Alþýðublaðið - 03.06.1943, Side 3
Fimmtudagur 3. júní 1943.
ALÞYÐUB* AOIÐ
Ráðstefna Frakka i Algier:
Lansnarheiðni Peyronton hefir
valdið noKhrnm erfiðleikum.
V -
De Gaulle og Giraud ræðast við i dag
LONDON í gærkveldi.
NOKKRIR erfiðleikar hafa enn komið í ljós í samninga-
umleitunum þeirra Girauds og de Gaulles í Algier, sem
orsakað hafa að algert samkomulag hefir enn ekki náðst.
Það varð nokkuð til þess að auka á þessa erfiðleika, að
Peyróuton, landstjóri í Algier, haðst lausnar frá embætti
sínu og ritaði bæði de Gaulle og Giraud bréf, þar sem hann
titlaði þá háða sem forseta franska þjóðráðsins. De Gaulle
samþykkti þegar lausnarbeiðni hans og varð einnig við ósk
hans um að verða skipaður höfuðsmaður í fótgönguliði
franska nýlenduhersins, en Giraud vildi ekki taka lausnar-
heiðni hans til greina fyrr en samkomulag hefði náðst um
myndun hins nýja þjóðráðs Frakka.
-------------------------------
Brezk herskip réðast á
smmMag m aftur í
fyrradaö á Pautellaria.
LONDON í gærkveldi.
BREZK HERSKIP gerðu á-
rás á sunnudag og aftur í
gær á Pantellaria á Miðjarðar-
hafi.
Skotið var á hermannaskála
á landi og ýmis vígi á strönd-
inni. ítalir veittu enga mót-
spyrnu fyrra skiptið, en nokkra
í seinna skiptið. Brezku her-
skipin sakaði ekki og ekkert
manntjón varð. ,
Brezk herskip gerðu fyrstu
árás sína á Pantellaria 15. maí
s. 1. Hafa þau því alls gert 3
árásir á eyna.
Loftárásum var haldið áfram
á Pantellaria í gær eins og að
undanförnu og eins á Sikiley.
Kveikt var í skipi við Sikiley.
Einnig var ráðizt á smáeyju
skammt frá Sikiley og flugvéla-
skýli og margar sjóflugvélar
voru eyðilagðar. ,
Flugvélar frá Norður-Afríku
vörpuðu 13 000 smálestum af
sprengjum á ítölsku eyjarnar og
Ítalíu í s. 1. viku. Hefir Ítalía
aldrei fyrr orðið fyrir svo mikl-
um loftárásum.
Loftsóko Mssa hefir
trnflað sóknðætlanlr
Pjóðverja.
FRÉTTARITARI Reuters í
Moskva segir, að Rússum
hafi orðið svo vel ágengt með
loftárásum sínum í vor, að
þeim hafi tekizt að eyðileggja
um helming alls benzíns fyrir
Þjóðverjum, sem þeir hafa ver-
ið að flytja til fremstu vígstöðv-
anna í Rússlandi. Segir frétta-
ritarinn, að þetta hafi gersam-
lega truflað allar hernaðar-
áætlanir Þjóðverja.
Rússar segjast hafa hrundið
gagnárásum Þjóðverja á Kub*
anvígstöðvunum. Þjóðverjar
segja hins vegar, að Rússar
reyni að sækja þarna fram með
miklu liði, sem stutt er af flug-
her.
Rússar halda áfram loftárás-
um sínum á flutningamiðstöðv-
ar Þjóðverja. Þeir hafa gert
miklar loftárásir á járnbraut-
arbæina Polotsk og Bryansk.
Robert Donet, fréttaritari
brezka útvarpsins, símar frá
Algeir í dag, að talsmaður Gi-
raud hafi látið svo um mælt
við blaðamenn í dag, að sam-
komulag hafi enn ekki náðst
um myndun þessa þjóðráðs og
þar til slíkt sameiginlegt ráð
væri myndað, væri Giraud einn
æðsti yfirmaður í Norður-Af-
ríku og enginn annar en hann
hefði leyfi til þess að veita
Peyrouton lausn frá embætti.
