Tíminn - 25.07.1963, Blaðsíða 15
ísienzk kona frá Florida sýnir í Mokka
GB-Reykjavík, 24. júlí.
Ný málverkasýnng er byrjuð i
Mokka-kaffi við Skólavörðustíg, og
að bessu sinni myndir frá Florida
efUr ísl-enzka konu, sem þar er bú-
sett, Ásu M. Gunnlaugsson (frá
Vestmannaeyjum).
Ása fór til Bandaríkjanna fyrir
sautján árum til að' læra teikningu,
einkum fyrir auglýsingar. En það
varð henni töf á heimleiðinni, að
hún hitti þar ungan landa sinn,
Björn Gunnlaugsson, son Gunn-
laugs Illugasonar, sem var einn í
hópi hinna íslenzku togarasjó-
manna í Boston. Er ekki að orð-
lengja það, a-ð þau giftust, Ása
og Björn. Hann lagði líka fyrir
sig sjómennsku, hefur mörg ár
verið stýricnaður á olíuskipi Esso-
félagsins, settist að í bænum Fort
Lauderdale í Florida, og siglir
KVÖLDSALAN
Framhair aí 16 síðu
þrjár verzlanir, sem gerzt hefðu
brotlegar á þennan hátt, en sann'
anir skorti. Telur félagið sunnu-
dagsverzlun brot á lándslögum og
samningum við V.R. Sagðist Guð-
•mundur ekki hafa frétt af málinu,
síðan mótmælin voru send Kaup-
mannasamtökunum.
—- Það er ekki rétt, sem haft
er eftir mér í Vísi í dag, sagði
Guðmundur, að við höfum mót-
mælt kvöldsölu.. Við erum ekkert
á móti kvöldsölu, enda eru sér-
stakir samningar á milli V.R. og
söluturnaeigenda um vinnutíma og
við teljum kvöldsöluna heyra
undir pá samninga. Það er sunnu-
dagsverzlunin, sem við mótmælum
harðl'ega.
SVALLVEIZLUR
Franihaiu af bls. 3,
ið að, sagði, að við fyrstu heim
sóknir sínar í íbúð Wards hefði
hún háft samfarir við hina og.
þessa menn, en brugðið út af
gamninu öðru hverju og tekið
að húðstrýkja mennina nakta,
m.a. með hestasvipu og hefði
hún verið klædd undirfötum og
háhæluðum skóm við þessi tæki
færi. Skýrði hún saksók-nara
frá, að hún tæki veniulega 1000
kr. fyrir að leyfa mönnum að
sænga með sér, en um 200 kr.
fyrir hvert svipuhögg.
GÆFTÍR Á VESTFJ.
Framhald af 1. síðu.
sagt frá í blaðinu var afli,
einkum handfærabáta, mjög
tregur vestra fram eftir
sumri, en hann var nokkuð
farinn að batna, áður en
ógæftirnar skullu á, einkum
var aflinn orðinn betri á
Patreksfirði, bæði meiri og
betri f-iskur.
þar meðfrám ströndinni. En kor,-
an, Ása, kveðst hafa tekið upp
á því fyrir áeggjan vinkonu sinn-
ar, að byrja að mála, og þar með
voru þær báðar búnar að fá sömu
bakteríuna. Allar myndirnar í
Mokka, hafa verið gerðar á þess-
um tíma — í Florida.
FÉLAGSSTOFNUN
’Frariiha.'- ai 16 'síöu
kaupmannasamtakanna, og héíu
þessir aðdar að reyna að rétta
hlut kvöldsölumanna, ef þeir vildu
fresta félagsstofnun sinni um
hálfan mánuð. Féllust fundarboð-
endur á það. Affalástæðan td félags
■stofnunarinnar var sú, að kvöld-
sölumenn voru nýlega sviptír kvöld
söluleyfi frá 1. okt. n.k.
háskólans
FYR8TA gjöfin til lýðháskólans,
sem kirkjan ætlar að reisa í Skál-
holti, er frá vestur-íslenzkum hjón
um, búsettum í Winnipeg, Guð-
rúnu Grimsdóttur og Ágúst Eyj-
ólfssyni. Guðrún er fædd og upp
alin i bkálholti, dóttir Gríms Ei-
ríkssonar og Guðrúnar Eyjólfsdótt
ur, er har bjuggu og eignuðust
þar 11 börn, en alls voru börn
þeirra fiártán.
