Alþýðublaðið - 05.01.1944, Qupperneq 7
1!
Miðvikudagux 5. janúar 1944.
®®®®<®0®0®<><®<>®<><3>®®®<><í>®<í><3><>®«
ÍBœrinn í dag*|
*^<^>®<>®<3K&<3>^<^®®<^<2KÍ><>&<j>®®®®®<!
Næturlæknir er í Læknavarð—
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegs-
apóteki.
ÚTVARPIÐ:
112.lð(—13.00! Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 íslenzkukennsla. 1. fl.
19.00 Þýzkukennsla, 2. fl.
19.25 Hljómplötur: Söngvar úr ó-
perum.
19.40 Ávarp um 60 ára afmæli
góðtemplarareglunnar á ís
landi (Pétur Sigurðsson er-
indreki).
20.00. Fréttir.
20.30 Kvöldvaka: a) Sverrir
KJristjánsson sagnfræðing-
ur: Stjórnarskráin 5. jan.
— Erindi. b) 21.05 Bene-
dikt Sveinsson bókavörður:
Um Skúla Thoroddsen (f.
6. jan. 1859); 85 ára minn-
ing. — Erindi. c) Söngur:
Tvöfaldur kvartett karla.
20.50 Fréttir.
Leikfélag Keykjavíkur
sýnir „Vopn guðanna“, eftir
Davíð Stefánsson, kl. 8 í kvöld.
Aðgöngumiðasalan er opin frá kl.
2 í dag.
Minningarguðsþjónusta.
í dag gangast íþróttasamband
íslands, Knattspyrnufélag Reykja-
víkur og Knattspyrnufélagið Vík-
ingur fyrir minningarguðsþjón-
ustu um þá Anton B. Björnsson
og Hreiðar Þ. Jónsson, sem fór-
ust með vélbátnum ,,Hilmi“, en
þeir voru báðir ágætir íþrótta-
menn. Mininingarguðsjþ;jónu,stan
fer fram í dómkirkjunni, og hefst
kl. 2 e. h. séra Bjarni Jónsson
flytur minningarræðuna.
Flöskumjólkin hækkar.
Mjólk í flöskum hefir aftur ver-
ið hækkuð í verði. í maí s.l. var
ákveðið að öll mjólk skyldi seld
sama verði, en þessu var breytt nú
um áramótin. Kostar flöskumjólk
nú kr. 1.35.
Bálför Ingvars . Guðjónssonar.
Frá Edinborough Crematorium
hefir borizt tilkynning um, að bál-
för Ingvars Guðjónssonar, út-
gerðarmanns, hafi farið fram þ. 29.
desember.
1460 Mbíirí stolið
úr hlléðféraverzL
Lækjargito l.
IFYRRINÓTT var framið
innbrot í hljóðfæraverzl-
un Sigríðar Helgadóttur, Lækj-
argötu 2, og stolið þaðan um
1400 krónum í peningum. Inn-
brotið hafði verið framið með
þeim hætti, að farið hafði verið
inn um glugga á bakhlið húss-
ins.
ST. EININGIN nr. 14. Fundur
ikl. 8 s.d. í dag. Inntaka. Afmæl
jsfundur. Kaffisamsæti. Dans.
Aðgöngumiðar afhentir frá kl.
4 fyrir stúkufélaga, gesti þeirra
og aðra templara.
FREYJUFUNDUR í kvöld kl.
8,30 í G.-T.-húsinu, uppi.
Inntaka nýliða.
Br. Helgi Sveinsson: Ára-
mótahugleiðingar.
Br. Pétur Pétursson: Fram-
haldssagan, sögulok.
Fjölmennið stundvíslega með
marga innsækjendur.
Æðstitemplar.
firæanetisverzlanÍB
og Aborðareinke -
salan tjðifstæðar
stofnanir.
Árni 6 Eylands hættir síörf-
im. Jón ívarson tekur við
Grænmetisverziunianl.