Engar viðræður fóru fram á
milli Giraud og de Gaulle í dag.
Hins vegar ræddust þeir de
Gaulle og Eisenhower hershöfð-
ingi við. í Algier er skýrt frá
því, að viðræður þeirra Giraud
og de Gaulle muni halda áfram
á morgun.
Matvæiaráðstefnan
Fnlltrúar Bretlands,Kana
da, Noregs og Islands
leggja til að sjávaraf-
urðlr verði tsknar með
%
i matvtelaáætlunina.
Hot Springs, Virginia.
AMATVÆLA- og land,-
búnaðarráðstefriunni hér
hafa fulltrúar íslands, Kanada,
Stóra-Bretlands og Noregs lagt
sameiginlega fram eftirfarandi
tillögu:
Þar sem fiskur og aðrar
sjávarafurðir eru mjög mikils-
verðir þættir í því að fullnægja
næringarþörf fólks í mörgum
löndum;
þar sem útvegurinn er nauð-
synlegur þáttur í hagkerfi ým-
issa landa og afkoma sjómanna,
eins og bænda, er bundin jafn-
vægi 1 heimsverzluninni;
þar sem mál, er snerta fiski-
og sjávarafurðir eru þýðingar-
mikið atriði í sérhverri áætlun,
sem kann að vera gerð um mat-
vælaþörf til lengri tíma;
þá lýsir ráðstefnan yfir því,
að hinar almennu niðurstöður
ráðstefnunnar ná til fiski- og
sjávarafurða og að þau mál, er
að slíkri framleiðslu lúta, eiga
heima innan vébanda þess
framhaldsstarfs, sem kann að
verða ákveðið og tilheyra starfs
sviði þeirrar nefndar eða ráðs,
sem kann að verða stofnað
vegna þessarar ráðstefnu.
Undir ályktunartillöguna rit-
uðu H. Barton, einn af kana-
disku fulltrúunum, Richard
Lait fyrir Stóra-Bretland, Thor
Thors, fulltrúi Islands, og
Anders Fjelstad, fulltrúi Norð-
manna.
Á verði gegn kafbátum.
S Kaíbátar Þjóðverja hafa iðulega leitað upp að ströndum Ameríku til þess að herja þar. —
V Strandvarnarlið Bandaríkjamanna fékk það hlutverk, að hrekja þá frá ströndunum. — Á
j myndinni sést amerískt strandvarnarskip yera að varpa djúpsprengju að þýkzum kafbáti.
^ Skipsverjar horfa á hina miklu vatnssúlu, sem upp gýs.
S
|
I
s
s
s
\
s
s
s
N
S
s
s
S
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
Brezk farpegaflnovél skotin niðnr
á leiðiini frá Lissabon til Englands
......
Meðal farþeganna var hinn heims~
frægi leikari Leslie Howard.
LONDON í gærkveldi.
O REZK FARÞEGAFLUGVÉL, sem lagði af stað frá
Lissabon í gærkveldi, hefir verið skotin niður. í flug-
vélinni voru 13 farþegar og 4 manna áhöfn. Meðal farþeg-
anna var hinn heimsfrægi brezki leikari Leslie Howard.
Bandamean bata aldrei
sökkt fleirl kafbútum
fyrir Þjóðverjum en i
mai.
London í gær.
LEXANDER flotamála-
ráðherra Breta skýrði frá
því í dag í brezka þinginu, að
Bandamenn hafi sökkt fleiri
kafbátum fyrir Þjóðverjum í
maí en nokkrum öðrum mán-
uði áður.
Um fjórðungi fleiri kafbát-
um hefir verið sökkt undan-
farna 6 mánuði en á jafn-
löngum tíma áður.
