Alþýðublaðið - 05.01.1944, Síða 3
Miðvikudagur 5. janúar 1944.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
Rússar taka Byelya ^ Tserkov
og fara inn I Póliand
Þjóðverjar hafa nú aðeins borgina
Berdichev á Kiev^svæðinu á valdi sínu
RÚSSAR. hafa enn unnið einn stórsigurinn á Þjóðverjum. I
gær tilkynnti Stalin í dagskipan, að hersveitir Vatutins
hefðu náð á sitt vald borginni Byelya-Tserkov eftir f jögurra daga
mannskæðar orustur. Eiga Þjóðverjar nú aðeins einn mikilvægan
bæ á valdi sínu á Kiev-svæðinu, Berdichev, og segja fregnritarar,
að aðstaða Þjóðverja á þessum slóðum sé nú nánast vonlaus. Kós-
akkahersveitir hafa hrotizt inn yfir landamæri Póllands á mörg-
um stöðum, en Þjóðverjar hafa orðið að hörfa undan á breiðu
svæði. Frá öðrum vígstöðvum þar eystra eru litlar fregnir, en
bersýnilegt er, að mikill þungi er í sókn Rússa á flestum vígstöðv-
um.
Fregnin um þaS, að Rússar*
séu nú komnir inn yfir landa-
Austurvígstöðvarnar.
Dökka svæðið á kortinu sýnir það landflæmi, sem Þjóðverjar
hafa enn á valdi sínu í Rússlandi. Þó ihafa Rússar nú brotizt þvert
yfir það og inn í Pólland. Það er vestur af Zhitomir og Korosten.
11 ára for-
heimskun.
FYRIR réttum 11 árum
stóð heldur ófrýnilegur
maður við gluggann á kanzl-
arahöllirini í Wilhelmsstrasse
og horfði fjálgum augum á
þúsundir brúnklæddra
manna ganga fylktu liði
fram hjá. Menn þessir voru
sérmenntaðir í þeirri list, að
berja nýja lífsskoðun inn í
höfuðið á þeim, sem ekki
reyndust nógu viðbragðsfljót
ir til þess að taka hina nýju
trú og höfðu átt verulegan
þátt í vexti og viðgangi naz-
istaflokksins með bareflum
sínum, þegar rökin þraut.
YFIR ÞEIM hvíldi einhver dul
úð, þeir töluðu um, að
Þýzkaland yrði að öðlast á
ný einhvern hlut, sem þeir
nefndu „Waffenehre,11 —
vopnaheiður, sem friðsamir
menn og sæmilega skynugir
footna ekkert í. Þá var talað
um „Blut und Boden,“ blóð
og jörð, og eru hvort tveggja
hugtökin næsta torskilin
þeim, sem trúa á friðsamlega
framvindu í heiminum. Þeg-
ar maðurinn stóð þarna í
glugganum, en hann hét, eins
og að líkum lætur, Adolf
Hitler, lék dularfullt bros
um varir hans, ekki ósvipað
því, sem Mona Lisa mun
hafa sett upp, þegar vel lá
á henni. Þettá var stærsta
augnablik í lífi hins snauða
og ofsafengna málara frá
Vínarborg.
NÚ SKYLDI tekið öðrum tök-
um á málunum. Junkaralýð-
urinn skyldi fá að kenna á
því, og álfan öll, að nú hélt
styrk hönd um stjórnvöl-
inn. Enda var ekki langt
að bíða, að sumir menn
hyrfu af vettvangi dagsins
með næsta vofeiflegum
hætti. Sumir voru kunnir
menn, svo sem von Schleich-
er, hershöfðingi og kona
hans, Röhm, dúsbróðir Hitl-
ers, og maður nokkur, sem
var svo óheppinn að heita
Willi Schmidt og hafði helzt
gert sér það til miska að
vera listagagnrýnandi við
folað eitt í Múnchen, en
hafði aldrei nálægt stjórn-
málum komið. Þeir Göring
og Himmler fengu ærið
verkefni næstu daga, en
Hitler gerðist samvizka
þýzku þjóðarinnar og hæsti-
réttur í 24 klukkustundir, —
við dynjandi fagnaðarlæti
obbans af þýzku þjóðinni.
