Tíminn - 03.03.1963, Blaðsíða 3

Tíminn - 03.03.1963, Blaðsíða 3
í SPEGLITÍMANS Nú er verið að leika Frænku Oharleys í nokkuð breyttri mynd í Austurríki. í þessari kvikmynd eru hvorki meira né minna en fimm frænkur, sem allar eru karlmenn og fimm ungir menn, sem allir eru stúlk ur. Þetta er söngvamynd, sem auðvitað endar með því, að allir verða ástfangnir af hverjum öðrum. Aðalhlutverkið leikur hin danska kvikmyndaleikkona, Vivi Bak, sem þar af leiðandi er einn af hinum dulbúnu ungu mönnum. Hér er hún á mynd- inni með stuttklippt hár og reykjandi pípu. ☆ Nú er hinn kunni rússneski geimfari Pavcl Popovich á góðri leið með að verða dægur lagasöngvari. Fyrsta plata hans hefur nú bæði komið út í Dan- mörku og Englandi og er þetta tilfinninganæmt rússneskt ljóð með þunglyndislegu lagi, sem vel hæfir djúpri rödd geimfar- ans. Það stóð ekki á vinsæld- um plötunnar í áðurnefndum löndum, og er sagt að frægð Popovich sé ekki aðalástæðan. ☆ íranbúar bíða allir í ofvæni eftir því, að drottning þeirra, Farah Diba, eignist bam það er hún gengur meg um þessar mundir. Mikið á að vera um dýrðir við fæðinguna, og hef ur keisarinn, eftir beiðni konu sinnar, ákveðið að 14.750 fang ar í fangelsum írans hljóti mildari refsingu, en áður hafi verið kveðið á um. Dauðadóm um verði breytt í lífstíðarfang elsi og lífsííðarfangelsi verð ur breytt í tíu ára fangelsi, og þúsundi minni háttar glæpa- manna munu verða látnir laus ir. ☆ Heiminum er í rauninni stjómað af gömlum og sjúkum mönnum ásamt hinum 45 ára gamla bandaríkjaforseta John F. Kennedy. Nikita Krustjoff er 68 ára gamall og oft og tíð- um mjög veikur. Mao Tse tung Hin 25 ára gamla danska dæg urlagasöngkona, Birthe Wilke, ákvað að fæða barn sitt eftir sem áður, þegar hún heyrði, að líkindi mundu vera á því, að það yrði vanskapað. En hún hafði tekið inn einar átta loft- veikistöflur, sem reyndust valda vansköpun. Hún fæddi son á gamlárskvöld í Kaup- mannahöfn, sem var eðlilega skapaður að öðra leyti en því, að þumalfingurna vantaði á hendur hans og handleggirnir voru örlítið snúnir. En Birthe iðrast þess ekki, að hafa fætt son sinn, þó svo sé. Handleggir hans eru í gipsi, og talið er að þeir munu vaxa rétt með tím- anum, og með uppskurði verð- ur líklega hægt að laga þumal- fingurna eitthvað'. Birtha lætur nú söngferil sinn sitja á hak- anum, og hugsar eingöngu um soninn. Hún hefur áður átt í miklum erfiðleikum. Árið 1957 slasaðist hún í bílslysi, siðan lenti hún á taugahæli í Banda- ríkjunum eftir misheppnað hjónaband. Og annað hjóna- bandið fór út um þúfur hjá henni rétt á eftir. Nú er hún gift 32 ára gömlum hljómlistar manni Enrico Veraga að nafni. Hinn kunni rock-söngvari, Ricky Nelson, sem stúlkur um allan heim hefur dreymt um að eignast, hefur nú trúlofað sig, þeim til mikillar hrelling- ar. Sú hamingjusama heitir Lisa Brown, ☆ er 69 ára og þjáist af mjög slæmum lifrarsjúkdómi. Charl- es de Gaulle er orðinn 72 ára og er næstum því blindur, og Konrad Adenauer er hvorki meira né minna en 87 ára, en hann