Gjöfin, sem er 20 þúsund krón-
ur, er gefin til minningar um
þessi hjón. „Ég minnist foreldra
minna“ skrifar frú Guðrún Gríms-
dóttir, „sem guðrækinna og góðra
foreldra“ Þau bjuggu góðu búi í
Skálholti og komust vel af þrátt
fyrir mikla ómegð, „reyndu eftir
megm að iáta okkur ekki vanta
það nauðsynlegasta". Hið eina, sem
frú Guðrúnu finnst, að hana hafi
skort i uppvextinum, voru bækur.
„Það hefðu verið góðar fréttir á
þeim árum að heyra um skólabygg
ínguna sem nú á að fara að reisa ‘,
skrifar Guorún
Þessi höfðinglega gjöf aldraðra
hjóna, sem dvalizt hafa langan ald
ur vestan hafs, er ánægjuleg og
uppörvandi byrjun á stuðningi,
sem þessi áformaða stofnun á vafa
njóta frá góðum ís-
lendingum
Sigurbjörn Einarsson.
DILKAKJÖT
Framhald af 1. síðu.
kýrkjöti, og hefur það allt farið
til Bandaríkjanna, en mikið er eft-
ir enn, og verða væntanlega seld
ar 100 iestir í viðbót við þessar
50, sem þegar eiu farnar.
Nokkur markaður hefur unnizt
fyrir ærkjöt í heilum skrokkum í
Finnlandi, og hafa 170 lestir ver-
ið seldar þangað, og vonir standa
til, að þangað veiði selt meira í
sumar og haust. Þá er verið að
ganga £rá sýnishornum af kýr
kjöti á sama markað, og er hann
talinn mjög mikilvægur, því nokkr
um erfiðleikum er bundið að út
beina ær og kýrkjöt.
Allar garnir frá síðasta ári hafa
verið seldar og meira að segja lok
ið við fyrirframsölu á 150 þús.
görnum af haustframleislunni, og
fara þær til Finnlands. Einnig er
verið að ganga frá fyrirframsölu
á 400—500 þús görnum í viðbót.
Aðal garnamarkaðirnir eru í Finn
landi, Bretlandi og Ungverjalandi.
og vænzt er til, að garnir veiði líka
seldar til Vestur Þýzkalands.
nýs skófahúss
FB-Reykjavík, 23. júlí.
FYRIR nokkru var tilkynnt að
efnt yrði til hugmyndasamkeppni
um nýjar byggingar fyrir bænda-
skólann á Hvanneyri. Veitt verða
þrenn verðlaun, og skulu teikning-
arnar haía borizt Byggingaþjcnust
unni i Reykjavík eigi síðar en 9.
desember n. k.
Tilgangur samkeppninnar er að
fá fram hagkvæmar lausnir á fyr-
irkomulagi og staðsetningu skólans
að Hvanneyri, þar sem um leið er
tekið tillit til landslags og ann-
arra staðhátta, og allir íslenzkir
arkitekiar. og námsmenn í bygg-
ingarlist nafa heimild til þátttöku
í keppmnm
Æskilegt er, að ekki sé gert
ráð fyrir fleiri en um 20 nem-
endum i hverri svefndeild, og eiga
einhleypir kennarar að geta haft
umsjón með' deildunum. Einnig
skal tekið tillit til þess, að hægt
verði að nota herbergin fyrir sum
argesti. Ekki eru þátttakendurnir
bundnir vií þá heimreið, sem nú
er að lrianneyri og er staðsetning
skólans i'rjáls og ^ömuleiðis arki-
tektoniss uppbygging hans.
Verðlaunin sem veitt verða eru:
1. verðiaun 100 þús. kr., II. verð-
laun 50 þús. kr. og þriðju verð-
laun 25 þus. kr.. en auk þess er
dómnefnd heimilt að kaupa úr-
lausnir 'yrn 30 þúsund krónur ef
astæða pykir til.
Tungumálastríð
í Belgíu
Deilur Flæmingja og Vall'óna í
Belgíu, hafa harðnað að undan-
förn-u. Allmargir Belgar ihafa ný-
lega kært til mannréttindanefnd-
ar Evrópuráðsins vegna reglna
þeirra, sem gilda um það, hvort
franska eð'a hollenzka skuli notuð
við kennslu í skólum, en reglur
þessar eru allflóknar og byggjast
á því, hvernig íbúar skiptast eftir
tungumálum á viðkomandi skóla-
svæði. Kærur þær, sem borizt hafa
eru frá f-ólki, sem býr í nágrenni
Briissel, svo og á svæðunum við
Antwerpen og Ghent. Telja kær-
eftcipr, a^ííjpxnyöJdum sé skylt að
hálda uppi kennslu á frönsku í
héruðum þessum, og krefjast bóta,
þar sem það hefur ekki verið gert.