OG SVO hefst landvinninga-
ferill Hitlers, sem heiminum
er- orðinn næsta ljós, og má
ekki á milli sjá, hvor þátt-
urinn er ríkari í stjórnmála-
gáfu Hitlers, sviksemin eða
frekjan. Hann kom á fót
stærsta fangelsi, sem sögur
fara af, því það var hvorki
meira né minna en heil heims
álfa, sem gerð var að fanga-
búðum. Jafnframt var hafin
vísindaleg útrýmingarstarf-
semi á öllum þeim, sem ekki
þóttu nógu ættgöfugir, svo
mæri Póllands hefir vakið
mikla athygli, en hins vegar
hafa Rússar ekki staðfest hana
opinberlega. Rússar beita ridd-
araliði á þessum slóðum, eink-
um Kósökkum. Vatutin hers-
höfðingi virðist nú stefna að
því, að hrekja Þjóðverja með
öllu úr vésturhluta Ukrafnu.
Nú þegar er meginh'luti járn-
brautanna á öllu svæðinu milli
Korosten og Novograd- Vol-
ynski á valdi Rússa. Þá er einn-
ig mikill hluti járnbrautarinn-
ar milli Berdichev og Brest-
Litovsk í höndum Rússa.
Sumir telja, ,að Vatutin
muni nú freista þess, að rjúfa
brautina frá Odessa til Pól-
lands og væri Þjóðverjum mik-
ilil hnekkir í því.
Norðar á vígstöðvunum, í
Hvíta-Rússlandi, hafa Rússar
enn sótt fram og eru nú í fárra
kílómetra fjarlægð frá borg-
inni Novosokoliniki, sem er
rammlega víggirt og um 20 km
frá Nevel.
Mikill uggur er í almenningi
á Balkan vegna hinnar hröðu
sóiknar Rússa. Hafa rikisstjórn-
ir sumra Balkanníkjanna setið
á fundum. Rússar hafa varað
Finna og Ungverja við afleið-
inguim iþess, að ha'lda áfram
hernaðaraðgerðum í bandalagi
við Þjóðverja.
Þjóðverjar verjast allra frétta
í tilkynningum sínum um töku
Byelya-Tserkov og sókn Rússa
inn yfir pólsku landamærin, en
greina enn sem fyrr frá hörð-
um varnarbardögum og harð-
fengilegri vörn hersveita sinna.
sem Pólverjum, Gyðingum
og Tékkum, sem ómögulega
gátu komið auga á ágæti
hins nýja fyrirkomuags und-
ir forystu hins aríska „úber-
mensch.“ Og Gestapolýður
Himmlers reyndist svo ötull í
starfi sínu við yfirheyrslur og
uppeldisaðferðir sínar, að in-
kvisitorar Filippusar annars
urðu blátt áfram hlálegir í
fáfræði sinni, og þóttu þeir
þó vita lengra en nef þeirra
náði í þeim efnum.
EN HVERNIG er svo umhorfs
í húsinu, sem Hitler byggði
— eftir 11 ár? Því er fljót-
svarað. í nær öllum löndum
eru hlekkjaðir menn, bæði
í andlegum og líkamlegum
skilningi, menn, sem eiga á
bak ástvinum að sjá vegna
Sir Stafford Cripps segir:
1944 verðor ðrslita-
ðrið.
O IR Stafford Cripps, sem
^ hefir yfirumsjón með flug
vélaframleiðslu Breta, hefir á-
varpað verkamenn í flugvéla-
smiðjum. Sagði hann, að Bretar
mættu aldrei missa sjónar á
því, að þeir verði að gjörsigra
Japani, engu síður en Þjóð-
verja, með aðstoð Bandaríkja-
manna, Ástralíumanna og Ný-
sjálendinga. Þá lét ráðherrann
þá trú í ljós, að þetta ár myndi
valda úrslitum í styrjöldinni, ef
menn gerðu skyldu sína.
MacArthur hershöfðingi.
mannvonzku og drottnunar-
stefnu þeirra, sem ætluðu að
stöðva þróun mannsandans
og setja grimmd í stað vin-
samlegrar sambúðar, rétt í
stað óréttar.
EINN HLUTUR er ábyggileg-
ur, þótt ljótt sé umhorfs: —
Það vald, sem nú heldur
miklum hluta íbúa álfunnar
í helgreipum, hlýtur að
hrynja, og hrun þess verður
mikið. Og vera má, að það
verði á því ári, sem nú fer í
hönd, og er það vel farið. —
Minnumst þess, að allir eig-
um við sama tilverurétt,
hverrar þjóðar, sem við er-
um og órétturinn hlýtur að
lúta í lægra haldi fyrir rétti
og drengskap.
