það er ekki þann- ig! hrópaði Frances ofsalega. Hann benti hcnni að þegja. — Eg hef hér skýrslu, sem frú Ald- en undirritar. Hún heldur fram, að það hafi verið yðar hugmynd, að þér og hr. Nichol komu út á búgarðinn til dvalar. — Það var uppástunga hennar. Eg vildi ekki fara. Frances hafði risið á fætur, magur likami hennar titraði. — Frú Alden bauð okkur. j Er það ekki rétt? Hún leit biðj- i andi á mig. — Jú, það sagðir þú mér, en 1. . . Eg hikaði. Majórinn leit áj (mig. — Frú Alden sagði mér, að, þú hefðir hringf til sin og grát- : beðið hana að bjóða okkur. Hún sagði, að þú værir óhamingjusöm j j með Guy og að þú virtist . . . í þann veginn að fá taugaáfall. — Þarna sérðu! Augu Frances j skutu gneistum. — Hún reynir að koma sökinni á mig. ! — Og þú reynir að koma sþk- inni á hana, sagði ég rólega. I Frances hneig niður í stólinn og leit örvæntingarfull á okkur. Majór Carmichal kynnti sér skjöl- in, sem lágu á borði hans. — Frú Alden télur, að einhver hafi gefið sér svefnlyf. j Hann vildi fá upplýst, hver, hefði haft tækifæri til að blandaj einhverju í líkjörinn. Frances ! varð náföl og fórnaði höndum, Iþegar hún játaði, að það var hún, jsem hafði sótt flöskuna samkvæmt j beiðni Gertrudes. Hún virtist ör- vita og stamaði af geðshræringu. Majórinn leit efagjarn á mig, en ég kinkaði kolli. Allt, sem hún sagði, kom heim og saman. Franc- es sneri sér að mér og rétti biðj- andi fram hendurnar. — Nicholas, geturðu ekki skil- ið, að ég á enga sök j þessu rnáli? Mér þykir vænt um Elisabethu. Sérðu ekki að frú Alden er eina manneskjan. sem hefur nokkra á- stæðu? Hún hefur alltaf hatað Eliisabethu. Nú þegar Sylvester er dáin, hatar hún hana meira en nokkru sinni fyrr. Rödd henn- ar var full örvæntingar. Majór Carmichal reis snögg- lega á fætur. — Eg ætla að gefa yður enn eina viðvörun, frú Blandford. Þér megið ekki láta annað eins út úr yður. Þér megið fara núna, en þér hafið ekki leyfi til að fara úr borginni. Eg kem og yfirheyri yður aftur. Hún deplaði augunum og leit ringluð á mig. — Má ,ég fara? — Já, ég hef gefið boð um, að yður verður ekið heim, svaraði majórinn. — Eg þarf að tala við hr. Nichol undir fjögur augu. Hún skjögraði fram að dyrun- um, stóð kyrr andartak, síðan opn- aði hún dyrnar og fór. Við majór- inn horfðum á eftir henni, svo lit- um við hvor á annan. 3. KAFLI — Eg sé ekki að aðrir en frú Blamdford hafi haft nokkra á- stæðu, sagði majórinn. Svo kvaðst hann hafa kallað Guy á sinn fund og gaf skipun um að hann kæmi inn. Guy kom inn og leit á mig. — Halló, Nicholas. Eg var að hringja á sjúkrahúsið og Elisabeth sefur róiega. Hvernig er með Frances? — Það lítur illa út, svaraði ég stuttur í spuna — Hún varð mjög hrædd áðan — Hrædd. Hvers vegna? Guy ieit á okkur. — Þegar ég sagði henni, að hún væri meðal hinna grunuðu. — Hvað segið þér! En það er firra. Guy sneri sér æstur að majórnum. — Yður er óhætt að trúa að það er fjarstæða. Frances hefur nauðað í mér mánuðum saman, að eitthvað yrði að gera til að bjarga Elisabethu. Þér getið spurt dr. Keet. Nicholas líka. Bendir það til að hún hafi ráðgert að myrða hana? — Það gæti verið liður í fyrir- ætlan hennar. — Nú hef ég aldrei . . . Guy tútnaði út. — Frances er ekki þannig. Svo sneri hann sér snöggt að mér. — Ætlar þú að segja, að þú sért honum sammála? Hvorum j megin ertu eiginlega? ' Eg leit rólega á hann. — Rétt- lætis megin. — Elisabethar megin'. — Nú, já, látið mig heyra, hvaða ástæðu Frances á að hafa. Majórinn brosti yfirlætislega. — Eg held að þér þurfið ekki að biðja okkur að segja yður það. ( Þér hafið játað að þér elskið Elisa- j beth Alden. Við vitum, að eigin- kona yðar ann yður, meira er ekki um það að segja. Auk þess j er Frances grunuð, vegna þess, ; að hún hefur aíltaf verið nær- stödd, þegar eittnvað hefur gerzt. Hún var úti á búgarðinum þegar ^ungfrú Abby dó Þér raunar líka! ' Það var kona yðar, sem hringcli (til Sylvesters kvöldið áður en ' hann var myrtur. Frances svaf í 14 T f M I N N, föstudngur 1. mnrz 1963. —

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.