Tíminn - 12.07.1963, Side 2
HVERRI KVÆN-
IST HARALDUR?
HARALDUR krónprins í Noregi, hefur aldrei reynt að draga neina dul á hið nána sam-
band sitt við kaupmannsdótturina, Sonju Haraldsen, og nú virðist vera kominn tími til að
hann ákveði sig. Getur það verið, að hann bindi endi á konungsvaldið í Noregi, með því að
giftast stúlku af borgaraættum?
Son|a og Haraldur, — fær hann aS gera hana að drottningu sinni.
ÞAÐ eru alltaf einhver vand-
kvæði á því, a8 fá kóngafólkið
til að giftast innbyrSis, og furð-
ar víst engan á því, þegar tekið
er tillit til fæðar þess, skyld-
Ieika og jafnvel úlits. Hver prins
inn og prinscssan cftir aðra hef-
ur gifzt almennum borgara og i
flestum löndum er fólk hætt að
kippa sér upp vift það. En það
gegnir dálítið öðru máli í Nor-
egi, þar sem hætta er á því, að
konungsvaldið leggist niiður, ef
Haraldur krónpnins kvænist ekki
konungborinni stúlku.
Engin drottning hefur ríkt í
Noregi síðustu 25 árin, eða síð-
an Maud drottning lézt í nóvem-
ber árið 1938. Martha krónprins-
essa tók að sér opinberar skyld-
ur drottnmgar við hlið Hákonar
gamla, og Norð'menn litu á hana
sem drottningu, þó að hún væri
aldrei sæmd þeirri nafnbót. Eftir
lát krónprinsessunnar, árið 1954,
varð hin 22 ára gamla Astrid
prinsessa, að taka að sér em
bætti æðstu konu landsins, þar
sem Ragnhild systir hennar, sem
er tveimur árum eldri, hafði árið
áður gifzt skipamiðlara í Suður-
Ameríku
En eftir sjö ára biðtíma, rætt-
ust loks draumar Astrid, og hún
giftist Johan Marlin-Ferner, og
síðan þá, hefur svo mikið oltið á
því, hverri Haraldur kýs að kvæn
ast. Það er ekki langt síðan, að
búizt var við því, að Haraldur
mundi opinbera trúlofun sína. Og
því tók enginn það mjög nærri
sér, að Astrid skyldi giftast al
mennum borgara, því að búizt
var við því, að Sophie, Grikk-
landsprinsessa mundi taka við
af henni, en svo giftist hún, og nú
binda flestir vonir sínar við
yngri systur hennar Irene.
UNG OG ÁSTFANGIN.
Haraldi fannst ekkert liggja á,
og Sophia giftist Don Juan Car-
los, Spánarprinsi. Rétt eftir það
byrjuðu útlend blöð að gefa það
i skyn, að norski prónprinsinn
væri þegar trúlofaður, og loksins
þegar eitthvað birtist um þetta
í norsku blöðunum, var það til
þess að bera til baka frétt, sem
birtist í sænsku blöðunum um
það, að prinsinn væri ákveðinn
í að trúlofast Osloarstúlkunni.
Síðan þá hafa þau skötuhjúin
ekki haft mikinn frið. Þau hafa
samt aldrei reynt að leyna kunn-
ingsskap sínum, og meðal vina-
fólks þeirra í Oslo hefur vitn-
eskjan um kynni þeirra lengi
verið fyrir hendi. Þau hafa
þekkzt í mörg ár, og haga sér á
allan hátt eins og hvert annað
ungt og ástfangið fólk. Það dett-
ur engum í hug, að bjóða öðru
þeirra heim, án þess að bjóða
hinu með, flestjr hugsa með sér,
þau eru svo ung enn þá, það er
bezt að leyfa þeim að njóta ást-
arinnar, skyldurnar kalla hvort
sem er nógu fljótt.
En erfiðleikarnir virtust að-
eins verða til þess, að styrkja ást
þeirra, og fáir ,munu gera sér.
Ijóst, hve hart hefur verið geng-
ið að prinsinum, til að fá hann
til að yfirgefa Sonju. En það er
opinberlega vitað, að Ólafur kon
ungur hefur borið þetta vanda
mál bæði undir ríkisstjórnina og
háttsetta lögfræðinga. í lögum
Noregs scendur ekkert um það.
að ríkisarfinn megi ekki ganga
að eiga mann eða konu af borg
araættum, en það er tekið fram
að konungurinn verði að leggja
blessun sína yfir giftingu hans
En eins og stjórnmálaástandið ei
í Noregi í dag, mun konungurinn
aldrei viðurkenna borgaraborna
eiginkonu sonar síns, án samþykk
is ríkisstjómarinnar.
