Alþýðublaðið - 19.08.1942, Side 7
Miðvikudagur 19. ágúst 1942.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
^Bærinn í dag. ?
Næturlæknir er í nótt Þórarinn
Sveinsson, Ásvallagötu 5, sími
2714.
Næturvörður er í Laugavegs-
apóteki.
ÚTVARPIÐ:
12,10—13,00 Hádegistúvarp.
15,36—16,00 Miðdegisútvarp.
19,25 Hljómplötur: Létt lög, leik-
in og sungin.
20,00 Fréttir.
St j órnmálaumr æður.
Sigurgeir Sigurjónsson
hæstaréttarmálaf ærslumaður,
sem unnið hefir í lögfræðiákrif-
stofu Stefáns Jóh. Stefánssonar og
Guðmundar I. Guðmundssonar,
hefir opnað eigin lögfræðiskrif-
stofu 1 Aðalstræti 8, sími 1043.
Bæjarstjórnarfundur
er á morgun. 6 mál eru á dag-
skrá, þar á meðal hitaveitumálið.
50 ára afmæli
átti í gær Loftur Guðmundsson,
hinn þekkti ljósmyndari í Reykja-
vík.
Trúlofun
sína opinberuðu í Hreðavatns-
skála síðastliðinn sunnudag ungfrú
Ragnlieiður Vigfúsdóttir Þormar
frá Geitagerði á Fljótsdalshéraði
og Þórarinn Þórarinsson ritstjóri
Tímans.
Ferðafélag íslands
ráðgerir að fara skemmtiför í
Kerlingarfjöll um næstu helgi.
Lagt af stað laugardags eftirmið-
dag og ekið austur um Gullfoss
með viðkomu í Hvítárnesi og í
Kerlingarfjöll og gist þar í sælu-
húsinu. Á sunnudagsmorgun geng-
ið á fjöllin og skoðað hverasvæðið.
Komið heim aftur á sunnudags-
kvöld. Áskriftarlisti á skrifstofu
Kr. Ó. Skagfjörðs, Túngötu 5, og
séu farmiðar teknir fyrir kl. 4 á
föstudag.
2 þfisind kr. stolið
nr Mð í fpraday.
Rum var stolið í fyrradag
ÚMLEGA 2 þúsund krón-
úr íbúð hér í bænum.
Peningarnir höfðu verið
geymdir í skáp í stofu íbúðar-
innar. Eldd er vitað hvenær
dagsins þjófnaðurinn var fram-
inn, en við og við var íbúðin
mannlaus.
Mun íbúðin hafa verið dirkuð
upp.
FREYJUFU NDUR í kvöld kl.
8,30. Venjuleg fundarstörf.
Br. Jón Árnason og s. Hall-
dóra Sigurjónsdóttir annast
hagnefndaratriðin. — Næst-
komandi sunnudag verðu far-
ið í sameiginlega skemmti-
ferð til Þingvalla. Nokkrum
miðum er enn óráðstafað. Fé-
lagar tilkynni þátttöku sína
æðstatemplar í síðasta lagi á
fimmtudagskvöld. Eftir það
verða farmiðar seldir öllum
templurum, sem óska. Far-
seðillinn kostar kr. 16,00 fyr-
ir íhvern. Lagt verður af stað
frá Templarahúsinu kl. 9 á
sunnudagsmorgun. — Fjöl-
mennið á fundinn í krvöld og
í skemmtiferðina á sunnudag
inn.
Prestur og fallhlífarhermaður.
Þessi ameríkski herprestur, sem iheitir sera Raymond S.
Hall og er ifrá Lowell, Ma.ss., fekk þá fiugu í hofuðið, að
'hann yrði að mæta sömu hættum og. ajörð hsns, hermenn-
irnir. Gerðist hann því fallhiífarhermaður og svífur nú
eins og engill af -himnum ofan til þess að mcssa fyrr her-'
mennina sína.
6 milijón króTi riþ
isÉfeFiÓ fyrii Síjln-
fjðrð íii virkjiinar
Fljótaár.
F JÓRIR alþingismenn, Finn-
ur Jónsson, Garðar Þor-
steinsson, Einar Arnason og Aki
Jakobsson, flytja þingsályktun-
artillögu um heimild fyrir ríkis-
stjórnina til að ábyrjast 6 millj-
ón króna innanlandslán fyrir
Siglufjarðarkaupstað, til virkj-
unar Fljótaár í Skagafirði, gegn
þeim trygginum, sem hún met-
ur gildar, enda sé vaxtahæð
ekki yfir 4% á ári og lánstími
ekki undir 25 árum og ekki yfir
40 ár.
í greinargerð segir svo:
,,Með lögum nr. 98 frá 3. maí
1935 var Sigluíjarðarkaupstað
heimilað að virkja Fljótaá í
Skagafjarðarsýslu með þerm
skilmálum, sem nefndir eru í
lögunum.