.talia:
Harðar árásir Bandarikja
manna á kálnleonverk-
smiðjnr bjá Torino.
FRÁ Ítalíu eru þær fregnir
helztar, að amerísk flug-
virki hafa gert afar harða árás
á kúluleguverksmiðjur í Villa
Perosa, skammt suðvestur af
Torino. Bandaríkjamenn hafa
með þessari árás enn lamað
hergagnaiðnað Þjóðverja, þar
sem talið er, að í verksmiðjum
þessum hafi verið smíðaður um
áttundi hluti alls þess, sem her
Þjóðverja þarfnast af kúluleg-
um.
Aðrar stórar sprengjuflug-
vélar réðust á járnbrautarstöð
og vöruskemmur í Torino. Um
100 sprengjur féllu á árásarstað
inn og umferð um hann stöðv-
aðist með öllu. Samtímis þess-
um árásum, voru gerðar loft-
árásir á hafnarborgirnar Split
og Sibenik á Dalmatíuströnd,
svo og liðssafnað Þjóðverja í
Mið-Júgóslavíu.
Minna kveður að bardögum
á landi, þar sem veðurskilyrði
hafa verið hin óhagstæðustu og
hamlað hernaðaraðgerðum. —
Mest er barizt við Ortona. Á
Adríahafsströnd eru Kanada-
menn tæpa tvo km. frá Arielli
fljótið. í Cairofregn segir, að
þeir hafi brotizt yfir fljótið á
mörgum stöðum um 4 km. frá
mynni þess. Á vígstöðvum 5.
hersins er lítið barizt vegna
hretviðra. Aðallega eigast þar
við njósnaflokkar og framvarða
sveitir.
Frá Kairo berast þær fregnir,
að talsvert beri á því, að Tito
hershöfðinga vaxi fylgi meðal
liðsforingja í her Péturs kon-
ungs. Meðal annars hafa 17
þeirra lýst yfir því opin'ber-
lega, að þeir muni ganga í lið
með Tito.
Japaoir missa tvð taeiti-
skip og einn tnndnr-
spilii á Kjrrrabafi.
AKyrrahafi réðust amerísk-
ar flugvélar úr lofther
MacArthurs á tvö beitiskip
Japana og einn tundurspilli í
Kavieng-höfn á Nýja írlandi.
Eldar kviknuðu í báðum beiti-
skipunum og tundurspillirinn
var laskaður.
Japanskar orrustuflugvélar
réðust á þær amerísku, og tókst
mikil loftorrusta. 11 flugvélar
Japana voru skotnar niður og
fjórar sennilega að auki. Á
Nýju Guineu halda Bandaríkja
menn áfram að bæta aðstöðu
sína á Saidor. — Á Nýja Bret-
landi hafa hermenn úr land-
gönguliði Bandaríkjaflotans enn
sótt fram á Gloucester-höfða
til þorps í um það bil 7 km.
fjarlægð. Öðrum hersveitum
bandamanna hefir einnig orðið
nokkuð ágengt.
Knox, flotamálaráðherra
Bandaríkjanna lýsti yfir því í
gær, að landgangan á Marshall-
eyjum væri aðeins undanfari
mikilla átaka. Þá sagði hann,
að Japanir væri hvarvetna í
varnaraðstöðu á Kyrrahafi.
Knox hefir líka lýst þær
yfirlýsingar Þjóðverja, að þeir
hefðu sökkt 21 tundúrspilli
bandamanna á nokkrum dög-
um, staðlausa stafi. Bandamenn
hafa misst 1 tundurspilli und-
anfarna 11 daga, sagði ráðherr-
ann enn fremur.
HELDUR hefir verið minna
um loftárásir á stöðvar
Þjóðverja. í .Þýzkalandi. og
Vestur-Evrópu undangengin
dægur. Ráðist var á ýmsa staði
á Frakklandsströndum, sér í
liagi í grennd við Calais, svo og
staði í Niðurlöndum. Það voru
amerískar flugvélar af Marau-
der-gerð, sem réðust á Calais-
svæðið í gærmorgun.