Tíminn - 18.08.1963, Page 3
f SPEGLITÍMANS
Doris Day leikur sem stend-
ur í nýrri kvikmynd, er ber
nafnið „Move Over Darling“.
Doris er í cnyndinni álitin látin,
og eiginmaður hennar hefur
kvænzt aftur. Doris vill auðvit-
að ná í inann sinn aftur, og
ræður sig sem vinnustúlku á
heimi'li eiginmannsins og
seinni konunnar. í eitt skiptið
vill frúin fá nudd, og Doris
gefur henni það heldur dug-
lega. Frúin bregzt auðVitað illa
við og eiginmaðurinn skerst í
leikinn. Það var þá, sem hann
tók of fast um Doris í eitt skipt-
ið og braut í henni rifbein.
Doris vantaði samt ekki einn
einasta dag frá vinnu, og notaði
teygjubindi til að lina þjáning-
amar. Það virðist elkki vera að
ástæðulausu, sem Doris hefur
verið talin ein duglegasta og
samvinnuþýlðiasta leikkfM/ia í
Hollywood, hún lætV# eírki
kvikmyndaverin tapa mflljón-
um á því að bíða eftir sér.
★ Sfc-
Síðan Oscar Hamerstein lézt,
hefur Riohard Roger tekið upp
samvinnu við Alan Jay Lerner.
Þeir ætluðu nýl'ega að frum-
sýna fyrsta söngleiik sinn „I
Picked a Daisy“' á Broadway.
En það fórst heldur illa fyrir,
því að aflýsa varð frumsýning-
unni, og ástæðan var sú, sagði
Roger, að textinn var ekki kom-
inn frá Lerner. Roger sagði
einnig, að oft hefði staðið á
textum frá Lorenz og Oscari
Hammerstein, því að Lorenz
hefði verið drykkfelldur, en
hvorki Lerner né Hammerstein
hefðu smakkað það, en það
ættu þeir sameiginlegt, allir
þrír, þeir hefðu all'ir verið blóð-
latir.
*
Stirling Moss fór eins og
kunugt er mjög illa út úr bíl-
slysi því, sem hann varð fyrir,
fyrir rúmu ári. Eitt dæmi
þess, er það, að nýlega tók
hann ökupróf á bifhjóli, en féll.
Hér sést hann á hjólinu að af-
stöðnu prófi.
★
Nýtt táknmál, sem gert er í
stöfum og númerum, hefur
verið fundið upp í Ameríku,
svo að þúsundir af einmana
rafmagnsheilum geti talað sam-
an. Hingað til hefur hver gerð
haft sitt eigið mál, en framleið-
endurnir hafa komið sér saman
um það, að nota eitt allsherjar
táknmál, og er nú verið að
kenna heilunum það.
Þessi sfcúlka heiUr Bobby Shaw, er 19 ára gömul og er þarna að baða sig við Miami- ströndina í Florida. í Banda- ríkjunum gizka menn á að hún sé arftaki Marilyn Monroe í kvikmyndaheiminum, a.m.k. hvað útlitið snertir. ★ ^ ‘' * cAií-- .
Hertoginn af Edinborg hefur mikla ánægju af því að búá til mat, og nú hefur hann látið innrétta sérstakt eldhús í Buck- ingham Palace, þar sem hann j öðru hverju býr til rétti handa sér og drottningunni. ý/Fy.. -.i
★ í Finnlandi hefur nýlega ver- ið stofnaður lýðháskóU fyrir fólk á ellilaunum, og yngstu nemendurnir eru 67 og 81 árs. :
El’izabefch Taylor fer ekki
með neitt hlutverk í nýjustu
mynd Burtons, sem ber nafnið
„Becket“, en hún hefur samt
orðið sér úti um sinn eigin stól
í kvikmyndaverinu, og fylgist
með öllu, sem fram fer. Hér er
Liz á tali við Burton, en hann
gegnir hlutverki biskups í
myndinni.