Hann kvað þennan góða ár-
angur í baráttunni við kafbát-
ana stafa fyrst og fremst af
því, að fleiri og hraðskreiðari
verndarskip fylgdu nú skipa-
lestunum og að flugvélar
tækju nú meir þátt í baráttunni
við kafbátana en áður.
Alexander sagði, að skipa-
tjón Bandamanna hafi verið
mikið í marz en hafi síðan far
ið stöðugt minnkandi og með-
altalið væri nú svipað og í des.
og jan. og jafnvel minna.
Þjóðverjar skýrðu frá því í
dag, að þýzk könnunarflugvél
hafi skotið niður brezka flutn-
ingaflugvél yfir Atlantshafi.
Veðurfréttir frá Portúgal
herma, að sjór sé nú mjög úf-
inn í Biskayaflóa. Brezkar flug
vélar hafa leitað allan daginn
í dag á þeim slóðum, þar sem
líklegast er talið að flugvélin
hafi farizt.
Leslie Howard var einhver
þekktasti leikari Breta um all-
an heim. Hann lék lengst af í
brezkum leikhúsum, en fór
seinna vestur um haf, lék á
Broadway í New York og náði
þar mikilli hylli, sem leikari.
Síðan lék hann í mörgum
kvikmyndum í Hollywood.
Eftir að stríðið byrjaði vann.
hann í þjónustu brezka ríkis-
ins. Og hafði að undanfömu
dvalið í Portúgal á vegum Bri-
tish Counsil. Howard var sjálfi
ur byrjaður á kvikmyndagerð.
Og var meðal annars viðstadd-
ur írumsýningu í Portúgal á
mynd, sem hann hafði gert sem
nefnist: „First of the few.“
Hann átti fyrir nokkrum dög-
um að vera kominn til Eng-
lands, en tafðist nokkuð, vegna
starfs síns i Portúgal, til þess
að ljúka við kvikmynd, sem
hann hafði í smíðum er nefn-
ist: ,,The lamp still burns.“
ísl. kvikmyndahúsagestir
munu minnast hins glæsilega
leiks Leslie Howard í mörgum
kvikmyndum, sem hann hefir
leikið í, og hér hafa verið sýnd
ar, eins og t. d. Pigmalion, er
gerð var eftir samnefndu leik-
riti Bernhard Shaw, Romeo
og Juliá, og nú síðast í stór-
myndinni, ,,Á hverfanda
hveli.“
Þjóðverjar segjast hafa
sölkt i mai kaupskipa-
fluta samtals 430,000
smálestum.
Kínverjar vinna glæsilegan sigur:
80,000 manna japonsknmler, sem
átti að taka Chnngking tvistrað.
30,000 Japanir féllu eða særðust.
-------+------
LONDON í gærkveldi.
KÍNVERJAR hafa tvístrað 80 000 manna japönskum her,
sem sækja átti upp með Yangtsefljóti til Chungking,
höfuðborgar kínversku stjórnarinnar. 30 000 af her þessum
féllu eða særðust í bardögum, sem stóðu yfir í 15 daga, en
leifar hans eru á flótta.
Kínverjar hafa einnig náð
miklum hergagnabirgðum Jap-
ana á sitt vald suður af Ichang,
þar sem nokkur hluti þessa hers
er á flótta.
Þetta er mjög mikilvægur
sigur fyrir Kínverja og eru am-
eríkskar sprengjuflugvélar og
kínverskar orustuflugvélar, sem
gert hafa stöðugar loftárásir á
lið og stöðvar Japana, sagðar
eiga mikinn þátt í sigrinum.
Bandaríkjamenn hafa í sókn
sinni á Attuey fellt 1500 Jap-
ani en tekið aðeins 4 til fanga.
ÝZKA ÚTVARPII) skýrði
frá því í gær, að Þjóðverj-
ar hafi í maímánuði sökkt fyrir
Bandamönnum kaupskipaflota
samtals 430 þúsund smálestir.
Af þeim sökktu þýzkir kafbátar
350 þús. smálestum.