Þá krefjast þeir þess, að belgískri
löggjöf um tungumálánotkun í
skólum verði breytt, þar sem hún
fái ekki samrýmzt mannréttinda-
sáttmála Evrópu. Mannréttinda-
nefnd Evrópuráðsins mun fjalla
um kærurnar 25. og 26. júlí.
Frétt frá upplýsingadeild
Evrópuráðsins 22/7 1963.
50% HÆKKUN
Framhau ai 16. síðu.
an eru pau sútuð erlendis. Mest
kemur af skinnum úr Breiðafirði
og úr SH-aftafelIssýslum.
Skinnin verða að þessu sinni seld
lil Vestur-Þýzkalands og Danmerk
LEIT A ARNARVATNSHEIÐI
Framhald af 16. síðu
Hefur vistin á heiðinni því verið
Sigríði Jónu köld, en menn gera
sér vonir um, að hún sé í ein-
hverjum kofa á heiðinni, helzt
Hliðskjálf við Arnarvatn, en það
er gamall kofi og lélegur. Er gert
ráð fyrir að Sigríður hafi einmitt
gist í honum á mánudagsnóttina,
ef allt hefur þá verið með felldu.
Flugvél frá Birni Pálssyni, sem
flaug norður á Blönduós í dag,
reyndi að leita heiðina, en gat ekki
vegna þoku.
Avon hjólbarðar
seldir 09 seftir undir
viðqerSir
ÞJÓNUSTAN
Múla við Suðurlandsbraut
Sími 32960.
FB-Reykjavík, 24. júlí.
Lítil sem engin síldveiði var
síð'ast liðinn sólarhring. Vitað var
um 15 skip, sem fengið höfðu á
fjórða þúsund mál og tunnur. —
Fékkst allur sá afli út af Aust-
fjörö'urn, og saltað var þar á nokkr-
um stöðum.
Veður hefur verið rysjótt á síld-
armiðunum fyrir austan að undan-
förnu, hafa skipin legið inni, þar
til þau fóru að tínast út í gær.
Fyrir norðán var engin veiði, og
þar liggur fjöldi skipa í höfn.
Tíu skip komu til Vopnafjarðar
í dag með nokkurn a-fla. Aflahæsta
skipið var með 800 tunnur, en hin
öll með minna. Síldin fór öll til
söltunar. Var hún yfirleitt sæmi-
leg.
í gær lestaði brezkt skip síldar-
lýsi á Vopnafirði. Er þetta það
fyrsta, s-^rn flutt er út af fram-
leiðslu þessa sumars, en skipið
tók 400 lestir af lýsi, og er það
talið ágætt miðað við það, hversu
lítið hefur enn verið brætt á
Vopnafirði.
Þegar við töluðum við fréttarit-
ara blaðsins á Siglufirði í kvöld,
sagði hann að uppstytta hefði verið
þar tvo síðustu klukkutímana, en
annars hefði rignt frá því í gær.
Skarðið er orðið fært aftur, en
annars er lítið um að vera á Siglu-
firði ,og skipin liggja enn inni, og
virðast ekki hafa hugsað neitt til
hreyfin^s.
KULDAKAST
Framhald af 1. síðu.
í byggð og snjókomu á fjöll-
um. Má geta nærri hver á-
hrif sl'íkt veðurlag hefur á
jarðargróður.
Hér sunnanlands hafa
þurrkar fylgt norðanáttinni
eins og venjulega, en kaldur
hefur vindurinn oft verið og
hitinn á nóttunni stundum
farið niður undir frostmark
og niður fyrir það. Hafa hér
sunnanlands orðið skemmd-
ir á kartöflugrasi.
Enn er oft snemmt að
segja til um það, hver með-
alhiti mánaðarins verður,
og við skulum vona, að síð-
ustu dagarnir geri þar brag-
arbót, en Jónas Jakobsson,
veðurfræðingu-r sagði við
blaðið í dag, að ef ekki
brygði fljótlega til hins
betra, væru allar horfur á
því, að þessi mánuður yrði
einn kaldasti júlímánuður
um langt skeið, þótt byrj-
unin hefði verið góð.
