Tíminn - 12.07.1963, Side 7
'IP <$■
Útgefsndl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason — Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Heliason og Indriði
G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Frétta-
stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón Davíðsson.
Ritstjórnarskrifstofur í Eddu húsinu, símar 18300—18305. Skrif
stofur Bankastr. 7. Afgr.sími 12323. Augl., sími 19523 Aðrar
skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjald kr. 65.00 á mán. innan-
lands. í lausasölu kr. 4.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f —
Akvæðisvinna
í NÝJU hefti af Iðnaðarmálum, riti Iðnaðarmála-
stofnunar íslands, er skýrt frá þvi, að Iðnaðarmálastofn-
unin hafi látið gera athugun á hagkæmni aukinnar
ákvæðisvinnu. Athugun þessa gerði Þórir Einarsson við-
skiptafræðingur og stóð hún yfir frá því í júní 1961 og
fram í apríl 1962. Á þessum tíma var leitað upplýsinga
hjá fjölmörgum aðilum og áherzla iögð á samvinnu við
samtök launþega og atvinnurekenda. Samkvæmt frásögn
Iðnaöarmála var helzta niðurstaðan þessi:
,,Að fengnum ábendingum samtaka launþega og
atvinnuveitenda var tekið það ráð að takmarka athug-
unina við samgöngur, byggingarstarfsemi og eftirfar-
andi helztu greinar iðnaðar: matvælaiðnað, vefjariðnað,
skó- og fatagerð og framleiðslu á öðrum tilbúnum fatn-
aði, trésmíði á verkstæði (innréttingar) og húsgagna-
smíði, kemískan iðnað, málmsmíði, smíði og viðgerðir
flutningatækja.
Ekki reyndist kleift að ákv’eða útbreiðslu ákvæðis-
vinnunnar með tölulegri nákvæmni Þó varð niður-
staðan sú, að óvarlegt virtist að áætla heildarútbreiðslu
ákvæðisvinnunnar í ofangreinduir greinum yfir 10—
15% af öllum starfsmannafjöldanurn.
Hin tæknilegu skilyrði til frekari útbreiðslu reynd-
ust góð, og ætti að vera auðvelt aö tvöfalda núverandi
útbreiðslu, án þess að framleiðsluhættir setji henm
alvai'legar skorður.
Sú aukning er þjóðhagslega hagkvæm og æski-
leg miðað við ríkjandi markmið í efnahagsmálum, þar
sem hún leiðir bæði til lækkaðs framleiðslukostnaðar
fyrirtækja og hærri raunverulegra tekna launþega
Það, sem háir frekari útbreiðslu ákvæðisvinnutil-
högunarinnar í dag og betri skiuan hennar á vinnu-
stöðum, þar sem hún hefur þe.ga1 verið tekin upp, er
kunnáttu- og öryggisleysi um alla framkvæmd hennar.
Hagsmunasamtökin þurfa að nafa komið sér sam-
an um skvrar og nákvæmar reglur um hegðun félags-
manna sinna, þegar ákvæðisvinnu er komið í kring.
Stefna ríldsvaldsins til eflingar ákvæðisvinnu þyrfti
að miða að því, að tæknifræðsla ríkisins sjái um að
mennta sérfræðinga í framkv’æmd á ákvæðisvinnu-
kerfum og í almennri vinnuhagræðingu11.
í frásögn Iðnaðarmála kemur það að öðru leyti
ir am. að í fiskiðnaðinum er ákvæðisvinna aðallega við
síldarsöltun og fiskþvott. Eftir að umrædd athugun var
gerð, munu þó nokkur frystihús haía tekið upp tímaat-
huguð ákvæðisvinnukerfi. í vefjariðnaðinum hefur á-
kvæðisvinna rutt sér mest til rúms í gólfteppa- og dregla-
gerð. Einnig nokkuð í hampiðju, netagerð og netaviðgerð-
um. í ullariðnaðinum eru möguleika’’ ákvæðisvinnu taldir
takmarkaðir vegna vélanotkunar, er ákveður hraða vinn-
unnar. í skó- og fatagerð er ákvæðisvmna algeng, einkum
í i'atagerð, enda auðvelt að koma henni við þar. í bygging-
arstarfsemi er ákvæðisvinna orðið útbreidd, einkum hjá
málurum, dúklagningarmönnum, múrurum, veggfóðrur-
um og húsasmiðum.
Yfirleitt virðist niðurstaðan sú, að ákvæðisvinna liki
vel, þar sem hún hefur rutt sér til rúms, jafnt af laun-
þegum og atvinnurekendum. Hins vegar er ljóst, að henni
verður ekki komið á, nema með góðum undirbúningi og
samkomulagi milli atvinnurekenda og starfsfólks. Þar
svrandar viða á nægri leiðsögn sem eðlilegt væri að
tíkisvaldið léti í té. Því máli þarf að gefa miklu meiri
gaum en hingað til.
Eshkol er snjall samningamaður
Ólíklegt er þó, að hann fái Nasser tíl að semja við sig.