'Hafa farið fram ýtarlegar
rannsóknir á virkjunarmögu-.
leikunum. iSamkvæmt þeim og
fram komnum tilboðum í efni
og vélar frá Ameríku hefir bæj-
arstjórn Siglufjarðarkaupstaðar
einróma ákveðið að ráðast í
virkjunina, ef lán fáist í þeim
tilgangi, með eigi verri vaxta-
kjörum en 4% p. a. og til eigi
skemmri tíma en 25 ára.
Upphæð sú, sem til virkjunar-
innar iþarf, er 6 milljónir króná,
þar í innifalin greiðsla á lánum
núverandi rafveitu, 300 þús. kr.
Við rannsókn á peningamark-
aðinum hefir komið í Ijós, að
eigi muni hægt að fá slíkt lán
án ríkisábyrgðar, og er lagt til,
að hún verði veitt.
í iþessu sambandi er vert að
geta þess, að virkjun sú, sem
um er að ræða, gerii* allan
rekstur síldarverksmiðjanna á
staðnum öruggari og lækkar að
verulegu leyti stofnkostnað
nýrra síldarverksmiðja.“
Hreinlætisvikan ber
flíiömi aia.ifur.
leim tsa’elnsa vel
kringnim hás sin.
Eft 70 kærur hafa börizt.
JJf REINLÆTISVIKAN
9 í *• *“* ætlar að bera góð-
an árangur.“ Þetta sagði Pét-
ur Kristinsson lögregluþjónn
við Alþýðublaðið í gær-
kveldi. „Þeir, sem á annað
borð hafa hreinsað kringum
hús sín, hafa gert það mjög
vel. — Aðrir snerta ekki við
því og láta allt dankast.“
í gær bárust lögreglunni um
70 kærur um sóðaskap á húsa-
lóðum og er nú verið að rann-
saka þessar kærur. Lögreglunni
. eru slíkar kærur eða vísbend-
ingar kærkomnar. Hún rann-
sakar allar slíkar kærur og sér
svo um, að fyrirmælum hrein-
lætislögreglunnar um hreinsun
sé fýlgt út í æsar.
í gær var farið um allar göt-
ur, sem ákveðnar voru, og eftir
því litið að hreinsað væri kring-
um húsin.
í dag verður farið um eftir-
taldar götur: Verkamannabú-
staðirnir í Vesturbænum. Mið-
bær: Öll hús, þar sem veitinga-
stofur eru reknar. Austurbær:
Bankastræti, Skólavörðustígur
| að Óðinsgötu, Grettisgata, Ei-
ríksgata, Leifsgata, Egilsgata,
Freyjugata. Enn fremur verður
farið um allar þvergötur, sem
að þessum götum liggja.
Það ætti ölium' að vera mjög
kærkomið tilefni nú að hreinsa
kringum hús sín, athuga sorp-
ílát sín og lagfæra það, sem er
ábótavant. Menn mega ekki
undir neinum kringumstæðum
álíta, að hér sé um þvingunar-
ráðstafanir að ræða af hálfu
heilbrigðisyfirvaldanna. Hér er
aðeins snúið sér til almennings
og hann hvattur til þess að auka
þrifnaðinn. Lögreglan er í þessu
FRIÐRIK ÖLAFSSON,
fyrrverandi skipstjóri, andaðist í Landsspátalanum ihinn 17. þ. m.
Systkini hins látna.
efni aðeins að leita samvinnu
við almenning um mjög nauð-
synlegt mál. Hins' vegar vita
menn, að alltaf eru til einhverj-
ir, sem eru svo hirðulausir, að
þeir skeyta ekkert um það,
hvernig út lítur í kringum þá,
og gegn þessum mönnum verð-
ur lögreglan að beita þeim að-
ferðum, sem hún hefir vald til
samkvæmt heilbrigðisreglugerð
bæjarins.
fyrsta flokbsnótið
byrjar í kvðld.
LANDSMÓT fyrsta flokks í
knattspyrnu hefst í dag
með leik milli Vals og Fram.
Dómari: Haukur Óskarsson og
var'adómari Baldur Möller.
Annað kvöld keppa Haukar
—Víkingur. Dómari Friðþjófur
Thorsteinsson, varad. Þráinn
Sigurðsson.
Næstu kappleikir eru: Valur
—K.R. Dómari Sighv. Jónsson,
varad. Þorsteinn Einarsson.
Valur—Víkingur: Dómari Sig-
urjón Jónsson, varad. Sighv.
Jónsson. Valur—Haukar: Dóm-
ari Þorsteinn Einarsson, varad.
Sigurjón Jónsson. Fram—K.R.
