Tíminn - 01.03.1963, Blaðsíða 13

Tíminn - 01.03.1963, Blaðsíða 13
tðja hefur.... , Framhald af 9. siðu. ur að stafa af því að sú stjórn, sem nú er við völd í Iðju, er hnýtt pólitískum böndum flestum þeim aðilum, sem hún á að semja við um kaup og kjör og það eru þeir, sem ráða því raunverulega hvenær samningar eru undirrit- aðir og hvenær ekki. Svo er hamrað á því í blöðum þeim er styðja stjórn Iðju að' þær kjarabætur sem iðnverkafólk hef- ur fengið séu „pólitísk skemmdar- starfsemi" ekki hef ég séð að stjóm Iðju hafi mótmælt þessum ásökunum, en samt er erfitt að trúa, að þeir álíti þessar kjarabæt- ur sem iðnverkafólk hefur fengið ómaklegar því til handa. Eg held að stjórnir flestra stétt arfélaga hefðu ekki hikað við að neita slíku opinberlega, ef á kjaramál þeirra hefði verið'i ráð- ist á slíkan hátt. En sem sagt, kjarabætur iðn- verkafólks heita „pólitísk skemmd arstarfsemi“, segir blaðakostur Iðjustjórnar og undir það virðist hún taka með þögn. En víkjum nú að öðru. Kommúnistar virðast telja það alveg sjálfsagðan hlut, að þeir séu einu vinstri mennirnir í þessu þjóðfélagi. Ekki er mér grunlaust um að þeir séu farnir að trúa Morgunblaðinu, en eins og kunn- ugt er hefur það blað aldrei vit- að um aðra vinstri menn en komm únista hér á landi, en Þjóðviljinn kallar alla sem eru þeim ekki alveg sammála íhaldsdindla eða álíka nöfnum. í grein sem birtist í Þjóðviljanum 27. febr. s.l. segir, að Framsóknarmenn hafi gert það að kröfu sinni að Einar Eysteins- son yrði formaður listans, en Iðju félagar hafi hafnað því sem frá- leitu. Undarlegast við þetta er það, að Einar Eysteinsson hefur verið í varaformannssæti á undanförnum árum á sameiginlegum lista íhalds andstæðinga í Iðju og þá hafa kommúnistar virzt vera mjög á- nægðir með hann i því sæti. Það eitt mun verða til þess að allar árásir þeiira á hann falla um sjálfar sig. En nú er kannski einhver sem spyr: Á slíkur listi að koma fram eiga ekki allir að vera annaðhvort til hægri eða vinstri? Eg vil svara þessu eindregið neitandi. Það verður tvímælalaust happadrýgra fyrir verkalýðsfélög að forðast öfgar' til hægri og vinstri. Það er ekki nokkur vafi að það er fjöldi af fólki sem hefur á und anförnum árum orðið vitni að því að togstreitan, sem háð er innan margra félaga er á góðri leið að eyðileggja þau og heildarsamtök þeirra, Alþýðusamband íslands. Og þetta fólk skilur nauðsyn þess að reynt sé að koma fram með nýtt og hlutlausara afl innan verka lýðssamtakanna til þess að forða þeim frá glötun. Og það er þetta fólk, sem mun fylkja sér um lista okkar f þessum kosningum og það j mun sjá til þess að sá árangur, sem við náum nú, verði því fólki hvatning til að koma fram á svið verkalýðsmála, sem skilur nauð- syn þess að kjarabarátta sé háð án óeðlilegrar íhlutunar stjórn- málaflokkanna. Við skulum vinna ötullega að því að gera sigur C-listans sem stærstan um helgina. Hannes Jónsson Raunhæfar kjarabætur Framnajö 9 nðu I ■ ir til sanngjarnrar hlutdeildar í ; arði þjóðarbúsins, það er