Atvinnumálaráðu-
NEYTIÐ • hef ir breytt
rekstri grænmetisverzlunarinn
ar og Áburðarsölunnar. Hefir
Samband íslenzkra samvinnu-
félaga rekið þessar stofnanir,
en Árni G. Eylands verið for-
stöðumaður þeirra. Grænmetis
verzlunin hefir verið gerð að
sjálfstæðri stofnun, og Jón
ívarsson, fyrrverandi kaupfé-
lagsstjóri að Höfn í Hornafirði
verið ráðinn forstöðumaður
hennar. Árna G. Eylands hefir
verið sagt upp starfi.
Enn er ekki kunnugt um,
hvernig Áburðarsalan verður
rekin.
Sbattstjðraembættisi
veiða elfei veitt að
svo stiddn.
EINS • OG KUNNUGT ER,
ákvað ríkisstjórnin fyrir
áramótin að stofna sérstök
skattstjóraembætti í kaupstöð-
unum Hafnarfirði, Vestmanna-
eyjum, Akureyri og ísafirði.
Þessar nýju stöðvar voru
auglýstar til umsóknar og var
umsóknarfrestur útrunninn 1.
þessa mánaðar.
Allmargir sóttu um stöðurn-
ar. en samkvæmt upþlýsingum,
sem Alþýðublaðið fékk í gær
í fjármálaráðuneytinu, verða
embættin ekki veitt að svo
komnu.
Ný mpd frð fait
Disnejr sýad innan
sbamms.
Myndin nm Bambi, litla skós
arhjðrtinn.
GAMLA BÍÓ bauð blaða-
mönnum í gær að sjá nýja
Walt Disney teiknimynd, sem
það hefir fengið til sýningar.
Walt Disney er fyrir löngu orð-
inn heimsfrægur fyrir teikni-
myndir sínar —- og þó mun
,,Fantasia“, teiknimyndin, sem
síðast var sýnd hér við meiri að
sókn en nokkur önnur kvik-
mynd, hafa aukið mest á frægð
hans.
Þessi nýja teiknimynd er
gerð eftir sögunni um ,,Bambi“,
litla skógarhjörtinn, en sú saga
hefir náð geysilega miklum
vinsældum í Vesturheimi og
hvað eftir annað verið gefin út.
Þetta er ákaflega vel gerð
mynd. Hún lýsir skógarlífi
dýranna, en þó fyrst og fremst
lífi unga hjartarins, sem vakn-
ar til lífsins við hlið móður
sinnar, umkringdur af fuglun-
um, sem skoða hann í krók og
kring og árna móður hans allra
heilla með soninn. Sýnt er
hvernig farið er að því að
kenna honum að ganga og tala
og síðan uppeldi hans og bar-
átta hans fyrir lífinu, hætturn-
ar, sem að steðja frá mannin-
um, sorgum hans og gleði og
vaknandi ást.
Myndin er gullfalleg, eins og
sagan og mun verða sýnd inn-
an skamms.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
OKKUR KR-inga setti hljóða
við þá harmafregn, að An-
ton Björnisison hefði verið far-
þegi á véibátnum Hilmi, sem
fórst á Faxaflóa aðfararnótt 26.
nóv. síðastl. Oft hefir dauðinn
höggvið í hóp vina og vanda-
manna, en sjaldan hefir hel-
fregn snortið oss eins djúpt og
þessi. Af Antoni höfðum við
vænzt mikilla afneka fyrir mál-
efni vort, en grimrn forlög hafa
nú snúið rás- viðburðanna.
Anton var kornungur er hann
tók að iðka íþróttir, Var hann
mjög áhugasamur og stundvís
og flestum til fyrirmyndar í því
efni. Lagði hann aðallega stund
á fimieika og frjálsar íþróttir
og var löngu íandskunnur fyrir
afrek í þessum íþróttagreinum.
