Tíminn - 03.05.1963, Side 13
Þessi foátur er til sölu
Stærð 5 toiín, með 24 h.K. Marna-dieselvél, línu-
spili og fleiru, óniðursettu. Báturinn er sem nýr.
Verð kr. 150.000,00. Selst með góðum kjörum.
Óskar Gíslason, Sólhlíð 3, Vestmannaeyjum
Iðnverkamenn oskast
viljum ráða iðnverkamenn til skamms tíma til að
vinna við rafmótoraframleiðslu
Nánari upplýsingar gefur Hákon Torfason, Raf-
mótoraverksmiðju Jötuns, Hringbraut 119,
Sími 19600.
Starfsmannahald SÍS
Stúlkur óskast
Duglegar og ábyggilegar stúlkur óskast til
afgreiðslustarfa í veitingasal og sælgætisbúð.
Enn fremur stúlkur til eldhússtarfa. ý
Upplýsingar í
Hóte! Tryggvaskála, Selfossi
Lögtök
Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjaldheimtunn-
ar í Reykjavík og samkvæmt fogetaúrskurði, upp-
kveðnum 3. þ.m. verða lögtök látin fara fram fyrir
ógoldnum fyrirframgreiðs?um opinberra gjalda,
samkvæmt gjaldheimtuseðli 1962, sem féllu í gjald-
daga 1. febrúar, 1. marz, 1. apríl og 1. maí s.l.
Gjöldin eru þessi:
Tekjuskattur, eignarskattur, námsbókagjald,
kirkjugjald, kirkjugarðsgjald, slysatryggingagjald
atvinnurekenda skv. 43. gr. alm. tryggingalaga,
lífeyristryggingagjald atvinnurekenda skv. 29. gr.
sömu laga, atvinnuleysistryggingagjald, alm.
tryggingasjóðsgjald þ. m. t. endurkræf trygginga-
gjöld, sem borgarsjóður Reykjavíkur hefur greitt
fyrir einstaka gjaldendur skv. 2. mgr. 76. gr. 1. nr.
24/1956 sbr. 23. gr. 1. nr. 13/1960, tekjuútsvar,
eignarútsvar, aðstöðugjald og sjúkrasamlagsgjald.
Lögtök til tryggingar fyrirframgreiðslum fram-
angreindra gjalda, ásamt dráttarvöxtum og kostn-
aði, verða hafin að 8 dögum hðnum frá birtingu
þessarar auglýsingar, verði tiiskyldar greiðslur
ekki inntar af hendi innan þess tima.
Yfirborgarfógetinn í Reykjavík
3. maí 1963
Kr. Kristjánsson
Dundee
en féll
Dundee sigraði Milan í síð-
ari leik liðanna í Evrópubik-
arkeppninni á miðvikudaginn
með 1:0. en það nægði ekki,
því Milan vann fyrri leikinn
með 5:1 og er því komið í úr-
slit í keppninni og mætir þar
sennilega bikarhöfunum Ben-
fica.
Leikurinn var mjög harður á
köflum og undir lokin vísaði dóm
arinn Gilzean, Dundee, af leikvelli.
Gilzean hafði skorað mark Dundee
í fyrri hálfleik. Milan lék nær
algerlega varnarleik til að halda
markaforskoti sínu, en hinir þrír
framherjar liðsins voru þó oft
hættulegir í snöggum upphlaup-
um. Tvisvar tókst þeim að koma
knettinum í mark, en rangstaða
var dæmd í bæði skiptin.
Ian Ure, miðvörður Dundee, og
talinn sá bezti í þeirri stöðu á
Bretlandseyjum, hefur ekki viljað
endurnýja samning sinn við
Dundee, og hefur félagið þó viljað
hækka laun hans í 30 pund á viku.
Ure vill komast til Englands, og
hafa Arsenal og Manch. Utd. á-
huga fyrin honum.
Sundþjálfari
Framhald af 5. síðu.
Frailei lízt vel á reykvíska sund
fólkið og hefur m.a. látið þá skoð-
un í Ijós, að Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir geti náð árangri á
heimsmælikvarða í fjórsundi. —
Á þeim æfingum sem hann hefur
verig hefur hann lagt mikla á-
herzlu á kraftinn hjá sundmönn-
unum m. a. með flugsundinu —
einnig beitir hann nýrri tækni. —
Æfingar hafa verið tvisvar sinn-
um á degi í Sundhöllinni og hafa
þær verið mjög vel sóttar og hef-
ur sundfólkið látið í ljós mikla
ánægju með þær, enda nýjungar
margar. Einnig eru æfingar í Hafn
arfirði tvisvar sinnum í viku.