Nathalie litla Vadim er
greinilega lifandi eftirmyndin
hans pabba síns, og eftir mynd-
inni að dæma, þá er hún þegar
farin að stilla sér upp fyrir
framan myndavélina. Mamma
hennar er hin dansk-ættaða
Anette Ströyberg, sem nú er
skil'in við Vadim. Núverandi
Stúlka hans, Catherine Dene-
uve, hefur nýlega eignazt son,
og á myndinni hér að neðan
sést Catherine yfirgefa fæð-
ingardeildina með soninn. Hún
og Vadim hafa lýst því yfir
að þau kæri sig alls ekki um að
gifta sig, það sé ’hreinn óþarfi,
og bæði eru þau harðánægð
með soninn.
Bandarísld l'eikarinn og fram
leiðandinn David Susskmd var
fyrrr skömmu staddur í Eng-
landi, og var þá spurður um
þalð af enskum blaðamanni,
ireernig vinsældum hann ætti
að fagna í Bandaríkjunum.
Susskind sagði, að hann væri
frekar vinsæll af áhorfendum,
en ekki eins af starfsfélögum
sínum. Það furðar engan á því,
þegar tekið er tillit til þess,
hvernig hann talar um þá.
Flestir muna áreiðanlega eft-
ir Robertino, litl’a, feita strákn-
um sem kom hér fyrir nokkrum
árum og heillaði ungar stúlkur
með söng sínum. Við fengum
að heyra plötur með honum í
óskalagaþáttum útvarpsins
næsta árið, og nú er allt útlit
fyrir, að svo verði aftur. Ro-
bertino hefur nefnilega endur-
unnið frægð sína eftir að hann
komst úr mútum. Hann hefur
ekkert sungið í tvö ár, en hóf
★
Sandra Dee segir hann, að sé
algjörlega hæfileikalaus. Troy
Donahue sé ljóshærður risi,
sem misþyrmi kvenfólkinu í
myndum sínum, en geti alls
ekki leikið. Debbie Reynolds
segir hann, að gangi um í öll-
um myndum eins og brosandi
brúða og Elizabeth Taylor í
hlutverki Cleopötru, sé of feit,
yfirborguð og hæfileikalaus.
Hún sé leikarastéttinni yfirleitt
til skammar .
★
síðan söngnám á ný með mikilli
eftirvæntingu, því að það er
sjaldan sem barnastjörnur geta
endurunnið frægð sína. Núna
er hann sem sagt fullorðinn
maður, og kom fyrir skömmu í
fyrsta skipti fram fyrir þetta
tímabil með Pat Boone í Þýzka-
landi. Þarna á myndinni er
hann kominn til Danmerkur,
og talar við gamla vinkonu síð-
an á æskuárunum.
Danny Kaye er eins og kunn
ugt er mjög dugandi flugmað-
ur, þegar hann vill það við
hafa. Hann viðurkennir samt,
að honum líði ebki alltaf vel,
þegar hann er staðsetfcur hátt
uppi. Staða hans langt fyrir
ofan aðra bandaríska grínleik-
ara er t.d. farin að valda hon-
um óþægindum.
— Ég hef enga löngun til
þess, að standa á einhverjum
guðastalli, segir hann, og ég
hef enga löngun til þess að
eyða því, sem eftir er af lífi
mínu í það, að verja frama
minn. Kaye hafði nýlega tekið
þá ákvörðun, að gera aðeins
eina kvikmynd á ári og einn
sjónvarpsþátt, en nú hefur
hann breytt því og byrjar bráð-
lega að gera sjónvarpsþætti
vikulega. Hann hefur einnig
fært upp „One man’s show“ á
Broadway, en það hefur hann
ekki gert síðustu tíu árin, og
um frábæra hæfileika hans og
fyndni. Kaye segist hafa mikla
ánægju af sjónvarpsþáttum
sínum og honum finnst ekki
lengur, að hann sé eins og
demantur, sem tekinn sé úr
öskju sinni einu sinni á ári, en
svo settur á sama stað aftur.
Þar að auki geri það ekkert til,
þó að hann hafi vikulegan þátt,
þar sem hann hafi efni á þvf,
að vera „billegur“.
T í M I N N, sunnudagurinn 18. ágúst 1963,
3