í fimleikum hefir hann um
fjölda ára skeið verið bezti mað
ur K.R. og sumir héldu því fram
að hann væri snjallasti fimleika
maður landsins, en aldrei f'ékkst
úr því :skorið„ því miður. í frjáls
um íþróttum var hann allra ís-
lendinga fjölhæfastur og það
sem meira var um vert, stíllinn
var í öllum greinum svo ágætur,
að allir dáðust að, jafnt félagar
hans sem andstæðingar á hinum
íþróttálega vettvangi.
Anton var þrúðmenni í hví-
vetna og stilltur hversdagslega,
en þó hinn glaðasti í vinahóp.
Hann var allra manna hjálp-
samastur og áttu bvrjendur á
æfingavellinum hauk í horni
þar sem hann var, qg hafa sumir
■beztu íþróttamenn okkar fengið
-fyrstu tilsögnina hjá honum,
enda var hann alltaf boðinn og
búinn til að leiðbeina ef til hans
var leitað. Hann var mjög rétt-
sýnn og mátti ekki vamm sitt
vita, og voru því verstu keppi-
nautar harís á leiikvellinum um
leið beztu vinir hans.
Anton hét fullu nafni Anton
Björn, og var sonur Björns
Jónissonar skipstjóra úr Ána-
naustum og feonu hans, Önnu
Pálsdóttur. Hann var fæddur 6.
júní 1921 og því aðeins 22ja ára,
er hann hvarf svo sviplega fyrir
aldur fram. Anton var bakara-
isveinn, að iðn, en hvarf frá því
starfi á næstliðnu hausti og fór
á íþróttakennaraskólann á Laug
arvatni, til að helga líf sitt mesta
hugðarefni sínu fyrr og síðar —
íþróttunum. Hann útskrifaðist
þaðan á síðastiliðnu vori og tók
þegar í haust að kenna á vegurn
íþróttasamibands íslands. Anton
var einmitt að ferðast á vegum
sambandsins er dauðann bar að.
Stjórn sambandsinis var mjög á-
nægð með störf Antons og er
ekki að efa, að hann hefði unnið
íþróttunum mikið gagn sem
íþróttakennari, ef honum hefði
orðið lengri aldurs auðið.
Anton er öllum vinum hans
og kunningjum mikill harm-
dauði og íþróttunum er
missir þessa efnilega kennara
lítt bær. En sárust er þó sorg
foreldranna og annarra ástvina,
sem vérða á bak að sj á góðum
og mannvænlegum dreng, sem
við voru tengdar glæstar vonir.
Konan mín, móðir okkar og tengdamóðir
Steinunn IViargrét Þorsteinsdóttir,
andaðist aðfaranótt 4. þ. m.
Guðjón Björnsson.
Guðmundur Guðjónsson. Þorsteinn Guðjónsson.
Anna María Gísladóttir.
Hér með tilkynnist ættingjum og vinum, að systir okkar
Siguriaug (Silia) Þórðardóttir,
andaðist í Kaupmannahöfn 24. desember s. 1.
Friðlín Þórðardóttir. Sigursteinn Þórðarson. Axel Þórðarson.
Sara Þórðardóttir. Ingiríður Þórðardóttir. Ingvar Þórðarson.
liueislustólka
óskast nú þegar í Vefnaðarvöruverzlun.
Tilboð sendist blaðinu merkt „Lipur“ á-
samt mynd fyrir föstudagskvöld.
En bjartar minningar og hreinar
munu verða ástvinum hans
huggun í hinum mikla harmi.
Anton Björnsson. Við vinir
þínir og fólagar í K. R. söknum
þín isárt og fáum seint bætt þann
missi, sem við urðum fyrir, er
þú hvarfst okkur sjónum. Þótt
dagur þinn hafi ekki orðið lang-
ur, var hann þó heiður og bjart-
ur og mun lengi lifa í minning
um vorum. Við hrósum happi
yfir að hafa kynnzt þér og að
hafa verið vinir þínir. Við þökk
um þér fyrir það, sem þú gerðir
fyrir málefni vort — og það,
sem þú ætlaðir að gera. -—
Ef íþróttirnar eignast marga
dygga og trúa þjóna á borð við,
þig, er þeim visisuilega borgið.
