Alþýðublaðið - 14.06.1942, Síða 3
SlmMidagur 14. jáni ÍMZ. AUÞV0U&LA&ÍÐ
Sókn pjéðverja h|á Kharkov sú
mesta, sem peir haf a gert fi vor,
— segja Rússar.
Fjórar amerjkskar
flngvelar nanðlenda
í Tyrklandi!
Ivaðan komu t>ær og hvert
vorn ðær að fara?
ÞÆR fréttir bárust frá An-
kara í gær, að fjórar
ameríkskar sprengjuflugvélar
hefðu nauðlent á flugvöllum í
Tyrklandi, þrjár þeirra í An-
kara sjálfri, en ein á öðrum stað
í landinu. Flugvélar þessar voru
af gerð þeirri, sem Bretar kalla
Liberator og eru smíðaðar af
Consolidated flugvélaverksmiðj
unum. Eru þær fjögurra hreyfla
og álíka stórar og fljúgandi
virki.
Sevastopol heldur enn út gegn
hörðum áhlaupum þjóðverja.
LON3XXN í gærkveldi.
FRÉTTIR FRÁ RÚSSLANDI segja írá því, að sókn sú, sem
Þjóðverjar hafa hafið á Kharkowvígstöðvunum, sé hin
stærsta, sem þeir hafi gert hingað til á þessu ári. Miklum f jölda
skriðdreka og flugvéla hefir verið safnað saman á litlu svæði,
og lítur svo út, sem Þjóðverjar hafí ætlað sér að brjótast í gegn
um víglínur Rússa á litlu svæði, en síðan neyða þá til að hörfa á
stærrá svæði.
Þær fáu herdeildir Þjóðverja,
sem hafa komizt í gegnum víg-
línu Rússa, hafa verið um-
kringdar og ýmist hraktar til
baka, felldar eða teknar til
fanga. Þjóðverjar hafa teflt
fram miklu varaliði, sem álitið
var að geyma ætti til vorsóknar-
innar.
merki til þess, að þeir ætli að ná
borginni á sitt vald, hvað sem
það kostar,
í árásunum á einum stað hafa
Þjóðverjar (samkvæmt rúss-
neskum fréttum) misst 5500
manns á tveimur dögum.
Flugvélarnar voru með am-
ríkskum merkjum og flugmenn-
imir voru ameríkskir. Sam-
Jkvæmt alþjóða lögum voru
flugvélarnar og áhafnir þeirra
kyrrsettar. Ekki er vitað, hvað-
an þessar flugvélar voru að
'koma eða hvert þær vorö að
fara, en talið er líklegt að þær
hafi verið í árásarferð til
Svartahafsins.
Þýzkar fréttir hafa sagt frá
þessu á margan hátt og eru ekki
hyer annarri samhljóða. Ein
segir, að flugvélamar hafi verið
að koma frá Sevastopol, önnur
að þær hafi verið með kín-
verskum merkjum, sú þriðja að
áhöfnin hafi verið ensk, sú
fjórða, að þær hafi verið að
kasta flugmiðum yfir Tyrkland.
Island Mðingarmikið
i sókn Bandamanna
%Segir ameribshur aðmíráll.
WASHINGTON, 13. júní.
LARK WOODWARD að-
míráll sagði í dag, að ís-
land væri mjög þýðingarmikið
í sókn Bandamanna, sem hafin
verður fyrr eða síðar gegn naz-
istum.
Woodward talaði um horf-
urnar fyrir Ameríkumenn í
stríðinu og sagði:
„Það var mjög nauðsynlegt
að hafa setulið á íslandi, Græn-
landi og Norður-írlandi til
varnar hinni mikilvægu sigl-
ingaleið yfir Atlantshafið til að
flytja hergögn og herdeildir,
sem eru nauðsynleg í sókn gegn
Evrópu Hítlers, en sú sókn
verður hafin fyrr eða síðar.“
Engar nánari fregnir hafa
borizt af landseíningu Japana á
Aleuteyjum. Heldur hemaðar-
aðgerðum þar áfram, og gera
ameríkskár flugvélar hverja á-
rásina á fætur annarri á skip
Japana.
Til dæmis um það, hversu
mikinn flugflota Þjóðverjar
hafa í þessari sókn sinni, nefna
Rússar það, að á einum litlum
stað gerðu þýzkar flugvélar um
1000 árásir á stuttum tíma.
Þjóðverjar hafa talað mjög
lítið um orrusturnar við Khar-
kow. Tilkynning þeirra segir að-
eins, að hersveitir þeirra hafi
gert vel heppnuð áhlaup á
stöðvar Rússa.
SEVASTOPOL
Orrustunum um Sevastopol
heldur áfram af sömu hörku og
undanf ama daga, og er ástandið
stöðugt alvarlegt fyrir Rússa.
Þeir segjast þó hafa hrundið
öllum áhlaupum og gert Þjóð-
verjum mikið tjón.
í fyrradag sögðust Rússar hafa
eyðilagt 50 skriðdreka og ef til
vill 12 til viðbótar. Þar að auki
féll margt manna úr fótgöngu-
liðinu og stórskotaliðinu, sem á
sótti.
Árásir^Þjóðverja hafa verið
hinar hörðustu, og benda öll
Bino komst nndan
frð dauðaþorpinn.
24 skotnir i gær.
LONDON í gær.
ASARYK, sonur þjóð-
hetju Tékka, en hann er
nú í þjónustu frjálsra Tékka,
skýrði frá því í gær, að einn
maður hafi komizt undan, er
nazistar drápu alla karlmenn í
þorpi einu skammt frá Prag.
