Tíminn - 28.09.1963, Page 14

Tíminn - 28.09.1963, Page 14
o WILLIAM L. SHIRER frá hópi þýzkra hershöfðingja og borgara, sem flestir höfðu þjónað Hitler af laiklum dugnað'i fram til þessa. Því, að minnsta kosti, sumir andstæðingar þeirra í Lond- og og París 'hafa ef til vill munað óljóst eftir staðreyndunum í þýzkri sögu: að herinn hafði að- stoðað við að koma hinum fyrr- verandi austurríska liðþjálfa til valda, hafði fagnað' yfir tækifær- unum, sem hann gaf hernum til þess að endurhervæðast, hafði, að því er bezt varð séð, ekkert haft á métl þvi, að Þjóðernissósíaiism- inn þurrkaði út allt persónufrelsi eða gert nokkuð vegna morðsins á einum af hershöfðingjunum, von Schleicher hershöfðingja, eða því að æðsta manni hersins, von Fritsoh hershöfðingja, hafði verið vikið frá eft'ir viðbjóðslegan sam- blástur gegn honum; og fyrir nokkru hafði herinn aðstoðað við töku Austurríkis, og hafði sann- arlega lagt af mörkum herstyrk- inn, sem nauðsynlegur var til þess að ihægt væri að gera það. Hvaða sökum, sem hægt var að bera há- aðal'nn í London og París, og þær eru efalaust þungar, þá er stað- reyndin áfram sú, að þýzku hers- höfðingjarnir sjálfir, og borgar- arnir, sem unnu með þeim að samsærinu, létu fram hjá sér fara ágætis tækifæri til þess að sker- ast sjálfir í leikinn. Uppgjöfin í Munchen 29.—30. sept. 1938 Áður en tíu dagar voru bðnir frá því að Adolf Hitler hafði skrif- að nafn sitt undir Miinchensáttmál an — meira að segja áð'ur en lokið hafði verið hinu friðsamlega her- námi Súdetahéraðanna — sendi hann af stað áríðandi leynileg skilaboð til Keitel hershöfðingja, yfirmanns OKW. 1. Hvaða liðst'yrkur er nauðsyn- legur, eins og nú stendur á, til þess að brjóta á bak aftur alla mót- spyrnu Tékka í Bæheimi og á Mæri? 2. Hversu langan tíma þarf til þess að endurskipuleggja og flytja á staðinn nýjan liðstyrk? 3. Hversu langur tími er nauð- synlegur til hins sama, ef það er framkvæmt eft'ir hina fyrirhuguðu afvopnun og eftir að herinn hefur verið fluttur burtu? 4. Hversu langan tíma þarf til þess að herinn verði aftur orðinn jafn vel uiidir aðgerðir búinn og hann var 1. október? Keitel sendi skeyti um hæl til foringjans 11. október, þar sem hann gaf nákvæm svör við þessum spurningum. Ekki sérlega langur tími né mjög mikill liðsauki var nauðsynlegur. Þegar voru tuttugu og fjórar herdeildir, þar á meðal þrjár brynvarðar og fjórar véla- herdeildir, í Súdetahéruðunum. „OKW áiítur‘‘7 fullyrti Keítel, „að fært yrði að hefja aðgerðir án liðs- auka, þegar tillit er t'ekið til þess veikleikavottar, sem komið hefur fram í mótspyrnu Tékka.“ Eftir að hafa fengið þessar stað- festingar, sagði Hitler herforingj- um sínum hug sinn allan tíu dög- um síðar. RÍKISLEYNDAKMÁL. Berlín, 21. október 1938. 1 Verkefni herjanna í framtíðinni j og undirbúningur að styrjöld, sem lleiða mun af þessu verkefni, verð- ! ur nánar t'ilgreint í skipunum, sem j ég mun gefa síðar. 1 Þar til þessi skipun gengur í gildi, verða herirnir að vera við- búnir á öllum tímum, að eftirfar- andi hluti geti þurft að fram- kvæma: 1. Að tryggja landamæri Þýzka lands. 2. Að útrýma því, sem eftir er ef Tékkóslóvakíu. 