Á næstunni mun Frailei að öll-
um líkindum kenna eitthvað úti
á landi og verður sennilega á Sel
fossi um miðjan mánuðinn. Eins
og að líkum lætur er hinn banda
ríski sundþjálfari íslenzku sund
fólki kærkominn gestur — sérstak
lega með Norðurlandameistaramót
ið í huga, sem fram fer innan tíð
ar og er ekki að efa, að árangur
af kennslunni komi þar í góðar
þarfir.
Niðjatal
Framhald af 8 síðu
mín og ein af afkomendum Hákon
ar bróður Vigfúsar.
Mannanöfn og tölur eiu mjög
næm fyrir ritvillum og prentvill-
um. Eg hefi ekki rekizt á í bók
þessari mikið af slíku, þó þar séu
skráðir um 1800 manns eftir því
sem nafnaskráin segir til. Niðja-
töl hafa margan fróðleik að geyma
og vekja mann til umhugsunar um
það hversu mörgum og ólíkum
þáttum þetta mannanna líf er
slungið.
Þessi bók er góður fengur í það
safn þjóðlegra fræða.
Guðmundur Illugason
Starfsstúlkur óskast
Starfsstúlkur vantar í eldnús Kleppsspítalans.
Upplýsingar gefur matráðskonan í síma 38164 og
32162.
Reykjavík, 2. maí 1963.
Skrifstofa ríkisspítalanna
Nýja sauðargæran
Framhald al 7. siðu.
inn. HernámsandstæSingar í
Norðurlandskjördæmi eystra og
allir þig óánægðu Sjálfstæðis-
menn og Alþýðuflokksmenn, sem
ekki aðhyllizt stefnu flokks ykk-
ar varðandi Efnahagsbandalag
Evrópu og vdjið því ekki hleypa
erlendum auðjöfrum að náttúru-
auðlindum íslands! Ég skora á
ykkur ag fylkja ykkur sem þétt-
ast um lista Framsóknarflokks-
ins og gera sigur hans í kosn-
ingunum 9. júní sem glæsilegast-
an, en ósigur allra hinna flokk-
anna sem hraklegastan. Komið
Hirti á Tjörn á þing.
Ritað 21. apríl 1963.
Alexander Jóhannsson.
Guðmundur góði
Framhajd 9 síðu )
þér eins og er, að í hvert sinn
sem ég kem inn í pósthúsig hér
í Reykjavík og sé þá yinna, renn
ur mér heldur í skap að hafa
ekki fengið starf þar, eftir að
hafa þrælazt með póstinn á bak
inu eftir enddöngum Ströndum
í 25 ár.
— Svo tókstu að þér inn-
heimtustarf hér í Reykjavík? ,
— Þegar ég hafði fengið synj
un hjá póststjórninni, fór ég
til Olíufélagsins, fékk þar inn-
heimtustarf, sem ég hef haft
síðan. Mér varð reyndar á að
hugsa, þegar ég tók það starf,
sem ég vissi, að var ekki sér-
lega vinsælt: Á ég nú að eyða
síðustu árunum með því að vera
öllum hvimleiður? En reynslan
hefur orðið önnur. f þessu lítt
þokkaða starfi hafa margar
blessgðar konurnar boðið mér
inn til sætis og jafnvel kaffi ,á
meðan ég hef bókfært reikning-
ana og kvittað greiðslu. Þessum
ágætis manneskjum vil ég
þakka vel fyrir mig. Við hjónin
,höfum þúið hjá dótturdóttur
jokkar, Huldu, og hinum ágæta
manni hennar Dúa Sigurjóns-
syni smið á Gnoðarvog 84, og
notið sérstakrar umönnunar
þeirra.
Víðivangur
(Framhald af 2. síðu). '
verkamanna á íslandi, og má
miki'ð vera, ef gamlir Alþýðu-
flokksmenn hafa ekki minnzt
þess munar, sem á er orðinn,
því að fyrir 40 árum kastaði
íhaldið grjóti iað Alþýðuflokks
mönnum á göngu þefrra, og
mættu þeir hugleiða, af hverju
þessi breyting stafi.