Vertu sæll, vinur þa-kka þér
fyrir samveruna.
Sigurður S. Ólafsson.
Sfeaðabótafflði Islend
!o®a og setHliösins.
Frh. af 2. síðu.
ar um. Hefir nefndin gert tillög
ur til herstjprnarinnar um
greiðslu bóta.
Mál þau, er herstjórnin hefir
lagt fyrir nefndina hafa verið
margs konar en langmest kveð
ið að bifreiðatjónum.
íslenzki hluti nefndarinnar
hefir í tillögum sínum ávallt
farið eftir íslenzkum réttar-
reglum og venjum, en auk þess
hefir hann og skrifstofa saka-
dómara leiðbeint fólki, sem eft-
ir hefir leitað, um að koma kröf
um sínum á framfæri við her-
stjórnina á réttan hátt.
Með bréfi, dags. 3. nóv, sl.,
skipaði dómsmálaráðuneytið ís-
lenzka nefndarhlutann til að
vera fulltrúum herstjórnarinn-
ar til ráðuneytis vegna skaða-
bótakrafna út úr hinum alvar-
legu slysatilfellum, er orðið
hafa (svo sem mannsláta af
völdum skotvopna). Hefir
nefndin þegar afgreitt frá sér
eitt slíkt mál, er hefir verið
sent til stjórnar Bandaríkjanna
í Washington.
Mál þau, er komið hafa fyrir
nefndina hefir oft verið örðugt
að upplýsa, einkum bifreiða-
slysin. Hefir nefndin í starfi
sínu jafnan stuðzt bæðP við
rannsóknir íslenzku lögreglunn
ar og hernaðaryfirvaldanna,
svo og myndir, uppdrætti og
aðrar athuganir staðhátta. Kem
ur það mjög oft fyrir, að skýrsl-
um beri ekki saman. Óskar
nefndin að hvetja bifreiða-
stjóra til þess, er þeir verða
fyrir ökuslysi, að tryggja sér
öll þau sönnunargögn, sem föng
eru á og m. a. taka upp nöfn
allra fáanlegra vitna.
Þá skýrði íslenzki nefndar-
hlutinn frá því, að samstarfið í
nefndinni hefði alltaf verið hið
ákjósanlegasta, og tók Roberts
liðsforingi undir það. Sagði
hann enn fremur, að herstjórn-
in legði mikla áherzlu á, að
leysa hvert mál á sem réttastan
og sanngjarnastan hátt.
K.F.D.M. á ísiandi
45 ára gimaií.
ASÍNAN þessa mánaðar var
K. F. U. M., hér á landi,
45 ára. Þá um kvöldið var af-
mælið haldið hátíðlegt í húsi
félagsins.
Starfsemi K. F. U. M. er mjög
víðtæk, og starfa í félaginu
menn á næstum öllum aldurs-
skeiðum:
Félagið rekur eins og kunn-
ugt er, kvöldskóla, og hefir gert
það í fjölda mörg ár. Er hann
vel sóttur. — Á annað þúsund
manns sækja samkomur félags-
ins vikulega.
léfir, sem stal frá
sofandi mðnnnn
haidtekino I gær.
EINS OG skýrt var frá í
blaðinu í gær, var stolið
peningum frá tveimur sofandi
mönnum, sem sváfu sinn í
hvoru herbergi í sama húsi.
Var stolið um 60 krónum frá
ö.ðrum, og vasaúri hans, og um
170 ltrónum frá hinum.
Rannsóknarlögreglan hefir
nú haft upp á manni þeim, sem
framdi þennan þjófnað. Er
hann um tvítugsaldur, og hefír
áður gerzt brotlegur.