MARGT bendir til þess, að
Ben-Gurion hafi valið réttan
tíma til að leggja niður völd
og draga sig í hlé. Seinustu
misserin hefur andstaða gegn
honuim farið vaxandi, ekki sízt
meðal yngri manna í flokki
hans. Þeir hafa talið hann vera
of ráðríkan og gera hlut yngri
manna í flokknum of lítinn.
Ferili hans hefði getað endað
lí'kt og ferill Adenauers, sem
hefur verið neyddur til þess að
fara frá, ef hann hefði dregið
ölilu lengur að gera það sjálf-
viijugur.
VaPð á eftirmanni Ben-Guri-
on hefði vel getað leitt til átaika
milli eldri og yngri manna í
flokknum eða rnilli gömlu kyn-
slóðarinnar, sem stóð að stofn-
1 un ísraelsríkis, og ungu kyn-
slóðarinnar, sem hefur vaxið
upp síðan, ef ekki hefði verið
til maður, sem gat brúað biiið
milli þessara kynslóða. Þessi
rnaður var Levi Eshkol fjár-
málaráðherra, sem nýlega hef-
ur lokið myndun nýrrar ríkis-
stjórnar. Hann tilheyrir gömlu
kynslóðinni, en hefur öðrum
fremur unnið að því að vinna
að framgangi hinna yngri
manna. Báðar kynslóðirnar gátu
þvi sætt sig við hann. Auk þess
hefur hann það sér til ágætis'
að vera talinn bezti pólitíski
samningamaður í ísrael. Það er
nauðsynlegur kostur, þar sem
erfilt er að mynda meirihluta-
stjórn. án samstarfs fjögurra
Iflokka. Þótt jafnaðarmanna-
flokkur Ben-Gurions og Eshk-
ols, Mapai, sé stærstur, vantar
talsvert á, að hann hafi meiri-
hluta.
Samningahæfni Eshkols má
nokkuð marka á því, að í þing-
kosningunum 1961 tapaði
Mapai, og Ben-Gurion tókst
ekki stjórnarmyndun fyrst á
eftir. Hann gafst þvi upp og
forsetinn fól Eshkol þá stjórn-
armyndun. Eshkol tókst að
mjmda stjórn eftir ellefu vikna
þóf. en kom því síðan þannig
fyrir, að Ben-Gurion tók þá
LEVI ESHKOL
aftur við stjórnartaumunum.
Án þessarar milligöngu Eshkols
hefði Ben-Gurion ekki orðið for
sætisráðherra aftur.
LEVI ESHKOL er eins og.
Ben-Gurion fæddur í Úkraínu.
Ilann fæddist í þorpi, sem er
skammt frá Kiev, 10. október
1895. Hann fluttist til Palestínu
1913 og gekk nokkru síðar í
Gyðingahersveitina, sem barð-
ist með Bretum í fj'rri heims-
styrjöldinni. Eftir stj'rjöldina
varð hann fyrst landbúnaðar-
verkamaður og tók þátt í stofn
un fyrstu srmvinnubúsins í
Palestínu. Síðar varð hann
starfsmaður verkalýðssamtak-
anna.ri tari Mapai-flokksins. og
fulltrúi á ýmsurn alþjóðamót-
um Gyðinga. Hann vann sér
brátt mi'kið álit sem ötull starfs
maður og mikill samningamað-
ur. Um það leyti sem Hitler tók
völdta í Þýzkalandi, var Eshkol
staddur þar og var honurn þá
falið það verkefni að fá þýzka
Gyðinga til að flytja sem mest
af fjármagni til Palestínu, m.a.
á þann hátt, að kaupa landbún-
aðarvélar í Þýzkalandi, senda
þær síðan til Palestínu og fá
andvirðig lagt í banka þar. Naz
istar stöðvuðu þetta og viku
Echkol úr landi. Hann tók síðan
virkan þátt í skæruliðahreyf-
ingu Gyðinga í Palestínu. Eftir
að ísraelsriki var stofnað 1948,
voru honum falin ýmis mikil-
væg trúnaðarstörf, unz hann
varð landbúnaðarráðherra 1951.
Ári síðar varð hann fjánmála-
ráðherra o.g hefur verið það
samfleytt síðan. Honum hefúr
jafnan gengið vel að fá fjárlaga
frumvörp sín samiþykkt, þótt oft
hafi ha-nn þurft að hækka
skatta. Þegar deilur hafa risið
hátt í ftókki hans eða milli
stjórnarflokkanna, hefur jafn-
an verið Ieitað til hans til sátta
gerðar. Ben-Gurion hefur hins
vegar aldrei verið góður sátta-
semjari, því að til þess hefur
hann verið of einráður. Það hef
ur því verið mikilsvert fyrir
hann að hafa eins góðan sátta-
semjara við hlið sér og Eshkol.
ESHKOL hefur lýst yfir því,
að hann muni í öllrm meginat-
riðum fylgja fram stefnu fyrir-
rennara síns. Líklegt þykir þó,
að hann muni ganga lengra til
móts við Araba en Ben-Gurion,
eins og sést á því, að hann
hefur látið í ljós ósk um að
geta rætt við Nasser. Vafasamt
er, að hann fái þá ósk uppfyllta.