Dómari: Baldur Möller, varad.
Guðjón Einarsson. Fram—Vík-
ingur: Dómari Þorsteinn Ein-
arsson, varad. Guðmundur Sig-
urðsson. Fram—Haukar: Dóm-
ari Haukur Óskarsson, varad.
•Jóhannes Bergsteinsson. Hauk-
ar—K.R.: Dómari Þráinn Sig-
urðsson, varad. Jón Þórðarson.
Víkingur—K.R.: Dómari Friðþ.
Thorsteinsson, varad. Jóhannes
Bergsteinsson.
3. flokks landsmót hefst 23.
þessa mán. með leik milli Vals
og K.R. 1: Dómari Jón Þórðar-
son, varad. Haukur Óskarsson.
Þá keppa Fram—K.R.2: Dómari
Haukur Óskarsson, varad. Guð-
mundur Sigurðsson. Og loks
Haukar — Víkingur: Dómari
Guðmundur Sigurðsson, varad.
Sigurgeir Kristjánsson.
Reykjavikurmótið:
E.B. vanit Fraro, 2:1.
ÆSTSÍÐASTl leikur móts-
ins fór framí gærkveldi og
vann K.R. með 2 mörkum gegn
1 og voru öll mörkin sett á
fyrstu 15 mínútunum.
Þetta var annars leiðinlegur
leikur. Mikið um spark, minna
um spil. Deyfð og dugleysi ein-
kenndi leikinn frá byrjun til
enda. ,Var mesta slembilukka að
nokkurt mark varð, enda komu
öll mörkin áhorfendum að óvör-
um og jafnvel leikmönnum líka.
K.R. hélt uppi nokkurri sókn
í fyrri hálfleik. Skoraði Þórar-
inn mark er 5 mínútur voru af
leik, að nýafstaðinni horn-
spyrnu. Var Þórarinn nokkuð
betri nú en síðast, þó hann sé
sjáanlega lítt æfður og sýni því
ekki þann leik, sem hann hefir
átt til.
Jón skoraði næsta mark, rétt-
um 10 mínútum eftir leiksbyrj-
un að nýafstöðnu frísparki á
Víking, en eftir 5 mínútur
höfðu Víkingar kvittað annað
markið. Eftir það skeði lítið.
Það dofnaði yfir leiknum og
var stundum eins og margir
leikmannanna væru hættir.
Víkingur hélt uppi sókn síðari
hálfleikinn og hallaði talsvert á
K.R. seinni hluta leiksins, þó'
ekki tækist að kvitta. Stoðaði
ekkert þó Brandur færði sig um
set, enda lögðu K.R.-ingar þá
aðaláherzluna á vörnina. Jó-
hannes Bergsteinsson dæmdi.
Hélt hann leiknum ekki nægi-
lega vel í skefjum og sá undar-
lega fátt af því, sem aflaga fór.
K.R. hefir nú 4 stig
Valur 3 •—-
Fram 2 —
Víkingur 1 —
Næsti leikur verður milli
Vals og Fram. Vinni Valur, er
það úrslitaleikur, því þá hefir
Valur 5 stig, en allir kappleik-
ir um garð gengnir.
Verði aftur á móti jafntefli,
kemur til átaka milli K.R. og
Vals, sem þá verða með sín 4
stigin hvort. Vinni hins vegar
Fram, verður það að keppa aft-
ur og þá til úrslita við IC.R.
Áh.
Charckill ræðir vii
Smntz og de Banile
i Kairo.
GHURCHILL kom við í
Kairo á leið sinni til Riiss-
iands og átti viðræður við þá
Smutz, marskálk frá Suður-
Afríku, og de Gaulle, foringja
hinna stríðandi Frakka. Var frá
þessu skýrt i dag og þess jafn-
framt getið, að W. C. hafi farið
í ameríkskri Liberator sprengju
flugvél og ameríkskur flugmað-
ur flaug vélinni.
Smutz, eða „gamli góði karl-
inn frá Suður-Afríku“, eins og
Bretarnir kalla hann, skýrði frá
því eftir viðræðurnar, að rætt
hafi verið um allar hliðar
stríðsins. Kvaðst hann álíta, að
viðræður Churchills í Moskva
muni hafa víðtæk áhrif á gang
stríðsins. .
Hvarvetna um lönd Banda-
manna hefir fréttunum um fund
þeirra Churchills og Stalins
verið tekið með miklum fögn-
uði. Þykir fundurinn hinn mesti
viðburður og er talinn hafa ver-
ið hinn mikilvægasti. Hefir víða
. komið fram, að Bandamenn hafi
unnið mikinn stjórnmálasigur,
því að samvinna Rússa við
Breta og Bandaríkjamenn er
, talin munu aukast stórum og
kynning þjóðanna eykst hröð-
um skrefum.