hefur aftur á móti hesta- heilsu. Hinni fyrrverándi írönsku keisaraynju, Sorayu voru veitt Oscarverðlaunin nýlega fyrir vinsældir. Soraya varð að von- um mjög glöð við þessi tíðindi, og hér heldur hún hreykin á bikarnum. Það er líklega engri konu í heiminum vorkennt það eins mikið að vera ógift og Sorayu. ☆ Jafnvel meðlimir Kennedy- fjölskyldunnar eiga í erfiðleik- um með að fylla upp þær kröf ur, sem fólk gerir til þeirra. Án þess að nokkur fjölskyidu- meðlimur gæti komið í veg fyr ir það, sagði Joan Kennedy, etginkona Teds Kennedy, blaða mönnum frá því, ag hið veila bak forsetans væri mikið vanda mál, hann gæti varla orðið tek ið upp son sinn. Við þessu kom undir eins það svar frá Hvíta húsinu, að baki forsetans færi batnandi, en sonur hans þyngd ist aftur jafnt og þétt. Kenne- dy yngri er nú rúmlega 17 kíló á þyngd. ☆ Juliet Prowse, stúlkan, sem varð heimsfræg á því að trúlof ast Frank Sinatra, en sneri svo jafnskjótt við honum bakinu, tilbiðjendum Sinatra til mikill- ar undrunar, hefur nú sinn eig- in leikþátt á Broadway. Þetta er nokkurs konar grínþáttur. þar sem hún tekur fyrir þekkt- ar kvenpersónur sögunnar. — Gagnrýnendur eru ekki mjög hrifnir af leik Júlíu, en áhorf- endur eru himinlifandi. Juliet tekur leik sinn mjög alvariega. og þó að þetta sé ekki drama- tískur leikur er hann skemmti- legur. Hér á myndinni er Juli- et í hlutverki Cleopötru, sem hún túlkar á grimmilegan og óseðjandi hátt, og áhorfendur beimta meira. Þeir Andrew prins i Bret- landi og Reza krónprins í íran hafa nýlega átt afmæli, og nú bætist einn lítill í hópinn, það er japanski prinsinn, Naruhito Hironomiya (kallaður Hiro), sem hérna á myndinni leikur sér að flugdreka í Tokyo, en Andrew hélt upp á afmæli sitt með vistugu teboði í Bucking- ham Palace upp á enskan máta. * Söngvarinn Eugen Tajmer, sem hér var staddur fyrir skömmu, var nýkvæntur, þegar hann kom hingað, og fundum við brúðkaupsmynd af þeim hjónunum í dönsku blaði. Með henni stóð, að brúðurin héti Annelise Larsson og þau hcfðu hitzt á öðrum vík- ingabátanna í Tivolí, þar sem hún seldi súkkulaði. Endirinn var svo sá, að Tamjer réði sig á sama bát, með þeim afleið- ingum, ag hann þyngdist um fjögur kíló, vegna súkkulaði- áts, áður en hann bar upp bón- orðið. í blaði nokkru í Seattle í Kaliforníu var nýlega haldin keppni um það, hver gæti skrif að stytztu ævisöguna. Frú Gwendolin Weels hlaut fyrstu verðlaun, en ævisaga hennar var á þessa leið: í gamla daga átti ég slétt andlit og plíseraðan kjól, nú er það þveröfugt. ☆ Charles krónprins í Englandi brá sér nýlega á skíði í fyrsta skipti á ævinni. Kennslan fór fram í Tarasp í Sviss, sem kannski þykir heldur bratt skíðalendi fyrir byrjendur, og það konunglega, en Philip drottningarmaður, faðir Oharl- es, hefur nú einu sinni ákveðið að sonur sinn skuli verða karl menni, en ekki dekurbarn brezku krúnunnar, hvað sem ömmur, mæður og systur í fjölskyldunni segja. ☆ T í M I N N, sunnudagurinn 3. marz 1963. — 3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.