Tíminn - 28.11.1963, Page 15
Vettvanguriitti
nstu íhaldsstefnu. Flokkurinn hef-
ur svikið stefnuna og um leið kjós-
endur sína, launþegana, og hjálpað
ihaldinu í ríkum mæli til þess að
koma á því ófremdarástandi, sem
nú ríkir í heiminum. Engum verka-
lýðsflokkum hvar í heiminum sem
væri, myndi láta sér detta í hug
að ætla að afnema samnings- og
verkfallsrétt verkalýðsfélaganna,
enginn veikalýðsflokkur myndi
reka þá skipulagslausu glundroða-
stefnu, sem hér hefur verið rek-
jja í efnahagsmálum. Enginn verka
lýðsflokkur myndi hlaða svo und-
iv braskara og stórgróðamenn á
kostnað hins almenna launþega og
bænda, sem núverandi ríkisstjórn
hefur gert með stuðningi, eða að
frumkvæði Alþýðuflokksins. Al-
þýðuflokkurinn hefur brotið allar
hrýr að baki sér, svikið allt og
alla, nema stórgróðamennina —
flokkurinn er kominn hægra meg-
in við íhaldið. Slíkur flokkur ætti
að skahunast sín fyrir að láta
nafn sitt sjást og sameinast sem
fyrst stallbræðrum sínum, íhald-
inu.
Hvarf Alþýðuflokksins, sem
verkalýðsflokks í íslenzkum stjórn
málum heíur skapað nýtt and-
rúmsloft, nýjar aðstæður. Þær að-
stæður urðu til þess, að Framsókn
arflokkurinn jók svo mjög fylgi
sitt í síðustu kosningum, og þær
aðstæður munu auka fylgi flokks-
ins í framlíðinni, því flokkurinn
hefur sýnt það í verki að hann er
ekki einungis flokkur bænda, held
ur einnig allra launþega landsins.
Hann er það afl, sem stendur á
milli öfga íbalds og kommúnisma.
STÖÐUG ÓFÆRÐ
Framhald af 1. síöu.
vegum alls staðar í nónd við Egils
staði, en í dag var verið að ryðja
veginn yfir Fjarðarheiði.
Víðast hvar var suðvestan átt
í aag, qg hiti frá -h 1 stigi á Galt-
arvita í 8 stiga hita á Dalatanga kl.
2. Hvassast voru 6 vindstig á Vest-
fjörðum, Stórhöfða og í Horna-
firði.
Nýtt - Ódýrt
Eldhúsborð 950 kr.
Bakstólar 400 og 450 kr.
Kollar 145 kr.
Strauborð 295 kr.
Fornverzlunin
Grettisgötu 31
fbúð til leigu ]
j|
Gegn láni til skamms tíma j
eða fyrirframgreiðslu, er j
til leign 3ja herb. íbúð í
Sólheimum.
Tilboð merkt: 1966 — send
ist blaðinu fyrir hádegi á
laugardag.
SKÓLABÖRN
sagði fréttamönnum í Dallas í
dag, að hann hefði enn ekki ver-
ið kallaður til yfirheyrzlu. Brew-
er sagði, að hann hefði um kl.
citt á staðartíma séð blásmóðan
mann, serr. allt í einu nam stað-
ar utan við verzlun hans Dg
reyndi að fylgjast með ferðum
iögreglubíls í götunni. Þegar bíll
inn var kominn fram hjá, snerist
maðurinn á hæl og hélt áfram.
Brewer fór út og elti manninn,
sem hvarf inn í kvikmyndahús.
Brewer bað stúlkuna í miða-
sölunni að hringja á lögregluna
en tók sér sjálfur stöðu við dyrn
ar, til þess að gæta þess, að mað
urinn færi ekki.
Samkvæmt upplýsingum FBÍ
eru helztu atriði rannsóknarinn-
ar þessi:
1) Var Oswald einn um morðið
eða á vegum skipulagðra ram-
taka?
2) Hefur lögreglan í Dallas
notað Oswald sem skákmann' í
tafli, þar sem morðið var fram-
ið af ofsafengnum andstöðumönn
um Kennedys í kynþáttamálum?
3) Drap Ruby — sem vitað er
að hefur haft samband við und-
irheima — raunverulega vegna
samúðar með ekkju og börnum
Kennedys, eins og hann heldur
fram?