Hann vill eins og Ben-Gurion
bæta sambúðina við Þjóðv. og
áréttaði það nj'lega á þann veg,
að hann var gestgjafi Franz
Josef Strauss, fvrrv. landvarna-
ráðherra Vestur-Þýzkalands, er
hann dvaldist í ísrael. Það
heimboð sætti talsverðri gagn
rýni i blöðum þar.
Þeir Ben-Gurion og Eshkol
hafa jafnan verið nánir vinir
og samherjar, og mun Ben-Guri-
on fremur hafa kosið hann eftir
mann sinn en no'kkurn annan.
Eshkol er ekkjumaður og
býr einsamall, þótt hann eigi
fjórar uppkomnar dætur.
J?ví er yfirleitt snáð, að Eshk-
ol verði ekki lengi forsætisráð-
herra, heldur líti t hann á það
sem hlutverk sitt að búa yngri
menn undir það að taka við
foru'stunni í ísrael. Þ. Þ. Sb
Gott er að hafa tungur tvær
Gengisbreytingin illræmda 1960
kom iUa við marga, en þó enga
eins og námsmenn, sem hafið
höfðu nám erlendis. Þetta var við-
urkennt af öllum og reyndu vald-
hafar og lagasmiðir að bæta úr
með auknum námsstyrkjum og
námslánum. Til enn frekari árétt-
ingar var svo við setningu laga ucn
tekjustofna sveitarfélaga 1962 sett
ákvæði um að tekið skyldi tillit til
námskostnaðar barna, yfir 16 ára
aldri, við álagningu úsvara. Af
þessu hvoru tveggja var gumað
í ræðu og riti, þótt skammt vægi
á móti auknum námskostnaði.
En hvað segir hin tungan, fram-
kvæmdirnar? Ég ætla að segja hér
frá þætti skattayfirvalda í Reykja-
vík og viðhorfum þeirra:
Stúl'ka hefur nokkur undanfarin
ar dvalið í fjarlægu landi við dýrt
háskólanám, þar af tæplega tvö
ár án þess að koma til íslands, þar
sem ferðakostnaður er hár sökum
fjarlægðar. í vor kom hún þó
he:m í sumarleyfi og ætlaði að
vera tæplega tvo mánuði Hún hef-
ur ekki haft tækifæri 141 tekjuöfl-
unar erlendis og hefur því ekki
verið lagt á hana tekjuútsvar eða
tekjus'kattur. Tryggingargjöld o.fl.
var á hana lagt, en eins og með
aðra, sem engar tekjur hafa og
engar eignir, ber borgarsjóði að
greiða þessi gjöld með endurkröfu
rétti. Þennan endurkröfurétt heí'ur
Reykjavíkuirbær ekki notað sér
fyrr en þetta og s.l. ár. Nú fær
stúlkan ekki að kaupa farseðil eða
áritað vegabréf nema með leyfi
Gjaldheimtunnar og var farið frám
á það við hana, að endurkröfurétt-
urinn yrði ekki notaður að sinni,
eða þar til námi væri lokið. Gjald
heimtustjóri vildi hins vegar ekki
sinna öðru en fullri greiðslu eða
að þriðji fullgildúr aðili tæki á
sig greiðsluskylduna með ábyrgð.
Nú eiga flestir nóg með sín eigin
opinberu gjöld, þó að þeir taki
ekki á sig að greiða gjöld annarra,
og gæti því svo farið, ef þessi
þriðji aðili fyndist ekki, að stúlkan
kæmist ekki úr landi. En hvað þá
með föður stúlkunnar, sem kostað
hefur hana til náms utnfram náms
lán og -styrki (um helmingur kostn
aðar) ? Hann fær þetta væntanlega
eins og annan sannanlegan kostnað
dreginn frá útsvarsskyldum tekj-
um. Nei, Þrátt fyrir að lagaákvæði
gera ráð fyrir því.
f lögum um tekjustofna sveitar
félaga nr. 69/1962 stendur:
„Lækka skal útsvör gjaldenda . . .
þegar eftirtaldar ástæður eru
fyrir hendi: . . . . c Uppeldis- og
menningarkostnaður barna þeirra,
sem eldri eru en 16 ára, sem þeir
annast greiðslu á“. í samræmi við
þetta taldi faðirinn fram þessi
gjöld, og var ekki vefengt, að rétt
væri, enda sannanlegt, en einung-
is Va hluti var tekinn ttt greina,
og við kæru tU ríkisskattanefndar
var úrskurðað. að óbreytt skyldi
standa, þar sem. „Ríkisskattanend
lít'Ur svo á, áð það sé matsatrlði,
hve mikið tillit er tekig UI upp-
eldis- og tnenningarkostnaðar“ —
M.ö.o. framtalsnefnd getur tekið
jafnlítið tilltt til námskostnaðar
barna og henni sýnist. Við álagn-
ingu útsvars í vor notfærði hún
sér svo þennan úrskurð þannig
Fremhald á 13. sfðu.
T í M I N N, föstudagurinn 12. júlí 1963.
7