Tíminn - 18.08.1963, Blaðsíða 16
EINI
SAND-
DÆLU-
BÍLL
HEIMS
KH-Reykjavík, 17. ágúst
Tímamenn hafa veria að furða
sig a einkennilegum bíl, sem
stendur stundum við húsið, sem
Dagsbrún og Sjómannafélag
Rej’kjavíkur eru ajj endur-
byggja hérna við hliðina á
Edduhúsinu, og í dag vorum
við »eldd í allan sannleika um,
hvers konar tæki þetta er.
Þetta er sanddælubíll, sá eini
sinnar tegundar hér á landi og
senmlega í heiminum, því að
hann er uppfundinn hér á fs-
Iandi.
Sanddælubíllinn er eign Sand
sölunnar. og þag er svo mikið
að gera meg þennan bíl, að
hún er að koma upp tveimur
nýjum íyrir veturinn og von-
ast þá til að geta haft undan.
Mena eru að vonum fegnir að
þurfa ekki að bera 20—30 tonn
af sandi til íbúðarbyggingar
upp á 4. eða jafnvel 10. hæð,
auk þess sem sanddælubíllinn
lætur ekki eitt sandkorn fara
til spi'lis á leið'inni upp.
Hannes Ágústsson heitir sá,
sem stærstan þátt átti í að
finna upp þennan ágæta sand-
dælubíl, en hann vildi sem
minnst gera úr sínu verki, sagði
að Þórður Guðnason, vélsmiður
Kópavogi, og Vélsmið'jan Klett-
ur í Hafnarfirði hefðu líka átt
sinn hlur í því.
Sanddælubíllinn vinnur þann
ig, ið á hann er byggð loft-
pressa, sem dælir sandinum
upp í gegnum slöngur. Vélin í
bílnum knýr loftpressuna, en
sérstakur matari skammtar
hæfiiegt sandmagn í slöngurn-
ar. Bill.nn er nokkuð afkasta-
mikill, dælir um 8 tonnum á
klukkustund, en mesta hagræð
ingin tr auðvitað að þurfa ekki
að bera sandinn upp margar
hæðir ef til vill, auk þess sem
ekkert fer til spillis með þess-
Sanddælubíllinn að verki á Lindargötunnl. Dælutækin eru aftan
við húsfö á bílnum. Slangan upp á fjórðu hæð sést til vinstri.
ari aðferð. Hæst hefur billinn upp á 12. hæð, ef með þarf.
dælt upp á 9. hæð í húsi, en Skáli Steinsson, forstöðumaíj
talið er, að hann muni geta dælt Framh. á 15. síðu.
gjörir kunnugt: Ríkisstjórnin hefur
tjá mér, að algert verkfall hafi
staðið yfir hjá meðlimum Stéttar-
félags verkfræðinga frá 27. júní s.l.
Frá 1. júlí þ.á. hafi tekið gildi nýtt
launakerfi opinberra starfsmanna
samkvæmt kjaradómsúrskurði, en
launakröfur Stéttarfélags verk-
fræðinga, sem félagið hafi haldið
fast við, séu almennt verulega
hærri en laun sambæri'legra
starfsmanna,, samkvæmt kjara-
dómi. Þannig sé öllu samræmi
launakerfis ríkisins, sem komið
var á með lögum um kjarasamn-
inga opinberra starfsmanna, nr.
55/1962, við laun fyrir sambæri-
leg störf hjá öðrum en ríkinu,
stefnt í hættu og þannig unnið
gegn ' efnahagskerfi landsins og
Framh á 15. síðu.
Kom á
óvart
MB-Reykjavík, 17. ágúst.
Blaðið náði sem snöggvast
tali af Hinrik Guðmundssyni,
framkvæmdastjóra Verkfræð-
ingafélags fslands og spurði
hann um álit verkfræðinga á
þessum nýju lögum.
— Ég get að svo komnu
mál'i ákaflega lítið sagt, sagði
Hinrik Við höfum ekki einu
EYamh. á 15. síðu.
J
NJOSNA SOVET 0G USA I
MESTA BRÓDERNI í KÍNA?
JK-Reykjavík, 17. ágúst
Bæði bandarískar og rúss-
ncsear njósnaþotur vinna nú
aa því í mesta bróðerni ag ljós-
mynda Kína úr lofti, að því er
þýzka fréttaritið Spiegel segir
í nýjasta tölublaði sínu.
Segir blaðið, ag Kínverjar
standi aiveg ráðalausir gegn
þessu. Peir sjái U-2 flugvélar
Bandankjanna og Mandragora
flugvélar Rússa á ratsjám sín-
um, en geta ekkert ag gert, því
flugvélar þessar fljúga í tug-
kílómetra hæð. Flugvélar Kín-
verja og ioftvarnatæki eru orð-
in mjög gamaldags, þar sem
Rússar hafa um langt skeið
ekki látig þá hafa neitt af slík-
um voprum.
Flugvélar Rússa hafa bæki-
stöð í Síberíu við landamæri
Kína en bandarísku flugvélarn-
ar hafa bækistöðvar á Formósu
og Okmawa Þaðan fljúga þær
viku eftir viku hvern hringinn
á fæhir öðrum yfir Kína og Ijós
mynda
Bandaríska fréttaritið Time
segir frá því 28. september í
fyrra, hversu hárnákvæm ljós-
myndafækm bandaríska hers-
ins se orðin Þar segir, ag ljós-
myndavélar þær, sem notaðar
eru, pegar U-2 flýgur í 30 km
hæð, séu líkastar stjörnukíkj-
um og iiafi 36 til 100 þumlunga
fókusviddir. Þegar búið er að
vinna þessar ljósmyndir með
sérstókum aðferðum, sést á
þeim ant sem máli skiptir af
hernaðarlega mikilvægum hlut
um.
Spiege) segir, að ljósmyndirn
ar hafi gefið til kynna, ag fækk
að hafi > kínverska hernum, svo
að 1 nonum séu nú aðeins rúm
ar tvær milljónir manna. Þær
hafi gef:ð til kynna, að vopn
Kínveija séu orðin úrelt að
mestu leyti, varahluti skorti og
einnig ejdsneyti. Þær hafi einn
ig gefið til kynna, að Kínverj-
ar verði ekki kjarnorkuveldi
fyrr en eftir 20 ár í fyrsta lagi.
Bandariska leyniþjónustan,
sem hefur nú eftir „hlákuna“
lagt aðalaherzluna á Kína, hef-
ur náð skjölum frá kínverska
hernum, þar sem sagt er að
fram Romi, ag kínverski herinn
sé í molum.
Blað:ð segir, að sameiginleg
barátta bandaríkjanna og Sovét
ríkjanna,. gegn hinum óróa-
sömu Kínverjum leiði til þess,
að Kinverjar leggi ekki í nein-
ar storar hernaðaraðgerð'ir,
þótt mikill vindur sé í þeim.
Það sé of mikið fyrir þá að
eiga í köldu stríði við Indverja
Rússa og Bandaríkjamenn, alla
þrjá í einu. Undanfarig hafa
Kínveriai verið með yfirgang
í Kóreu. indversku landamær-
unum, við Quemoy og Matsu, í
Suður Vietnam og í Laos og
jafnvel á íandamærum Sovét-
ríkjanna, en blaðið segir, að
sameiginlegar aðgerðir Banda-
ríkjamauna og Rússa muni
neyða Kmverja smám saman til
að draga saman seglin í land-
vinningastefnu sinni.