Tíminn - 13.06.1963, Blaðsíða 5
'U' m f u- R |1 ■ ÍÞRÖTTIR aa • |
RITSTJÓRI HALLUR SÍMONARSON
M.I. IFRJALS-
IÞRÖTTUM
Dagana 22. og 23. júní n.k. verð
ur halchn tugþrautarkeppni Meist
aramóts ísiands í frjálsum íþrótt-
um 1963. Einnig verður keppt i
10 km hlaupi og 4x800 m. boð-
hlaupi.
Frjálsíþrottasamband íslands á-
skilur sér 'étt til þess að láta fara
fram að auki, ef þörf krefur vegna
i,als í landslið vegna landskeppn-
innar við Dani 1. og 2. júlí n.k.
aðrar greinar eða greinar, sem
íalla undir ofansagt.
Þátttokunlkynningar skulu hafa
norizt í pósthólf 1099, í síðasta lagi
timmtudagJnn þ. 20. júní.
Tæp 6 þús.
íiafa synt í
Reykjavík
Hafnarfjörður efstur
í ínnbyrðiskeppni
Norræna sundkeppnin hefur nú
staðig yfir í 4 vikur og hefur þátt-
taka verið mikil. í Reykjavík hafa
synt 5840 manns; 2630 í Simdhöll
inni; 1670 í Sundlaugunum og
1540 í Sundlaug Vesturbæjar.
í sambandi við sundkeppnina
fer fram keppni milli Reykjavík-
ur, Akureyrar og Hafnarfjarðar,
og hafa nú synt á þessum stöðum:
Hafnarfjörður
Akureyri
Reykjavík
790 eða 10,5%
815 — 9,0%
5840 — 8,0%
í síðustu keppni sigruðu Akur-
eyringar og nam þátttaka þeirra
24,9% (2094 manns); Hafnarfjörð
ur 21,9% (144J5 manns) og Reykja
vík 18,4% (12.778 manns).
SUNDMÓT KR fór fram í blíðskaparveðri á laugardaginn i
Sundlaug Vesturbæjar — og áhorfendur voru með flesta mótl,
eða um 700 talsins. Gárungarnlr ræddu um þaS sin ð mtlli,
að loksins værl fundin lausn á hinu sífellda vandamáli, aS
sundmót dragi ekki áhorfendúr aS — og lausnln væri ein-
faldlega sú, að hafa fegurðardrottningar vlðstaddar, þegar
sundmótin fara fram. Þetta gerðu KR-lngar á laugardaginn
og áhorfendur létu sig ekki vanta. Myndirnar til hliðar tók
Ijósmyndari TÍMANS, GE, af fegurðardroftningu ísiands,
Thelmu Ingvarsdóttur, og er hún aS sýna nýjustu baSfatatízku
á laugarbökkunum.
G.R.
2T0 firmu taka þátt í keppnircni eg verða
úrslitaleikirnir í lok þessarar víku.
19. firmakeppni Golfklúbbs
Reykjavíkur er hafin og létu
270 firmu skrá sig til keppn-
innar. Hin mikla þátttaka sýn
ir greinilega, að golfíþróttin
á vaxandi gengi að fagna. Að
þessu sinni námu þátttöku-
gjöld um 100 þúsund krónum
og renna þau beint í bygging
arsjóð nýja golfskálans. Fyrsta
umferð keppninnar (undan-
keppni var fyrst háð), fór
fram á sunnudaginn og eftir
hana voru sextán firmu eftir.
Önnur umferðin hefur nú líka
farið fram og keppa átta firmu
til úrslita.
Eftirtalin firmu leika til úr-
slita. — (Kylfingar í sviga fyr-
ir aftan nafn hvers);
Mars Trading Company (Jóhann
Eyjólfsson);
Rcgnboginn s.f., verzílun (Gunnar
Þorlefsson);
Þvottanúsið Bergstaðastræti 52
(Albert Wathne);
Verzlunin Þróttur (Ingólfur
Isebam);
Framhdld á 13. slðu.
Verðlaun fyrir skíðamót / vetur
Á uppstigningardag efndi
Skiðaráð Reykjavíkur til kvöld
vöku í Klúbbnum við Lækjar-
teig og voru afhent verðlaun fyr
ir skíðamót, sem haldin hafa
verið á síðast liðnum vetri. —
Verðlaun voru afhent fyrir
Stórsvigsmót Reykjavíkur, Svig
mót Reykjavíkur, Stefánsmót
og Steinþórsmót — og enn frem
ur afhent verðlaun fyiir innan
félagsmót ÍR.
Þórir Lárusson, form. skiða-
deildar KR, baug gesti vel-
komna og gaf síðan Ólafi Þor
steinssyni, Ármanni, orðið. —
Ólafur flutti snjalla hvatningar
ræðu til skíðamannanna — og
afhenti þar næst verðlaunin.
Á kvöldvökunni flutti Valdi-
mar Örnólfsson skemmtilegt er-
indi um skíðaæfingar í Kerlingr
fjöllum og sýndi kvikmyndir
þaðan og frá ýmsum skíðamót-
um — og m.a. var frumsýnd
kvikmynd, sem tekin var í Nor
egsferð reykvískra skíðamanna.
— Stigin var dans og voru gest
ir kvöldsins, sem voru eins
margir og húsrúm leyfði, sam-
mála um, að kvöldvakan hefði
tekizt með ágætum.
KR RVIKUR-
MEISTARI I
1. FLOKKI
KR-ingar eru Reykjavíkurmeisl
arar í knattspyrnu í 1. flokki. Þeii
sigruðu Fram í úrslitaleik á Meh
vellinum í fyrrakvöld með 2:0. —
Ekki var leikurinn tilþrifamikil
eða ilshár þótt í báðum liðurr
væru reyndir meistaraflokksmenn
í hálfleik var staðan 1:0. —■
í síðarj hálfleiknum bættu KR
ingar svo öðru markinu við, þrátl
fyrir að Fram hafi átt mest allar
sóknarleikinn.
í BLAÐINU í gær var sagt frá verðlaunaafhendingu fyrir drengja-
flokk og stúlknaflokk á Skarðsmótinu, sem haldið var um hvíta
sunnuna. — Á myndinni að ofan sést Lárus Jónsson, Skíðafél
Reykjavíkur með hinum ungu sigurvegurum, sem eru Eyþór Har
aldsson, Tómas Jónsson og Lilja Jónsdóttir — öll úr ÍR. Á myndin
vantar Jóhönnu Helgadóttur og Marteln Kristjánsson frá Siglu
flrði.
Á myndinni sést Ólafur Þorsteinsson sfhenda Þorbergi Eysteins
synl verðlaun fyrir unna slgra í svigi og stórsvigi.
— -- - - - - ■
V
TÍMINN, fimmtudaginn 13. júmí 1963
5