ÞREKMÆLINGAR
Framhald af 1. síðu. ,
sem stundi hjólreiðar daglega sé
betur undir slíka prófun búinn en
aðrir. Að vísu kvaðst Benedikt
ekki geta framkvæmt þrekmæling
ar í nægilega stórum stíl, þar eð
hér væri um áhugamennslu að
ræða, en hann sagðist hafa -hu,g
á að leita meira til almennings, til
dæmis á næ-sta vetri, um að koma
til sín í þrekmælingar, svo unnt
verði að fá nákvæmari niðurstöð-
ur.
Til þessa hefur Benedikt ein-kum
þrekmælt íþróttamenn. Erlendis
munu þrekmælingar vera mikið
notaðar í sacnþandi við íþrótta-
þjálfun, og er þá íullt tillit tekið
til þeirrar niðurstöðu, sem af þehn
fást. Eru heil landslið prófuð og
valin eftir slíkum mœlingum.
Benedikt sagði, að meðal íþrótta
manna hér ríkti ekki nægur áhugi
eða skilningur á því gildi, sem þrek
mælingarnar hefðu við þjálfun. Þó
sagði hann, að langhlaupararnir
skildu það allir, og nefndi sem
dæmi, að Kristleifur, hinn mikli
langhlaupari, kæmi reglulega til
sín til þrekmælinga og miðaði
þjálfun sína talsvert við niðurstöð
ur þeirra.
í vetur tók Benedikt nokkur
stikkpróf í menntaskólanum í
Reykjavik og Verzlunarskólanum,
og sýndu þær mælingar sömu nið
urstöður- og Benedikt hafði áður
komizt að, að samanborið við aðrar
þjóð'ir, væru íslendingar afar þrek-
litlir, og ef ekki yrði fljótlega eitt-
hvað gert til úrbóta, yrði það e.t.v.
of seint. Sagði Benedikt, að Banda
ríkjamenn yrðu nú að horfast í
augu við sama vandamálið og við,
þeir væru jafnvel verr á vegi stadd
ir og teldu margir, að þegar væri
orðið of seint að setja undir lek-
ann.
ÓSAMIÐ ENN
Framhal'- ai bís 3.
veldanna tveggja á fundinum.
Talsmaður bandaríska utanríkis
ráðuneytisins, vísaði í dag á bug
orðrómi um, að Kennedy, Banda-
ríkjaforseti, hygðist sjálfur fara
til Moskvu til að undirrita samn-
i.nginn, en ekki vildi t.alsmaðurinn
segja neitt um, hvort Dean Rusk,
utanrikisráðherra myndi fara þang
að sömu erinda.
Þá minntist talsmaðurinn einn-
ig á þá tillögu Krústjoffs, að gera
alla Afriku að kjarnorkuvopna-
lausu svæði, og sagði talsmaður-
i-nn, að Bandaríkjamenn hef'ðu
ekkert á móti slíkri ráðstöfun, svo
framarlega sern einstök lönd, er
mál þetta varða'ði, féllust á ráð-
stöfunina. Þá sagði talsmaðurinn
einnig, að svipuð ráðstöfun gæti
verið heppileg varðandi Suður-
Ameríku, svo framarlega, sem séð
yrði fyrir viðunandi eftirliti.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og samúð við andlát og
jarðarför mannsins míns og föður
EYSTEINS AUSTMANNS JÓHANNESSONAR,
hótelstjóra á Laugarvatni.
Ella Jóhannesson
Sólveig Jóhannesson
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
RUNÓLFS EIRÍKSSONAR,
húsasmíðameis'tara, Hraunteig 19
Fyrir hönd vandamanna
Bragi Runólfsson
Öllum þeim fjölmörgu, fjaer og nær, sem auðsýndu okkur svo djúpa
og ríka samúð og vinarhug við andlát og jarðarfor mannsins míns
og föður okkar
BOGA TH. STEINGRIMSSONAR,
frá Búðardal,
færum við innijegasta hjartans þakklæti, og biðjum þeim öilum
blessunar guðs. — F.h. foreldra, systkina, tengdaforeld. a og
ánnarra vandamanna.
Una S. Jóhannsdóttir og börn.
T í M I N N, fimmtudagurinn 25. júlí 1963. —
25