4) Hafði Ruby fengið skipun
um að ryðja Oswald úr vegi, áð-
ur en hægt væri að yfirheyra
hann írekar?
Starfsma.ur lögreglunnar í
Dallas, sem nú vinnur með FBI,
segir að sannanir, sem fundust
heima hjá Oswald sýni, að hann
hqfi unnið markvisst fyrir komm-
únista. Meðal þessara sannana
eru bréf frá þekktum kommún-
istum.
Það hefur vakið mikla athygli, j
að svo virðist sem æskan í Texas
hafi fagnað víginu á Kennedy for
seta. Prestur að nafni Hotaes,
sagði í stólræðu á sunntidaginn
og síðar í sjónvarp, frá því, að
nemenduir í skólum Dallas hefðu
rekið upp fagnaðaróp, þegar
fréttist um árásina á forsetann.
Ung kennslukona í Dallas tók í
sama streng í gærkvöldi, og sagði
að nokkrir nenienda í hennar
bekk hefðu hrópað fagnandi upp
yfir sig: — Við erum frjáls! Hún
sagðist einnig hafa fengið bréf
frá Austin, þar sem skólaböirn
hefðu fagnað árásinni á forset-
ann. Og Lawrence nokkur Gray,
sem á son í miðskóla, sagði að
svi.pað hefði komið fyrir í bekk
sonar hans. Drengirnir í bekk
Gray yngra, notuðu árásina sem
ástæðu til kerskni við hann, veitt
ust að honum og hróipuðu hlæj-
andi:
— Nú er negri búinn að drepa
negraelskarann þinn, forsetann!
ULLIN GERÐ . . .
Framnaid af X. síðu.
millj. kr. virði. Verðmætið tvö
faldast við aðgreiningu í þel
og tog, tvöfaldast aftur við að
spinna band úr hvoru fyrir sig
og tvöfaldast enn við að vefa
og prjóna úr bandinu. Verð-
mætisaukningin er því gífur-
lega mikii á hverja krónu í
fjárfestingu, og er það hag-
stæðara hiutfall en í flestum
öðrum iðnaði,
Eins og ullin er unnin nú,
er nún aðeins flokkuð eftir
því, hvað hún er togmikil og
blæfalleg. Langt er síðan
Bandaríkjamenn tóku að að-
greina ull j vélum, en þær vél-
ar, sem kunnar eru, hafa ekki
Herbergi óskast
Herbergi óskast til leigu fyrir einhleypan manú
utan af landi. Nánari upplýsingar í síma 12323 •>,;
40656 eftir kl. 7.
reynzt nógu heppilegar. Eitt
fyrirtæki í Ohio hefur náð
mjög góðum árangri með ullar
greiningu í vélum, en patent-
inu er vandlega haldið leyndu,
og varð Stefán einskis vísari
um það atriði, þegar hann
heimsótti fyrirtækið eitt sinn.
Stefán kvaðst búast við, að við
tilraunirnar í Noregi yrði
stuðzt við þann árangur, sem
náðzt hefur við notkun þeirra
véla, sem kunnar eru, og reynt
að endurbæta þær og aðlaga
íslenzku og norsku ullinni. Til
raunirnar verða framkvæmdar
á Textil Forskning Institutet
í Osló, og er síðar meir jafn-
vel í ráöi að koma upp smá
verksmiðju til þess að nota við
þessar rannsóknir.
Stefán sagði, að rannsóknirn
ar gætu hafizt með viku fyrir-
vara, þegar fjármagn væri
fengið, því að undirbúningi er
þegar að mestu lokið. í haust
voru send til Noregs 600 kg.
af ísl. ull, sem tekin var bæði
af vorrúnu fé og fé, sem rúið
var í marz og apríl. Er af ýms
um talið betra að rýja féð inni
svo snemma vors, því að þá er
ullin ekki farin að losna og
þófna.
Steían Aðalsteinsson sagði
að lokunr — Fari nú svo, eins
og cnaður vonar, að takizt að
framleiða stórvirkar vélar til
aðgreiningar á ullinni í þel og
tog, fæst með því gott hráefni
fyrir íðnaðinn að vinna úr
Frá iUftingi
samningar um
smíði skips hefðu,
verið gerðir eða
ákvörðun um það
tekin af ríkis-
stjórnarinnar
hálfu. Um ára-
mótin munu vera
um 9 milljónir
króna i sjóði til
smíði slíks skips,
en skv. áliti fiskifræðinga væri
óvarlegt að áætlc að hafrannsókna
skip með öllum búnaði myndi
kosta undir 50 milljónum króna.