Maður þessi er nú að reyna að
komast undan til Englands, þar
sem hann mun segja nánar frá
hinum hryllilegu ódæðisverk-
um Þjóðverja í landi hans.
24 voru drepnir í gær í Tékkó
slóvakíu. Þar á meðal voru
gömul kona, sem er á níræðis-
aldri, og hjón ásamt dóttur
þeirra 18 ára gamalli.
Nú hafa alls verið drepnir
382 fyrir árásina á Heyderich,
og eru þá ekki meðtaldir þeir,
sem skotnir vom, þegar þorpið
hjá Prag var lagt í eyði
NoregssSfninin í
Bandarfkjnnnm.
Til styrktar þjálftinarstöð
flngmanna
NEW YORK, 13. júní.
IDAG var hafin p eninga-
söfnun til að flýta fyrir og
auka flugkennslu Norðmanna í
herbúðunum „Litla-Noregi“,
Canada.
í kvöld mun herferð þessi
verða hafin um allt landið. Carl
Sandburg, eitt af frægustu
skáldum Ameríku, stendur fyr-
ir söfnun þessari. Martha krón-
prinsessa Noregs ætlar einnig
að aðstoða við samskotin, sem
verða m. a. í hinní víðkunnu
„Carnegie Hall“ í New York.
Á söngskemmtun Norður-
landa, sem haldin var á Long
Island, tók sendiherra Dana í
Bandaríkjunum, Henrik de
Kauffmann, á móti ávísun að
upphæð kr. 32 500 til handa
frjálsum Dönum, og var hún frá
ýmsum ameríkskum stuðnings-
mönnum.
Sendiherrann afhenti strax
flugæfingastöð Norðmanna í
Toronto gjöfina.
Sænsk-ameríkanskur félags-
skapur í New York hefir hafið
söfnun á einni milljón 950 þús-
und krónum til stuðnings frjáls-
um Norðmönnum.
Þessi söfnun er hafin til
kaupa á 27 kennsluflugvélum
handa 1000 flugmönnum.
Við það tækifæri sagði einn
af meðlimum sænsk-ameríkska
félagsins: „Þetta á að sýna hvar
hugur okkar er.“
Flugvélarnar verða afhentar
til æfingastöðvar norskuiflug-
mannanna í Litla Noregi og
annarra æfingamiðstöðva í Ca-
nada.
Fyrir nokkru var stór hópur
norskra barna sendur til að
skoða herbúðir Hitlersæskunnar
í Noregi. Þegar börnin komu til
aðalstöðva búðanna, sungu þau
þjóðsönginn og kölluðu: Lengi
lifi Hákon konungur.
MacArthursdagur í Ástralíu.
í gær var haldinn hátíðlegur í Ástralíu MacArthurs dagur, til
heiðurs herforingjanum. Var hann innig haldinn hátíðlegur á
ýmsum stöðum í U. S. A. Tilefnið er afmæli herforingjans. — Á
myndinni sést MacArthur ásamt Patric Hurley, herforingja, sem
er sendiherra Bandaríkjanna í Nýja Sjálandi.
Bommel beinir sikn sinni
nð aftnr f áttina til Tobrnk.
Harðir bardagar eru háðir í nágrenni
við E1 Adem og Akroma.
LONDON í gærkveldi.
ROMMEL hefir nú aftur tekið sömu stefnu og hann hafði í
byrjun sóknarinnar í Libyu, það er að sækja til Tobruk og
reyna að ná þeirri borg á sitt vald. Hersveitir hans hafa sótfc
• fram hjá E1 Adem og komizt allt að 30 km. frá Tobruk, en
miklar orrustur standa þar yfir.
Orrusturnar, sem eru svo að segja eingöngu háðar af skrið-
drekasveitum, voru í gær og fyrradag mjög harðar í nágrenni
við E1 Adem og Akroma, enda er það Bretum mjög mikilsvert,
að láta ekki hlut sinn á þessum slóðiun.
Flugherir beggja aðila hafa |
haft sig mjög í frammi, en þó
sérstaklega hinn brezki. Hafa
sprengjuflugvélar Breta farið til
stöðugra árása og snúið til baka
til flugvallarins til þess að ná í
olíu og sprengjur, en síðan hald-
ið enn aftur til vígvallanna og
gert nýjar árásir á herstöðvar
nazista. Omistuflugvélar Breta
hafa einnig verið mjög á sveimi
og hrundið mörgum árásum og
árásartilraunum andstæðing-
anna. Eitt sinn hrundu þær með-
al annars árás, sem stór hópur af
Stuka steypiflugvélum ætlaði
að gera á brezkar herstöðvar.
Að næturlagi hafa hinar
stærri sprengjuflugvélar Breta
farið í lengri leiðangra, allt til
Bénghazi.
Þjóðverjar hafa tekið sjö
danska drengi á aldrinum 15 til
17 ára og sett þá í fangelsi.
voru þeir ákærðir fyrir að hafa
unnið setuliðinu þýzka skemmd-
arverk. ,
*
Ameríkskar vélahersveitir
eru nýlega komnar til írlands.
Þá eru þangað einnig komnar
nokkrar hersveitir negra, sem
eiga að vinna að flutningum.
*
Að líkindum hafa Japanir
misst helminginn af flota sín-
um, eða meira en 30 herakip,
fyrstu 72 tímana í Midway orr-
ustunni, sagði Chester W. Ni-
mitz, yfirforingi Kyrrahafsflot-
t ans, í dag.