Ef litið er hlutlaust á málið,
er erfitt að gera sér ljóst, hvers
vegna það ætti að vera betra fyr
ir Noreg að fá útlenda krónprins
essu, heldur en vel gefna og lag-
lega stúlku, sem krónprinsinum
þykir raunverulega vænt um. —
Þar sem ekkert aðalsfólk er i
landinu, ei greinilegt, að drottn-
ingin verður útlend, ef hún á að
vera konungborin.Enliklega verð
ur Haraldur að leita lengi, ,ef
hann á að finna stúlku, sem er
betur til þess fallin, að vera Nor-
egsdrottning, en þessi unga kaup
mannsdóttir.
GLÆSILEG STÚLKA.
Sonja Haraldsen er glæsileg
stúlka, há, lagleg og ljóshærð, og
þó að hún sé ekki nema 25 ára
gömul er hún þegar mikill per-
sónuleiki. Engin af evrópisku
prinsessunum getur státað af
betri menntun en hún, því að
Sonja hefur margt annað til að
bera, en blá augu og fallegan
vöxt. Hún tók mjög gott stúd
entspróf, og öðru hverju hjálp-
ar hún tii í stórverzluninni, sem
fjölskyldan á við „Stogaten", og
þangað sækir Haraldur hana oft
eftir vinnu á kvöldin.
Að loknu stúdentsprófi fór
Sonja í háskólann og lauk þaðan
góðu prófi í latínu, og ætlaði sé"
síðan að leggja stund á málvi?
indi, en um það leytí var tala*
svo mikið um hana, að hún dró
sig í hlé ug fór i húsmæðraskóla
■ úthverfi Osloborgar, Þar af
mki hefnr hún stundað frönsk'i
rám í Frakklandi og enskunám
Snglandi. þar sem hún útskrií
aðist einmg sem vatnaskíðakenn-
ari.
FJÖLSKYLDAN ER EKKI
HRIFIN.
Sonja er alin upp á góðu og
rólegu heimili. Faðir hennar, sem
vann sig upp úr fátækt, er látinn,
en fjölskyldan rekur fyrirtækið
áfram. Sonja býr ásamt móður
sinni í Oslo og er Haraldur kær-
kominn gestur á heimili þeirra,
en aðeins sem náinn vinur Sonju,
þannig vili fjölskyldan hafa það,
Allir vinir hennar og kunningjar
hafa varað hann mjög við þess-
um kunningsskap, en Sonja hef-
ur látið það eins og vind um eyr-
un þjóta. Hún er ung og hraust
og vill borga fyrir ást sína, þó að
það sé dýr borgun. En þrátt
fyrir það hafa erfiðleikar siðustu
ára komið hart við hana, og
stundum er hún mjög hlédræg,
og á eifitt með að halda aftur af
tárunum.
Álitið var, að gert mundi vera
út um þetta mál í eitt skipti fyr-
ir öll síðasta haust, og Haraldur
mundi sjá sig nauðbeygðan til
að hlýða kalli skyldunnar, en svo
varð þó ekki. Margir hafa reynt
að skella sökinni á Sonju, en það
er algjörlega rangt, hún hefur
aldrei reynt að hafa nein áhrif
á hann. Hver svo sem endirinn
á þessu verður, þá verður hann
alltaf léttir fyrir alla aðila. Ef
norska þjóðin getur ekki unnt
Haraldi þess, að ganga að eiga
stúlkuna sína, þá er það ekki
eina vandamálið að velja á milli
hennar og lands síns.
Það vai er ekki svo erfitt nú
á dögum, því í nútíma þjóðfélagi
er svo sem ekkert skemmtilegt
að vera konungur. Nei aðalvanda-
málið er það, að ef hann tekur
Sonju fram yfir skyldur sínar
gagnvait landinu, þá bindur
hann um leið endi á konungsvald
ið í Noregi, þar sem ekki er um
annan ríkisarfa en hann að ræða,
og republikönum mun um leið
verða opin leíS í stjórn lands-
ins. Þáð þarf styrka skapgerð til
að gera slíkt, — og sterka
kbnu, sem þarf að ganga í gegn
um það með honum.
Kunnugir segja, að Sonja muni
hafa styrk til að standast þá raun,
og hún muni einnig bera vel þá
sorg, ef hún verður að' gefa prins-
inn sinn iausan, og jafnvel kraft
til að hjálpa honum yfir erfiðasta
skrefið, Hún heldur sig mikið i
skugganum sem stendur, og það
væri óskandi, að þau gætu gift
sig öllum að' meinalausu. í hinu
ævagamla keisaraveldi, Japan, er
keisaraynjan malaradóttir, Farah
Diba, keisaraynja í íran var
fyrir nokkrum árum venjulegur
nemandi við háskólann í París.