Teikningar þær, sern sérfræðing-
ur FAO hefði gert, hefðu verið
ófullkomnar, og ekki hæfar til
útboðs, en nú hefði ríkisstjórnin
falið Seebeck-skipamíðastöðinni í
Bremerh. að gera teikningar af
rannsóknaskipi, og þær teikningar
myndu síðan yfirfarnar af íslenzk-
um aðilum og boðnar út, ef ríkis-
stjórnin feldi fjárhagsgrundvöll
nægilega tryggan.
Jón Skaftason sagði, að hapn
yrði að láta í ljós óánægju með
svör ráðherrans. Það væri rangt
að eyða miklurn tíma og fjármun-
um í undirbúningsrannsóknir og
teikningar, meóan allt er enn í
lausu lofti, hvort þessi undirbún-
ingsvinna kemur að nokkrum not
um og af framkvæmdum verður.
Það á fyrst að taka ákvörðunina.
Nú eru til um 20% af kostnaðar-
verði skipsins í sjóði og erlendar
skipasmíðastöðvar útvega lán fyrir
allt að 80% af kostnaðarverðinu
og upp í 90% ef ríki á í hlut. Fjár-
hagsgrundvöllur er því fyrir liendi.
Tnæknilega hliðin er ekkert vanda
mál. Aðrar þjóðir hafa byggt mik-
inn fjölda slíkra skipa, og er
komin á þau full reynsla. Það er
því engin ástæða til að draga það
að taka ákvörðun um þetta mál, og
sagðist Jón skora á ríkisstjórnina
að láta ekki verða lengri drátt á
þessu mikla nauðsynja og hagr
munamáli.
Emil Jónsson taldi óráðlegt aðj
taka ákvarðanir um það, sem
menn vita ekki hvað er. Þessar
teikningar kosta að vísu mikið fé,
en einmitt það bendir til þess að
ríkisstjórnin muni í framhaldi af
bví taka ákvörðun um smíði skips-
ins og vafalaust væri hægt að fá
lán.
Eysteinn Jónsson taldi að eng-
inn ágreiningur ríkti um það, að
það er óhjá-
kvæmilegt fyrir
okkur íslendinga
að eignast slíkt
rannsóknaskip
fyrir sjávarútveg-
inn, og að þetta
sé vel framkvæm
anlegt eins og nú
er komið. Kvaðst
Eysteinn vilja
taka undir við áskorun Jóns Skafta
sonar á ríkisstjórnina, að hún á-
kveði smíði skipsins og taki til
þess lán, „og vil ég beina því til
ríkisstjórnarinnar, að hún aflaði
sér heimildar Alþingis strax eða í
sambandi við afgreiðslu fjárlag-
anna.
MINNING
Framhald af 8. síðu.
og verkstjóra hjá Kaupfélagi Ár-
nesinga, fluttist hún hingað til
Biönduóss strax veturinn 1949 með
manni sínum.
Þau hjón hafa eignazt þrjá sonu
sem nú eru 16, 12 og 6 ára. Hefir
binn elzti dvalizt við nám á Sel-
íossi en hinir tveir, þeir yngri,
voru enn í foreldrahúsum.
Frú Gunnhildur hefir áunnið sér
miklar vinsældir enda kom hún
alls staðar fram til góðs, og til
bjálpar ef með þurfti. Hún var
foringi kvenskáta og lagði mikinn
tima og fyrirhöfn í það starf.
Manni sínum vár hún góður fé-
lági 0g var hjónaband þeirra sér-
staklega gott. Á heimili þeirra ríkti
jafnan ástúð og glaðværð, og bæði
voru samtaka í því að gleðja aðra,
og gera þeim greiða, og var ekki
r!!taf á loft haldið.
Þungur harmur er nú að henni
kveðinn að fá slíkt reiðarslag sem
þetta, og það án nokkurs undir-
búnings, en þó er sú bót í máli
að hún 6 góða að þar sem eru
foréldrar iiennar, og margar og
fagrar .minningar á hún um mann
int .sinn, sem elskaði hana og dáði,
á þá sambúð bar aldrei neinn
skugga. Við slíkan arineld minn-
inganna er gott að orna sér, hann
fölskvast ekki né dofnar þótt árin
liði.