TRULOFUNAR
HRINGIR
AMTMANN SSTIG 2
HALLDÖR KRISTINSSQN
gullsmiSur Slmi 16979
14 ára telpa
óskar eftir að komast á gott
sveitaheimili.
Upplýsingar í síma 34791.
vann
úr
íþróttir
Fram'hald af 5. síðu.
meira í leiknum fyrstu 20 mínút-
urnar þótt ekki tækist þeim að
skora.
Valsmenn sóttu nokkuð í sig
veðrið þegar líða tók á hálfleik-
inn og á síðustu mínútunni var
uppskeran mark. Hinn ungi leik-
maður Vals, Hermann Gunnttrs-
son, sendi knöttinn skemmtirega
fyrir markið þar sem Steingrím-
ur Dagbjartsson — greinilega
rangstæður — tók við honum og
afgreiddi hann í markið með að-
stoð hægri handarinnar. Þetta
virtust flestir sjá ncma dómar-
inn, sem var staðsettur nálægt
miðju vallarins.
En þrátt fyrir að Valsmenn
fengju þetta mark svo til gefins,
væri fjarri lagi að segja að heppn-
in hafi leikið við þá í síðari hálf-
leiknum, sem Valur átti. — Strax
á 1. mínútunni átti Bergsveinn
Alfonsson skot rétt yfir slá og af-
eins þremur mínútum síðar átti
hann annað skot, sem fór sömu
leið — þá hafði Geir komið út úr
markinu en, Bergsveinn leikið
fram hjá honum — sannarlega illa
farið með gott færi. Og Valur átti
mörg tækifærin eftir þetta, sem
voru misnotuð, en heldur lítið fór
fyrir sóknartilraunum Fram.
Fleiri urðu mörkin ekki í þess-
um leik, sem sennilega er sá léleg-
asti í mótinu til þessa. Valur var
betra liðið þótt engin ástæða sé
tii að hrósa knattspyrnunni. Nú
hefur Valur fengið nýja krafta í
framlínuna — vörnin eins og áð-
ur sterk, en tengiliðurinn, fram-
verðirnir, sameina illa þessar hlið
ar. þótt þeir vinni báðir mikið.
Hjá Fram sluppu vel frá leikn
um vinstri bakvörðurinn, Sigurð-
ur Einarsson og Sigurður Friðriks
son í miðvarðarstöðunni — en yfir
höfuð var knattspyrnan fyrlr neð-
an allar hellur hjá Fram.
Dómari í 'eiknum var Jón Bald-
vinsson og dpemdi heldur illa. Það
verður að álita að dómari sem held
ur sig mest allan leikinn við miðju
hringinn, eins og Jón gerði í leikn
um, hafi slæmar staðsetningar og
sjá illa atvik uppi við mörkin.
Staðan í Reykjavíkurmótinu í
knattspyrnu er nú þessi:
Valur 3 2 0 1 4^—2 5
Þróttur 2 10 1 6—2 3
KR 1001 0—1 0
Fram 2 0 0 2 0—5 0
Leikur KR og Þróttar, sem fram
fór í gærkvöldi er ekki talinn hér
með. Þess má geta, að leikin er
tvöföld umferð.
Fyrirspurn til
Páls Kolka
í gærkvöldi, hinn 22. apríl, tal-
aði fornkunningi minn, Páll Kolka
læknir, í útvarpið. Hann ræddi um
Daginn og veginn — og hefur áð-
ur betur gert. Erindi hans, sem
fjallað'i að mestu um búnað og
bændur, var mikils til um of bland
ið sleggjudómum og rakalausum
staðhæfingum til þess, að mark
yrði á tekið. Fleipur er og verður
aldrei annað en fleipur, þótt fært
sé í snotran búning.
Læknirinn minntist á Hóla í
Hjaltadal og lét orð falla á þá
leið, að búskaparsaga Hóla hefði,
jafnvel í áratugi, verið samfelld
raunasaga.
f þvílíkum ummælum felst áfell-
isdómur, og ekki alls kostar drengi
iegur, um þa hölda og mætu menn
sem staðið nafa fyrir búi á Hólum,
menn eins og Steingrím Steinþórs
son og Kristján Karlsson.
Því spyr ég lækninn — og óska
svars:
Hverjar eru þær heimildir og
forsendur, er hann þykist hafa
fyrir slíkum dómi?
23. apríl 1963.
Gísli Magnússon
TÍMINN. föstudaeiinn 3. maí 1963
13