ekki sanngjarnt, að við vaxandi tekjur i þjóðarbúsins skuli hlutur okkar ! Iðjufólks versna. Eg vil að við | Iðjufólk berjumst fyrir raunhæf- um kjarabótum. Og hverjar eru þá raunhæfar kjarabætur? Raun- hæfar kjarabætur eru: Lækkun húsnæðiskostnaðar, lækkun vaxta, lækkun skatta, og síðast en ekki sízt traust verðgildi íslenzku krón unnar. Allir þeir Iðjufélagar, sem eru fylgjandi því að velja þá stjórn, sem setur hagsmuni stéttarfélags síns ofar hagsmunum pólitískra flokka, gera það með því að fylkja sér um lista lýðræðissinnaðra vinstri manna C-listann. Kjósum öll C-listann. Einar Eysteinsson. Ffmrra daga vinnuvika Framhalö íi 9 siðu i steinsson og það alveg sérstaklega af kommúnistum. Þetta finnst mér næsta furðulegt úr þeirri átt, því að á undanförnum árum hafa kommúnistar stutt lista, sem Ein- ar hefur verið á, og talið þá fram- boð hans ágætt í alla staði. í þessum kosningum eigum við að láta það ríða mestu hvernig líklegast sé að auka starf og bar- áttu Iðju fyrir bættum kjörum, hvernig hægt sé að knýja stjórn Iðju til aukinnar starfa, þar sem vonlítið er að fella hana. Eg er ekki í "heihuni''váfa' um, að það verður bezt gert með að efía fylgi lista lýðræðissinnaðra vinstri manna, C-listarin. Eg skora því á ykkur að fylkja ykkur um C-list- ann. Alda Þórðardóttiir. Sveitapláss Óska eftir að koma 12 ára dreng í sveit. Hefur verið í sveit áður. Upplýsingar i síma 35983 Hey til sölu 200 hestar af töðu til sölu Upplýsingar gefur Guð- nundur Kristjánsson, Svðri-Hól sími um Selja- land. Briggs&Stratton BENZÍNVÉLAR 2V4—9 hö. Gunnar Ásgeirsson h.f. Suðurlandsbraut 16 Sími S5200 Sængur Endurnýjum gömlu sæng- urnar, eigum.dún- og fiður held ver. Dún- og fiðurhreinsun Kirkjuteig 29 Sími 33301 Þvottapottur Kolakyntur (emeleraður) ca. 80 1., óskast keyptur. Einnig miðstöðvarketill með súgbrennará, 2Vi—3 ferm. Uppi. í síma 18361. _ innflytjendur! Ný fjölbreytt sýnishorn af BÓMULLARMETRAVÖRUM hefir oss borizt frá fa. Cetebe, Lódz. Hagstætt verð, skjót afgreiðsla. Fulltrúi frá Cetebe (bómullarvörudeild) er nú kom- inn til landsins og verður til viðtals á skrifstofum vorum næstu daga. íslenzk-erlenda Verzlunarfélagið hf. Tjarnargötu 18. — Símar 20400 og 15333. Brezkur útflytjandi að uppgerðum dráttarvélum óskar eftir áhugasöm- um íslenzkum innflvtjanda Allar gerðir og árgangar fáanleg á mjög sann- gjörnu verði. Hafið samband við BOX No L5944 Milhade Organisation 140 Cromwell Road .London SW7, England AUGIÝSÍÐ Í TÍMANUM auglýsingar HHÍ Lokastíg 5 Sími 16887 20623 auglýsingar FISKISKIP Otvegum allar stærðir af FISKISKIPUM byggðum úr STÁLI eða EIK frá fyrsta flokks skipasmíðastöðvum f NOREGI og DANMÖRKU VIÐ SELJUM ÖLL SKIP Á FÖSTU VERÐI, kemur því ekki til hækkana þótt breytingar verði á efnisverði eða launum á byggingartímabilinu. TEIKNINGAR OG AÐRAR UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU OKKAR. Eggert Kristjánsson & Co. hf. } t M I .V H föstudagur 1. marz 1963. — 13

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.