3. Að hernema Memel-héraðið. Memel var hafnarborg við Eystra salt, sem Þjóðverxjar höfðu orðið að láta af hendi við Litháen sam- kvæmt Versalasáttmálanum. Þar eð Litháen var minna og veikara ríki en bæði Austurríki og Tékkó- slóvakía, voru engin vandræði því samfara fyrir Wehrmacht að fram kvæma þetta, og I þessu bréfí minntist Hitler aðeins lauslega á, að borgin myndi verða , „innlim- HSr:,*í-.W T--íaÆ^lE*JédSaáfcíá«aHíi uð“. Hvað viðvék Tékkóslóvakíu: Það verður að vera hægt að greiða því, sem eftir er af Tékkó- slóvakíu rothögg, ef stefna lands- ins fer að verða andstæð Þýzka- landi. i Sá undirbúningur, sem herinn þarf að gera vegna þessa verk- efnis, er töluvert minni en undir- búningurinn að „Grænu“. Samt verður að vera öruggt, að viðbún- aðurinn sé nokkru meiri, þar eð fallið hefur verið frá áælluninni um herútboðið. Skipulagning, þ.e. orrusturnar og viðbúnaður her- flokka þeirra, sem ætlaðir eru til þessa verkefnis, skal miðast að því á friðartímum, að um skyndiárás sé að ræða þannig, að Tékkósló- vakía sjálf verði svipt öllum mögu- leikum á því að skipuleggja and- spyrnu. Markmiðið er að taka Bæ- héim og Mæri og skilja Slóvakíu frá öð'rum hlutum'landsins. Það var auðvitað hægt' að stía Slóvakíu frá með stjórnmálalegum aðferðum, sem gæti gert það ó- nauðsynlegt að þýzku hersveitu.i- um væri beitt, í þessu augnamið1 var þýzka utanríkisráðuneytið lát- ið hefjast handa. Fyrstu dagana í okt'óber hvöttu Ribbentrop og að- stoðarmenn hans Ungverja til þess að krefjast síns hluta af ránsfengn um í Slóvakíu. En þegar Ung- verjaland, sem varla þurfti á hvatningu Þjóðverja að halda til þess að'æsa upp ágirndina, talaði um að ganga hreint til verks og hernema Sl'óvakíu, setti Wilhelm- strasse fótinn fyrir dyrnar. Þar voru nefnilega til aðrar áætlanir um framtíð þessa landssvæðis. Pragstjórnin hafði nú þegar, þ.e. a.s. strax eftir Munchen-fundinn, veitt Slóvakíu mjög mikið sjálf- stæði. Þýzka utanríkisráðuneytlð gaf þau ráð,. að þessi lausn yrði ,.umborin“ um stundarsakir. En hugsanagangur Þjóðverja kom fram í skýrslu , sem dr. Ernst Wörmann, yfirmaður stjórnmála- deildar utanríkisráðuneytisins, gerð'i 7. október. „Sjálfstæð Sló- vakía“, skrifaði hann, „verður stjórnarfarslega veikbyggð, og myndi þar af leiðandi bezt þjóna Þjóðverjum í sambandi við sókn- ina og töku landanna í austri.“ Hér eru ný kaflaskil í sögu Þriðja ríkisins. í fyrsta sinn er Hitler að hefjast handa um að her nema lönd, sem ekki eru þýzk að uppruna. Síðustu sex vikurnar hafði hann verið að fullvissa Chamberlain í einrúmi og einnig opinbsrlega um, að Súdetahéruðin væru síð'asta landsvæðið í Evrópu, sem hann gerði kröfu til. Og þrátt fyrir það, að brezki forsætisráð- herrann væri svo auðtrúa, að varla sé hægt að trúa því, þegar um var að ræða að trúa orðum Hitlers, þá var nokkur ástæða til þess, að hann tryði, að þýzki einræðisherr- ann myndi nema staðar, þegar hann hefði melt Þjóðverjana, sem áður höfðu dvalizt utan Landa- mæra Ríkisins og nú voru Itomnir inn fyrir þau. Hafð'i ekki foringinn hvað eftir annað sagt, að hann vildi enga Tékka í Þriðja ríkinu? Hafð'i hann ekki í Mein Kapf og í ótölulegum fjölda ræða, sem hann hafði haldið opinberlega, lagt á- herzlu á nazista-kenninguna um, að til þess að Þýzkaiand gætl orðið valdamikið, yrð'i það að vera kyn- þáttalega hreint, og því mætti það ekki taka inn fyrir landamæri sín neinar útlendar, og þá sér í lagi ekki slavneskar þjóðir? Það hafði hann gert. En hann hafði einnig — og það hafði ef til viil gleymzt í London — prédikað á margri síð- unni í Mein Kampf um, ag fram- tíð ÞýzkaLands lægi í því að ieggja undir það L'ebensraum í austri. í 32 mr hlýlegur glampi í augum hans, sem 'henni gazt vel að. Hún svaf mest ailan daglnn. Henni var færður matur og drykk ur upp. Eiginkona Hsung kom af og til upp að vita, hvort hún gæti eitthvað fyrir hana gert. Og áður en hún vissi af, voru karlmenn- irnir komnir heim aftúr, og hr. Manning stóð við rúmið og spurði með sinni dimmu raust' hvernig henni liði. Hún sagði eins og satt var„ að sér liði miklu betur. — Voru nokkur skilaboð tii mín í dag, hr. Manning? spurði hún með ákefð. Hann hristi höfuðið. — Nei, Hsung hefði sagt m.ér, ef einhver hefðu verið. Hún hallaði sér aftur út á kodd- ann. Hún hafði vonað að Grant myndi senda henni kveðju sína, og þar með skyldi hún ekki hafa á- hyggjur vinnunnar vegna. En hún varð bara að flýt'a sér að iáta sér batna. Brett kom inn og sat hjá henni. Hann var enn mjög vesaidarlegur og auðmjúkur, og það fór honum ekki vel. Henni fannst, að Brett ætti ailtaf að vera glaður og hressi legur; hann missti eitthvað not'a- legt úr persónuleika sínum með allri þessari auðmýkt. — Einhver, sem kallaði sig Bobby hringdi rétt áðan. Hver er Bobby? spurði hann tortrygginn. — Hann er yndisiegur. Hann er aðstoðarmaður Grant og bezti vtn- ur minn. — Eg héit að ég væri beztl vin- ur þinn? Hún leit forviða á hann og sagði: — Ert þú vinur minn, Brett? Hann virtist djúpt særður. Hann hallaði sér fram. — Líturðu ekki á mig sem vin þinn, GaiL? Hún hristi höfuðið. — Eg veit það ekki, Brett. — En þú elskar mig, sagði hann hásum, þrjózkulegum rómi. — Þá hlýt ég að vera bezti vinur þinn. Aftur hristi hún höfuðið. — Heidurðu það, Brett? _Ef mað ur er ástfangin af einhverjum, er ég ekki viss um að maður geri sér grein fyrir hvort sá sami er | vinur manns eða ekki. Eg heid að | vinátta sé gjöróiík ást. Ásiinni slær niður í huga manns skyndi-j Lega, og óvænt, en vinátta er dá-( lítið, sem maður hugsar um, og sem er lengi að verða t‘l. Hún brosti til hans og rétti út höndv ina. — Kannski verðum við vinir, Brett. Eg vona það. | Hann kyssti hönd hennar og lék^ sér að henni. — Auðvitað verðum við líka vinir elsku vina mín. I Þegar hún vaknaði morguninn eftir, leið henni miklu betur, og þegar læknirinn kom, sagði hann, að hún væri hitalaus, en skyldi liggja í rúminu til að henni slægi jekki niður aftur. Tom var farinn til vinnu sinnar og hafði beðið Brett að koma með sér. Þeir fóru árla morgunsins. Gail leifj nú miklu betur, og heK'fi fannst tíminn sniglast á- rram. Hún hafði aldrei verið sér-j lega þægur sjúklingur, ekki einu sinni þegar hún var reglulega sjúk. Nú var hún döpur í bragði, þegar hún hugsaði til þess að Bobby hafði hringt en ekki Grant. Var hann mjög reiður út í hana? Hún hafði svo miklar áhyggjur af því, aa hún ákvað að hringja til hans. Hún ætlaði að segja honum, j að sér liði nú betur, og að hún kæmi til vinnu daginn eftir. Hún leit í kringum sig í her- berginu, en þar var enginn sími, en hún mundi að einhvers staðar í húsinu hafði hún ség síma. Hún mundi að það var á skrifborði hr. Mannings í hinu stóra vinnuher- bergi hans. Hún smeygði sér í einn af hinum fallegu, kínversku morgunsloppum, renndi fótum í töfflurnar og fór niður stigann og inn í vinnuherbergið. Hún hafði ekki ség neinn á ferli. Þetta