SUNNUDAGINN þann 17. þ. m.
bárust mér þau sorgartíðindi, að
bróðir minn Skúli væri látinn.
Og það kom í minn hlut að til-
kynna sýstkinum og vandamönn-
um þessa sorgarfregn. En er ég
hafði gert það þá fannst mér að
þetta gæti ekki verið rétt. Þetta
væri misskilningur, vondur draum
ur, hann Skúli, sem ég var ný-
lega búinn að sjá pg var svo kát-
ur og frískur! Nei, hann gat ekki
verið dáinn. En svo verður maður
að setjast niður og hugsa og trúa
og koma skynseminni að Og þá
rennur upp fyrir manni þessi stað
reynd sem við gleymum svo oft
að hugsa um, að í kjölfar alls lífs
fylgir dauðinn og manneskjur sem
unnast varða að búast við því að
þegar lífið er bjartast komi dauð-
inn og skilji eftir sorg, grát og
autt rúm en við eigum samt hugg
un, ag ljós hcnnar er sterkara en
myrkur sorgar, og það er vissan
um að við lifum eftir dauðann.
Og það er vissan um að við mun-
um hitta ástvini okkar aftur þótt
við eigum oft erfitt með að skilja
hvers vegna þeir eru frá okkur
teknir, þegar maður á þess sízt
von.
Ég tel, að Skúli hafi verið gæfu
maður. Hann var alltaf vinsæll
hvar sem hann var. Hann eignað-
ist góða og ástríka konu, Gunn-
hildi Þórmundsdóttur og eignuð-
ust þau þrjá syni, sem allir eru
myndardrengir og virðast vera
mannsefni í bezta lagi. Þau hjónin
komu sér upp fallegu heimili á
æskustöðvum hans á Blönduósi,
þar sem hann vann í Mjólkur-
stöðinni. Elztj sonur þeirra Jakob
16 ára er við nám að Selfossi, þar
sem afi hans og amma búa, en
yngri drengirnir Vilberg 6 ára og
Þórmundur 12 ára, eru í foreldra
húsum og vonandi fá þeir að njóta
umönnunnar móður sinnar meðan
æskuárin líða og víst má það vera
þeim mikil huggun að geyma
minningu uén góðan föður sem
bar hag þeirra og velferð framar
öllu öðru fyrir brjósti og var stolt
ur af sonum sínum.
Bróðir minn! Ég flyt þér mínar
hinztu kveðjur og þakka þá góðu
vináttu, sem var okkar á milli.
Oskar Jakobsson.
Þökkum innllega auðsýnda samúð viS fráfall og jarSarför
Sigurjóns Guðmundar Sigurðssonar
frá Húsey.
Elísabet Guðmundsdóttir
Hjörtur Bjarnason
Konan mín
Guðrún Pálmadóttir,
sem andaðist 21. þ.m., verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstu-
daglnn 29. þ.m. kl. 10,30 f.h. — Athöfnlnni verður útvarpað.
Sveinn Halldórsson.
Þökkum auðsýnda samúð og vlnáttu, vlð andlát og jarðarför konu
mlnnar og móðlr,
Sigríðar Svövu Árnadóttur
Þorkell Ingvarsson, Árni Þorkelsson.
Móðir mln,
Ólöf Þorkelsdóttir
andaðist að helmili mfnu, Kambsvegi 24, þriðjudaginn 26. þ.m.
Hallfríður Tómasdóttir
Kveðjuathöfn um föður okkar
Hannes Ólafsson
frá Austvaðsholti,
' verður frá Fossvogsklrkju, fimmtudaglnn 28. nóv. kl. 1,30. Jarðsett
verður að Árbæ, föstudaginn 29. nóv. kl. 1,30 og hefst athöfnln
með bæn að helmili hlns látna kl. 11. — Ferð frá B.S.Í. kl. 7.
Guðrún Hannesdóttir _
Ólafur Hannesson
Guðný Magnúsdóttir
Háafelll, Skorradal,
verður jarðsungin frá Fitjaklrkju, laugardaginn 30. þ.m. — Athöfn-
in hefst kl. 2 siðdegis.
Vandamenn.
T í M I N N, fimmtudaginn 28. nóvember 1963
15