Ættj það þá að vera svo voðalegt
ef tilvonandi konungur Noregs
gengi að eiga, fallega, skemmti-
lega, vel gefna, norska stúlku,
sem tilheyrir því fólki, sem
norska konungsfjölskyldan um-
gengist, rlku kaupmannsfólki.
! Sérleyfisferðir
Daglegar ferðir til Laugavatns.
i Tvær ferðir á föstudögum,
! laugardögum og sunnudögum.
Alla daga til Gullfoss og Geysis.
Ferðir um Selfoss, Skeið, Hruna
mannahrepp.
B.S.Í., sími 18911.
Ólafur Ketálsson.
Múgavél
íotnð, óskast keypt.
ini Nmstanfi 'i«- Brúar-
íand.
Húsnæðisþingið
Norræna húsnæðismálaþinig-
ið í Reykjavík hefur vakið verð
uga athygli, einkum eftir upp-
lýsingar þær, sem formenn
húsnæðismálastjóma Dainmerk-
ur, Noregs og Svíþjóðar bafa
gefið um ástand húsnæðismá’.a
í löndum sínum oig þau kjör,
sem almenningur þar á við að
búa í sambandi við íbúða-
húsabyggingar. Af þeim upp-
lýsingum er Ijóst, að Iánskjör
í þessum löndum borið saman
við lánskjör hér á landi eru
eins og hvítt og svart. Svo gíf-
urlega Iargt stöndum við að
baki frændum okkar á Norður-
löndum í þessum málum.
Langf á undan
f Svíþjóð fá menn húsbygg-
ingarlán, sem nema frá 85—
100% byggingarkostnaðarins,
og þessi 'lán eru til 40 og allt
upp í 60 ára með lágum vöxt-
um.
í Danmörku nemia húsbygg-
ingarlánin frá 75—94% bygg-
ingarkostnaðarins, og eru lánin
frá 40—60 ána og vextir lágir.
Danir leggja áherzlu á bygg-
ingu einbýlishúsa oig er nú
60% af íbúðum, sem byggðiai
eru, einbýlishús eða naðhús.
Framkvæmdastjóri norskn
húsnæðismálastjórnarinnar
sagði, að auðvelt væri að fá lón
til íbúða bygginga | Noregi, en
þó verður fólk að leita á frjáls-
an láinainarkað til þess a8 út-
vega nokkurn hluta fjárins. —
Sagði fnamkvæmdastjórinn að
menn þyrftu ekki að hafa hand
bærar nema sem svaraði ‘ um
100 þús. ísl. króna til viðbótar
við það, sem húsnæðisbankarn.
ir lána, til þess að geta eignazt
einbýlishús.
Ólíkt höfumst við að
Af þessari stuttu upptaln.
ingu er öllum Ijóst, hve gífur-
Iegur munurinn er á aðstöðu
fólks til að eignast íbúð hér á
landi og á hinum Norðurlönd-
unum. Hér fá menn ekki einu
sinni 30% byggingarkostnaðar.
ins lánaðan og þessi lán eru
til mun styttri og f mörgum til-
fellum margfalt styttri tíma, og
vextir var að auki miklum
mun hærri en á Norðurlöndum.
Þetta norræna húsnæðismála
þimg er því sem rassskellur á
stjóm húsnæðismálanna hér á
landi, ekki sízt á formann hús-
næðismáiastjórnar, sem fyrir
nokkrum vikum taldi allt í
himnalagi í húsnæðismálunum
hérna og ástandið aldrei verið
betra í þeim málum en nú.
„Sérstaks álits
ekki þörf“
Þeis9a sömu skoðun staðfestir
svo ríkisstjómin í þjóðhags- og
framkvæmdaáætlun sinni, en
þar segir orðrétt á bls. 30:
S „NÚ ER HINS VEGAR SVO
1 KOMIÐ, AÐ HIÐ MIKLA HÚS-
1 NÆÐISVANDAMÁL, SEM
FYRIR LÁ f LOK STYRJALD-
IARINNAR, ER í AÐALATR-
IÐUM LEYST OG SÉRSTAKS
ÁTKS f HÚSNÆÐISMÁLUM
AF ÞVf TAGI, SEM GERA
VARÐ Á SfÐASTLIÐNUM
. ÁRATUG, ER EKKI LENGUR
i ÞÖRF.“ — Að áliti ríkisstjóm-
arinnar er ástandið sem sagt
i ágætt og engin ástæða til að
1 jafna munimn, sem er á að-
stöðu fólks til að koma sér upp
íbúð á íslandi og á hinum Norð
urlöndunum. — Svo leyfa þess.
ir herrar sér að koma í útviarp
a, Framhald á 15. $ISu.
i
2
T í M I N N, föstudagurinn 12. júlí 1963. — i