var rétt eftir hádegið, og hún bjóst við að þjónarnir hefðu lagt sig. Hún leit í kringum sig eftir símaskrá til að fietta upp símanúmerinu. En hún sá hana hvergi. Kannski var hún í ein- hverri skrifborsskúffunni. Hún dró þá efslU út og horfði furðu Lostin á þag sem hún sá Skúffan var troðfull af vega- bréfum — vegabréfum frá ýmsum löndum, brezkum, amerískum, og frönskum, og þegar hún leit nánar á þau, sá. hún að þau voru öll frá þessu ári. Hvað í ósköpun- um var hr. Manning að gera við öll þessi vegabréf í skrifborðs- skúffunni sinni? Hún var enn að glápa á þetta, þegar hún heyrði fótatak. Hún snarsnerist á hæli, og skúffan var enn útdregin. Hsung, aðalþjónn hr. Mannings, stóð rétt hjá henni. — Hvað eruð þér að gera hér, ungfrú? í rödd þjónsins gætti ekki aðeins tortryggni, heldur og gremju. Hún hafði aldrei imyndað sér að hún gæti orðið hrædd við kín- verska þjóninn. En hún var hrædd núna. Hún hafði óvænt hugboð um, að hún væri í mikilii hættu. — Eg var að leita að símaskrá og opnaði þessa skúffu í misgán- ingi. Rödd hennar thraði ögn. Hsung gekk nær. Hann lokaði skúffunni og rétti henni símaskrá, sem lá á litlu borði út'i í einu horn inu. — Get ég fundið númerið fyrir yður, ungfrú? —- Já, þökk. fyrir. Það er Mal- colm Henderson- rannsóknarstofn- unin. Eg ætla að tala við doktor Grant Raeburn. Hann fletti upp númerinu, hringdi og rétti henni síðan tólið. Andartaki síðar kom Mildred í símann. — Skrifst'ofa dr. Rae- burns. — Þetta er Gail. Viltu leyfa mér ag tala við doktor Raeburn, Mildred? — Því miður er doktorinn ekki við, og ég veit ekki hvar hann er. — En Bobby, er hann við?, byrjaði Gail. Þá heyrði hún Mild- red taka andköf af undrun, og j síðan kom Grant í símann. — Hver i er það? Vilduð þér tala við mig? — Það er Gail? Mér þykir það: afskaplega leitt, en ég hef verið j veik. Eg vona að það hafi 'ekki komig sér mjög, illa fyrir yður. En nú líður mér miklu betur. — Mér skiist að,þér dveljið á hehnili hr. Mannings, úti við Djúpaflóa. Eruð þér orðnar nógu hressar til að koma aftur? — Já, já, svaraði^hún áköf. Skyndilega gat hún ekki liugsag sér að vera lengur í þessu húsi. Það var ekki aðeins vegna þess- ara dularfullu vegabréfa, sem hún hafði séð; það var eitthvað í and- rúmsloftinu, sem skelfdi hana. — Eg skal koma og sækja yður, sagði Grant og lagði símann á. Hún sagði við Hsung. — Eg verð að fara aftur>til starfa minna. Eg ætla upp og hafa fataskipti. Viljið þér láta mig vita, þegar doktor Raeburn kemur? Hsung leit á hana forvitnislega, siðan sagði hann: — Veit herrann að þér erug að fara? — Nei. Eg ætla að skilja eftir miða til hans, þar sem ég útskýri málið. — Herraaum geðjast kannski ekki að því að ungfrúin fari, m.eð- an hann er ekki heima. Ungfrúin á ag í vera þangað til á morgun. Rödd hans var mjúk og smeðju- lega, en þa"ð var samt einhver undirtónn. Gat það verið hótun? Hún reyndi að hafa stjórn á sér þegar hún sagði kuídalega og á- kveðið. — Eg geri þag sem mér þykir bezt, Hsung. Eins og ég sagði, mun ég skilja eftir miða. Hún hraðaði sér up til herbergis síns. Föt hennar höfðu verið þveg- in og straujuð og lágu á stól í her- berginu. Hún flýtti sér að klæðast, og einhverra Liluta vegna sá hún, að hendur hennar skuifu. Hún hikað’ 14 T í M I N N, laugardagur 28. september 1963.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.